Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Side 13
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 13 Fréttir Framkvæmdastj óri Borgarspítalans um verkfall sjúkraliöa: Bráðadeildir fyllast af endurhæfingarsjúklingum - innan tveggja vikna - deildum lokaö og sjúklingar fluttir til „Við erum að loka deildum og síð- ustu daga höfum við reynt að draga úr innlögnum eftir því sem hægt er. Svigrúm okkar er afar lítið, allar skonsur á spítalanum eru venjulega fullnýttar þannig að við erum í erfið- leikum. Við útskrifum þá sjúklinga sem hægt er að útskrifa og hinir verða fluttir milli deilda. Starfsfólkiö er að færa sjúklinga á milli því aö þetta verður að vera klárt á mið- nætti. Deildirnar lokast á kvöldvakt í kvöld,“ sagði Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri á Borgarspítalan- um, í samtali við DV í gær. Stjórnendur Borgarspítalans loka annarri af tveimur öldrunarlækn- ingadeildum spítalans og hálfri skurðlækningadeild, auk þess sem annarri endurhæfingardeildinni á Grensás veröur lokað vegna verk- falls sjúkraliða. Helmingurinn af sjúklingunum á Grensásdeild fer heim en aðrir verða fluttir á hina endurhæfingardeildina. Um 30 sjúkl- ingar veröa á Grensásdeild í verkfall- inu. „Verkfallið kemur langmest niður á endurhæfingar- og öldrunardeild- um og hefur mjög fljótt áhrif á bráða- starfsemina því aö hún er syo háö þvi að spítalakeðjan virki. Áhrifin verða umtalsverð innan tveggja vikna. Það verður ekki hægt að beina sjúklingunum áfram i endurhæfingu og öldrunarlækningar. Bráðadeild- irnar koma smám saman til með að fyllast af sjúklingum sem ella heföu Hjukrunarfræðingar: Virða verkfall sjúkraliða „Hjúkrunarfræðingar virða verk- fall sjúkraliða og ganga ekki inn á vaktir þeirra sem eru í verkfalli þó að hjúkrunarfræðingar sinni að sjálfsögðu hjúkrun meðan þeir eru á vakt. Hjúkrunarfræðingar styðja sjúkraliða í baráttu þeirra fyrir bætt- um kjörum eins og þeir hafa stutt aðrar heilbrigðisstéttir og vænst stuðnings annarra í sinni baráttu," segir Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Sjúkraliðar hafa löggilt starfsheiti og teljast vera stoðstétt hjúkrunar- fræðinga á sjúkrahúsum og hjúkrun- arheimilum. Starfssvið sjúkraliða fellur undir starfssvið hjúkrunar- fræðinga að talsverðu leyti þannig að þessar stéttir sinna að einhverju leyti sömu störfum. Rétt er að geta þess að hjúkrunarfræðingar hafa ekki lagaheimild til að grípa til sam- úðaraðgerða vegna verkfalls sjúkra- liða. Dýrbítur leggst á fé íSléttuhlið Öm Þórarmsson, DV, Fljótum; Fyrir skömmu heimtist lamb í Sléttuhlíð sem bar greinileg merki eftir dýrbit. Haus var svo mikið bitinn og bólginn að lambið gat ekki bitið þegar það náðist og var auðsjáanlega nokkuð búið að tapa holdum. Ekki var hægt að nýta lambið og var það því aflífað og grafið. Nú fyrir skömmu, þegar bænd- ur í Sléttuhlíð fóru að sækja nokkrar kindur, sem sloppið höfðu í smalamennsku í haust, var eitt lambið dautt. Bændurnir töldu miklar líkur á að tófa hefði drepið það. Bæði þessi lömb voru fyrir ofan eyðibýlið Miðhól. Á þeim slóðum hafa sést tvær tófur af og til í haust. farið í endurhæfingu," segir Jóhann- Starfsfólk öldrunarlækningadeild- um Borgarspítalans var í gær í óða önn aö útskrifa sjúklinga, flytja sjúklinga milli deilda og búa starf- semina undir verkfallið. Reiknaö er meö að tæplega helmingur af starf- andi sjúkraliðum við Borgarspítal- ann leggi niður vinnu eöa um 100 manns af 202 starfandi sjúkraliðum. Starfsemi Borgarspítalans dregst saman um 13 prósent vegna verk- fallsins. L9TT6 Vinningstölur ,------------ miövikudaginn: 9. nóvember a VINNINGAR 6 af 6 5 af 6 +bónus 5 af 6 4 af 6 m 3 af 6 +bónus FJÖLDI UPPHÆÐ VINNINGA Á HVERN VINNING 204 24.280.000 2.541.752 86.990 2.035 856 209 Aöaltölur: 12 19 29 40 41 48 BONUSTOLUR 5 43 46 Heildarupphaed þessa viku: 51.956.766 A Isl.: 3.396.766 UPPLYSjNGAR, SÍMSVAR! 91- 68 15 11 LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR i/inningur fór til Danmerkur og Noregs S Enn aukum við þjónustuna! 5* | m%99*56*70** ! ' flðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alia landsmenn. Svarþjónusta DV opnar þér nýja möguleika á að svara smáauglýsingum DV. Svarþjónusta DV er sjálfvirk símaþjónusta sem sparar þér tíma og vinnu. í beinu sambandi allan sólarhringinn! Þegar þú auglýsir í smáauglýsingum DV getur svarþjónusta DV tekið við svörum fyrir þig allan sólarhringinn. Ef þú ert að svara smáauglýsingum í svarþjónustu DV getur þú tekiö upp símtólið hvenær sem þér hentar. Allir í stafræna kerfinu með tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu. Einföld í notkun! Svarþjónusta DV er einföld og þægileg. Sem dæmi er húsnæðisauglýsing sem birtist í DV: 3ja herbergja íbúð í Breiðholti til leigu. Laus fljótlega. Aðeins reglusamt fólk kemur Svarþjónusta DV, sími 99-5670, Svarþjónusta DV leiðir þig áfram Þú hringir í síma 99-56-70 og velur eftirfarandi: 1 til þess að svara auglýsingu g til þess að hlusta á svar auglýsandans „_J (ath.l á eingöngu við um atvinnuauglýsingar) 3 ef þú ert auglýsandi og vilt ná í svör eða tala inn á skilaboðahólfið þitt 4 sýnishorn af svari # til þess að fara til baka, áfram eða hætta aðgerð Þú svarar atiglýsingunni með því að hringja í síma 99^j6-70, velur 1, og slærð inn tilvísunarnúmer auglvsingar og að því búnu leggur þú inn_þín skilaboð. Þá færð þú að heyra skilaboðin sem þú lagðir inn. Ef þú ert ánægð/ur með skilaboðin geymir þú þau, ef ekki getur þú talað þau inn aftur. Ef þú vilt fá meiri upplýsingar um svarþjónustu DV getur þú haft samband viö smáauglýsingadeild DV í síma 91-63-27-00 Við vinnum með þér! Klippið út og geymið!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.