Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Síða 11
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
11
v_______________________________Meiming
Ásgeir Lárusson 111 og Ófeigi:
Svipir og tilraunamálverk
Það er orðið ekki óalgengt að menn
sýni á tveimur stöðum í einu, líkt
og Hringur gerir núna, en það hlýt-
ur að vera met að halda þrjár
einkasýningar samtímis, jafnvel
þótt sýningarstaðirnif séu smáir.
Þetta hefur Ásgeir Lárusson nú
gert og hafa verk hans verið til
sýnis í 11 og Ófeigi við Skólavörðu-
stig, jafnframt því sem verk hans
hafa skreytt veitingastaðinn 22 við
Laugaveg eins og áður hefur komið
fram hér í blaðinu. í Ófegi og Gall-
eríi 11 er að finna fjölbreyttar
myndir, auk þess sem Ásgeir hefur
gefið út Ijóðahefti sem eykur enn á
fjölbreytnina. Myndirnar í Ófeigi
eru málverk sem virðist þó ætlað
að vera eins konar and-málverk -
að vinna gegn viðteknum hug-
myndum okkar um það hvaö mál-
verk séu, hvemig listamönnum
beri að vinna þau og áhorfendum
að skoða þau. Málverkin eru
hvorki myndræn né í raun af-
strakt, heldur líkjast -þau einna
helst veggskúlptúrum sem eins og
fyrir tilviljun hafa verið unnin með
málningu. En það er á sýningunni
í 11 að Ásgeir setur fram umfangs-
meiri verkin. Þar eru mannamynd-
ir líkar þeim sem hann sýnir á
Tuttugu og tveimur - dökkar
myndir sem eru unnar þannig að
lit er makað á dúk og hann svo tek-
inn upp með tusku svo að myndin
Frá sýningu Ásgeirs Lárussonr.
Myndlist
Jón Proppé
verður eins og negatífa eða öfug
skuggamynd. Fólkið í þessum
myndum er eins og svipir framlið-
inna eða sýnir í rökkri 'og inntak
myndanna virðist oft nálgast mys-
tísk eða trúarleg temu. Með því að
raða saman mörgum slíkum mynd-
um nær Ásgeir að vekja þá tilfinn-
ingu með áhorfandanum að hann
sé að skyggnast inn í hulda veröld
sem margir byggja. Það er ekki
ósvipað því að lesa stakt blað úr
glötuðu sagnahandriti. í innra her-
berginu í 11 eru hexagröm sem
Ásgeir hefur fundið með hinni
fomu kínversku spádómsaðferð I-
Ching. Hexagrömin em svör vé-
Charlie Lang (Nicholas Cage) er hér að fara að tilkynna Yvonne Biasi að hún fái helminginn af lottóvinningnum.
Stjömubíó - Það gæti hent þig: ★★
Ef na skal loforð
Það gæti hent þig (It Could Happen to You) er róman-
tísk skemmtun, nógu nálægt raunvemleikanum til
þess að nafn myndarinnar geti staðist og óhætt að
segja að myndin veitir áhorfandanum vissa vellíðan.
Formúlan er það sem þeir kunna í Hollywood og gera
manna best. Þegar aftur á móti er að gáð er sagan
ósköp þunn og tilgerðarleg en slíkir smámunir eru
faldir á bak við gáskafulla skemmtun og barnslega trú
á kærleikann gagnvart náunganum.
Nicolas Cage leikur lögregluþjóninn Charlie Lang.
Hann er heiðarleikinn uppmálaöur og hefur gaman
af vinnu sinni. Hann er ekki haldinn neinum dag-
draumum, ólíkt eiginkonu sinni, Muriel, hárgreiðslu-
konu, sem skammast út í allt og aUa og telur sig ekki
búa í nógu fínu hverfu.
Það er Muriel, sem biður eiginmann sinn að kaupa
lottómiða með vissum tölum sem hafa birst henni í
draumi. Áhuginn hjá Charlie er ekki meiri en svo að
hann fer með rangar tölur. Sama dag fer hann á kaffi-
stofu og hittir þar fyrir gengilbeinuna Yvonne, sem
er nýkomin úr dómshúsinu þar sem hún vp gerð
gjaldþrota vegna framtakssemi eiginmanns síns. Hún
er skiljanlega ekki í sem bestu skapi þegar Charlie
býður henni helmingshlut í lottóvinningi ef svo ólík-
lega vildi til að hann fengi vinning þar sem hann á
ekki fyrir þjórfé handa henni.
Þegar svo sá stóri kemur á miðann hjá Lang-hjónun-
um brjálast Muriel þegar Charlie segist ætla að skipta
vinningnum á milli þeirra og gengilbeinunar. Fram-
haldið er á viö nútíma Öskubuskuævintýri og í lokin
fá allir það sem þeir verðskulda.
Það gæti hent þig gengur ágætlega upp og mörg atr-
iði eru bæði fyndin og ágætlega gerð, en það vantar
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
einhvern brodd í söguna þegar fer að líða á myndina.
Það á samt ekki við um leik Rosie Perez sem vex ás-
meginn eftir því sem líður á myndina og sýnir enn
eina ferðina að það fer henni einstaklega vel að leika
óþolandi kvensniftir. Það má segja að myndin gangi
nokkurn veginn upp þar til betlarinn hendir af sér
grímunni; reynist vera þekktur ljósmyndari og kemur
elskendunum til hjálpar meö söfnunarátaki. Þama er
farið gróflega yfir strikið aðeins til þess að fá sykursæt-
an endi á myndina.
Það gæti hent þig (It Could Happen to You)
Leikstjóri: Andrew Bergman.
Handrit: Jana Anderson.
Kvikmyndun: Caleb Deschanel.
Tónlist: Carter Burwell.
Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Bridget Fonda, Rosie Perez og
Wendell Plerce.
fréttarinnar viö spumingum lista-
mannsins; spurningum á borð við
þessar: „Hver er staða íslenskrar
myndlistar?", „Hvað er guð?“,
„Hver er framtíð sjávarútvegs á
íslandi?" Ásgeir lætur sér nægja
að hengja sjálf hexagrömin á vegg-
ina og rýfur þau þannig úr sam-
hengi við spurningarnar og spá-
dóminn - gerir þau að myndfist.
Þeir sem vilja kafa nánar í framtíð
sjávarútvegsins verða því að taka
eintak af spádómsbókinni með sér
á sýninguna. Ásgeir er listamaður
sem leitar víða og virðist frekar
vilja hrinda hugdettum sínum
strax í framkvæmd en liggja með
þær lengi í höfðinu. Engu að síður
virðast mannamyndirnar á Tutt-
ugu og tveimur og 11 benda til þess
að eitthvert sterkara samhengi sé
að gerjast í listsköpun hans. Það á
fiklega næsta sýningarþrenna eftir
að leiða í ljós.
Kvöldverðartilboð
11/11-17/11
*
Hunangslegin graflaxrós
með kavíartvennu og sítrónudillsósu
*
Rósasteiktur lambavöövi í jurtahjúp
með eplasalati og camembertsósu
*
Heimalöguö sítrónuterta
meö melónukúlum og jaröarberjasósu
Kr. 1.950
Opið í hádeginu mánud.-föstud.
Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud.
Nýr spennandi a la carte matseðill
Borðapantanir í síma 88 99 67
fÆÆÆIIÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆIÆÆÆÆÆÆÆÆÆA
JÓLAGJAFA-
HANDBÓK
1994
Miðvikudaginn 7. desember mun hin árlega jóla-
gjafahandbók DV koma út í 14. sinn.
Jólagjafahandbók DV hefur orðið æ ríkari þáttur
í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar að
finna hundruð hugmynda að gjöfum fyrir jólin.
Skilafrestur auglýsinga er til 25. nóvember en með
tilliti til reynsiu undanfarinna ára er auglýsendum
bent á að hafa samband við Selmu Rut Magnús-
dóttur eða Ragnar Sigurjónsson, auglýsingadeild
DV, hið fyrsta í síma 632700 svo að unnt reynist
að veita öllum sem besta þjónustu.
ATH.! Bréfsími okkar er 63 27 27.