Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Page 32
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 63 27 00 BLAÐAAFGREIÐSLA 0G ÁSKRIFT ER 0PIN: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokaö Mánudaga: 6-20 Þriöjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 63 27 77 KL. 6S LAUGARDAGS- OG MÁNUDAGSMORGNA Frjálst,6haö dagblaÖ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994. / Merkivélar / Tölvuvogir / Pallvogir / Pökkunarvélar ROKRAS HF. Bíldshöfða 18 "S 671020 Verkfall hjá Atlanta: Ókleift að hafa starf- semihér - segir forstjóri Atlanta „Ef heldur fram sem horfir er með fullu ljóst að félaginu er ókleift að hafa starfsemi sína hérlendis vegna stöðugra hótana Félags íslenskra at- vinnuflugmanna og verkalýðshreyf- ingarinnar um stöðvun á starfsemi félagsins. Það er því næsta skref að flytja starfsemina úr landi,“ segir Arngrímur Jóhannsson, forstjóri Atlanta-flugfélagsins, í tilefni af verkfallsboðun FÍA á öllu flugi Atlanta frá hádegi fóstudagsins 18. nóvember nk. Sex félagsmenn FÍA starfa hjá Atlanta. Stjórn og trúnaðarráð FÍA ákvað á fundi sínum í gærmorgun að boða til verkfallsins. Þá liggur fyrir að verka- lýðsfélög á Suðurnesjum hafa rætt um að grípa til samúðaraðgerða í verkfallinu en ákvarðanir um það liggja ekki fyrir. í tilkynningu frá Atlanta segir að þjóðarbúið verði af tæplega 900 millj- óna króna tekjum ef starfsemi flugfé- lagsins fari úr landi. LOKI Gildir nú hið fornkveðna: Aldrei að víkja! Verkfall sjúkraliða: Neyðará- stand getur skapast Verkfall sjúkrahða hófst á mið- nætti í nótt eftir að sjúkraliðar höfn- uðu boði ríkis, borgar og sjálfseign- arstofnana um þriggja prósenta launahækkun eftir fimm ára starf á félagsfundi sínum í gær. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkral- iðafélags íslands, segir ekki hafi ver- iö komið meira til móts við kröfur sjúkraliða en í tilboði ríkisins í vor. Sjúkraliðar búi sig því undir langt verkfall. Undanþágunefnd sjúkraliða veitti í gær stjórnendum Landakotsspítala undanþágur fyrir sjúkraliða á næt- urvöktum en ekki hafði verið sótt um undanþágur fyrir daginn í dag og áttu því engir sjúkraliðar að koma á vakt í morgun. Málflutningur verð- ur í máli Landakots fyrir félagsdómi á morgun en ekki er búist við að úrskuröur verði kveðinn upp fyrr en eftir helgi. Enginn neyðarhsti er í gildi á Landakoti. SjúkraUðar gengu út af Borgarspít- ala og Ríkisspítölum í gærkvöld eftir að ágreiningur kom upp um það hvernig túika bæri neyðarlista í verkfallinu. Formaður Sjúkraliðafé- lagsins segir að stjórnendur spítal- anna hafi vfljaö nýta starfsfólk sem best með því að flytja sjúkUnga á lok- aðar deildir án þess að sækja um undanþágu. Um verkfallsbrot sé að ræða og því fari málið fyrir félags- dóm. „Við berum mikið traust til sjúkra- liða að þeir komi hlutunum þannig fyrir að algjört neyðarástand skapist ekki og sjúkUngamir bíði heilsustjón af því. Áhrif verkfallsins koma ekki fram af fullum þunga aUra fyrstu dagana en auðvitað getur það ekki dregist tU eUífðar. Ástandið verður mjög erfitt þó að öll brýn neyðarþjón- usta fái undanþágu," segir Matthías HaUdórsson aðstoðarlandlæknir. Sjúkraliöar funda með Sighvati Björgvinssyni heUbrigðisráðherra í dag. Hafrannsóknastofnun: Úthafsrækjukvóti endurskoðaður Hafrannsóknastofnun vinnur nú að endurskoðun á tUlögum um há- marksafla af úthafsrækju. Sú krafa hefur komið fram hjá forsvarsmönn- um í rækjuvinnslu að rækjukvótinn verði stóraukinn og í því ljósi er Hafró nú að endurmeta ástand stofnsins. Að sögn Guömundar Skúia Braga- sonar er að vænta niðurstöðu um helgi. Sunna Þorsteinsdóttir og Tryggvi Björnsson urðu sigurvegarar í unglingamódelsamkeppninni 1994 í Tunglinu i gærkvöld. Á þriðja tug þátttakenda kepptu til úrslita. Sunna og Tryggvi fá tveggja ára samning hjá Módel 79 en þau fengu auk þess ýmsa vinninga. DV-mynd ÞÖK Veðriðámorgun: Hlýjast á Suðaustur- landi Á morgun verður austlæg átt, allhvöss víða við suðurströndina en annars gola eða kaldi. Suð- austanlands verða skúrir eða dá- lítil súld en léttskýjað annars staðar. Hiti -5 tU +5 stig, hlýjast suðaustanlands. Veðrið í dag er á bls. 36 Tekist á hann segi af sér t l/i / XI • r* / • MP auknar líkur á að hann segi af sér sjáJfviljugur A fundi tíu nánustu samstarfs- manna Guðmundar Árna Stefáns- sonar félagsmálaráðherra í gær- kvöld var rætt um hvort ráðherr- ann ætti að segja af sér sjálfviljugur eða láta vikja sér úr embætti. Meirihluti hópsins var þeirrar skoðunar að Guðmundur ætti að segja af sér sjálfvíljugur. Það myndi bjarga míklu fyrír Alþýðu- flokkinn og auðvelda Guðmundi áframhald í pólitíkinni. Þessum firndi lauk þó án þess aö Guðmund- ur gæfi það upp hvað hann ætiar að gera. Heimíldir DV herma aö eftir þennan fimd, og ekki síður samtöl við helstu forystumenn Alþýðu- fiokksins í gær, íhugi Guðmundur Ami mjög alvarlega að segja af sér í stað þess að láta víkja sér úr emb- ætti. Ráðherrar og þingmenn Alþýðu- flokksins leggja líka mjög hart að Guðmundi Árna aö segja af sér sjálfviljugur og leggur Jón Baldvin Hannibalsson, formaður flokksins, hreinlega ofurkapp á það. Þeir benda honum á að ef hann láti víkja sér úr embætti rústi það flokkinn og Guðmundur sjálfur sé búinn að vera í pólitík. Ýmsir af ættmeimum Guðmund- ar leggja hins vegar hart að honum að segja ekki af sér en láta heldur víkja sér úr embætti. Skýrsla Ríkisendurskoðunar verður gerð opinber í dag. Sam- kyæmt heimildum DV eru í henni þrjú atriði sem gagnrýnd eru hart. Alvarlegasta gagnrýnin er á starfs- lokasamninginn við Björn Önund- arson lækni. Guðmundur Árni mun hafa vitað um að enga nauö- syn bæri til að gera þann samning. Þá er gagnrýnt hve mikið Sten Jo- hansen fékk greitt fyrir hæklings- gerð fyrir ráðuneytið. Loks er gagnrýnt að Guðmundur leitaði til frænda síns, Hafnkels Ásgeirsson- ar lögfræðings, um skýrslugerð. Ríkisstjórnarfundur veröur hald- inn fyrir hádegi í dag, en ekki er víst að ákvörðun í þessu máli verði tekin á þeim fundi. Guðmundur Arni Stefánsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.