Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Side 32
IZ oo 44 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 Olafur Ragnar Grímsson. Kom vitinu fyrir Friðrik „Það er ljóst hver er yfirfjár- málaráðherra þessa lands. Hann hafði vit á því að fylgja því for- dæmi sem ég hafði skapað og vitnaði til Bjarna Benediktssonar máli okkar til stuðnings. Ég fagna því að forsætisráðherra kom vit- Uinmæli inu fyrir Friðrik Sophusson. Það er hvorki skynsamlegt né réttlæt- anlegt að búa til sérstakt skatt- kerfi á börn sem selja blöð eða merki,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson við DV. Forgangsröðun í heilbrigðis- þjónustu Siðfræðistofnun Háskóla ís- lands mun í kvöld gangast fyrir fundi um forgangsröðun í heíl- brigðisþjónustu. Frummælendur verða Lára Margrét Ragnarsdótt- ir alþingismaður og Kristján Kristjánsson heimspekingur. Lára Margrét mun ræða ýmis álitamál er varða forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu og hvar leita megi hagnrýtra úrræöa á þeim vanda sem tengist þessu viðfangsefni. Kristján mun leitast Fundir við að greina út á hvað þetta vandamál gengur og skoða kosti og galla ýmissa þeirra lausna sem settar hafa verið fram, auk þess sem hann tengir lausnirnar viö almennar siðferðíkenningar um réttlæti. Þá reifar Kristján ákveðnar efasemdir um að aldur sj úklings skuli einn og sér metinn sjúklingi til jafnmikilla gjalda við skipun í forgangsröð og ýmsir hafa talið eðlilegt. Að loknum framsöguerindum verða opnar umræður. Fundurinn fer fram í Lögbergi, stofu 101, og hefst kl. 20.15. Fundurinn eröllum opinn. Mígren og mataræði Mígrensamtökín halda fræðslufund um áhrif mataræðis á tnígren í Bjarkarási, Stjörnu- gróf 9, Reykjavík, kl. 21.00. Sól- veig Eiriksdóttir verður gestur fundarins en hann er öllum op- inn. Aðalfundir Leiknis Aðalfundur knattspyrnudeild- ar Leiknis verður haldinn í Leiknishúsinu í kvöld kl. 19.00. Aðalfundur körfuknattleiks- deildar Leiknis verður haldinn á sama stað kl. 21.00. Dagskrá beggja funda er eins: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Það var byggður flugvöllur í fyrra. Gætum timgunnar Rétt væri: Það var gerður flug- völlur í fyrra. Hvasst og fremur kalt í veðri í dag verður norðlæg átt suðvestan- lands og við Faxaflóann, stinnings- kaldi eða allhvasst víðast hvar og Veörið í dag skýjað að mestu en úrkomulítið. Hiti verður á bilinu -2 til 3 stig. Þar fer líklega heldur að lægja í kvöld. Við Breiðafjörðinn verður allhvöss eða hvöss norðanátt og él en þar fer einn- ig að lægja í kvöld. Þar verður hitinn á bilinu -3 til 1 stig. Á Vestfjörðum og norðanlands verður allhvöss eða hvöss norðanátt og snjókoma. Á þeim slóðum má gera ráð fyrir hita á bihnu -4 til 2 stig, hlýjast austan til en kaldast á Vestfjörðum. Á norð- austurhorni landsins og á Austfjörð- um verður norðan kaldi eða stinn- ingskaldi, slydduél og hiti 1 til 4 stig. Um landið suðaustanvert verður norðan stinningskaldi og skýjað með köflum og hiti 2 til 5 stig. Sólarlag í Reykjavík: 16.37 Sólarupprás á morgun: 9.49 Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.24 Árdegisflóð á morgun: 03.01 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri súld 1 Akranes úrkoma í grennd 4,5 Bergsstaðir rigning 1,8 Kefla víkurflugvöllur skýjað 4 Kirkjubæjarklaustur skúr 5,3 Raufarhöfn þoka 4,1 Reykjavík skýjað 3,9 Stórhöfði skýjað 5,8 Bergen alskýjaö 6 Helsinki léttskýjað -1,8 Kaupmannahöfn skýjaö 1,8 Berlín skýjað 1,0 Frankfurt súld 8,1 Glasgow rigningog súld 13,7 Hamborg mistur 1,7 London súld 13,6 Nice léttskýjaö 18,2 Vín alskýjað 1,4 Winnipeg þokumóða 7,5 Þrándheimur skýjað -2,4 Anna María Sveinsdóttir, körfuknattleiksmaður ársins: „Þetta er mesti heiður sem mér hefur hlotnast. Það er ekki oft sem stelpa vinnur strákana. Ég átti erf- itt með að trúa eigin eyrum þegar mér var ságt að ég heíði verið kjör- in körfuknattleiksmaður ársins. Ég bjóst aldrei við þvi enda tók það míg langan tima að átta míg á þessu,“ sagði Anna María Sveins- dóttir úr Keflavík, körfuknattleiks- maður ársins 1994. Allir leikmenn Maður dagsins karla- og kvennaflokka eiga kost á að vinna til þessa eftirsótta titils. Anna María hefur verið ein snjallasta körfuknattleikskona hér á landi undanfarin ár. Hún átti frá- bært tímabil með Keflavikásíðasta keppnistímabili en þá unnu þær tvöfalt, urðu bæði íslands- og bik- Anna María Sveinsdóttir. armeistarar. Útnefningin sem körfúknattleiksmaður ársins er kórónan á glæstum ferli en Anna María hefur unnið alla titla sem hægt er að vinna hér á landi. Hún hefur leikið 1 níu ár með meistara- flokki. Hún hefur tvívegis verið valin besta körfuknattleikskona landsins, oröið íslandsmeistari sex sinnum og bikarmeistari fimm sinnum með liði sínu, Keflavik. Þá hefur hún einnig veriö kjörin íþróttamaöur Keflavíkur. Anna María hefur skorað yflr 3000 stig fyrir lið sitt og hirt aragrúa frá- kasta. Þá hefur vítanýting hennar verið einstök. „Þetta hefur verið skemmtilegur timi enda hvergi betra að vera en hjá Keflavík. Ég mun halda áfram aö spila körfubolta á meðan ég hef áhuga og tíma en það er rosalega erfltt að hætta á meöan við erum að vinna titla. Og svo er hópurinn svo skemmtilegur.“ Barist í í Það verður heldur tíðindalítið í íþróttalífmu á þessum mánudegi. Unglingaflokkar Hauka og Iþróttir Breiðabliks koma þó i veg fyrir að alger kyrrð rfki á sviði iþótt- anna hér heima. í íþróttahúsinu við Strandgötu tekur unglinga- flokkur Hauka á móti Kópavogs- mönnum. Viðureign hinna upp- rennandi körfuboltasnillinga hefst kl. 19. Skák Nokkur óvænt úrslit uröu í fyrstu umferð PCA og Intel atskákmótsins sem nú stendur yfir í París. Mesta athygli vakti að Indverjinn Viswanathan Anand féll úr keppni eftir að hafa tapað tvöfalt fyrir stórmeistaranum Anatoly Vaiser. Anand fór illa að ráði sínu með hvitu í seinni skákinni: 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 RfB 5. Rc3 Rf6 6. g3 Db6 7. Rxc6 bxc6 8. e5 Rd5 9. Re4 Db4+ 10. Rd2 Dd4 11. De2 Hb8 12. Rb3 og nú á svartur leik: 21 ÍÉ ÉL 1 k k k k k 41 k k m & £ , AáA ÍTfi ó S ÉL &Á. S B H 12. - Hxb3! 13. axb3 Bb4 + 14. Bd2 Bxd2 + 15. Dxd2 De4+ 16. De2 Dxhl og svartur vann létt. Bridge Á miðvikudaginn var hófst sex kvölda Butler-tvímenningur hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Þótt keppnisformið sé tví- menningur er skorið reiknað út í impum og spilamennskan miöast við þaö. Þor- lákur Jónsson og Sven-ir Ármannsson eru í efsta sæti mótsins að loknu fyrsta kvöldinu með 80 impa. Hér er spil sem kom fyrir í síðustu umferð en spiluð eru forgeftn spil. Norður var gjafari og AV á hættu: * ÁKG743 V 9762 ♦ 5 + 94 * 108 V 54 ♦ KD74 + KG1087 N V A S ♦ D952 V KDG8 ♦ Á1096 + 6 ♦ 6 V Á103 ♦ G832 + ÁD532 Vestur 3+ 3 G Norður Austur Suður 2* Dobl Pass Pass 3V Pass P/h Sagnir eru nokkuð sérkennilegar og ein- kennast af misskilningi eftir djarft út- tektardobl austurs í upphafi á multi- opnun norðurs. Vestur taldi að austur væri aö sýna styrk í hálitum með þriggja hjarta sögninni og valdi þess vegna 3 grönd sem lokasamning. Norður ákvað að spila út einspih sínu í tigli, enda lofaði pass suðurs einhvetju í tígullitnum. Sagnhafi, Jón Steinar Gunnlaugsson, setti tíuna í blindum og drap gosa suðurs á kóng. Hann spilaði síðan spaðatíu, norður setti ásinn og skipti yfir í hjarta. Kóngur í blindum, suðm drap á ás og spilaði lágu laufi sem Jón átti heima á tiuna. Hann spilaði nú spaðaáttu, norður setti kónginn og spilaði enn hjarta sem drepið var í blindum. Jón tók nú slagi sína á rauöu litina, norður henti einu laufi.og tveimur spöðum í tiglana. Jón spilaði sig síðan út á hjarta og norður varð að spila frá G7 í spaða upp í D9 í blindum. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.