Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 Fréttir Stórtónleikar til styrktar tónlistarhúsi í Kaplakrika 11. desember: Tónleikar með tíu íslenskum tenórum Allt stefnir í að tíu íslenskir tenór- ar, þar á meðal Kristján Jóhannsson, syngi samtímis á tónleikum í íþrótta- húsinu í Kaplakrika þann 11. des- ember næstkomandi. Reiknað er með að Sinfóníuhljómsvéit íslands leiki undir á tónleikunum en Samtök byggingar tónlistarhúss standa fyrir þeim. Allt tónhstarfólkið gefur vinnu sína. Tenóramir munu syngja vin- sælar aríur, eitt til tvö lög hver. „Síðan munu tónleikarnir sjálfsagt enda með einhveijum „Grand fin- ale“,“ sagði Þórhallur Vilhjálmsson, starfsmaður samtakanna, í samtali við DV í gærkvöldi. „Kristjáni leist mjög vel á þetta,“ sagði Þórhallur. „Hann vildi að þó hafa tónleikana á öðrum degi en ég reikna engu að síður með að hann komi. Þaö er algjör slembilukka að við náum öllum tenórunum saman á þessum degi. Mennimir hafa ailir mikiö að gera en það stefnir í að þetta takist," sagði Þórhallur. „Þetta verða tíu bestur tenórar landsins - Kristján Jóhannsson, Ól- afur Ámi Bjamason, bræðurnir Gunnar og Guðbjöm Guöbjömssyn- ir, Kolbeinn Ketilsson, Þorgeir Andr- ésson, Jón Þorsteinsson og Kári Frið- riksson. Einnig stendur til að fá þá Óskar Pétursson og Garðar Cortes til að vera með. Tenóramir hafa tek- ið nfiög vel í þetta. Bræðurnir, Kol- beinn og Ólafur Árni koma sérstak- lega heim til að syngja og gefa sína vinnu," sagði Þórhallur. Þórhallur sagði að aðeins styrktar- menn tónlistarhússins muni fá að- gang að tónleikunum. Reiknað er með að Kaplakrikahúsið taki 2.500 manns í sæti. Styrktarfólkinu verður sendur gíróseðill að upphæö 3 þús- und krónur. Greiðist hann hefur við- komandi aðgang að tónleikunum. Styrktarmenn eru 1.500 en á síðustu tveimur vikum hefur símasöfnun verið í gangi þar sem 850 nýir aðilar hafa komið inn. Þann 2. desember verða aðrir tónleikar haldnir á veg- um samtakanna en þá mun Niels Henning Örsted Petersen koma á djasstónleika í Perlunni. Styrktar- mönnum verður gefinn kostur á að velja á milli þessara tvennra tón- leika. Kvennalistakonur þinguðu að Varmalandi i Borgarfirði um helgina og komust meðal annars að þeirri niðurstöðu að hefja ekki viðræður við Alþýðubanda- lagið og Jóhönnu Sigurðardóttur um sameiginlegt framboð I þingkosningunum í vor. DV-mynd Garðar Guðjónsson Landsfundur Kvennalistans var haldinn um helgina: Sameiginlegu framboði haf nað - ný stefhuskrá verður samþykkt í janúar Ákveðið var á landsfundi Kvenna- hstans að Varmalandi í Borgarfirði um helgina að hefja ekki viðræður við Aiþýðubandaiagið og Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmann utan flokka, heldur stefna frekar að fram- boði Kvennalistans um allt land í kosningunum í vor. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þingkona Kvenna- Ustans, segist telja að Kvennahstinn þurfi aö stokka spihn upp og breyta um baráttuaðferðir og því hafi hún talið rétt aö fara í viðræður um sam- eiginlegt framboð í vor. „Mér fannst vera kominn tími til að skoða sameiginlegt framboð á þeim forsendum að konur heíðu verulegt vægi og yrðu í fyrsta sæti um allt land. Ég myndi ekki segja að ég hafi orðið undir í þessum viðræð- um því aö minn málstaður átti veru- legan hljómgrunn. Við ræddum stefnuskrá Kvennaiistans sem verð- ur endanlega samþykkt í janúar og samþykktum tillögu um aö leita eftir tvíhhöa samningum við ESB í stað inngöngu," segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þingkona Kvenna- hstans. Rjúpnaskytta lést úr hjartaslagi á Jökuldal: Sextíu manns leituðu í svartaþoku Tahð er að maður um fimmtugt, frá Egilsstöðum, hafi látist úr hjarta- slagi þar sem hann var á rjúpnaveið- um á Heiðarenda á Jökuldal á laug- ardag. Björgunarsveitir á Egilsstöð- um og nágrenni voru kahaðar til leit- ar um klukkan ehefu á laugardags- kvöld og tóku ahs um 60 manns þátt í leitinni við mjög erfiðar aðstæður. Svartaþoka, niðdimmt og votviöri var á leitarsvæðinu. Maðurinn fannst látinn við fiahsrætur Heiðar- enda í landi Ghja eftir fiögurra tíma leit. Maðurinn fór að heiman frá sér skömmu eftir hádegi á laugardag og ætlaði aö vera skamma stund á skytt- iríi. Þegar hann var ekki kominn til síns heima um kvöldið fóru ættingjar að óttast um hann og höfðu samband við lögreglu sem síðan kahaði út björgunarsveitir. Maðurinn var þaulkunnugur á þessu svæði og reynd rjúpnaskytta. Nákvæmur úrskuröur um dánaror- sök lá ekki fyrir í gærkvöld en líkleg- ast var tahð að maðurinn heföi feng- ið hjartaáfah. Hann hét Sveinn Guð- mundsson, 53 ára að aldri, th heimil- is að Bjarkarhhð 2 á Eghsstöðum. Sveinn lætur eftir sig eiginkonu og fiögur börn. NIÐURSTAÐA Á að skattleggja blaðburðarbörn j § ú FOLKSINS 99-16-00 Fjögur ungmermi lentu í sjónum: Bflprófið dags gamalt Saufián ára gamall phtur á ísafirði ók bh í höfnina um þijúleytið aðfara- nótt sunnudags. Þijú ungmenni voru með ökumanninum í bhnum og tókst þeim öhum að komast út úr honum og svamla í land áður en bíhinn sökk tvo metra niður á hafsbotn. Krökkunum varð ekki meint af volkinu en bílhnn fór í Sundahöfnina skammt frá landi. Aðeins var hðinn rúmur sólarhringur frá því ökumað- urinn fékk skírteinið sitt í hendur á lögreglustöðinni en hann varð 17 ára á laugardag. Að sögn lögreglu á ísafirði var ísing á bryggjunni og þónokkuð hált þegar óhappið átti sér stað. Bryggjukantur- inn er lélegur og stórhættulegur að sögn lögreglu. Bíhinn, sem er af Subaru-gerð, var hífður af hafsbotni strax í gærmorg- un. Hann er töluvert skemfndur af seltu og grjótbarningi. Hálka í Húnaþingi: Þrjár veltur á klukku- stund Á innan við klukkutíma í gær urðu þijár bílveltur á þjóðvegi 1 í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi. Ahar veltumar má rekja th hálku sem skyndhega myndaðist á þjóöveginum. Allir bílarnir eru gjörónýtir eftir velt- urnar en alvarleg meiðslu urðu ekki á fólki. Fyrst var lögreglan köhuð út að bænum Geitaskarði í Langad- al. Þar fór splunkunýr bhl út af meö tveimur innanborðs en þá sakaði ekki. Á meðan lögreglan var á staðnum fór annar bhl fiór- ar veltur út af skammt frá Geita- skarði. Ökumaður og farþegi úr þeim bh vom fluttir á sjúkrahús- ið á Blönduósi með líthsháttar meiðsl. Svo mikh var hálkan þarna í Langadal að læknir sem kom á slysstað „flaug á haus- inn“, eins og lögreglan orðaði þaö, þegar hann kom út úr sjúkrabhnum en sakaði ekki. Þegar lögreglan var að ljúka sér af í Langadal kom thkynning um að bíh hefði farið út af veginum við Vatnsdalshóla. Þar urðu eng- in slys á fólki. Stuttar fréttir Loðnanfundin Töluverð loðnuganga hefur fundist suðaustur af landinu. Loðnubátar frá Eskifirði og víðar fóru af stað til veiða í gærkvöld. Lántilsmábáta Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráöherrahefur óskað eftir að Fiskveiðasjóður láni til smábáta vegna mikilla erfiðleika í útgerð- inni. Þetta kom fram á Stöð 2. Miðstöðlokað Fyrirhugað er að loka Miðstöð atvinnulausra og endurskoða starfsemina frá grunni. Stöð 2 greindi frá þessu. Bruggverksmiðju lokað Bruggverksmiðju í austurbæ Reykjavíkur var lokaö á fóstu- dagkvöldið. Haid var lagt á 600 lítra af gambra og 40 lítra af landa. Íúrslitífatahönnun íslensk stúlka komst í úrsht í alþjóðlegri keppni ungra fata- hönnuða sem haldin var í Dyflhmi á írlandi um helgina. Bensínlækkun? Vegna lækkunar á heímsmark- aði aö undanfórnu gæti svo fariö að oliufélögin hérlendis lækkuðu bensínverðið á næstunni. Vænt- ingar um að viðskiptabanni á ír- aka verði aflétt lækkuðu heims- raarksverðiö. Spariskírteinihækka Ávöxtun spariskírteina ríkis- sjóðs tóku kipp á Verðbréfaþing- inu fyrir helgi. Samkvæmt Mbl. hefur ávöxtunin, 5,4 prósent, ekki verið hærri á þessu ári. Kvikmyndagerðarmenn hafa vahð Bíódaga Friðriks Þórs sem framlag Islands th næstu óskars- verðlauna. Valið stóö á nhlh Bíó- daga og Skýjahallar Þorsteins Jónssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.