Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 9 Utlönd Eyðslusjúklingar þurfa ekki að örvænta þótt jólin séu í nánd VANTAR SKAPARYMI? riTA AT f rrn\ / 185 cm- SERVERSIUN AAEÐ INNRETTINGAR OG STIGA NÝBÝLAVEGI 12, SÍMI44011- PÓSTHÓLF 167, 200 KÓPAVOGI Auglýsing um starfslaun listamanna árið 1995 Starfslaun handa listamönnum Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa listamönnum árið 1995, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991. Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.: 1. Launasjóði rithöfunda. 2. Launasjóði myndlistarmanna. 3. Tónskáldasjóði. 4. Listasjóði. Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listamannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16.00 mánudaginn 16. janúar 1995. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna" og tilgreina þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneyt- inu. Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í sam- ræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991. Reykjavík, 7. nóvember 1994 Stjórn listamannalauna lögbrot Douglas Hurd, utanrík- isráðherra Bretlands, vís- aði á bug kröf- um um afsögn í gær þótt hæsti- réttur landsins hefði úrskurð- að að hann hefði brotið lög þegar hann heimilaði aðstoö við bygg- ingu umdeildrar stíflu í Malasiu. Daginn áður úrskurðaði annar dómstóll að Michael Howard inn- anríkisráðherra hefði einníg brotíð lög þegar hann skar niður fébætur til fómarlamba glæpa. Úrskurðir þessir eru mikið áfall fyrir stjórn Johns Majors sem hefur átt í vök að verjast vegna aUs kyns kynlifshneyksla að und- anfórnu. „Þessi ríkisstjóm hefur verið of lengi viö völd,“ sagði Robin Cook, talsmaður Verkamanna- flokksins í utanríkismálum, eftir dómsúrskurðinn i gær. Þótt Hurd ætli ekki að segja af sér sagði hann að úrskurðurinn yrðitekinnalvarlega. Reuter Kirsten Dunst er 12 ára gömul og upprennandi barnastjarna i Bandaríkjun- um. Kirsten hefur ástæðu til að brosa breitt því hún hefur nýlokið við að leika á móti sjálfum stórleikaranum Tom Cruise í myndinni Samtöl við blóð- suguna. Myndin var forsýnd i Hollywood nú í vikunni og fer senn á almenn- an markað. Simamynd Reuter Kastaði nýfæddu barni sínu í ruslið - bjargað á síðustu stundu úr ruslapressu „Húsvörðurinn setti ruslapress- una í gang en slökkti á henni strax aftur því hann taldi sig heyra barns- grát,“ segir talsmaöur lögreglunnar í Bronx í New York um giftusamlega björgun nýfædds piltbams í gær. Við lá að drengnum væri kastað á haug- ana eftir að móðir hans ákvað að bera hann út. Móðirin vafði son sinn í handklæði og setti strangann í plastpoka. Enn er óráðið hvaö gert verður í máli hennar. Drengurinn er nú á sjúkrahúsi. Hann var orðinn kaldur og hrakinn í ruslinu en læknar segja að hann muni lifa raunina af. Að sögn lögregl- unnar var drengurinn aðeins fárra klukkustunda gamall þegar honum var lient í ruslið. Líklegast er að hon- um hafi verið kastað þegar eftir fæð- inguna. Reuter Hver kannast ekki við þessa sjúk- legu þörf að opna seðlaveskið sitt upp á gátt og eyða og eyða, einkum síð- ustu dagana og vikurnar fyrir jól þegar kaupmenn lokka okkur til sín með ótrúlegum kostaboðum? Sumir eru veikari fyrir en aörir og standast alls skki freistingarnar, með tilheyr- andi háum greiðslukortareikningum og kannski einhverju þaðan af verra, svo sem innstæðulausum ávísunum og gjaldþroti. Þeir þurfa þó ekki að örvænta lengur því hægt er að lækna menn af kaupsýkinni. „Árangurinn er framúrskarandi," sagði Donald Black, geðlæknir við læknaháskólann í Iowa í Bandaríkj- unum, í viðtali viö tímaritið New Scientist. Hann hefur nefnilega kom- ist að því að þunglyndislyfið fluvox- amine slær duglega á verslunarár- áttuna. Donald Black gerði tilraun þar sem sjö manns með sjúklegt kaupæði tóku áðumefnt lyf í átta vikur. Ár- angurinn lét ekki á sér standa. Kaup- sýkin minnkaði til mikilla muna en um leið og tilraunadýrin hættu að taka lyfið fóru einkennin að láta aft- ur á sér kræla. Eini karlmaðurinn í tilraunahópn- úm minnkaði t.d. fatakaup sín úr 200 dollurum á viku í tuttugu dollara. Þá fóra sumar konumar aðeins einu sinni í viku í innkaupaferðir í stað þess að fara á hverjum degi áður. Annar geðlæknir, Susan McElroy við háskólann í Cincinnati, fékk svip- aða niðurstöðu með að prófa önnur þunglyndislyf gegn kaupsýkinni. Donald Black sagði að lyfjameðferö við innkaupasýki væri þó sjaldnast við hæfi. „Við eyðum öll um efni fram ein- staka sinnum. En flestir þeirra sem hafa aðeins væg einkenni geta tekið skynsamlegum ráðum, eins og að klippa greiðslukortin sín í sundur," sagði Donald Black. IRA hafnar ábyrgð á morði írski lýðveldisherinn (IRA) vísaði því á bug að hann bæri ábyrgð á tveimur mönnum sem drápu starfs- mann póstþjónustunnar í misheppn- aöri tilraun til ráns í gær. Grunur leikur á að mennirnir tilheyri IRA. írska stjórnin hefur frestað lausn IRA-fanga vegna þessa. í yfirlýsingu sem ERA sendi frá sér sagði að vopnahléið frá 31. ágúst í sumar væri enn í fullu gildi. Reuter • Ný fataskápalína, sem nýtir plássið fullkomlega. • Nýtt hurðakerfi á hjólabraut í gólfi. • Margvíslegt útlit og speglar. • Hver skápur er sniðinn eftir máli án aukakostnaðar fýrir kaupanda. • Mældu rýmið sem þú hefur til ráðstöfunar og komdu til að fá tilboð í nýjan fataskáp. • Þú getur einnig fengið nýjar hurðir fyrir gamla skápinn, athugaðu það. Nýtt hurðakerfi - Þetta erí boði: 250 cm ótal möguleikar Kaupsýkin læknuð með þunglyndislyfi - einkennin koma aftur um leið og lyfíatökunni er hætt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.