Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Page 25
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 33 pv_____________Afmæli Sæmundur Jónsson Sæmundur Jónsson bankafulltrúi, Urðarstekk 12, Reykjavík, er sjötug- urídag. Starfsferill Sæmundur fæddist í Austvaðs- holti í Landsveit og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Bændaskól- ann á Hólum og lauk þaðan búfræði- prófi, útskrifaðist frá Samvinnuskó- lanum í Reykjavík 1950 og stundaði síðan framhaldsnám í Bandaríkjun- um í eitt ár. Þá fór hann margar ferðir til nágrannalandanna í því skyni að kynns sér uppbyggingu og rekstur vistheimila vegna Vist- heimilisins í Gunnarsholti. Sæmundur stofnaði og var for- stöðumaður Vistheimilisins í Gunn- arsholti á Rangárvöllum 1954-65 en hefur síðan verið starfsmaður við Búnaðarbankann. Sæmundur hefur tekið virkan þátt í ýmsu félagsstarfi og var m.a. einn af stofnendum Átthagakórs Rangæ- ingafélagsins í Reykjavík. Fjölskylda Sæmundur kvæntist 1.11.1953 Svanfriði Ingvarsdóttur, f. 27.1.1927 skrifstofustjóra. Hún er dóttir Ingv- ars Ámasonar, b. að Bjalla í Land- sveit, og k.h., Málfríðar Árnadóttur húsfreyju. Börn Sæmundar og Svanfríðar eru Katrín, f. 14.3.1954, píanókenn- ari í Reykjavik, gift Halldóri Ólafs- syni rafvirkjameistara og eru synir þeirra Sæmundur Ari, f. 18.5.1981, og Svanur Þór, f. 1.3.1984; Þóra Fríða, f. 7.9.1955, píanóleikari í Reykjavík; Signý, f. 6.2.1958, óperu- söngkona í Reykjavík; Soffía, f. 25.5. 1965, myndlistarmaður á Álftanesi, gift Sveini Erlendssyni lögreglu- manni og er sonur þeirra Erlendur, f. 6.5.1988. Systkini Sæmundar: Ólafur, nú Sæmundur Jónsson. látinn, lögfræðingur í Reykjavík, var kvæntur Margréti Vikar; Guð- rún, húsmóðir í Reykjavík, gift FinnbogaEyjólfssyni; Sigríður Theodóra, húsmóðir í Bandaríkjun- um, gift Paul Sharp lögfræðingi; Gunnar Ingi, starfsmaður hjá Reykjavíkurborg, kvæntur Sjöfn Ólafsdóttur; Aðalbjörg, húsmóðir á Úlfljótsvatni, gift Guðmundi Vigni Sigurbjarnasyni. Foreldrar Sæmundar: Jón Ólafs- son, b. í Austvaðsholti í Landsveit, og Katrín Sæmundsdóttir húsfreyja. Ætt Systir Katrínar var Guðrún, hús- freyja í Króktúni á Landi, lan- gamma Guðlaugs Tryggva Karls- sonar hagfræðings. Bróðir Katfínar var Guðbrandur, afi Hauks Mort- hens söngvara og langafi Sverris Haraldssonar, hstamanns í Sel- sundi. Katín var dóttir Sæmundar, ættföður Lækjarbotnaættarinnar, Guðbrandssonar og Katrínar Brynj- ólfsdóttur ljósmóðir. Sæmundur og Svanfríður taka á móti gestum í sal FÍH að Rauðagerði 27, Reykjavík, í dag, fóstudaginn 11.11., kl. 17.00-20.00. TiBcynningar Félag eldri borgara í Rvík og nágrenni Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag. Guömund- ur Guöjónsson stjómar. Göngu-Hrólfar leggja af stað frá Risinu kl. 10 á laugar- dagsmorgun. SÁÁ-félagsvist Spiluö veröur félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Úlfaldanum, Ármúla 17a. Glæsilegir vinmngar, kafliveitingar. Allir velkomn- ir. Húnvetningafélagið Félagsvist á laugard. kl. 14 í Húnabúö, Skeifunni 17. Verölaun og veitingar. Allir velkomnir. Félag eldri borgara I Kópa- vogi Spiluð verður félagsvist aö Fannborg 8 (Gjábakka) í kvöld, fóstud. 11. nóv. kl. 20.30. Húsiö öllum opið. Breiðfirðingafélagið Félagsvist verður spiluð sunnud. 13. nóv. kl. 14 í Breiðfiröingabúð, Faxafeni 14. Kafíiveitingar. Allir velkomnir. Hana nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsganga veröur á morg- un. Lagt af stað ffá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað molakaffi. Baháíar í Reykjavík bjóöa á opið hús laugardagskvöldið 12. nóvember í Álfabakka 12 í Mjódd kl. 20.30. Aliir velkomnir. Munir og minjar Ný verslun, Munir og minjar, verður opnuð laugard. 12. nóv. að Grensásvegi 3 og verður hún stærsta verslun sinnar tegundar á íslandi. Verslunin býður upp á fjölbreytt úrval af fallegum og vönduð- um antíkmunum. Munir og minjar sér- hæfa sig í antíkhúsgögnum, s.s. sófasett- um, borðstofuhúsgögnum og skrifborð- um ásamt ýmsum öðrum fágætum mun- um. Elstu munimir eru yfir 200 ára gaml- ir. Saga Akureyrar er komin út og spannar tímabilið frá 1863 til 1905. í bókirtni er dregin upp mynd af þroskasögu Akureyrar, hvemig kaup- staðurinn stækkaði í allar höfuðáttimar fjórar, jafnvel út í sjó. Bókin er liðlega 350 síður i stóra broti. Vel á fjórða hundr- að ljósmynda prýðir ritið, bæði svart/hvítar og í lit. Höfundur er Jón Hjaltason sagnfræöingur en útgefandi er Akureyrarbær. Friðlýsingarsjóður Náttúru- verndarráðs Út era komin jólakort Friðlýsingarsjóðs Náttúraverndarráðs. Aö þessu sinni eru gefin út þrjú jólakort, Gullfoss, bláklukk- ur og rjúpa. Ljósmyndimar era eftir Guðmund Ingólfsson, Bjöm Þorsteinsson og Erling Ólafsson. Allur ágóði af sölu kortanna rennur til Friölýsingarsjóös. Jólakortin era til sölu á skrifstofu Nátt- úraverndarráðs, Hlemmi 3, 105 Reykja- vik (s. 91627855). Sýningar Norræna húsið Opnuð hefur verið í anddyri Norræna hússins sýning á ljósmyndum frá Aust- ur-Grænlandi sem Roland Thomsen tók af fólki og mannlífi. Sýningin ber yfir- skriftina „Austur-Grænland - Fólk og samfélag á 9. áratugnum". Sýningin verður opin daglega og stendur til 27. nóvember. Tapað fundið Dömuúr fannst við Kaplaskjólsveg. Eigandi getur vitjað úrsins í síma 19885. Safnaðarstarf Langholtskirkja: Aftansöngur kl. 18.00. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00 GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Simonarson Á morgun, örfá sæti laus, fid. 17/11, upp- selt, föd. 18/11, uppselt, fid. 24/11, upp- selt, mvd. 30/11, iaus sæti. GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman i kvöld, örfá sæti laus, Id. 19/11, nokkur sæti laus, Id. 26/11. VALD ÖRLAGANNA eftir Giuseppe Verdi Föd. 25/11, uppselt, sud. 27/11, uppselt, þrd. 29/11, nokkur sæti laus, föd. 2/12, uppselt, sud. 4/12, nokkur sæti laus, þrd. 6/12, laus sæti, fid. 8/12, nokkur sæti laus, Id. 10/12, uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega. LISTADANSHÁTÍÐ í ÞJÓÐLEIKHÚSINU til styrktar Listdansskóla íslands Þrd. 15/11 kl. 20.00, mvd. 16/11 kl. 20.00. SNÆDROTTNINGIN eftir Evgeni Schwartz Byggt á ævintýri H.C. Andersen Sud. 13/11 kl. 14.00, sud. 20/11 kl. 14.00. Litla sviðiðkl. 20.30. DÓTTIR LÚSÍFERS eftir William Luce í kvöld, á morgun, föd. 18/11, sud. 20/11. Smíðaverkstæðið kl. 20.00 SANNAR SÖGUR AF SÁLARLÍFISYSTRA eftir Guðberg Bergsson í leikgerð Viðars Eggertssonar íkvöld, uppselt, Id. 19/11, örfásæti laus, sud. 20/11, föd. 25/11, Id. 26/11. Mlðasala Þjóðleikhússlns er opln alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýnlngu sýningardaga. Tekið á móti simapöntunum alla vlrka daga frá kl. 10.00. Græna linan 99 61 60. Bréfsíml 61 12 00. Sfmll 12 00-Greiðslukortaþjónusta. Hjónaband Þann 27. ágúst vora gefm saman í hjóna- band í Dómkirkjunni af sr. Pála Matthí- assyni Sigrún Sævarsdóttir og Hrafn Grétarsson. Þau era til heimilis að Frostafold 20, Reykjavík. Ljósm. Jóhannes Long Þann 3. september vora gefm saman í hjónaband í Bessastaðakirkju af sr. Sig- finni Þorleifssyni Guðrún Gestsdóttir og Gunnar Skúlason. Þau era til heim- ilis að Boðagranda 1, Reykjavik. Ljósmyndastofa Reykjavikur LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Litlasviðki. 20.00 ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson i kvöld, fáein sæti laus. Á morgun, laugard. 12/11. Föstud. 18/11, fáein sæti laus. Laugard. 19/11. Föstud. 25/11. Stóra svið kl. 20. LEYNIMELUR13 eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage. Laugard. 12/11, föstud. 18/11, fáein sæti laus, laugard. 26/11. Stóra svið kl. 20. HVAÐ UM LEONARDO? eftir Evald Flisar. 9. sýn. i kvöld, bleik kort gilda, fimmtud. 17/11, laugard. 19/11. Litla sviðkl.20: ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson. Lelkmynd og búningar: Stigur Steinþórs- son Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson Tónlist: Þórólfur Eiriksson Lejkstjóri: Hlin Agnarsdóttir Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson, Benedlkt Erlingsson, Eilert A. Ingimundarson, Jó- hanna Jónas og Margrét Vilhjálmsdóttir. Sunnud. 13/11, mlövikud. 16/11, fimmtud. 17/11. Stóra svið kl. 20: Svöluleikhúsið sýnir í samvinnu við íslenska dansflokkinn: JÖRFAGLEÐI Höfundar Auöur Bjarnadóttir og Hákon Leifsson Danshöfundur: Auöur Bjarnadóttir Tónllst: Hákon Leifsson 3. sýn.sunnud. 13/11. Miðasala er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-20.00. Miða- pantanir i sima 680680 alla virka daga frákl. 10-12. Munið gjafakortin, vinsæl tækifærisgjöf. Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús Þann 3. september vora gefm saman í hjónaband í Lágafellskirkju af sr. Bjama Þór Bjamassyni Rebekka Hannibals- dóttir og Felix Felixsson. Þau era til heimilis aö Kársnesbraut 81. Ljósmyndastofan Svipmyndir Þann 3. september vora gefm saman í hjónaband í Laugameskirkju af sr. Hirti Magna Jóhannssyni Hrönn Harðar- dóttir og Jón örvar Kristinsson. Þau era til heimilis að Hrísateigi 15. Ljósmynðast. Reykjavíkur Leikhús Leikfélag Akureyrar Gamanleikur með söngvum fyrir alla fjölskylduna! Laugard. 12. nóv. kl. 14. Allra siðasta sýning. BARPAR Tveggja manna kabarettinn sem sló i gegn á siðasta leikári! Sýnt i Þorpinu, Höfðahlíð 1 Föstud. 11. nóv. kl. 20.30, uppselt. Laugard. 12. nóv. kl. 16.30. Laugard. 12. nóv. kl. 20.30. SÝNINGUM LÝKUR í NÓVEMBER KORTASALASTENDUR YFIR! AÐGANGSKORT Kosta nú aðeins kr. 3.900 og gilda á þrjár sýningar: ÓVÆNT HEIMSÓKN eftir J.B. Priestley Á SVÖRTUM FJÖÐRUM eftir Davíö Stef- ánsson og Erlíng Sigurðarson ÞAR SEM DJÖFLAEYJAN RÍS eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson. Frumsýningarkortfyrir alia! Stórlækkað verð! Vlð bjóðum þau nú á kr. 5.200 Kortagestir geta bætt vlð miða á KARMELLUKVÖRNIN A fyrir aðeins kr. 1.000. Miðasala i Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema manudaga kl. 14-18 og sýningardaga tram að sýn- ingu. Sími 24073. Símsvari tekur við miðapöntunum utan opnunartima. Greiðslukortaþjónusta. NEMENDALEIKHÚSIÐ LINDARBÆ -SÍMI21971 TRÚÐAR Fös. 11/11 kl. 20.30. Laugd. 12/11 kl. 20.30. Sunnud. 13/11 kl. 20.30. Takmarkaöur sýningafjöldl! Mióapantanlr allan sólarhringinn. Þann 3. september vora gefin saman í hjónaband í Fella- og Hólakirkju af sr. Hreini Hjartarssyni Sigurbjörg Sig- þórsdóttir og Vigfús Hjartarsson. Þau eru til heimilis að Laugarásvegi 1. Ljósmyndastofan Nærmynd Þann 3. september vora gefm saman í hjónaband í Kópavogskirkju af sr. Ægi Fr. Sigurgeirssyni Alda Hafsteinsdóttir og Magnús Ýmir Magnússon. Þau era tíl heimilis að Alfhólsvegi 63, Kópavogi. Ljósm. Jóhannes Long

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.