Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Síða 3
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 3 Fréttir Óskar Montes slasaðist við að bjarga mannslífi í desember síðastliðnum: Spítalinn sendir lög- mann á bjargvættinn - var heiðraður á sjómannadaginn - ég trúi þessu ekki, segir Óskar „Mér finnst þetta ótrúlegt. Eg er sjó- maður og lagði líf mitt í hættu við að bjarga öðru mannslífi. Ég bjargaði lífi konu sem féll í sjóinn í höfninni í Reykjavík. En nú hefur Borgarspít- alinn sent mér bréf frá lögfræðingi sínum þar sem hann krefur mig um 6.700 krónur fyrir þá aðhlynningu sém þurfti að veita mér á sjúkrahús- inu vegna meiðsla sem ég hlaut við björgunina í desember á síðasta ári,“ sagði Óskar Montes, skipverji á Vest- mannaey VE 54, í samtaii við DV. Óskar hefur búið á íslandi í 10 ár en er frá Spáni. Hann missti linsur sínar í höfnina þegar hann bjargaði konu, tognaði á hendi og fékk snert af taugaáfalli eftir atburðinn. Hann átti erfitt með svefn í nokkrar vikur, svo mjög tók björgunin á hann and- lega. „Þegar ég var að bjarga kon- unni fannst mér hún vera dáin og ég var það nánast sjálfur," sagði Ósk- ar. Óskar fékk einnig sendan reikning fyrir flutning í sjúkrabíl en hann var afturkallaður og síðan beðist afsök- unar, að sögn-Oskars. Borgarspítal- inn er hins vegar sá aðili sem hefur krafið hann um greiðslu. „í rauninni er ég ekkert illa settur og þetta er ekki mikill peningur. Hins vegar líður mér illa að vita tii þess að þegar maður er að bjarga manns- lífi sé maður krafinn um greiðslu - og með þessum hætti. Ég skil þetta Tölum ekki í farsíma á ferö! VARMASKIPTAR Á NEYSLUVATNSKERFIfl • Koma í veg fyrir kísilhúö á hand- laugum, baökörum, blöndunartækjum o.fl. wa rý ■ • Afkastamiklir • Fyrirferöalitlir • Auöveld uppsetning • Viöhald í lágmarki • Hagstætt verö Þú finnur varla betri lausn! = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 ekki,“ sagði Óskar. Óskar fékk viðurkenningarskjal á sjómannadaginn þar sem honum var þökkuð björgunin í Reykjavikur- höfn. Nýjar linsur kostuðu ðskar 20 þúsund krónur og hann hefur auk þess lagt í talsverðan kostnað vegna læknishjálpar sem hann þurfiti á sín- um tíma. Umboð fyrir Scania: Frá ísarni til Heklu Hekla hf. hefiir tekið viö um- boði fyrir sænska bílaframleið- andann Scania af ísarni hf. sem hefur verið með umboðið undanf- arin 40 ár. Þetta var niðurstaða eftir að viðræður við aðra aðila gengu ekki upp. Hlutdeild Scania á bílamark- aðnum á íslandi er mikil í sölu vörubíla, flutningabíla, lang- ferðabila og strætisvagna. Inn- flutningur slikra bíla hefur reyndar dregist mikið saman síð- ustu ár en nýtt umbeð mun án efa auka veltu og umsvif Heklu. ) hvar þú kaupir þér brunatryggingu húseigna Við hjá Tryggingamiðstöðinni önnumst brunatryggingar þínar ásamt öllum öðrum tryggingum. Nánari upplýs- ingar færðu hjá starfsfólki Tryggingamiðstöðvarinnar og umboðsmönnum um allt land. Notaðu tækifærið og veldu hvar þú tryggir húseign þína. Skilafrestur uppsagna er til 30. nóvember næstkomandi. * TRYGGINGA MIÐSTÖÐIN HF. - þegar mest á reynir! Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.