Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Page 11
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 11 v_______________________________Meiming Ásgeir Lárusson 111 og Ófeigi: Svipir og tilraunamálverk Það er orðið ekki óalgengt að menn sýni á tveimur stöðum í einu, líkt og Hringur gerir núna, en það hlýt- ur að vera met að halda þrjár einkasýningar samtímis, jafnvel þótt sýningarstaðirnif séu smáir. Þetta hefur Ásgeir Lárusson nú gert og hafa verk hans verið til sýnis í 11 og Ófeigi við Skólavörðu- stig, jafnframt því sem verk hans hafa skreytt veitingastaðinn 22 við Laugaveg eins og áður hefur komið fram hér í blaðinu. í Ófegi og Gall- eríi 11 er að finna fjölbreyttar myndir, auk þess sem Ásgeir hefur gefið út Ijóðahefti sem eykur enn á fjölbreytnina. Myndirnar í Ófeigi eru málverk sem virðist þó ætlað að vera eins konar and-málverk - að vinna gegn viðteknum hug- myndum okkar um það hvaö mál- verk séu, hvemig listamönnum beri að vinna þau og áhorfendum að skoða þau. Málverkin eru hvorki myndræn né í raun af- strakt, heldur líkjast -þau einna helst veggskúlptúrum sem eins og fyrir tilviljun hafa verið unnin með málningu. En það er á sýningunni í 11 að Ásgeir setur fram umfangs- meiri verkin. Þar eru mannamynd- ir líkar þeim sem hann sýnir á Tuttugu og tveimur - dökkar myndir sem eru unnar þannig að lit er makað á dúk og hann svo tek- inn upp með tusku svo að myndin Frá sýningu Ásgeirs Lárussonr. Myndlist Jón Proppé verður eins og negatífa eða öfug skuggamynd. Fólkið í þessum myndum er eins og svipir framlið- inna eða sýnir í rökkri 'og inntak myndanna virðist oft nálgast mys- tísk eða trúarleg temu. Með því að raða saman mörgum slíkum mynd- um nær Ásgeir að vekja þá tilfinn- ingu með áhorfandanum að hann sé að skyggnast inn í hulda veröld sem margir byggja. Það er ekki ósvipað því að lesa stakt blað úr glötuðu sagnahandriti. í innra her- berginu í 11 eru hexagröm sem Ásgeir hefur fundið með hinni fomu kínversku spádómsaðferð I- Ching. Hexagrömin em svör vé- Charlie Lang (Nicholas Cage) er hér að fara að tilkynna Yvonne Biasi að hún fái helminginn af lottóvinningnum. Stjömubíó - Það gæti hent þig: ★★ Ef na skal loforð Það gæti hent þig (It Could Happen to You) er róman- tísk skemmtun, nógu nálægt raunvemleikanum til þess að nafn myndarinnar geti staðist og óhætt að segja að myndin veitir áhorfandanum vissa vellíðan. Formúlan er það sem þeir kunna í Hollywood og gera manna best. Þegar aftur á móti er að gáð er sagan ósköp þunn og tilgerðarleg en slíkir smámunir eru faldir á bak við gáskafulla skemmtun og barnslega trú á kærleikann gagnvart náunganum. Nicolas Cage leikur lögregluþjóninn Charlie Lang. Hann er heiðarleikinn uppmálaöur og hefur gaman af vinnu sinni. Hann er ekki haldinn neinum dag- draumum, ólíkt eiginkonu sinni, Muriel, hárgreiðslu- konu, sem skammast út í allt og aUa og telur sig ekki búa í nógu fínu hverfu. Það er Muriel, sem biður eiginmann sinn að kaupa lottómiða með vissum tölum sem hafa birst henni í draumi. Áhuginn hjá Charlie er ekki meiri en svo að hann fer með rangar tölur. Sama dag fer hann á kaffi- stofu og hittir þar fyrir gengilbeinuna Yvonne, sem er nýkomin úr dómshúsinu þar sem hún vp gerð gjaldþrota vegna framtakssemi eiginmanns síns. Hún er skiljanlega ekki í sem bestu skapi þegar Charlie býður henni helmingshlut í lottóvinningi ef svo ólík- lega vildi til að hann fengi vinning þar sem hann á ekki fyrir þjórfé handa henni. Þegar svo sá stóri kemur á miðann hjá Lang-hjónun- um brjálast Muriel þegar Charlie segist ætla að skipta vinningnum á milli þeirra og gengilbeinunar. Fram- haldið er á viö nútíma Öskubuskuævintýri og í lokin fá allir það sem þeir verðskulda. Það gæti hent þig gengur ágætlega upp og mörg atr- iði eru bæði fyndin og ágætlega gerð, en það vantar Kvikmyndir Hilmar Karlsson einhvern brodd í söguna þegar fer að líða á myndina. Það á samt ekki við um leik Rosie Perez sem vex ás- meginn eftir því sem líður á myndina og sýnir enn eina ferðina að það fer henni einstaklega vel að leika óþolandi kvensniftir. Það má segja að myndin gangi nokkurn veginn upp þar til betlarinn hendir af sér grímunni; reynist vera þekktur ljósmyndari og kemur elskendunum til hjálpar meö söfnunarátaki. Þama er farið gróflega yfir strikið aðeins til þess að fá sykursæt- an endi á myndina. Það gæti hent þig (It Could Happen to You) Leikstjóri: Andrew Bergman. Handrit: Jana Anderson. Kvikmyndun: Caleb Deschanel. Tónlist: Carter Burwell. Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Bridget Fonda, Rosie Perez og Wendell Plerce. fréttarinnar viö spumingum lista- mannsins; spurningum á borð við þessar: „Hver er staða íslenskrar myndlistar?", „Hvað er guð?“, „Hver er framtíð sjávarútvegs á íslandi?" Ásgeir lætur sér nægja að hengja sjálf hexagrömin á vegg- ina og rýfur þau þannig úr sam- hengi við spurningarnar og spá- dóminn - gerir þau að myndfist. Þeir sem vilja kafa nánar í framtíð sjávarútvegsins verða því að taka eintak af spádómsbókinni með sér á sýninguna. Ásgeir er listamaður sem leitar víða og virðist frekar vilja hrinda hugdettum sínum strax í framkvæmd en liggja með þær lengi í höfðinu. Engu að síður virðast mannamyndirnar á Tutt- ugu og tveimur og 11 benda til þess að eitthvert sterkara samhengi sé að gerjast í listsköpun hans. Það á fiklega næsta sýningarþrenna eftir að leiða í ljós. Kvöldverðartilboð 11/11-17/11 * Hunangslegin graflaxrós með kavíartvennu og sítrónudillsósu * Rósasteiktur lambavöövi í jurtahjúp með eplasalati og camembertsósu * Heimalöguö sítrónuterta meö melónukúlum og jaröarberjasósu Kr. 1.950 Opið í hádeginu mánud.-föstud. Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud. Nýr spennandi a la carte matseðill Borðapantanir í síma 88 99 67 fÆÆÆIIÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆIÆÆÆÆÆÆÆÆÆA JÓLAGJAFA- HANDBÓK 1994 Miðvikudaginn 7. desember mun hin árlega jóla- gjafahandbók DV koma út í 14. sinn. Jólagjafahandbók DV hefur orðið æ ríkari þáttur í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar að finna hundruð hugmynda að gjöfum fyrir jólin. Skilafrestur auglýsinga er til 25. nóvember en með tilliti til reynsiu undanfarinna ára er auglýsendum bent á að hafa samband við Selmu Rut Magnús- dóttur eða Ragnar Sigurjónsson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 632700 svo að unnt reynist að veita öllum sem besta þjónustu. ATH.! Bréfsími okkar er 63 27 27.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.