Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1994, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 17. NÓVRMBER 1994
Fréttir
Matthías Bjamason segir bankana ekki virða þingræðis- og lýðræðisreglur:
Bankakerf ið er helsjúkt
bankastjóramir á háum stalii og standa ekki skil á gerðum sínum
„Ég vil láta þá bankastjóra hverfa
sem ekki standa sig í stööu sinni og
láta þá fara í störf sem henta þeim
betur. Bankakerfið er helsjúkt. Þaö
starfar ekki i samræmi viö þingræð-
is- og lýðræðisreglur. Það er látið
viðgangast að bankastjórar séu hafð-
ir á háum stalli eins og þeim endist
aldur og þeir þurfa aldrei að standa
skfi gerða sinna. Pólitísku ráðning-
arnar eru ekkert betri. Ég held að
bankastjórarnir hafi allir þokkaleg
laun - þess er gætt vandlega. Svona
gagnrýni þola ekki háir herrar. Ég
held að forsætisráðherra mætti vera
ánægður með helminginn og er hans
starf ekki lítil ábyrgðarstaða," sagði
Matthías Bjarnason alþingismaður í
samtali við DV.
Matthías segir það „óþarfa" hjá
Sverri Hermannssyni, bankastjóra
Landsbankans, að „öskra upp þó
bankinn sé gagnrýndur á málefna-
légan hátt". Matthías hefur vísað í
viðbrögð Sverris við ásökunum al-
þingismannsins í umræðum um
skýrslu forsætisráðherra um
Byggðastofnun í síðustu viku. Matt-
hías sagði við DV í gær að afgreiðsla
bankanna væri fálmkennd þar sem
„sumir væru góðir en aðrir vondir".
„Ég sagði að mér fyndist Lands-
bankinn draga lappirnar varðandi
viðskipti ýmissa fyrirtækja. Þá svar-
aði þessi kurteisasti bankastjóri
landsins að ég væri geðillur og elli-
móður," sagði Matthías.
Mál Matthíasar og Sverris er til-
komið vegna beiðni Þórslax og Þórs-
bergs á Tálknafirði til alþingis-
mannsins vegna lánaviðskipta fyrir-
tækisins - vegna umfangs fyrirtækj-
anna, að sögn Matthiasar. Lands-
bankinn hafi neitað þeim um lána-
fyrirgreiðslu.
„Ég sneri mér þá til viðskiptaráð-
herra og bað hann um að hafa milli-
göngu um að fyrirtækin fengju af-
urðalán og önnur eðlileg viðskipti.
Ráðherra brást við því og skrifaði
bankstjórninni. Daginn eftir kom
svar þar sem var sagt: „Svo er ekki.“
Þessi athugasemd er óskiljanleg en
hún er kurteisislegar orðuð en svör
Sverris Hermannssonar."
Aðspurður um svör bankans þess
efnis að annað fyrirtækið, sem fór
sjálft fram á gjaldþrotaskipti, hefði
verið rekið með stöðugu tapi sagði
Matthías: „Er það ekki von að tap
verði hjá þeim sem ekki fá fyrir-
greiðslu? Þetta var stór sök Lands-
bankans, og þetta er ekki eina dæm-
ið.“
Aðspurður hvort Matthías ætlaði
að leggja fram tillögu á Alþingi í vet-
ur um „tiltekt“ í bankakerfinu sagði
hann: „Ég vona að eitthvað gerist.
Ég geri ekki rað fyrir aö tillaga í dag
færi strax í gegn, það fer tími í fjár-
lagaafgreiðslu og annað. En lífi þjóð-
arinnar er ekki lokið þó þetta verði
ekki afgreitt í vetur,“ sagði Matthias
Bjarnason.
Stuttar fréttir
Ráduneyti platad
Próflaus maöur plataði
menntamálaráðuneytið til aö
gefa út yfirlýsingu um að hann
hefði meistarapróf i taugasál-
fræði. Samkvæmt RÚV reyndust
gögn mannsins fölsuð.
UpptökurJónsLeifs
Fundnar eru í Berlín upptökur
Jóns Leifs á islenskum þjóðlögum
frá þriðja áratugnum. RÚV
greindi frá þessu.
Laganemar óánægðir
Laganemar við Háskóla íslands
eru óánægður með hertar reglur
um námsframvindu. Samkvæmt
RÚV teljaþeir reglumar stangast
á við jafhréttislög.
Vaxtaiausián
Rikíssjóður býður til áramóta
einstaklingum vaxtalaust 200
þúsund króna lán tfl hlutabréfa-
kaupa í Lyfiaverslun íslands sem
nú stendur til aö einkavæða.
Enginatvinnumiðlun
íslenskir launþegar eru þeir
einu á EES-svæðinu sem ekki fá
aðgang að Evrópsku atvinnu-,
miðluninni sem tekur til starfa í
dag. Þetta kom fram á RÚV,
Metafli hjá Þemey
Þemey RE, einn af frystitogur-
um Granda, kom til hafnar í gær
með metaíla aö verðmæti um 100
milljónir króna. Hásetahluturinn
er í kringum 1 milljón.
200 þúsunda álfastyrkur
Viðskiptaráðuneytið hefur veitt
200 þúsund króna styrk til að
kanna álfabyggö í Esjunni. Ríkis-
sjónvarpið greindi frá þessu.
MRiJóna iottóhagnaður
Í8iensk gétspá, sem er með
Lottó og Víkingalottó, hagnaðist
um 448 milljónir króna á síðasta
reikningsári. Samkvæmt Mbl. er
þetta 100 milljóna betri afkoma
enífyrra.
Dagblaðaiestur
— meðallestur á eintak —
58% 57%
Mars '94 Okt. '94
Lestur unga fólksins á DV
— eitthvað lesið í vikunni —
12 til 19 ára
20 til 24 ára
PVl
Fjölmiölakönnun Félagsvísindastofnunar:
DVísóknhjá
unga fólkinu
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar frá vikunni 20.
til 26. október sl. hefur lestur DV á
meðal unga fólksins aukist nokkuð
frá síðustu könnun í mars á þessu
ári. Er þá átt viö aldurshópinn 12 til
19 ára sem eitthvað las blaðið í vik-
unni. Meðallestur þessa hóps hækk-
ar um 8 prósentustig í 72% lestur. í
aldurshópnum 20 til 24 ára heldur
DV sínum 74% lestri þeirra sem eitt-
hvað lásu blaðið í umræddri viku.
Þess má geta að könnunin fór fram
áður en DV gerði breytingar á út-
gáfutíma mánudagsblaðsins og helg-
arblaðsins.
Fjölmiðlakönnunin, sem er dag-
bókarkönnun, er unnin af Félagsvís-
indastofnun fyrir DV, Morgunblaðið,
íslenska útvarpsfélagið, Ríkisút-
varpið, Samtök auglýsenda og Sam-
band íslenskra auglýsingastofa. Tek-
ið var 1500 manna úrtak úr þjóðskrá
með hendingaraðferð úr aldurshópn-
um 12-80 ára. Heimtur voru þokka-
legar aö þessu sinni. Alls fengust 935
dagbækur frá þátttakendum sem er
64% nettósvörun af heildarúrtaki.
Þetta er betri svörun en í mars sl.
en lakari en í nóvember á síðasta ári.
Niðurstöður könnunarinnar sýna
aö dagblaðalestur er svipaður og í
síðustu könnun. Miðað við meöal-
lestur þeirra sem sögðust eitthvað
hafa lesið blöðin minnkar lestur DV
og Morgunblaðsins um einungis eitt
prósentústig frá því í mars. DV fer
úr 46 í 45% lestur og Morgunblaðið
úr 58 í 57% lestur.
í könnuninni kemur fram að með-
allestur á eintak Morgunpóstsins
mældist 11%. Til samanburðar má
geta þess að í könnun Félagsvísinda-
stofnunar í mars sl. mældist Pressan
meö 15% meðallestur á eintak.
Kvennalistinn í Reykjavík og Reykjanesi:
Tilnef ningar á lista
eru komnar vel á veg
Að sögn Kristínar Halldórsdóttur,
starfskonu Kvennalistans, er val á
lista fyrir komandi alþingiskosning-
ar vel á veg komið í Reykjaneskjör-
dæmi. Fyrri umferðinni lokið og sú
síðari að hefjast.
„Valið hjá Kvennalistanum 1 R-
kjördæmunum fer þannig fram að í
fyrri umferð eru konur beönar um
aö nefna einhveijar konur sem þær
vilja aö verði á listanum. Út úr þvi
kemur dágóður nafnalisti. Konumar
á þeim lista eru síðan spurðar hvort
þær gefi kost á sér á listann. Þegar
ljóst er hveijar gefa kost á sér fer
síðari umferðin fram. Þá eru send
út bréf til sömu kvenna með upplýs-
ingum um þær sem gefa kost á sér
og þá eru þær beðnar að raða á list-
ann,“ sagði Kristín Halldórsdóttir.
Guörún Agnarsdóttir, læknir og
fyrrum alþingiskona, er í stjóm sem
sér um þessi mál í Reykjavík. Hún
sagði að fyrri umferðinni væri lokið
og sú síðari hæfist innan skamms.
„Við stefnum aö því að ljúka þessu
sem allra fyrst,“ sagði Guðrún Agn-
arsdóttir.
Hún var spurð að því hvort hún
gæfi kost á sér í eitt efstu sætanna
nú. Hún vildi ekki svara öðm en því
aö þaö kæmi í ljós á sínum tíma.
Ekki er alls staðar á landinu fariö
eins að við val á lista Kvennalistans.
I öðrum kjördæmum en R-kjördæm-
unum em uppstillingarmálin komin
mun styttra á veg.
Þú getur svarað þessari
spurningu meö því að
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
EfsvariOerJá i
ýtir þú á JJ
Ef svariö er nei 2|
ýtir þú á —I
r ö d d
FÓLKSINS
99-16-00
Á ríkið að greiða ferða-
kostnað maka ráðherra?
Biðlaun ráðherra:
Jóhanna fær biðlaun í 6 mánuði
- en Guðmundur Ámi var ekki nógu lengi ráðherra
„Það er rétt, ég hef þegið biðlaun
eins og lög gera ráð fyrir og ég á rétt
til. Ég tel það eðlilegt þar sem ég
lækkaöi í launum eftir að ég hætti
sem ráðherra og varö bara þingmað-
ur,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir,
fyrrverandi félagsmálaráðherra, viö
DV.
Guðmundur Ámi Stefánsson, fyrr-
verandi félagsmálaráðherra, fær
ekki biðlaun þar sem hann hafði ekki
starfað sem ráðherra í tvö ár. í lögum
númer 92 frá 1955 í 29. grein segir að
ef ráöherra hafi gegnt embætti í tvö
ár eigi hann rétt á biðlaunum í 6
mánuði eftír aö hann lætur af emb-
ætti. Biölaunin nema 70 prósent af
ráðherralaunum.
I lögunum er enginn greinarmunur
gerður á því hvort ráðherra segir af
sér ráöherradómi, er vikið frá emb-
ætti eða lætur af starfi af öðrum or-
sökum. Hann á alltaf rétt á biölaun-
um hafi hann verið ráðherra í tvö ár.