Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Síða 26
34
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
Fólkífréttum
Drífa Hj artardóttir
Drífa Hjartardóttir, bóndi að Keld-
um á Rangárvöllum, ienti í þriðja
sæti rprófkjöri sjálfstæðismanna á
Suðurlandi um síðustu helgi.
Starfsferill
Drífa fæddist í Reykjavík 1.2.1950
og ólst þar upp. Að loknu landsprófi
stimdaði hún nám við MR en hætti
1969 er hún hóf búskap að Keldum
þar sem hún hefur búið síðan.
Drífa var formaður Sambands
sunnlenskra kvenna 1987-93 og sit-
ur í Jafnréttisráði fyrir Kvenfélaga-
samband íslands og er forseti þess
frá 1994. Hún situr í hreppsnefnd frá
1986, situr í héraðsnefnd Rangár-
vallasýslu frá 1990, er formaður
Keldnasóknar, situr í stjóm
MENSA, menningarsamtaka Suð-
urlands, hefur verið fulltrúi á þing-
um Sambands sunnlenskra sveitar-
félaga og er formaður sjálfstæðisfé-
lagsins Fróða í Rangárvallasýslu.
Fjölskylda
Eiginmaður Drífu er Skúli Lýðs-
son, f. 7.8.1947, b. á Keldum, en
hann er sonur Lýðs Skúlasonar, b.
á Keldum sem nú er látinn, og eftir-
lifandi konu hans, Jónínu Jónsdótt-
urljósmóður.
Drífa og Skúli eiga þrjá syni. Þeir
eruLýður, f. 23.6.1969, vélfræðingur
í Reykjavík; Hjörtur, f. 26.3.1973,
nemi; Skúli, f. 22.4.1980, nemi.
Hálfsystkin Drífu, sammæðra, eru
Ingibjörg Hjartardóttir, f. 1951, hús-
móðir á Seltjarnarnesi; Hjörtur
Hjartarson, f. 1957, vélvirkií
Reykjavík; Anna Asta Hjartardóttir,
f. 1959, afgreiðslustjóri hjá SPRON;
Bjöm Grétar Hjartarson, f. 1967,
verslunarmaður í Reykjavík; Guð-
mundur Ingi Hjartarson, f. 1968,
tölvunarfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Drífu era Hjörtur Hjart-
arson (kjörfaðir), f. 23.12.1929, kaup-
maður í Reykjavík, og k.h., Jensína
Guðmundsdóttir, f. 9.9.1928, versl-
unarmaður í Reykjavík.
Faðir Drífu er Magnús Bmno
Norðdahl Eggertsson, f. 3.1.1909,
lengi bifreiðarstjóri í Reykjavík.
Ætt
Hjörtur er bróðir Grétars bíó-
stjóra. Hjörtur er sonur Hjartar
Hjartarsonar, kaupmanns við
Bræðraborgarstíginn, og Ástu, syst-
ur Sigríðar, móður Björns Bjarna-
sonar alþm., en bróðir Ástu var
Anton, faðir Markúsar Arnar, fyrrv.
borgarstjóra. Ásta var dóttir Bjöms
Jónssonar, skipstjóra í Ánanaust-
um.
Magnús Norðdahl er sonur Egg-
- erts Norðdahl, b. á Hólmi, bróður
Skúla, föður Gríms á Úlfarsfelli.
Eggert var sonur Guðmundar, b. í
EUiðakoti, Magnússonar
Norðdahls, prests í Meðallandsþing-
um, Jónssonar, prests í Hvammi í
Norðurárdal, Magnússonar, sýslu-
manns í Búðardal, Ketilssonar.
Móðir Magnúsar sýslumanns var
Guðrún Magnúsdóttir, systir Skúla
landfógeta.
Jensína er dóttir Guðmundar, bú-
fræðings á Sæbóli á Ingjaldssandi,
Guðmundssonar, b. á Seljalandi,
Jónssonar, b. á Fæti, Jóhannesson-
ar. Móöir Guðmundar var Gróa
Benediktsdóttir, skutlara í Vatns-
firði, Bjömssonar, hagyrðingsá
Laugabóli, Sigurðssonar. Móðir
Benedikts var Guðný Jónsdóttir, b.
á Laugabóh, Bárðarsonar, ættföður
Drífa Hjartardóttir.
Arnardalsættarinnar, IUugasonar.
Móðir Guðmundar búfræðings var
Sigríður Einarsdóttir, rennismiðs í
Hvammi í Dýrafirði, Magnússonar,
b. í Skáleyjum, bróöur Jóhanns í
Svefneyjum, langafa Kristínar,
móður Atla Heimis Sveinssonar
tónskálds. Magnús var sonur Eyj-
ólfs eyjajarls Einarssonar, bróður
Magnúsar, langafa Maríu, móður
Einars Odds Kristjánssonar á Flat-
eyri.
Afmæli
Þórarinn Guðlaugsson
Þórarinn Guðlaugsson, fyrrv. bóndi
í Fellskoti í Biskupstungum, er átta-
tíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Þórarinn fæddist í Fellskoti og
hefur átt þar heima alla tíð. Hann
var tíl sjós á sínum yngri ámm auk
þess sem hann var sex vertíðir í
Reykjavík áður en hann gerðist
bóndi.
Þórarinn tók við búi föður síns í
Fellskoti 1940 og stundaði síðan bú-
skap þar fil 1978 er tengdasonur
hans, Kristinn Antonsson, tók við
búinu.
Fjölskylda
Þórarinn kvæntist 24.11.1943
Katrínu Þorsteinsdóttur, f. 18.9.
1915, húsfreyju. Hún er dóttir Þor-
steins Finnbogasonar, kennara frá
HjallaseU í Landsveit, og Jóhönnu
Greipsdóttur fráHaukadal í Bisk-
upstungum.
Börn Þórarins og Katrínar em
Katrín, f. 21.9.1945, starfsmaður í
SkáUiolti, var gift Guðmundi Gísla-
syni og eiga þau fjóra syni, Gísla
Gunnar, trésmið i Reykholti í Bisk-
upstungum, Eirík Þór, tamninga-
mann við Stóðhestastöð ríkisins í
Gunnarsholti, Sigurð, bústjóra að
Keldum við Vesturlandsveg, og
Rúnar Þór, hljómlistarmann í
Reykjavík; María, f. 17.3.1947,
starfsmaður hjá Biskupstungna-
hreppi, gift Kristni Antonssyni, b. í
Fellskoti, og eiga þau þrjú börn, Sig-
uriínu, nema við MyndUsta- og
handíðaskóla íslands, Þórarin,
vinnuvélastjóra hjá Ræktunarsam-
bandinu Ketilbimi, og Líneyju,
nema á Hárgreiðslustofunni Mensý
á Selfossi; Guðlaugur, f. 25.9.1950,
málari í Reykjavík, og á hann einn
son, HUmi; Þorsteinn, f. 11.12.1953,
trésmiður aö Hvítárbakka í Bisk-
upstungum, kvæntur Guðrúnu
Sveinsdóttur frá Bræðratungu og
eiga þau tvo unga syni, Valgeir og
Smára; Eyvindur, f. 30.10.1955, rek-
ur dekkjaverstæðiö Sólningu á Sel-
fossi, kvæntur Guðrúnu Þorsteins-
dóttur frá Reykjum á Skeiöum og
eiga þau tvo syni, Þorstein Þór og
Einar Karl sem báðir em nemar í
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Systkini Þórarins voru níu talsins
en þau eru nú öll látin nema Guð-
rún. Systkini hans: Þóra, f. 8.7.1896,
búsett í Reykjavík, var gift Hannesi
Jóhannessyni málarameistará og
eignuðust þau tvö böm; Eiríkur, f.
20.7.1898, bílstjóri í Fellskoti í Bisk-
upstungum; Eyþór, f. 29.11.1899, d.
1930; Margrét, f. 6.5.1901, húsmóðir
í Reykjavík, var gift Pétri Jóhanns-
syni heildsala og eignuðust þau eina
dóttur; Þorlákur, f. 1.2.1903, sjómað-
ur og bílamálari í Hafnarfirði, var
kvæntur Maríu Jakobsdóttur og
eignuöust þau þrjú böm; Eyrný, f.
4.9.1905, húsmóðir í Reykjavík, var
gift Jóhannesi Helgasyni verslunar-
manrn og eignuðust þau fjögur böm;
Guðrún, f. 30.10.1907, húsmóðir í
Reykjavík, gift Þórhalli Friðfinns-
syni klæðskera og eignuðust þau tvö
böm; Sigríður, f. 25.10.1912, hús-
móðir í Reykjavík, gift Fróða Brinks
Pálssyni garðyrkjumanni og eign-
uðust þau einn son, auk þess sem
Sigríður eignaðist son áður; Eiríkur
yngri, f. 14.4.1915, leigubílstjóri í
Reykjavík, kvæntist Liv Jóhannes-
dóttur og eignuðust þau íjögur börn.
Foreldrar Þórarins vom Guðlaug-
ur Eiríksson, f. 17.8.1867, d. 27.5.
1940, bóndi í Fellskoti, og k.h., Kat-
rín Þorláksdóttir, f. í Mýrarhúsum
við Hafnaríjörð 11.12.1870, d. 7.10.
1945, húsmóðir.
Ætt
Guðlaugur var sonur Eiríks frá
Álfsstöðum á Skeiðum, bróður Guð-
mundar, b. í Miðdal í Mosfellssveit,
langafa Vigdísar forseta og afa Guð-
mundar frá Miðdal, föður Errós.
Þórarinn Guðlaugsson.
Eiríkur var sonur Einars, b. á
Álfsstöðum, Gíslasonar, b. á Álfs-
stööum, bróður Ingunnar, móður
Ófeigs ríka á Fjalh og ömmu Guð-
rúnar á Skarði, langömmu Guð-
laugs Tryggva hagfræðings. Móðir
Guðlaugs í Fellskoti var Guðrún
Eyvindsdóttir. Eyvindur var fyrsti
b. að Fellskoti af ættinni en hann
hóf þar búskap 1833. Hann var Þor-
steinsson.
Katrín var dóttir Þorláks Þorláks-
sonar, skipstjóraí Hafnarfirði, og
k.h., Margrétar Guðnadóttur. Þór-
arinn verður að heiman á afmælis-
daginn en þau hjónin dvelja nú á
Heilsuhælinu í Hveragerði.
Til hamingju með afmælið 11. nóvember
85 ára
Karen O. Sigurðardóttir,
Kópavogsbraut 1A, Kópavogl
70 ára
Ingvi IngólfsKon,
Silfurbraut 8, Ilöín I Hornafirði.
Arndis Sveinsdóttír,
Álftavatni, Staðarsveit.
Skarphéðinn Björnsson,
Undargötu 11, Siglufirði.
Hákon Svemsson,
Hátúni 21, Reykjavík.
Aðnlbjörg
Stefania
Ingólfsdóttir,
Lindargötu 57,
Reykjavík.
Hún tekur á móti
gestura aö heim-
ili dóttur sinnar
að Kársnesbraut
37, Iíópavogi, i
dageftirkl. 17.00.
Hrafnhiidur Konráósdóttir,
Melási 4, Garöabæ.
Sveinn Valdimarsson,
Keilufelli 43, Reykjavik.
Egill Svanur Egilsson,
Mávahrauni 16, Hafnarfirði.
Páll Björgvinsson,
Langholtsvegi 126, Reykjavík.
Edda Björk Bogadóttir,
Skólavegi 28, Keflavik.
Þorlákur Hannesson,
Tungötu 10, Ðessastaöahreppí.
Kristján Vídalín
Jónsson
skrúðgarðyrkju-
meistari,
Barmahlíö 52,
Reykjavik.
Kona Kristjáns
er Guðrún Sig-
ríöur Sævars-
dóttir kennari.
Þau taka á móti
gestum i safttaö-
arhehnili Frí-
kirkjurinar að Laufásvegi 13, Reykja-
vík, i kvöld kl. 20.00-22.00.
Jón Haraldsson,
Teigi, Vopnafirði.
Sigurður Nikulásson,
Staðartiakka 22, Reykjavík.
Stella Jóhanna Magnúsdóttir,
Sléttuvegi 11, Reykjavlk.
Erna Agnarsdóttir,
Lágmóa 1, Njarðvík.
Kriatján Guðbrand sson,
Gunnarsstöðura, Suðurdalahreppi.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Fifuseli 27, Reyigavik.
Susan Minna Black-Nielsen,
Brattholti 6Ð, Mosfellsbæ.
Tryggvi Jónsson,
Kringlunni 33, Reykjavik.
Þorbergur Níels Hauksson,
Svínaskálahlíð 17, Eskifirði.
Úlfhildur S. Úlfarsdóttir,
Mávanesl 2, Garöabæ.
Gunnhildur BjÖrk Elíásdóttir,
Aðalstræti 49, Þingeyri.
Krístin Gunnarsdóttir,
Bakkatjöro 11, Selfossi.
Daníel Hafidór Magnússon,
Syðri-Ey, Vindhælishreppi.
Níels Grímsson,
Strandgötu 8, Skagaströnd.
Ásgerður Jóna Flosadóttir,
Stigahlíð 83, Reykjavik.
Sjöfn Ólafsdóttir
Sjöfn Ólafsdóttir leikskólastjóri,
Háaleitisbraut 42, Reykjavík, er
fimmtugídag.
Starfsferill
Sjöfn fæddist í Reykjavík og ólst
þar uqp. Hún lauk prófi frá Fóstur-
skóla Islands 1977.
Hún var fóstra viö Fellaborg um
skeið og er nú leikskólastjóri við
Barónsborg við Njálsgötu í Reykja-
vík.
Sjöfn var um árabil í stjóm
Fóstrufélags íslands sem nú heitir
Félag íslenskra leikskólakennara.
Hún var formaður Lionsklúbbsins
Foldar 1991-92 og hefur nú á síðari
áram setið í fulltrúaráöi Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Fjölskylda
Sjöfn giftist 17.8.1963 Grétari
Bergmann Ársælssyni, f. 5.1.1932,
bifvélavirkja. Hann er sonur Ársæls
Sigurðssonar, verkamanns í
Reykjavík, og k.h., Guðnýjar Pét-
ursdóttur húsmóður. Sjöfn og Grét-
ar shtu samvistum 1985.
Böm Sjafnar og Grétars eru Ásta
Margrét, f. 18.8.1962, bókhalds- og
markaðsfræðingur í Hafnarfirði, en
sambýlismaður hennar er Óskar
Þór Sigurðsson tæknifræðingur;
Þórir Om, f. 8.1.1964, tamningamað-
ur í Mosfellssveit, kvæntur Guð-
laugu Ágústu Arnardóttur húsmóð-
ur og eru böm þeirra Örn, f. 18.8.
1989 ogfflldur,f. 2.4.1991.
Sambýlismaður Sjafnar er Gunn-
ar Ingi Jónsson, f. 17.3.1937, starfs-
maður á skrifstofu Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar. Hann er
sonur Jóns Ólafssonar, b. í Aust-
vaðsholti í Landsveit, og Katrínar
Sæmundsdóttur húsfreyju.
Böm Gunnars Inga em Pálmi, f.
27.4.1962, nemi í pípulögnum, bú-
settur í Hafnarfirði, kvæntur Ásu
Theodórsdóttur og eiga þau fjögur
böm, Theodór Inga, Sigurlaugu
Ásu, Önnu Lind og Birgi Örn; Ingi-
björg, f. 9.3.1963, húsmóðir á Hellu,
gift Guðna G. Kristinssyni og eiga
þau tvö böm, Þómnni Ingu og Krist-
inlnga.
Bróðir Sjafnar, sammæðra, er Jón
Gestur Sveinbjömsson, f. 4.5.1948,
sjómaður í Borgamesi, kvæntur
Sigurást Karelsdóttur veitinga-
manni og eiga þau eina dóttur, Rós-
íku.
Systkini Sjafnar, samfeðra, em
Unnur, f. 9.6.1954, skrifstofumaður
í Reykjavík, gift séra Pálma Matthí-
assyni og eiga þau eina dóttur,
Hönnu Maríu; Kjartan Jóhannes, f.
5.2.1956, doktor í jarðeðlisfræði og
kennslustjóri viö eðlisfræðideild
háskólans í Bergen, kvæntur Bám
Bj örgvinsdóttur, j arðeðlisfræðingi
Sjöfn Olafsdóttir.
og kennara, og eiga þau einn son,
Bjöm; Þór, f. 15.10.1961, rafeinda-
virki í Reykjavík, kvæntur Lindu
Björgu Þorgilsdóttur skrifstofu-
manni og eiga þau tvö böm, Sunnu
ogEmil.
Foreldrar Sjafnar: Ólafur Jóhann-
esson, f. 17.12.1923, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Vöruhappdrættis
SÍBS, og f. k.h., Steinunn Bjama-
dóttir, f. 27.6.1923, d. 18.11.1986,
matráðskona.
Stjúpmóðir Sjafnar er Borghildur
Kjartansdóttir, f. 23.9.1922, húsmóð-
ir.