Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Side 30
42
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
Afmæli
Guðmundur R. Guðmundsson
Guðmundur R. Guðmundsson,
MHOVfyrrv. slökkviliðsstjóri á
Reykjavík-
urflugvelli og Flugmálastjórnar,
Hvassaleiti 46, Reykjavík, varð sjö-
tíu og fimm ára í gær.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í Fishersundi 1. Hann
stundaði nám við Civil Aeronautics
Administration í Bandaríkjunum
1954 og viö Fire Service Training
School i Bretlandi 1972.
Guðmundur var slökkviliðsmað-
ur hjá Slökkviliðinu í Reykjavík
1939-46, hóf þá störf hjá Slökkvilið-
inu á Reykjavíkurflugvelli og varð
þar varaslökkviliðsstjóri 1946 og
slökkviliðsstjóri þar 1948-89.
Guðmundur var formaður Óðins,
verkamannafélags Sjálfstæðis-
flokksins, stofnaði Byggingasam-
vinnufélag verkamanna og sjó-
manna og var formaður þess um
skeið, var formaður Félags flug-
málastarfsmanna, formaður í
Krummaklúbbnum, sat í stjórn
Stangaveiðifélags Reykjavíkur og
starfaði í flugráði í tuttugu og fjögur
ár.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Elín
Guðmundsdóttir, f. 12.7.1923, hús-
móðir. Hún er dóttir Guðmundar
Halldörssonar, b. á Breiöabólsstaö,
og Margrétar Björnsdóttur hús-
freyju.
Börn Guðmundar og Elínar eru
Rut, f.6.2.1939, kennari á Flúðum,
gift Bjarna Ansnes, skólastjóra þar,
og eiga þau tvö börn; Birna Margr-
ét, f. 6.11.1943, búsett í Flórída,
formaður íslendingafélagsins í Suð-
ur-Flórída og á hún tvö börn; Stef-
anía, f. 13.8.1945, skrifstofumaður,
gift Georg Halldórssyni húsasmið
og eiga þau tvö börn; Edda, f. 2.10.
1946, læknaritari, gift Þorsteini Þor-
steinssyni skólastjóra og eiga þau
fjögur börn; María Sigrún, f. 2.4.
1948, skrifstofumaður, gift Jóhanni
H. Jónssyni framkvæmdastjóra og
eiga þau eitt barn; Ivar, f. 10.8.1952,
viðskiptafræðingur og endurskoð-
andi, kvæntur Kristínu Kristjáns-
dóttur hárgreiðslumeistara og eiga
þau tvö börn; Gunnlaugur, f. 13.9.
1956, flugumferðarstjóri, kvæntur
Ingu Ingólfsdóttur framkvæmda-
stjóra og eiga þau tvö börn; Auður,
f. 13.9.1960, flugfreyja, gift Gunn-
laugi K. Jónssyni lögreglufulltrúa
og eiga þau eitt barn; Björn Valdi-
mar, f. 7.7.1966, tölvufræðingur,
kvæntur Helenu Líndal lyfjafræð-
ingi og eiga þau eitt barn.
Sýstkini Guðmundar: ívar, f. 19.1.
1912, fréttastjóri viö Morgunblaðið
og síðar forstjóri hjá Sameinuðu
þjóðunum; Kristín Guðrún, f. 13.9.
1913, húsmóðir í Reykjavík; Hans
Andrés Nielsen, f. 24.10.1914, nú
látinn, fiskmatsmaður í Reykjavík;
Guðfinna, f. 15.3.1917, húsmóöir í
Reykjavík; Jóna Guðbjörg, f. 13.12.
1920, húsmóðir í Reykjavík; Magn-
úsína Guðrún, f. 1.4.1922, húsmóöir
í Reykjavík; Arndís, f. 17.6.1924,
húsmóðir í Reykjavík; Jón, f. 7.8.
1926, nú látinn, búsettur í Reykja-
vík; Susie Bachmann, f. 21.2.1929,
húsmóðir í Reykjavík.
Þá átti Guömundur tvo hálíbræð-
ur, samfeðra, sem báðir eru látnir.
Foreldrar Guömundar voru Guð-
mundur Jónsson, f. 5.6.1884, d. 14.9.
1929, verkstjóri í Reykjavík, og k.h.,
Sesselja Stefánsdóttir, f. 29.4.1890,
d. 2.1.1965, húsmóðir.
Ætt
Guðmundur verkstjóri var sonur
Jóns, sjómanns í Tjarnarkoti i Vog-
um og síðar verkamanns í Reykja-
vík Teitssonar, b. í Tumakoti og í
Götu í Vogum, Jónssonar. Móðir
Guömundar var Salvör Guðmunds-
dóttir, b. í Kópavogi, Árnasonar.
Sesselja var dóttir Stefáns, b. í
Þrándarkoti í Kjós, Hannessonar,
smiðs á Brekku á Hvalfjarðar-
strönd, Jónssonar, b. þar, Ólafsson-
ar, b. á Snorrastöðum í Laugardal,
Þorkelssonar. Móðir Stefáns var
Ragnhildur Einarsdóttir, b. á Arn-
arfelli í Þingvallasveit, Ólafssonar,
Guðmundur R. Guðmundsson.
b. á Efri-Brú í Grímsnesi, Jónsson-
ar. Móðir Einars var Ragnhildur
Beinteinsdóttir, hreppstjóra í Þor-
lákshöfn, Ingimundarsonar, b. á
Hólum, Bergssonar, ættfóður
Bergsættarinnar, Sturlaugssonar.
Móðir Sesselju var Guörún, veit-
ingakona í Reykjavík, Matthíasdótt-
ir, b. á Fossá, Eyjólfssonar.
Guðmundur er staddur erlendis.
Svidsljós
I hringiðu helgarinnar
Birgir Andrésson listamaður opnaði á laugardaginn sýningu á verkum
sínum í Galleríi 11. Sýningin stóð aðeins yfir í tvo daga og er jafnframt
sú síðasta í þessum sýningarsal og lýkur þar með fimm árá starfsemi
gallerísins. Á myndinni eru þeir Hannes Finnsson, einn helsti hvatamað-
ur, stofnandi og eigandi Gallerís 11, og hstamaöurinn Birgir Andrésson.
í Listasafni Kópavogs var opnuð um helgina sýning á verkum myndhöggv-
arans önnu Sigriðar Sigurjónsdóttur. A sýningunni éru verk sem unnin
eru úr íslensku grjóti og stáli og mun sýningin standa til 27. nóvember.
Með Önnu á myndinni er Jóhann Einarsson.
Þórdís Alda Sigurðardóttir opnaði á laugardaginn sýningu á verkum sín-
um, skúlptúrum og innsetningum í Norræna húsinu. Sýningin ber heitið
„Undir merkjum" og eru verkin flest unnin úr samsettum gömlum og
nýjum hlutum. Á myndinni er Þórdís Alda til hægri ásamt Unni Jökuls-
dóttur.
Ásta Bjamadóttir
Ásta Bjarnadóttir húsmóðir, Lækj-
artúni 18, Hólmavík, varð sextug í
gær.
Starfsferill
Ásta fæddist að Hlíð í Kollafirði
og ólst þar upp. Er hún gifti sig hófu
þau hjónin búskap í Hólum í Stað-
ardal þar sem þau bjuggu 1954-56.
Þá fluttu þau að Stað og bjuggu þar
til 1977 er hún missti manninn. Hún
flutti þá til Hólmavíkur þar sem hún
hefur átt heima síðan.
Fjölskylda
Ásta giftist 31.12.1954 Steingrími
Bergmann Loftssyni, f. 21.8.1925, d.
1977, bónda í Hólum og á Stað. Hann
var sonur Lofts Torfasonar, b. í
Hafnarhólum, og Hildar Gestsdótt-
urhúsfreyjuþar.
Börn Ástu og Steingríms eru and-
vana drengur, f. 26.6.1954; Magnús,
f. 24.5.1955, b. á Stað, kvæntur
Mörtu Sigvaldadóttur; Bjarni, f. 3.5.
1957, búsettur í Njarðvík, kvæntur
Guðmundínu Láru Guömundsdótt-
ur; Kristín, f. 28.3.1962, búsett í á
Hólmavík, gift Árna Magnúsi
Björnssyni; Finnbogi Guðbjörn, f.
17.7.1963, d. 13.8.1993; Loftur Hilm-
ar, f. 17.7.1963, búsettur á Hólmavík.
Seinni maður Ástu er Margeir
Steinþórsson, f. 19.8.1932, bílstjóri
hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar.
Hálfsystkini Ástu, sammæðra, eru
Guðfinnur Stefán Finnbogason, f.
13.2.1938; Guðný Finnbogadóttir, f.
13.10.1939; Sigurbjörn Finnbogason,
f.4.1.1941; Bjarney Ragnheiður
Finnbogadóttir, f. 22.5.1954.
Foreldrar Ástu: Bjarni Borgars-
son frá Tyrðingsmýri og Guðbjörg
Sigurðardóttir frá Vonarholti.
Stjúpfaðir Ástu var Finnbogi Finn-
bogason í Miðhúsum.
Ásta Bjarnadóttir.
Ásta tekur á móti gestum á heim-
ili sínu, Lækjartúni 18, Hólmavík,
laugardaginn 19.11. nk. eftirkl. 17.
95 ára
Þorgeir Sigurðsson,
Hrafnistu,Reykjavík.
85ára
Kristín S. Jónsdóttir,
Vesturbergi 138, Reykjavík.
75 ára
Finnur S. Sigurjónsson,
Hátúni 10, Reykjavík.
Gunnþórunn Björnsdóttir,
Sléttuvegi 17, Reykjavík.
Hjördís Árnadóttir,
Brekkustig 16, Reykjavík.
70 ára
Kristján Sigurðsson,
Otrateigi 34, Reykjavík.
Ingá Jóna Ingimarsdóttir,
Akurgerði 1, Reykjavík.
nóvember
Kristín Tómasdóttir,
Eyrarlandsvegi 25, Akureyri.
40 ára
60 ára
Sjöfn Pálfriður Jónsdóttir,
Laugarbraut 3, Akranesi.
S verrir Magnússon,
Gullbrekku, Eyjaíjaröarsveit.
Magnús Stefánsson,
Norðurgötu 15, Akureyri.
Gunnar Jónsson,
Sunnubraut 17, Búöardal.
50 ára
Þorsteinn Jónsson,
Gerði, Bessastaðahreppi.
Ingunn Ragnarsdóttir,
Háaleitisbraut 19, Reykjavík.
Svavar Kristinsson,
Bleiksárhliö 51, Eskiflrði.
Þorsteinn Óskar Johnson,
Vindási 4, Reykjavik.
Guðríður Helgadóttir,
Kirkjubraut 2, Njarðvík.
HanneJeppesen,
Vesturgötu 33b, Reykjavík.
Svanborg Eyþórsdóttir,
Skólabraut22, Akranesi.
Sjöfn Sveinsdóttir,
Álfheimum 72, Reykjavik.
Hjörtur Dagfinnur Hansson,
Baldursgötu 16, Reykjavík.
Kristín Sigurðardóttir,
Fjarðarási 25, Reykjavik.
Kristján Haraldsson,
Skipholti 22, Reykjavík.
Hrönn Pálmadóttir,
Stýrimannastíg2, Reykjavík.
Theódóra Steinþórsdóttir,
Álfatúni 7, Kópavogi.
Hréfna Hrólfsdóttir,
Austurbrún 34, Reykjavík.
Þorgeir Magni Eiríksson,
Borgargerði 10, Stöövarfirði.
KjartanBjarnason,
Eyri, Höfðahreppi.
Steingrimur Steingrímsson,
Stuðlabergi 10, HafnarfirðL
Guðmundína Sturludóttir,
Hafnargötu 123, Bolungarvík.