Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
»
I
Fréttir
Sjómannasambandið í hart vegna hentifánaskipanna:
Útgerðirnar nýta sér
neyðina í atvinnuleysinu
- löndunarbann kemur til greina, segir Konráð Alfreðsson
Á fundi nýkjörinnar stjórnar Sjó-
mannasambands íslands, sem hald-
inn verður þessari viku, verða mál-
efni sjómanna á hentifánaskipunum
svokölluðu sérstaklega tekin til um-
ræðu og er öruggt að Sjómannasam-
bandið ætlar að skera upp herör
gagnvart útgerðum skipanna fáist
ekki lagfæringar á kjörum sjómanna
á skipunum sem sigla undir erlend-
um „hentifánum".
„Það eru svo ótal mörg réttindi sem
mennimir á þessum skipum hafa
afsalað sér í ráðningarsamningum,“
segir Konráð Alfreðsson, varafor-
maður Sjómannasambandsins. „Þeir
hafa t.d. afsalað sér öllum sínum
veikindarétti sem þeir eiga að hafa
samkvæmt íslenskum lögum og
samningum. Utgerðimar geta vikið
mönnum úr starfi fyrirvaralaust og
án þess að tilgreina ástæður. Fari
maður af þessum skipum í land t.d.
í erlendri höfn er ekki nóg með að
hann þurfi að greiða farið sitt heim,
heldur þarf hann að útvega sjálfur
afleysingarmann og greiða farið fyrir
hann líka. Þá er einhver munur á
skiptaprósentu þegar kemur að út-
reikningi launa og margt fleira mætti
tilnefna. Útgerðimar em að nota sér
neyð manna í atvinnuleysinu.
Samningar þessara manna em
gjörsamlega út í loftið og maður horf-
ir á þetta með skelfingu. Vankant-
arnir em þegar famir að koma í ljós
t.d. hvað varðar veikindi og slys um
borð í skipunum. Sjómaður á einu
skipanna lenti í alvarlegu slysi og
missti framan af fingram. Hann er
nú að beijast í endurhæfingu og fær
ekki greitt úr tryggingakerfinu
vegna þess að útgerð skipsins greiðir
ekki í það kerfi eins og aðrar útgerð-
ir gera.
Við hljótum að krefja útgerðir þess-
ara skipa um skýringar á því hvers
vegna þeir skrá skipin ekki hér á
landi þar sem það er orðið heimilt.
Við höfum ýmislegt til að nota í þess-
ari baráttu okkar, eitt er hafnbann,
við erum innan ASÍ og það em verka-
menn innan ASÍ sem sjá um uppskip-
un úr þessum togurum. Og það er
fleira sem við getum gert og við ætl-
um okkur að taka á þessum mál-
um,“ segir Konráð.
Steffens
baby face
Ungbarnafatnaður í
stærðum 56-80 cm
Einnig mikið úrval af
fyrirburafatnaði
Galli 2.495,-
Peysa 1.395,-
Buxur 1.395,-
10% staðgreiðsluafsl.
steffens
Ekkert
póstkröfugjald
Á &ÍJÍÍ?Lá>tJÆ/L .}^L—
Barrrafataverslun r
f' Laugavegi 89 • Roykjovik • Sírni 10610
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRABA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Lionessur verða lions
Amheiður Ólafedóttir, DV, Stykkiahólmi:
Stofnfundur Lionsklúbbsins Hörpu
var haldinn á Hótel Stykkishólmi um
mánaðamótin síðustu og er þar um
að ræða formbreytingu. Lionessu-
klúbbamir á Snæfellsnesi hafa starf-
að til fjölda ára sem lionessuklúbbar
en félagar í þeim teljast ekki með í
alþjóðasamtökum Lions. Á íslandi
er Uonshreyfingunni skipt niður í tvö
umdæmi - 109 A og 109 B.
Ástæða þess að lionessur ákváðu
að starfa sem lionsklúbbar í framtíð-
inni er sú að ákveðinn fjölda félaga
þarf í hvert umdæmi til að það teljist
löglegt en raunin var oröin sú að
umdæmi 109 B var orðið of fámennt.
Því fóm lionsmenn þess á leit við
honessur á Snæfellsnesi aö verða
hons. Lionessuklúbbamir á nesinu
urðu alhr við þeirri bón.
Með þvi að lionessur verða lions og
nokkrir lionsklúbbar í Reykjavík
ílytjast milli umdæma er umdæmi 109
B komið með tilskilinn félagaijölda
og telst þvi löglegt. Lionsklúbburinn
Harpa kemur til með aö starfa á
óbreyttan hátt þrátt fyrir þessa form-
breytingu. Stofnskrárfundur lions-
klúbbanna Þemunnar á Hellissandi
og Ránar í Ólafsvík var haldinn í fé-
lagsheimilinu Klifi í Ólafsvík degi á
eftir stofnfundinum í Hörpu.
Ami Stefán Guðnason, umdæmisstjóri B 109, heldur ræðu á stofnfundi
Hörpu. DV-mynd Arnheiður
VANTAR SKAPARYMI?
I
ft
250 cm
Nýtt huröakerfi - ótal möguieikar
Petta erí boöi:
• Ný fataskápalína, sem nýtir plássið
fullkomlega.
• Nýtt hurðakerfi á hjólabraut í gólfi.
• Margvíslegt útlit og speglar.
• Hver skápur er sniðinn eftir máli án
aukakostnaðar fyrir kaupanda.
• Mældu rýmið sem þú hefur til ráðstöfunar
og komdu til að fá tilboð í nýjan fataskáp.
• Þú gemr einnig fengið nýjar hurðir fyrir
gamla skápinn, athugaðu það.
f
SERVERSIUN MEÐ INNRETTINGAR OG STIGA
NÝBÝLAVEG112, SlMI 44011 - PÓSTHÓLF 167, 200 KÓPAVOGI
mánudagsMmvm/
Á mánudögum verður DV komið í hendur áskrifenda á suðvestur-
hominu um klukkan 7.00 að morgni og aðrir áskrifendur fá
blaðið í hendur með fyrstu ferðum frá Reykjavík út á land.
Helgarblað DV berst einnig tiliskrifenda á sama tíma á laugardögum.
BREYTTUR AFGREIDSLUTIMI:
Blaðaafgreiðsla og áskrift: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 Helgarvakt ritstjórnar: Sunnudaga 16-23 Smáauglýsingar: Laugardaga: 9-14 Sunnudaga: 16-22 Mánudaga - föstudaga: 9-22 Ath.: Smáauglýsing í helgar- blað verður að berast fyrir klukkan 17 á fóstudag.
DV
63*27*00
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU:
63 27 77
KL. 6-8 LAUGARDAGS- OG
MÁNUDAGSMORGNA
L