Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 18
26 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 íþróttir unglinga d Islandsmót KEA í handbolta fyrir 5. flokk karla: A-lið Vals vann aftur - FH-strákamir bestir í keppni B-liða og KA sigraði í keppni C-liða Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyrr Valsmenn uröu sigurvegarar í keppni a-liða á íslandsmóti KEA í handknattleik fyrir 5. flokk karla sem fram fór á Akureyri síðustu helgi. Valsstrákarnir unnu einnig sigur í þessu móti á síðasta ári og hefur þessi flokkur Vals verið mjög sigursæll undanfarið ár. - í KEA- mótinu tóku þátt 47 lið frá 19 félög- um, leikir mótsins urðu alls 175 tals- ins og í þeim voru skoruð hvorki fleiri né færri en 3584 mörk. Umsjón Halldór Halldórsson I keppni a-liðanna voru 18 Uð og léku fyrst í fjórum riðlum. Tvö efstu liðin komust í milliriðla sem voru tveir og að milliriðlunum loknum var leikið um sæti. Þar urðu úrslit þessi: I. -2. Valur-Fram.........17-16 3.-4. Stjaman-Grótta......11-12 5.- 6. Víkingur-FH........13-17 7.-8. HK-Fjölnir..........26-21 9.-10. KR-UMFA..............5-0 II. -12. Völsungur-ÍR.....24-18 13.-14. Fylkir-Haukar.....23-27 15.-16. KA-Þór,Ak.........13-16 17.-18. UBK-Þór,Ve........22-12 Hörku úrslitaleikur Úrslitaleikur Vals og Fram í keppni a-liðanna var mjög skemmtilegur og jafn. Mjög oft var jafnt í leiknum en Valsarar yfirleitt á undan að skora og þeir leiddu í leikhléi, 7-6. í síðari hálfleik komust þeir þremur mörk- um yfir en Framarinn Kristján Páls- son, sem skoraði 5 af 6 síðustu mörk- um Fram, sá til þess að framlengja þurfti leikinn eftir stöðuna 12-12. í framlengingunni var jafnt á öllum tölum upp í 16-16 en Valur ávallt á undan að skora. Sigurmark Vals skoraði svo Markús Michaelsson skömmu fyrir leikslok og úrslitin 17-16 fyrir Val. Besti maður Vals var markmaðurinn Ólafur M. Gíslason, en Markús Michaelsson og Snorri Guðjónsson áttu góðan leik. Kristján Pálsson var langbestur í liði Fram. Mörk Vals: Markús Michaelsson 10/2, Snorri Guðjónsson 4, Davíð Höskuldsson 2, Styrmir Hansson 1. Mörk Fram: Kristján Pálsson 7, Daði Guðmundsson 5/3, Níels Bene- diktsson 1, Hrafn Eyjólfsson 1, Brynj- ar Halldórsson 1, Hafsteinn Ingason 1 mark. FH best b-liðanna Sautján lið léku í keppni b-liðanna. Fyrst var leikið í tjórum riðlum, síð- an í tveimur milliriðlum og loks um úrslitasæti. Þar urðu úrslit þessi: 3.^.KA-ÍR 7-6 5.-6. Grótta-Valur 6-19 7.-8. Hvöt-Stjarnan 11-23 9.-10. HK-Þór,Ak 24-19 11.-12. Völs.-Haukar 15-11 13.-14. Fram-Fjölnir 16-12 15.-16. UBK-Aftureld......... 17-9. KA-sigur í C-liða keppninni Liðin í keppni c-liða voru 12 talsins og léku fyrst í þremur riölum. Efstu lið riðlakeppninnar léku síðan um 1.-3. sætið, liðin í 2. sæti í riðlunum um sæti 4-6 og liðin í 3. sæti í riðlun- um um sæti 7-9. í leikjunum um efstu sætin sigraði KA lið ÍR með 25-14 og síöan lið FH með 13-11. ÍR og FH gerðu síðan jafn- tefli 16-16. KA varð í 1. sæti, ÍR í 2. sæti með hagstæðara markahlutfall en FH. Stjarnan átti liðin sem höfnuðu í 4. og 5. sæti og Víkingur hafnaði í 6. sæti. í 7. sæti varð Fram, annað lið KA í 8. sæti og Valur átti lið í 9. sæti. Komumst ekki í stuð Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Okkur hefur ekki gengið nógu vel í mótinu vegna þess að við kom- umst aldrei í stuð“, sögðu þeir fé- lagarnir Róbert Árni Halldórsson og Bjami Bjarkason úr Aftureld- ingu en þeir eru í b-liði félags- ins. Afturelding var búin að tapa fyrir FH, Fjölni og Stjömunni þegar DV hitti þá aö máli, og voru þeir þó hressir þrátt fyrir að þeim heíði ekki gengið vel. „Við emm á yngra árinu í flokknum og þegar við keppum í þessu móti á næsta ári veröum við miklu betri. Strákarnir í a-liðinu eru ári eldri en við en á næsta ári verðum við bestir, alveg ömgglega," sögðu þeir félagarnir úr Mosfellsbænum. Róbert og Bjarni: „Viö veröum betri á næsta ári.“ DV-mynd gk Körfubolti: Björn í unglinganef nd FIBA Á síðasta ársfundi FIBA á Gí- Samkvæmt upplýsingum frá braltar í sumar var Bjöm M. Björg- FIBA þá koma öll málefni sem geta vinsson tilnefitdur af hálfu KKÍ til orðið unglingum til góös viö iökun setu $ unglinganefhd FIBA körfuknattleiks, til dæmis breyt- (European Concil for Basketball ingará reglum, heilbrigði og fleira, for Young People) fyrir Kjörtíma- til umræðu á fundum nefndarínn- billð 1994-1998. Það er skemmst frá ar. Nefndln heldur einn til tvo því að segja að Björn náði kjöri Og fundi á hvetju leiktímabili. Fund- var um leið fyrsti íslendingurinn imir fara fram í höfuðstöðvum sem kemst í nefnd fijá FIBA. FEBA i Munchen. íslandsmeistarar Vals í keppni a-liða. Aftari röð f.v.: Jón Halldórsson þjálfari, Fannar Þorbjörnsson, Davið Hösk- uldsson, Jóhann Sigurðsson, Markús Michaelsson og Sigurður Sigurþórsson þjálfari. Fremri röð f.v.: Styrmir Hansson, Ólafur H. Gislason, Snorri Guðjónsson fyrirliði, Birgir Birgisson og Gústaf Þorsteinsson. DV-mynd gk Sigruðum af því við erum bestir - sagöi Snorri Guðjónsson, fyrirliöi Vals Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyrt „Við unnum þetta vegna þess að við erum bestir, það er svo einfalt," sagði Snorri, fyrirliði a-liðs Vals, þeg- ar hann hafði tekið á móti bikarnum eftir úrslitaleikinn gegn Fram. Snorri var einnig fyrirliði Valsliðs- ins sem sigraöi í þessu móti á síðasta ári, en í millitíðinni hefur Vcdur einn- ig orðið íslandsmeistari og Reykja- víkurmeistari. „Við erum alhr á eldra árinu í flokknum og fórum í 4. flokk eftir þennan vetur. í þessu móti var leikurinn við Fram erfiðast- ur, en við töpuðum samt fyrir Stjöm- unni og það var eini tapleikurinn. En þetta var gott mót,“ sagði Snorri. Þetta var sárt Framarinn Kristján Pálsson var áberandi besti maður Framliðsins og skoraði t.d. 7 mörk í úrslitaleiknum gegn Val þótt hann væri tekinn úr umferð. „Þaö er sárt að tapa svona úrslita- leik - en viö vorum ekki nógu ein- beittir. Við höfum ekki æft mjög mik- ið aö spila á móti liðum sem taka mig úr umferð. Ég er ánægður með 2. sætið þótt það hefði veriö betra að vera í 1. sætinu,“ sagði Kristján, en hann var eini leikmaður Fram sem er á yngra ári í 5. flokki og er sannar- lega efnilegur handboltastrákur þar á ferðinni. Snorri Guðjónsson, fyrirliði Vals, t.v. og Framarinn Kristján Pálsson. Þeir áttu báðir mjög góðan leik. DV-mynd gk Mikill handboltaáhugi á Húsavík Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þaö er mjög mikill áhugi á handbolta á Húsavík, það er bara verst aö þaö er enginn meistaraflokkur hjá Völsungi en þaö verður þegar viö verö- um fullorðnir,“ sögöu Völs- ungarnir Gunnar Illugi Sig- urðsson og G. Rúnar Jónsson sem kepptu meö a-hði Völs- ungs frá Húsavík á KEA- mótinu á Akureyri. „Okkur gekk ekki nógu vel í mótinu. í fyrstu leikjunum töpuðum viö fyrir Gróttu og Fram en við unnum Fylki. Þótt það séu 25 strákar sem æfa á Húsavík þá eru miklu fleiri strákar í liðunum í Reykjavík. En viöhöfum enga minnimáttarkehnd gagnvart þeim og verðum betri en þeir eftir nokkur ár,“ sögðu þeir félagar. Völsungarnir Gunnar og Rúnar, hressir strákar sem ætla í meistaraflokk. DV-mynd gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.