Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Page 9
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
9
Utlönd
VERO mODA
bjargað í dýrri
„Hann verður farinn að hlaupa
um og gelta eftir nokkra daga,“
sögðu skurðlæknar á háskóla-
sjúkrahúsinu í Saskatchewan i
Kanada þegar þeir litu upp frá
sjúkrabeði flækingshundsins
Bohbys að lokinní sex klukku-
tíma skuröaðgerð í gær.
Fimm læknar unnu verkið en
Bobby var nær dauða en lífi
vegna hjartagalia. AHri nýjustu
tækni var beitt og eru vonir góðar
um að Bobby, sem er ársgamall,
haldi lifi.
Uppátæki þetta befur þó vakið
meiri reiöi en hrifningu í Kanada.
Hundavinir fundu Bobby á flæk-
ingi fyrir skömmu og komust að
því að hann var eini svissneski
smalahundurinn í gjörvöllu rík-
inu. Því var lögð svo rík áhersla
á að bjarga lifl hans,
Gagnrýnendum þykir lúns veg-
ar yfirgengilegt að eyða orku fær-
ustu sérfræðinga í hund þegar
útigangsböm deyja dag hvem á
götum sórborga landsins.
Fékkekkifrið
fyrirbónorðum
„Carlos
hringdi í mig á
hverjum degi
og bað mig að
giftast sér,“
segir hryðju-
verkakonan
Sami Andrews
sem nú er í
fangelsi í Noregi eftir að hafa
verið á flótta undan réttvísinni i
sautján ár.
Andrews segir að Carlos hafi
frétt af sárum hennar í frægu
flugráni sem endaði í skotbar-
daga í Sómalíu. Eftir það var hún
flutt á sjúkrahús í Tékkóslóvakíu
og þar haíði Carlos uppi á henni.
Ekki tókust ástir raeð þeim
hryðjuverkahjúunum en örlögin
hafa hagað því svo að þau lentu
bæði bak viö lás og slá nú síðla
árs bg bíða dóms.
Tölvujöfurinn
keypti dýrasta
handritið
Nú er upplýst að það var Will-
iam Gates, stjórnarformaður og
aðaleigandi tölvufyrirtækisins
Microsoft, sem keypti handrit
með teikningum Leonardos Da
Vincis á uppboði um helgina fyrir
rúma tvo milljarða íslenskra
króna.
Gates er einn af ríkustu mönn-
um veraldar. Hann hyggst lána
handritið á söfn svo almenningur
fái notið dásemdanna. í handrit-
inu er m.a. að fmna teikningar
Leonardos af kafbát og gufuvél,
Sameinuðu
þjóðirnar eru
leppurKananna
Það á að
leggja Samcin-
uðu þjóðirnar
niður. Þessi
stofnun er ekk-
ert annað en
leppur fyrir
bandaríska ut-
anrikisráðu-
neytið," sagði rússneski þjóðem-
issinninn Vladimír Zhíiinovski i
heimsókn í aðalstöðvar samtak-
anna í gær. Kappinn hefur átt í
erfiðleikum með að draga að sér
atíiyglina í Bandaríkjaferð sinni
og hefur nú gripið til stóryrða
effir að engiim viidi heyra álit
hans á alþjóðamálum.
Díana prinsessa staðfestir ítök sín í Buckhinghamhöll:
Prinsafóstran
dæmd í skírlvf i
- fóstran má ekki eiga samneyti við karla á meðan hún passar
Díana prinessa hefur fengið því
framgengt að konan sem gætir prins-
anna, sona hennar, meðan þeir eru
hjá Karh föður sínum má ekki eiga
samneyti við karla á meðan hún
gegnir þessu starfi.
Stríð hefur staðið síðustu daga
milli Karls og Díönu um störf kon-
unnar og er nú loks fengin niður-
staða í máhð; skírlífi eða atvinnu-
missir. Þetta þykir ýmsum harður
dómur én sannar að Díana hefur enn
sterk ítök í Buckhinghamhöll og get-
ur sett skilyrði sem embættismenn
drottningar fara eftir.
Kona þessi heitir Tiggy Legge-
Bourke. Hún er 29 ára að aldri og
ógift. Hún hefur fallist á hinn kon-
unglega úrskurð og ætlar ekki að líta
karla hýru auga á meðan hún er í
fórstrustarfinu. Hefur hún m.a. flutt
úr íbúð sinni til að koma í veg fyrir
Díana prinsessa óttast að prinsarnir
verði henni fráhverfir.
gróusögur og óþarfa eftirlit fjöl-
miðlamanna.
Breskir fréttaskýrendur eru sam-
mála um að mál þetta eigi ekki rætur
í meintu karlafari Tiggy heldur finni
Díana til afbrýðisemi vegna þess hve
hændir prinsamir eru að fóstru
sinni. Hún ber hina konungbomu
ungsveina á höndum sér þegar Karl
á í raun og vem að annast þá. Prins-
arnir em aðeins með föður sínum
stutta stund hvern dag.
Þá mun Díönu hafa mislíkað að
Tiggy hefur kallað prinsana ,;babi-
es“ þótt þeir séu tíu og tólf ára. Það
telur Díana óþarfa og vill að synir
hennar fái karlmannlegra uppeldi.
Harður heimur bíður þeirra á ungl-
ingsárunum og því eins gott að venja
þá strax við nokkra harðneskju.
Reuter
flyturfrá ^
« Laugavegi 8j|;§
að Laugavegi 95
ftmmtuá p. nóy.
■ ÓfrulegíS§
opnunqtiilboð!!!
VERONÍODA
Laugavegi 95 s. 21444
William skal hann heita. Hillary Clinton forsetafrú hefur vakið óskipta að-
dáun í Indónesiu og láta mæður börn sin heita í höfuðið á forsetanum.
Simamynd Reuter
Bill og Hillary Clinton í umdeildri Asíuferð:
Börnin heita í höfuðið
á forsetanum góðlega
Alþýða manna í Indónesíu hefur
tekið bandarísku forsetahjónunum,
Bill og Hillary CUnton, með kostum
og kynjum í Asíuferð þeirra. Ungar
mæður láta böm sín heita í höfuðið
á þeim og segjast ekki hafa séð gæða-
legra fólk.
Hrifningin nær þó ekki svo langt
sem stjómvöld í ríkinu \dldu. Stúd-
entar hafa notaö tækifærið til að
minna á margendurtekin mannrétt-
indabrot á eyjunni Tímor þar sem
stjóm Indónesíu fer með völd í skjóh
hersins.
Fjöldi stúdenta hefur hreiðrað um
sig á lóð bandaríska sendiráðsins í
Jakarta og krefst þess að Clinton
beiti áhrifum sínum til að andófs-
mönnum verði sleppt úr fangelsun-
um.
CUnton haföi og vonast til að öll
athyglin beindist að efnahagssam-
vinnu á austurhveli jarðar. Það var
tilefni ferðarinnar til Indónesíu. Nú
verður hann að standa í ströngu við
að móðga ekki gestgjafann Suharto
forseta en muna samt mannréttinda-
brotin.
Reuter
VIRKA
Nýkomið
Þykku flísefnin margeftirspurðu, dúkkubókin frá Goose-
berry, bútasaumsefni, fondurtroó, tölur, bútasaumsreglu-
stikur o.fl. o.fl.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-18, á laugardögum frá
1. sept. til 1. júní kl. 10-14.
f
VIRKA
Mörkinni 3, sími 687477
(við Suðurlandsbraut)
Mjódd og Lynghálsi 10
Reykjavik
Furuvöllum 1
Akureyri
Stillholti 16 Mjallargötu 1
Akranesi ísafirði