Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 Fréttir Myndlyklaverkefni Islenska útvarpsfélagsins: Iðnlánasjóður lofar Stöð tvö 250 milljónum - tölvubúnaöur og afruglarar líklegir sem veð „Viö erum meö lánsloforð frá Iðn- lánasjóði upp á 250 milljónir en það er ekki komið að frágangi á þessu. Við höfum getað fjármagnað þessi myndlyklakaup á ódýrari hátt á markaðnum þannig að við erum bara að bíða. Við munum hins vegar nýta okkur þessa lánsheimild innan tveggja mánaða," segir Jafet Ólafs- son, framkvæmdastjóri íslenska út- varpsfélagsins. Eins og kunnugt er hefur íslenska útvarpsfélagið unnið að því undan- farið að skipta út gömlum myndlykl- um fyrir nýja um leið og nýju tölvu- kerfi, sem ruglar útsendinguna, hef- ur verið komið upp. Breytingarnar hafa verið kostnaðarsamar en fyrir- tækið hingað til getað fjármagnað þær af eigin rekstrarfé og skamm- tímalánum. Slíkt sé ekki dýrt miðað við stöðuna á lánamarkaðnum í dag. „Það á eftir að ganga frá því hvern- ig veðinu verður háttað, hvort það verður í myndlyklunum eða öðru,“ segir Jafet og bætir því við að um trygg veð verði að ræða þar sem er allt kerfið. Án þess geri sjónvarps- stöðin ekkert og auk þess stundi út- varpsfélagið ákveðinn iðnað með innlendri dagskrárgerö. Bragi Hannesson, framkvæmda- stjóri Iðnlánasjóðs, neitaði að tjá sig um þetta einstaka mál en sagði að um áramótin hefðu gengiö í gildi ný lög um lánastofnanir og þau lög giltu um Iðnlánasjóð samhliða eldri sér- lögum.um sjóðinn. Með löggjöfmni væri ísland að framfylgja samn- ingsákvæðum sem tengdust aðild landsins að Evrópska efnahagssvæð- inu. Segir Bragi að ein helsta breyt- ing sem orðið hafi á starfsemi sjóðs- ins sé sú að Iðnlánasjóður haíi nú heimild til þess að færa starfsemi sína út á nýjar brautir og lána til hvers konar atvinnustarfsemi. Hann sagði að það sama gilti um öll útlán sjóðsins. Gengið væri úr skugga um að þau veð sem sett væru fyrir lánum væru trygg. Vangaveltur um tilgang opinberra lánasjóða: Iðnlánasjóður orðinn almenn lánastofnun - segir skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu Finnur Sveinbjömsson, skrifstofu- stjóri í viðskiptaráðuneytinu, segir, aðspurður um hvort eðlilegt geti tal- ist að Iðnlánasjóður láni íslenska útvarpsfélaginu 250 milljónir til af- ruglarakaupa, að hver og einn verði að svara slíku fyrir sjálfan sig. Spurning sé hvort það sé eitthvað verra eða betra en að Landsbankinn geri það. Sjóðurinn sé í raun orðinn almenn lánastofnun nema hvað hann megi ekki taka við innlánum. - Þjónar Iðnlánasjóður þá einhverj- um tilgangi sem slíkur ef honum er ekki ætlað að lána til iðnaðarstarf- semi? Höfum við ekki nóg af lána- stofnunum sem gegna sama hlut- verki? „Það er í sjálfu sér rétt að við höf- um nóg af lánastofnunum sem þjóna þessu hlutverki. Það hlýtur að koma til rækilegrar skoðunar í nánustu framtíð, þegar margir lánasjóðir í eigu hins opinbera eru farnir að starfa sem almennar lánastofnanir, með sömu starfsemi og bankar og sparisjóðir, hvort þörf sé á öllum þessum opinberu lánasjóðum og hvort ekki þurfi að sameina þá. Rík- ið hlýtur að taka það til alvarlegrar skoðunar hvort ekki megi á einhvern hátt fækka þeim,“ segir Finnur. Aldraðir flugmenn krefl ast gerðardóms vegna skertra kj ara: Þetta er andstyggilegt mál „Þetta er andstyggilegt mál og þaö er óbragð í munni margra út af þessu. Við trúðum því ekki fyrr en á reyndi að þessir starfandi flug- menn í dag myndu koma svona fram við elstu mennina. Menn vildu ekki trúa því að það ætti aö taka okkur svona í gegn,“ segir Jóhannes R. Snorrason, fyrrver- andi flugstjóri, sem nú er eftirla- unaþegi. Jóhannes er þama að vitna til þess að samkvæmt ákvörð- un Eftirlaunasjóðs flugmanna er búið að skerða kjör eftirlaunaþega um allt að 45 prósent. Jóhannes er ásamt 55 öðrum flugmönnum, bæði starfandi sem og eftirlaunaþegum, með kröfu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um að skipaður verði gerðardómur vegna þessa máls. „Við elstu mennirnir förum verst út úr þessu og við erum mennimir sem stofnuðum bæði Félag ís- lenskra atvinnuflugmanna og líf- eyrissjóðinn. Það var að vísu gerð nafnbreyting á lífeyrissjóðnum ár- ið 1974 þar sem hann fékk nafnið Eftirlaunasjóður flugmanna. Hann átti að þjóna sama tilgangi - að tryggja mönnum lífeyri við starfs- - segir Jóhannes R. Snorrason, fyrrverandi flugstjóri Jóhannes Snorrason, fyrrverandi flugstjóri, og félagar hans krefjast þess að skipaður verði gerðardómur vegna skerðingar á eftirlaunum þeirra frá Eftirlaunasjóði flugmanna. DV-mynd GVA lok. Við borguðum í þennan sjóð alla tíð mikinn hluta launa okkar eða 20 prósent lengst af. Við treyst- um því að þegar þar að kæmi gæt- um við lifað þokkalegu lífi,“ segir Jóhannes. Jóhannes segir að þegar sjóður- inn breytti um nafn hafi mönnum verið úthlutað svokölluðum skil- orðsbundnum stigum sem áttu að halda sínu fulla verðgildi. Stjórn hins nýja sjóðs og stjórn FÍA hafi verið falið að tryggja tekjustofna til að hann gæti staðið undir skuld- bindingum. „Síðar var það viðkvæði ungu mannanna að við hefðum fengið svo hagkvæm óverðtryggð lán úr sjóðnum fyrr á árum. Þeir sáu of- sjónum yfir þeim tveimur prósent- um sem þeir greiddu og áttu að standa undir greiöslum til okkar. Þeir kipptu þeim því út og vildu fá það í sinn vasa. Þeir gleyma því þó að 1974 til 1979 var sjóðurinn óverö- tryggður og það eru enn fljúgandi menn sem jusu út óverðtryggðum lánum til húsbygginga og íbúðar- kaupa. Það er því ekki við okkur eina að sakast,“segir Jóhannes. Hann segir að þegar hann hætti að fljúga í kringum 1980 hafi hann átt réttindi til launa sem samsvara 50 prósentum af launum flugstjóra. Síðan hafi allir verið skertir um 10 prósent. Enn meiri skerðing hafi síðan dunið yfir þegar samþykkt var að taka 2 prósentin út. „Okkar laun voru skert um 60 prósent. í staðinn fyrir þau 25 stig sem ég átti á ég núna 11 stig. Það þýðir að mín eftirlaun ættu að vera um 20 prósent af launum flugstjóra og þætti einhverjum lítið. Við höf- um að vísu fengið smávægilega uppbót eða leiðréttingu þannig að við höldum 65 prósentum af fyrri réttindum. Þaö er þó óljóst hvað sú leiörétting stendur lengi. Þegar menn sáu svart á hvítu hvað var að gerast þarna tóku 55 flugmenn sig saman um að beijast gegn þess- ari aðfor að elstu mönnunum. Það er ekki svo að það séu ekki til íjár- munir til að standa við skuldbind- ingar gagnvart okkur. Sjóðurinn á milljarða og þetta ástand er á ábyrgð allra flugmanna innan FÍA,“ segir Jóhannes.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.