Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Síða 7
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
7
Fréttir
Meint verkfállsbrot á Landspítala og Borgarspítala:
Hjúkrunarfræð-
ingar taka
vaktir á lokuð-
um deildum
- hýrudrattnr út 1 hött, segir forstjóri Ríkisspítala
„Viö höfum orðið varar við verk-
fallsbrot á sjúkrastofnunum, sér-
staklega á sjúkrahúsum þar sem eru
deildar meiningar um það hvort
sjúkraliðar hafi átt að mæta á
ákveðnar deildir eða ekki. Við teljum
að stjórnendur spítalanna eigi að
hafa samráð við okkur um val á opn-
um deildum í samræmi við neyöar-
Usta. Stjómendur Ríkisspítala og
Borgarspítala hafa hins vegar tekið
þá stefnu að sækja ekki um undan-
þágu fyrir sjúkraliða og fá frekar
hjúkrunarfræðinga á aukavaktir.
Við túlkum þetta sem verkfaUsbrot
og höfum farið fram á viöræður við
stjórnendur Borgarspítala vegna
þessa," segir Kristín A. Guðmunds-
dóttir, formaður Sjúkraliöafélags ís-
lands.
Ágreiningur er milU forráðamanna
Ríkisspítala og Sjúkraliðafélags ís-
lands um það hvernig túlka beri svo-
kallaða neyðarlista þar sem fram
kemur að tvær deildir af þremur í
Hátúni eigi að vera opnar í verkfalU.
Formaður Sjúkraliðafélagsins segir
að stjómendur spítalanna taki ein-
hliða ákvörðun um það hvaða deild
er lokað auk þess sem þeir hafi ætlað
að hafa 86 rúm opin á deild sem átti
að vera lokuð. Sækja berium undan-
þágu fyrir sUkt.
„MáUn eru leyst með öðru starfs-
fólki á defidum þar sem sjúkraliðar
eiga að mæta en hafa ekki gert það.
Við höfum alltaf verið afar gætin í
því að fara að lögum og reglum í sam-
skiptum okkar við starfsfólk í verk-
föllum en báðir aöilar verða að fara
eftir lögum. Sjúkraliðar kjósa að
mæta ekki í vinnu á neinni deildanna
í Hátúni þó að skýrt standi í lögum
að tvær deildir eigi að vera opnar.
Engu máU skiptir hvaða deildir það
eru. Þá er það gjörsamlega út í hött
að stærsti vinnuveitandi landsins
hóti starfsfólkinu hýrudrætti fyrir
vinnu í verkfalU," segir Davíð Á.
Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítala.
Á samningafundum ríkisins og
sjúkraliöa um helgina var ekkert
rætt um launakröfur en nokkuð þok-
aðist í nefndavinnu um réttindamál
sjúkraliða á landsbyggðinni og
menntunarmál sjúkraUða almennt.
Nýr samningafundur hefur verið
boöaður fyrir hádegi í dag.
IPD ekki samið við Caterpillar
Vegna fréttar í DV 26. október síð-
astliðinn á bls. 11 um Sigurgeir
Skímisson, véltæknifræðing og fyrr-
um framkvæmdastjóra Bætis, sem
hefur verið ráðinn af bandaríska
varahlutaframleiðandanum IPD,
Industrial Parts Depot, til að koma
upp Evrópuumboöi í Danmörku, vill
Sigurgeir koma eftirfarandi leiðrétt-
ingu á framfæri:
„Ég er ráðinn af IPD en ekki Bæti
hf. Tölur um fjölda skipavéla, sem
Bætir hefur komið upp varahlutum
í, em á misskilningi byggðar og ekki
réttar. Þá hefur IPD aldrei samið við
bandaríska vélaframleiðandann Cat-
erpillar um framleiðslu varahluta
fyrir sig eða aðra vélaframleiðendur
sem minnst er á í umræddri frétt.
Einnig er rétt að undirstrika að IPD
framleiðir eingöngu varahluti í dísfi-
vélar."
SqÓNvnRPsmiÐSTÖÐiN
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 68 90 90
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐfl
VALDfl ÞÉR SKAÐfl!
yujgERDAR
„Heimilislínan býður upp á fjölbœyttar
sparnaðarleiðir svo sem spariáskrift á
verðbréf, Stjömubók, Húsnæðisspam-
aðarreikning og margt fleira."
Ingvi Þorsteinsson, náttúrufræðingur
Þjónusturáðgjafar Búnaðarbankans aðstoða þig við að fínna
bestu ávöxtunarleiðina. Stjörnubók og Húsnæðissparnaðar-
reikningur gefa mjög góða ávöxtun og eru tilvaldir sparnaðar-
reikningar fyrir þá sem vilja koma sér upp eigin lífeyrissjóði
eða varasjóði.
Pantaðu tíma hjá þjónusturáðgjafa
í næsta útibúi eða hringdu ogfáðu
upplýsingar í síma 91-603272 __
BIJNAÐARBANKI
ÍSLANDS
HEIMILISLINAN
- Einfaldar fjármálin