Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 Fréttir Utanríkisráðherra um úrslitin í Svíþjóð: Þetta er bylting í sænskri sögu „Naumur sigur en nægur, sagði Carlsson. Ég er sammála honum um það. Hinar eilífu skoðanakannanir að undanfórnu bentu til þess að þetta væri í járnum, jafnvel að nei-hliðm væri að styrkjast. Þessar niðurstöður eru hins vegar talsvert á annan veg. Þetta er sögulegt því að Svíar hafa rekið hlutleysispóhtík og verið utan bandalaga. Innganga Svía í fjölþjóð- legt, póhtískt bandalag um fríversl- unarsvæði og sameiginlega utanrík- is- og öryggispólitík er bylting í sænskri sögu,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra um úrshtin í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Svíþjóð. „Danir hafa verið í evrópsku sam- starfi í rúma tvo áratugi og hafa af því góða reynslu. Ef Norðmenn fara inn í ESB telja margir íslendingar að þeir verði að fara að hugsa sitt ráð í alvöru. Ég tek undir með nei-liðun- um norsku sem segja: Norðmenn kjósa fyrir Norðmenn. Burtséð frá úrshtunum í Noregi eiga íslendingar að taka afstöðu í þessu máh á eigin forsendum," segir hann. „Við þurfum að setjast niður, vega og meta okkar kosti miðað við þessa niðurstöðu og fara af stað með mál- efnalega umræðu. Ég er ekki endi- lega að segja að við þurfum að sækja um. Það verður spennandi að fylgjast með ákvörðun Norðmanna og ég held að niðurstöðumar úr þjóðarat- kvæðagreiðslunni í Noregi geri út- slagið um það hvernig við tökum á málinu. Ef Norðmenn samþykkja verðum við að hugsa okkur vel um,“ segir Lára Margrét Ragnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Ólætiogölvun Nokkuð bar á ólátum og ölvun í Snæfellsbæ um helgina. Lög- reglan í Ólafsvík hafði mikið að gera vegna dansleiks á laugar- dagskvöld. Bíl var ekið upp á gangstétt og á steinvegg i Ólafsvík um mið- nættið. Tveir voru í bílnum, grunaðir um ölvun, og voru þeir fluttir á heilsugæslustöðina með brotnar tennur og skrámur. BOl- inn er aö öllum likindum ónýtur. Unglingameist- ariískák Magnús Örn Úlfarsson bar í gær sigur úr býtum á Unghnga- meistaramóti íslands 1994 í skák fyrir 20 ára og yngri. Magnús, sem er 18 ára gamall, hlaut 6 vinninga af 7 mögulegmn. Þetta var annar titill hans á nokkrum dögum því nýlega varð hann Skákmeistari Taílfélags Reykja- víkur. Næstur á eftir Magnúsi kom hinn þrettán ára gamli Bragi Þorfmnsson með 5 'h vínning og í þriðja sæti varð Sigurbjörn Björnsson, 18 ára. GuðjónA. færður niður Guðjón A. Kristjánsson, vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var færður úr þriðja sæti í það fjórða á hsta ílokksins á Vesb. fjörðum á kjördæmisþingi um helgina. Guðjón hlaut kosningu í þriðja sætið í prófkjöri. Einar K. Guðfmnsson er í fyrsta sætinu, Einar Oddur Kristjánsson í öðru en Ólafur Hannibalsson mun skipa þriðja sætið. Rannveigíráð- herrastól Rannveig Guðmundsdóttir al- þingismaöur var skipuð félags- málaráðherra í ríkisstjórn ís- lands á fundi ríkisráðs á Bessa- stöðum sl. laugardag. Á fundin- um voru jafnframt staðfest lög um Lýðveldissjóð og endurstað- festar ýmsai- afgreiðslur sem fram höfðu fariö utan ríkisráös- fundar. Skipstjóri Hólmaness: 350þúsundísekt Varðskipiö Týr stóð togarann Hólmanes frá Eskifirði að ólög- legum karfaveiðum suðaustur af landinu sl. föstudagskvöld. Skip- stjórinn, sem var í sinni fyrstu ferð sem slíkur, var sektaður um 350 þúsund krónur og afli og veið- aifæri voru gerð upptæk. Jóhann Hjartarson eftir tap fyrir heimsmeistaranum: Kasparov var í góðuskapi „Ég held að í dag séu allir sammála um að Kasparov sé hinn rétti heims- meistari. Hann var í mjög góðu skapi eftir skákirnar við mig eins og ævin- lega þegar hann er búinn að vinna. Ég spurði hann út í ólympíumótið sem hefst um næstu mánaðamót í Moskvu. Menn hafa haft áhyggjur af Rússlandsför vegna glæpa og skorts á nauðsynjavörum. Kasparov sagði að þetta yrði mjög gott mót. Það má segja að hann standi á bak við ólympíumótið sem verður haldið á risastóru hóteli," sagði Jóhann Hjartarson stórmeistari sem tefldi við Garrí Kasparov heimsmeistara í skák í París á laugardag. Viðureign Jóhanns og Kasparovs var í formi tveggja atskáka sem stóðu yfir í 25 mínútur hvor. Þetta var í 8 manna úrshtum á mjög sterku at- skákmóti í París. Áður en mótið hófst var Jóhann einn af fimm sem höfðu unnið sér þátttökurétt á móti þar sem þátttakendur voru á annað hundrað, þar af um 40 stórmeistarar. „Þetta var eiginlega ekki nógu gott,“ sagði Jóhann aðspurður um fyrri skákina viö Kasparov á laugar- dag. „í þeirri fyrri fékk ég ágæta stöðu og var með betra tafl. Eg ræddi við Kasparov eftir á og við vorum sammála um hvar ég heföi leikið af mér í byijun miðtaflsins. Ég fékk eig- inlega óteflandi stöðu og tapaði nokkuð fljótt. Ég þurfti því að jafna með svörtu en lagði allt of mikið á stöðuna þannig að hann náði mjög öflugri sókn og það er óhætt að segja að ég hafi legið alveg kylliflatur. Það Jóhann Hjartarson: tapaði fyrir Ka- sparov. er skrýtið hvermg maður tefhr á móti Kasparov, það er eins og ég nái oft ekki aö sýna fullan styrk. í seinni tíð hef ég náð að jafna fyrir hvert tap,“ sagði Jóhann. Hann hefur sam- tals teflt á annan tug skáka við Garrí Kasparov. Jóhann sagði að heimsmeistarinn hefði átt dálítið erfitt uppdráttar á tímabli en aö undanförnu hefði hann verið „í miklu stuði“. „Hann vann á sterku móti í Rússlandi og svo aftur á öðru móti í Sviss. En það var áfah fyrir hann þegar Karpov vann með miklum yfirburðum á geysisterku móti. Sú taflmennska var besti ár- angur skákmanns allra tíma. Þetta fór i taugarnar á Kasparov. En að undanfórnu hefur Karpov teflt illa og Kasparov vel,“ sagði Jóhann Hjartarson. Alþýðubandalagiö í Reykjavík: Opið prófkjör haldið í janúar „Það var samþykkt á aðalfundin- um á laugardaginn að viðhafa próf- kjör í síðasta lagi þann 14. janúar. Það er í raun og veru gefið tímabilið frá því í desember og þar til í jan- úar, það fer svolítið eftir því hvernig undirbúningur gengur. Mér er þó til efs að það verði fyrr en í janúar þar sem þetta þarf töluvert mikinn und- irbúning, það þarf m.a. að leita eftir framboðum,“ sagði Haukur Már Haraldsson, nýkjörinn formaður Kjördæmisráðs Alþýðubandalagsfé- laga í Reykjavík. A aðalfundinum var kosin ný stjóm og er Bryndís Hlöðversdóttir, lögfræðingur ASÍ, nýr varaforínaður. Haukur sagði prófkjörið bæði verða opið félagsmönnum og þeim sem lýsa yfir stuðningi við flokkinn. „Það var skipuð sérstök kjömefnd til að undirbúa prófkjörið, hana skipa þau Ámi Þór Sigurðsson, Ást- ráður Haraldsson, Gísh Gunnarsson, Guðrún Sigurjónsdóttir, Þorsteinn Óskarsson og Stefanía Þorgrímsdótt- ir,“ sagði Haukur. 39 Eldhús- og baðinnréttingar OPIÐ LAUGARDAG 10-16 & SUNNUDAG 10-15 SCHMIDT S&JKE DESIGN Láttu okkur gera þér tilboö í bæöi innréttinguna og tækin og við komum þér þægilega á óvart. SUÐURLANDSBRAUT 16 - SIMI 880500 ff -**- ÉLINA í NÝJA JtJ MlNUTUGRILL Kr. 7.990 V) SAMLOKUGRILL Kr. 2.990 fl) RYKSUGA Kr.13.900 ^ BAÐVOG Kr. 990 3 GUFUSTRAUJÁRN Kr. 2.990 NUDDTÆKI KAFFIVÉL HÁRBLÁSARI BRAUÐRIST O.FL. O.FL. Kr. 2.890 Kr. 2.690 Kr. 990 Kr. 2.890 tii nnn I ILDuU ZANUSSI Uppþvottavél meö þurk. ZW-826 ZANUSSI Þvottavél ZF-8000 800 sn./mfn. ZANUSSI Þurrkari, TD-220 ZANUSSI Kæli og Frystiskápur ZFC-18/7 180 L kællr, 70 L frystlr TOKUM GÖMLU ZANUSSI Kællsképur ZFC-140frá 120-160 L hæö 180 sm. Kupperbusch Innbyggöur ofn EEB-612W, meö EEB-612W, mei blæstri og klukku ZANUSSI Viftur Kupperbusch Eldavél EH-540-WN s.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.