Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
17
Fréttir
X-Domino ’s listinn er á
dagskráX-ins á fimmtn-
dögum kl. 16:00 og
endurfluttur á laugardögum
kl. 14:00. Einar Öm
Sykurmoli sér um'ann í
boði Domino's Pizza.
Nýflotkvítil
Akureyrar í vor
Samningar hafa verið undirritað-
ir um kaup Akureyrarbæjar á nýrri
flotkvi frá Litháen. Kaupverð kvíar-
innar hefur ekki verið gefið upp en
talið er aö hún muni kosta um 130
milljónir króna. _
Kvíin verður staösett á athafna-
svæði Slippstöðvarinnar Odda hf. og
rekin af fyrirtækinu. Hún er 116
metrar að lengd, 24 metra breidd og
tekur skip sem vega allt að 5 þúsund
þungatonnum. Kvíín veröur dregin
í heilu lagi yfir hafið frá Litháen í
maí en þá verður búið að grafa fyrir
henni og koma upp sjóvarnargarði á
svæðinu þar sem hún veröur.
Hitaveitan:
Semurum borun
við Jarðboranir
Forsvarsmenn Hitaveitu Reykja-
víkur hafa komist að samkomulagi
við forsvarsmenn Jarðborana hf. um
að Jarðboranir taki að sér borun
rannsóknarholna á Ölkelduhálsi
næstu sex árin. Fyrirtækið borar
fyrstu holuna á Öldukelduhálsi fyrir
58 milijónir króna en veitir 10 pró-
senta magnafslátt af borleigu Jötuns
við borun holu númer tvö, 15 pró-
senta afslátt af borun holu númer
þrjú og 20 prósenta afslátt við borun
allra holna eftir það.
„Ég vona að borunin hefjist strax
í þessari viku. Við höfum verið að
leggja veg upp eftir og það er á loka-
stigi. Þegar því er lokið reynum við
að koma bornum þangað eins fljótt
og hægt er. Viö höfum 10-15 ár til
að vinna á þessu svæði. Fyrsta holan
kemur til með að gefa vísbendingar
um háhitasvæðið. Ef hún verður góð
borum við sjálfsagt fleiri holur,“ seg-
ir Gunnar Kristinsson hitaveitu-
stjóri.
Heildarkostnaður við borholu er
um 90-100 milljónir króna með lagn-
ingu vegar og efniskaupum.
Aukning í
af la á úthafs-
rækju og ýsu
- annars samdráttur
Mikil aukning var í afla á úthafs-
rækju fyrstu tvo mánuði fiskveiði-
ársins. Aflinn var á síðasta fiskveiði-
ári 8.620 tonn en fór nú í 14.116 tonn.
Þá jókst ýsuaflinn úr 5.740 tonnum í
7.050 tonn. Afli í öðrum tegundum
dróst saman og er þorskafli aðeins
18.748 tonn á móti 33.206 tonnum á
síðasta ári.
ASÍ boðar nýja
atvinnustefnu
Alþýðusamband íslands, ASÍ, hefur
kynnt nýja atvinnustefnu undir kjör-
orðinu „Atvinnustefna til nýrrar ald-
ar“. ASÍ telur að hér á landi verði
að leggja áherslu á að framleiða vör-
ur með mun hærra virðisaukastigi
en verið hefur og því verði að gera
grundvallarbreytingu á stefnu í efna-
hagsmálum.
í máli Benedikts Davíðssonar, for-
seta ASÍ, kom fram að vinna þyrfti
markvisst að því að fjölga vel launuð-
um störfum samtímis því að bæta
framleiðni og afköst verulega. „ASÍ
hafnar því alfarið að hér verði í fram-
tíðinni lögð áhersla á framleiðslu á
vörum sem byggjast á lágum laun-
um. Tillögur ASI eru því raunhæfur
valkostur við þá svartsýnu uppgjaf-
arstefnu sem t.d. kemur fram í frum-
varpi til fjárlaga ársins 1995,“ sagði
Benedikt.
ASÍ telur að stjórnvöld og atvinnu-
líflð hafi brugðist varðandi stefnu-
mótun í atvinnumálum og að um-
ræður um þessi mál séu bæði litlar
og á villigötum. Forystumenn ASÍ
benda á að atvinnumálasaga þjóðar-
innar undanfarin ár hafi verið „sam-
felld hrakfallasaga". Lánastofnanir
hafi afskrifað 54 milljarða á síðustu
árum vegna rangra ákvaröana í flár-
festingu í atvinnulífinu.
Forystumenn ASÍ kynna nýja atvinnustefnu. Frá vinstri Ari Skúlason hag-
fræðingur, Benedikt Daviösson forseti, Ingibjörg Guðmundsdóttir varafor-
seti og Gylfi Arnbjörnsson hagfræðingur. DV-mynd BG
Hjörtur Howser og
Guöríður Haraldsdóttir
stjórna morgunútvarpi
Aðalstöðvarinnar
„Drög að degi“
frá kl. 9:00 -12:00 alla
virka daga.
Guðrtín Bergmann
fcerir hlustendum
Aðalstöðvarinnar Ijós og .
hlýju íþcetti sínum
Betra Líf á miðviku-
dögumkl. 18:00.
Andlegu málefnin öðlast
nýjan skilning í höndum
hennar.
Valgerður Matthíasdóttir
er á Ijúfu nótunum
á laugardögum
kl. 13:00 - 16:00 í boði
Visa Islands.
.Það gerir enginn beturen
Albert Ágústsson þegar
gullaldartónlistin
er annars vegar. Hlustaðu
á Albert frá kl. 12:00 -
16. 00 alla virka
daga á AðalstöðinnL
Sigmar Guðmundsson
er með áhugaverð
viðtöl og góða tónlist
á Aðalstöðinni daglega
frá kl. 16:00 -18:30.
Siggi Sveins er með
Sigmari á föstudögum
og sþá þeirfélagar í
komandi helgi.
\ y™
ema
sími 62 12 13
X 909f909
M m AÐALSTÖÐIN