Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1994, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Nú er Utlaginn ekki lengur útlægur úr íslenskri fiskveiðilandhelgi. Hann er með leyfi sjávarútvegsráðuneytisins til
að veiða 200 tonn af skel á Breiðafirði með sugu. Skipið var i gær í höfn í Grindavik. DV-mynd GVA
Urelt skip fær 200
tonna skelkvóta
- Landsbankinn urelti skipið en sendi það ekki úr landi
•
„Þaö er mín ákvöröun alfarið aö
nota Útlagann til þessara rannsókna.
Ég var búinn að leita eftir því ítrekað
viö hagsmunaöila aö fá þá til þessa
verkefnis en þaö hafði enginn áhuga
á því. Þaö hefði reyndar enginn haft
efni á því aö leggja skipið sitt í þetta
í þetta marga mánuöi. Ég fékk út-
hlutað kvóta í fyrra og bauð hann
þá út. Þaö vildi enginn taka þetta að
sér og því féll veiðileyfiö niöur," seg-
ir Kristján B. Larsen uppfinninga-
maður sem fékk úthlutaö tilrauna-
kvóta upp á 200 tonn af hörpuskel til
að veiða með svokallaðri sugu í stað
plógs eins og verið hefur til þessa.
Það sem er sérstakt við málið er
að Útlaginn, skipið sem notað er til
þess að gera tilraunina, var úrelt og
andvirði þess greitt úr Hagræöingar-
sjóöi. Þeir sem úrelda skip sín verða
að umskrá þau úr landi þegar úreld-
ing á sér stað. Það var gert í þessu
tilviki og skipiö, sem þá hét Þórir
Jóhannsson GK, var umskráð til
Noregs. Það fór þó aldrei þangað
heldur var hérlendis og keypti fyrir-
tækið Djúpmynd hf. skipið af Lands-
bankanum. Þann 7. nóvember sl. var
síðan skipið enn á ný skráð sem ís-
lenskt skip og þá sem Útlaginn. Það
kemur þó ekki inn sem fiskiskip þar
sem þá hefði þurft að úrelda sam-
svarandi skip á móti. Skipið kemur
því inn á skipaskrá sem vinnubátur.
Það er ekki þekkt hvemig nafnið
Útlaginn er tilkomið en trúlegt þykir
að það tengist úreldingu skipsins.
Útlaginn er 90 tonna plastbátur sem
á sér samfellda hrakfarasögu þann
tíma sem það sigldi sem fiskiskip
undir íslensku flaggi. Það er nú m.a.
útbúið til að mynda neðansjávar og
hefur Póstur og sími auk Hafrann-
sóknastofnunar keypt af skipinu
þjónustu. Kristján sótti um leyfi til
þessara rannsókna til sjávarútvegs-
ráðuneytisins og gildir leyfið til 3.
desember.
„Ráðuneytið veitti leyfi til þessarar
tilraunar að höfðu samráði við Ha-
frannsóknastofnun. Það var gert í
þvi ljósi að hún þótti mjög áhuga-
verð. Það er enginn fastur kvóti inni
í þessu dæmi. Þetta er eingöngu leyft
til þess aö skipið geti gert þessa til-
raun en skipið getur aldrei fengið
veiðikvóta, það er alveg útilokað,"
segir Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra.
„Auðvitað getur svo margt syni, skrifstolústjóra Odda. Aðrir
breyst á þessum síðustu tímum en stjórnarmenn eru þeir Jóhann Óli
ég vil ekki ræða eignarhaldið á Guðmundsson, Ámi Möller, Frið-
þessu né hvað viö gerum með rik Friðriksson, Stefán Gunnars-
þetta,“ segir Þorgeir Baldm-sson, son og Hannes Guömundsson.
forsijóri Prentsmiðjunnar Odda, Hjá Hlutafélagaskrá fengust þær
um eignarhlut fyrirtækisíns í upplýsingar að skráð hlutafé Mið-
Morgunpóstinum. ils hf. væri einungis 500 þúsund
í byrjun september síðastliðíns krónur. í stofrisamþykkt er hins
lýsti Þorgeir því yfir í viötali við vegar heiroild til að auka hlutaféð
DV að það kæmi ekki til greina að um 29,5 milljónir og samkvæmt
Oddi kæmi að stofnun Morgun- heimildumDVliggjanúfyrirloforð
póstsins, hvorki með niðurfellingu fyrir mestallri þeirri upphæð.
skuldar né beinni eignaraðild. „Við Sömu heimildir herma að Oddi eigi
erum bara prentarar og ekki á leið rúmlega 10 prósent eöa minnst 3
í útgáfu," sagöi Þorgeir þá. miUjónir.
Samkvæmt heimildum DV hefur Skipting hlutafjár er annars á
Oddi nú lagt umtalsverða fjármuni þann veg aö fyrrum eigendur Ein-
í Miöil hf. sem gefur út Morgun- taks eiga um 10 prósent, Friðrik
póstinn og þar með haslaö sér völl Friðriksson, fyrrum eigandi Press-
í útgáfustarfsemi, Til marks um unnar, á 10 prósent og Jóhann ÓIi
þetta þá á Þorgeir sæti í stjóm ogaöilartengdirhonumafganginn.
Miðils hf. ásamt Knúti Signars-
Leysist næstu daga
„Þetta mál er í góðum farvegi og Flestir blaðamennirnir eru á
leysist meö samningum næstu bráðabirgðaverktakasamningum
daga,“ segir Páll Magnússon, rit- og eru ósáttir við þau kjör sem því
stjóri Morgunpóstsins, um launa- fylgja. Á undirskriftalista sem
deilu útgáfufyrirtækis blaösins og sendur var útgáfustjóm kom fram
starfsmanna. Hver niöurstaöa að uppsagnirnar myndu taka gildi
samningayröivildiPállekkitjásig 1. desember næstkomandi. Oska
um. blaðamennirnir eftir því að gerðir
Alls hafa 12 blaðamenn og ljós- verði við þá ráðningarsamningar á
myndarar sagt upp störfum sem gmndvelli Blaðamannafélags ís-
verktakar hjá Morgunpóstinum. lands lýrir þann tíma.
Slíkar hurðir vantar í bankann
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Versluninni Höfn á Selfossi er vel
stjórnað af Kolbeini Kristinssyni
framkvæmdastjóra og Pétri Hjalta-
syni skrifstofustjóra. Verslunin var
endurbætt í fyrra og er nú mjög ný-
tískuleg. Opin alla daga til kl. 22
nema á stórhátíöum.
Verslun er þar mikil - eins og alltaf
sé Þorláksmessa - og þjónusta góð
og ekki þurfa kúnnarnir að opna
dymar. Þær opna sig sjálfar og svona
þyrftu níðþungar hurðir Landsbank-
ans hér á Selfossi að vera - þaö er
varla hægt að opna dyrnar.
í dag mælir Dagfari
Linda misþyrmir lögreglunni
Aðfaranótt mánudags var hringt á
lögreglustöðina og tilkynnt að kær-
asti Lindu Pétursdóttur hefði ekið
á kyrrstæðan bíl og horfið á braut.
Lögreglan sá aö hér var stórmál
á ferðinni, algjört stórmál. BOafloti
lögreglunnar var ræstur út og lög-
reglan fann það fljótt hvar Linda
og kærastinn vom til húsa þessa
nótt og gripu þau glóðvolg klukkan
fjögur um nóttina þegar þau létu
sjá sig á almannafæri.
Hin meinti glæpamaður var
leiddur inn i lögreglubO og Linda
ógnaði lögreglunni með því að
krefjast þess að fá að fylgjast með
því hvaö tíl stæði og bæði munu
þau hafa gert kröfu um aö fá að
vita hveijar ákærumar vom. Urðu
af því háreysti og stimpingar og
vom þau skötuhjúin leidd inn á
lögreglustöðina og Linda meö
valdi. Hinn meinti glæpamaður frá
Skotlandi lét segjast en Linda P
ógnaði lögreglunni með barsmíð-
um og neyddust lögreglumenn að
taka hana lögreglutaki og berja
hana tíl hlýðni.
Áfram lét Linda Pétursdóttir
ófriðlega inni á lögreglustöðinni,
sló lögreglumann með flötum lófa
og stappaði á lögregluhúfu hans.
Eftir því sem lögreglumaðurinn
segir sparkaði fegurðardrottningin
í sköflung hans og hrækti framan
í hann og stafaði lögreglumannin-
um veruleg hætta af framferði
hennar sem varö tO þess að lög-
reglumenn tóku hana aftur lög-
reglutaki og lögðu hana fram á
borð varðstjórans.
Af öllum þesum átökum hlaut
Linda nokkra áverka á handleggj-
um og úlnhðum, með áverka í and-
liti og eymsli í afturenda vegna
sparka lögreglumanna aftan í
hana.
Þessi átök telur lögreglan vera
aðför að sér og viðbrögð lögreglu-
manna eðlOega sjálfsvöm gagnvart
hættulegum borgara, sem vOl ekki
gegna því að vera handtekin, eftir
að hafa sjálf beðið um að koma með
á lögreglustöðina. Hefur lögreglu-
maður séð ástæðu til að kæra
Lindu tO rannsóknarlögreglunnar
fyrir brot á 106. og 148. grein al-
mennra hegningarlaga.
Ef sök sannast má Linda Péturs-
dóttir búast við ákæru frá saksókn-
ara fyrir ofbeldi og líkamsárás
gagnvart lögreglumanni. Þeim er
ekki fisjað saman, fegurðardrottn-
ingunum.
Jafnframt er rétt að upplýsa að
lögreglan haföi gengið úr skugga
um það áður en handtaka fór fram
aö á bifreið kærastans sáust þess
engin merki að hann heföi ekið á
aðra bifreið. Lögreglan segir að
hún hafi hins vegar verið að
hreinsa kærustuparið af öUum
grun og það hafi tekist með hand-
tökunni. Sakleysi þeirra lá sem
sagt fyrir þegar komið var með þau
á lögreglustöðina.
Af einhverjum ástæðum hefur
Linda Pétursdóttir ekki skilið þessa
hugulsemi lögreglunnar né heldur
kunnað að meta hana og það var
lögreglunni að þakka að ekki fór
verr. Linda Pétursdóttir ógnaði
lögreglunni og bjó sig undir að
misþyrma henni og lögreglumað-
urinn átti ekki annarra kosta völ
en kæra Lindu fyrir meint ofbeldi.
Það er með öðrum oröum mat
lögreglunnar að Linda hafi aö
ósekju ráðist á blásaklausa lög-
reglumenn, Linda hafi sýnt
ástæöulausan mótþróa þegar verið
var að hreinsa hana af grunsemd-
um og áverkar á líkama hennar eru
vegna eigin barsmíða. Lögreglan
verður auðvitað að taka á móti þeg-
ar fegurðardrottningar sem aðrir
gera atlögu að lögreglumönnum.
Linda Pétursdóttir verður að gera
sér grein fyrir því aö lögreglumenn
eru aOtaf í rétti. Þeir eru í rétti að
handtaka fólk og færa það niður á
stöö. Lögreglumenn eru í fullum
rétti að berja fólk sem gerir tilraun
tíl að rOa sig laust. Lögreglan verð-
ur að beita lögreglutökum þegar
slikt fólk hefur verið hreinsað af
öOum grun um svo alvarlegt brot
eins og það að hafa ekið á kyrrstæð-
an bíl og yfirgefið staðinn.
Vonandi hefur það komist til
skila hjá Lindu aö ef hún á kær-
asta, sem ekki ekur á kyrrstæðan
bO og er handtekinn fyrir það, á
hún ekki að misþyrma lögreglunni
fyrir það eitt að taka hana lögreglu-
taki til að geta hreinsað kærastann
af gnmsemdunum. Lögreglan á
fullan rétt á því að veijast fegurðar-
drottningum.
Dagfari