Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Qupperneq 30
42 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 Afmæli Guðmundur R. Guðmundsson Guðmundur R. Guðmundsson, MHOVfyrrv. slökkviliðsstjóri á Reykjavík- urflugvelli og Flugmálastjórnar, Hvassaleiti 46, Reykjavík, varð sjö- tíu og fimm ára í gær. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Fishersundi 1. Hann stundaði nám við Civil Aeronautics Administration í Bandaríkjunum 1954 og viö Fire Service Training School i Bretlandi 1972. Guðmundur var slökkviliðsmað- ur hjá Slökkviliðinu í Reykjavík 1939-46, hóf þá störf hjá Slökkvilið- inu á Reykjavíkurflugvelli og varð þar varaslökkviliðsstjóri 1946 og slökkviliðsstjóri þar 1948-89. Guðmundur var formaður Óðins, verkamannafélags Sjálfstæðis- flokksins, stofnaði Byggingasam- vinnufélag verkamanna og sjó- manna og var formaður þess um skeið, var formaður Félags flug- málastarfsmanna, formaður í Krummaklúbbnum, sat í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur og starfaði í flugráði í tuttugu og fjögur ár. Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Elín Guðmundsdóttir, f. 12.7.1923, hús- móðir. Hún er dóttir Guðmundar Halldörssonar, b. á Breiöabólsstaö, og Margrétar Björnsdóttur hús- freyju. Börn Guðmundar og Elínar eru Rut, f.6.2.1939, kennari á Flúðum, gift Bjarna Ansnes, skólastjóra þar, og eiga þau tvö börn; Birna Margr- ét, f. 6.11.1943, búsett í Flórída, formaður íslendingafélagsins í Suð- ur-Flórída og á hún tvö börn; Stef- anía, f. 13.8.1945, skrifstofumaður, gift Georg Halldórssyni húsasmið og eiga þau tvö börn; Edda, f. 2.10. 1946, læknaritari, gift Þorsteini Þor- steinssyni skólastjóra og eiga þau fjögur börn; María Sigrún, f. 2.4. 1948, skrifstofumaður, gift Jóhanni H. Jónssyni framkvæmdastjóra og eiga þau eitt barn; Ivar, f. 10.8.1952, viðskiptafræðingur og endurskoð- andi, kvæntur Kristínu Kristjáns- dóttur hárgreiðslumeistara og eiga þau tvö börn; Gunnlaugur, f. 13.9. 1956, flugumferðarstjóri, kvæntur Ingu Ingólfsdóttur framkvæmda- stjóra og eiga þau tvö börn; Auður, f. 13.9.1960, flugfreyja, gift Gunn- laugi K. Jónssyni lögreglufulltrúa og eiga þau eitt barn; Björn Valdi- mar, f. 7.7.1966, tölvufræðingur, kvæntur Helenu Líndal lyfjafræð- ingi og eiga þau eitt barn. Sýstkini Guðmundar: ívar, f. 19.1. 1912, fréttastjóri viö Morgunblaðið og síðar forstjóri hjá Sameinuðu þjóðunum; Kristín Guðrún, f. 13.9. 1913, húsmóðir í Reykjavík; Hans Andrés Nielsen, f. 24.10.1914, nú látinn, fiskmatsmaður í Reykjavík; Guðfinna, f. 15.3.1917, húsmóöir í Reykjavík; Jóna Guðbjörg, f. 13.12. 1920, húsmóðir í Reykjavík; Magn- úsína Guðrún, f. 1.4.1922, húsmóöir í Reykjavík; Arndís, f. 17.6.1924, húsmóðir í Reykjavík; Jón, f. 7.8. 1926, nú látinn, búsettur í Reykja- vík; Susie Bachmann, f. 21.2.1929, húsmóðir í Reykjavík. Þá átti Guömundur tvo hálíbræð- ur, samfeðra, sem báðir eru látnir. Foreldrar Guömundar voru Guð- mundur Jónsson, f. 5.6.1884, d. 14.9. 1929, verkstjóri í Reykjavík, og k.h., Sesselja Stefánsdóttir, f. 29.4.1890, d. 2.1.1965, húsmóðir. Ætt Guðmundur verkstjóri var sonur Jóns, sjómanns í Tjarnarkoti i Vog- um og síðar verkamanns í Reykja- vík Teitssonar, b. í Tumakoti og í Götu í Vogum, Jónssonar. Móðir Guömundar var Salvör Guðmunds- dóttir, b. í Kópavogi, Árnasonar. Sesselja var dóttir Stefáns, b. í Þrándarkoti í Kjós, Hannessonar, smiðs á Brekku á Hvalfjarðar- strönd, Jónssonar, b. þar, Ólafsson- ar, b. á Snorrastöðum í Laugardal, Þorkelssonar. Móðir Stefáns var Ragnhildur Einarsdóttir, b. á Arn- arfelli í Þingvallasveit, Ólafssonar, Guðmundur R. Guðmundsson. b. á Efri-Brú í Grímsnesi, Jónsson- ar. Móðir Einars var Ragnhildur Beinteinsdóttir, hreppstjóra í Þor- lákshöfn, Ingimundarsonar, b. á Hólum, Bergssonar, ættfóður Bergsættarinnar, Sturlaugssonar. Móðir Sesselju var Guörún, veit- ingakona í Reykjavík, Matthíasdótt- ir, b. á Fossá, Eyjólfssonar. Guðmundur er staddur erlendis. Svidsljós I hringiðu helgarinnar Birgir Andrésson listamaður opnaði á laugardaginn sýningu á verkum sínum í Galleríi 11. Sýningin stóð aðeins yfir í tvo daga og er jafnframt sú síðasta í þessum sýningarsal og lýkur þar með fimm árá starfsemi gallerísins. Á myndinni eru þeir Hannes Finnsson, einn helsti hvatamað- ur, stofnandi og eigandi Gallerís 11, og hstamaöurinn Birgir Andrésson. í Listasafni Kópavogs var opnuð um helgina sýning á verkum myndhöggv- arans önnu Sigriðar Sigurjónsdóttur. A sýningunni éru verk sem unnin eru úr íslensku grjóti og stáli og mun sýningin standa til 27. nóvember. Með Önnu á myndinni er Jóhann Einarsson. Þórdís Alda Sigurðardóttir opnaði á laugardaginn sýningu á verkum sín- um, skúlptúrum og innsetningum í Norræna húsinu. Sýningin ber heitið „Undir merkjum" og eru verkin flest unnin úr samsettum gömlum og nýjum hlutum. Á myndinni er Þórdís Alda til hægri ásamt Unni Jökuls- dóttur. Ásta Bjamadóttir Ásta Bjarnadóttir húsmóðir, Lækj- artúni 18, Hólmavík, varð sextug í gær. Starfsferill Ásta fæddist að Hlíð í Kollafirði og ólst þar upp. Er hún gifti sig hófu þau hjónin búskap í Hólum í Stað- ardal þar sem þau bjuggu 1954-56. Þá fluttu þau að Stað og bjuggu þar til 1977 er hún missti manninn. Hún flutti þá til Hólmavíkur þar sem hún hefur átt heima síðan. Fjölskylda Ásta giftist 31.12.1954 Steingrími Bergmann Loftssyni, f. 21.8.1925, d. 1977, bónda í Hólum og á Stað. Hann var sonur Lofts Torfasonar, b. í Hafnarhólum, og Hildar Gestsdótt- urhúsfreyjuþar. Börn Ástu og Steingríms eru and- vana drengur, f. 26.6.1954; Magnús, f. 24.5.1955, b. á Stað, kvæntur Mörtu Sigvaldadóttur; Bjarni, f. 3.5. 1957, búsettur í Njarðvík, kvæntur Guðmundínu Láru Guömundsdótt- ur; Kristín, f. 28.3.1962, búsett í á Hólmavík, gift Árna Magnúsi Björnssyni; Finnbogi Guðbjörn, f. 17.7.1963, d. 13.8.1993; Loftur Hilm- ar, f. 17.7.1963, búsettur á Hólmavík. Seinni maður Ástu er Margeir Steinþórsson, f. 19.8.1932, bílstjóri hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar. Hálfsystkini Ástu, sammæðra, eru Guðfinnur Stefán Finnbogason, f. 13.2.1938; Guðný Finnbogadóttir, f. 13.10.1939; Sigurbjörn Finnbogason, f.4.1.1941; Bjarney Ragnheiður Finnbogadóttir, f. 22.5.1954. Foreldrar Ástu: Bjarni Borgars- son frá Tyrðingsmýri og Guðbjörg Sigurðardóttir frá Vonarholti. Stjúpfaðir Ástu var Finnbogi Finn- bogason í Miðhúsum. Ásta Bjarnadóttir. Ásta tekur á móti gestum á heim- ili sínu, Lækjartúni 18, Hólmavík, laugardaginn 19.11. nk. eftirkl. 17. 95 ára Þorgeir Sigurðsson, Hrafnistu,Reykjavík. 85ára Kristín S. Jónsdóttir, Vesturbergi 138, Reykjavík. 75 ára Finnur S. Sigurjónsson, Hátúni 10, Reykjavík. Gunnþórunn Björnsdóttir, Sléttuvegi 17, Reykjavík. Hjördís Árnadóttir, Brekkustig 16, Reykjavík. 70 ára Kristján Sigurðsson, Otrateigi 34, Reykjavík. Ingá Jóna Ingimarsdóttir, Akurgerði 1, Reykjavík. nóvember Kristín Tómasdóttir, Eyrarlandsvegi 25, Akureyri. 40 ára 60 ára Sjöfn Pálfriður Jónsdóttir, Laugarbraut 3, Akranesi. S verrir Magnússon, Gullbrekku, Eyjaíjaröarsveit. Magnús Stefánsson, Norðurgötu 15, Akureyri. Gunnar Jónsson, Sunnubraut 17, Búöardal. 50 ára Þorsteinn Jónsson, Gerði, Bessastaðahreppi. Ingunn Ragnarsdóttir, Háaleitisbraut 19, Reykjavík. Svavar Kristinsson, Bleiksárhliö 51, Eskiflrði. Þorsteinn Óskar Johnson, Vindási 4, Reykjavik. Guðríður Helgadóttir, Kirkjubraut 2, Njarðvík. HanneJeppesen, Vesturgötu 33b, Reykjavík. Svanborg Eyþórsdóttir, Skólabraut22, Akranesi. Sjöfn Sveinsdóttir, Álfheimum 72, Reykjavik. Hjörtur Dagfinnur Hansson, Baldursgötu 16, Reykjavík. Kristín Sigurðardóttir, Fjarðarási 25, Reykjavik. Kristján Haraldsson, Skipholti 22, Reykjavík. Hrönn Pálmadóttir, Stýrimannastíg2, Reykjavík. Theódóra Steinþórsdóttir, Álfatúni 7, Kópavogi. Hréfna Hrólfsdóttir, Austurbrún 34, Reykjavík. Þorgeir Magni Eiríksson, Borgargerði 10, Stöövarfirði. KjartanBjarnason, Eyri, Höfðahreppi. Steingrimur Steingrímsson, Stuðlabergi 10, HafnarfirðL Guðmundína Sturludóttir, Hafnargötu 123, Bolungarvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.