Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1994, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
Tilboð
Teg. 51765
Litur: svartur. Stærðir 36-39.
Verð kr. 1.495
Teg. 51764
Litir: svartur eða brúnn. Stærðir
36-41
Verð kr. 1.495
Teg. 52133
Litur: brúnn. Stærðir 36-41
Verð kr. 995
Teg. 52134
Litur: svartur. Stærðir 36-41
Verð kr. 995
Tég. 2100
Litur: svartur. Stærðir 36-37
Verð kr. 995
Teg. 2694
Litur: svartur. Stærðir 36-37-38
Verð kr. 995
Teg. 1004
Litur: brúnn. Stærðir 41-46
Verð kr. 2.495
PÓKVAK
%<xð i/ oty pjóvuAitO/
Kirkjustræti 8. Simi 14181
Útlönd
Útilokað að Norðurlandaráð starfi sem fyrr ef Norðmenn ganga 1ESB:
Breytingarnar bíða
f undar í Reykjavík
„Við ætlum að bíða með tillögur
um breytingar á Norðurlandasam-
starfinu þar til Norðurlandaráð kem-
ur saman til fundar í Reykjavík í
febrúar á næsta ári,“ segir Marianne
Jelved, samstarfsráðherra Norður-
landa í dönsku ríkisstjóminni.
Haustfundi Norðurlandaráðs lauk
í gærkveldi í Tromsö með fáheyrðum
skömmum norsks þingmanns um
íslendinga. Þar var landanum boriö
á brýn að hafa að engu góða siöi í
samskiptum norrænna þjóða með
rányrkju á fiskstofnum Norðmanna
og Rússa í Barentshafi.
Ekki mun þó Smugudeilan kalla á
breytingar á starfsemi Norðurlanda-
ráðs heldur er talið útlokað að ráðið
geti starfað sem fyrr eftir að fjórar
af fimm Norðurlandaþjóðunum
verða gengnar í Evrópusambandið.
Miklu er talið skipta hvað Norð-
menn gera í þjóaratkvæðagreiðsl-
unni um inngöngu í ESB 28. þessa
mánaðar. Segi Norðmenn nei aukast
líkur á að Norðurlandasamstarfinu
verði fram haldið með sama hætti
og verið hefur. Segi Norömenn hins
vegar já verða íslendingar einir eftir
utan ESB. Þá verður mjög þrýst á
um að breyta hlutverki Norður-
landaráðs og gæti svo farið að fund-
urinn í Reykjavík á næsta ári yrði
hinn síðasti með gamla laginu.
Marianne Jelved sagði í gær að
ekki stæði til að draga úr starfinu
þótt nauðsynlegt reyndist að breyta
því.
Litlar líkur eru nú taldar á að
Norðmenn gangi í ESB. Andstaða við
aðild hefur að vísu minnkað eftir að
Svíar samþykktu aö ganga í sam-
bandið. Ný skoðanakönnun sem
Gallup gerði fyrir TV2 sýnir að 37%
eru fylgjandi aðild en 47% á móti.
16% aðspurðra höfðu ekki gert upp
hug sinn. Meiri munur var fyrir
þjóðaratkvæðið í Svíþjóð.
Fylgismenn aðildar eru nú farinir
að örvænta um að Noregur gangi
nokkru sinni í ESB. Vonuðust menn
til að úrslitin í Svíþjóð hefðu meiri
áhrif en raunin hefur orðið. Mikil
harka hefur færst í kosningabarátt-
una og reyna báöir aðilar að finna
út hvaða hópar fólks hafa enn ekki
tekið afstöðu. Er ákaft róið í öllum
sem hika í afstöðunni en vonlaust
talið að snúa þeim sem þegar eru
vissir. RitzauogNTB
Tólf handteknir
vegna íjársvika
Lögreglan í Færeyjum lét í gær ugleika Færeyinga. Dönsk stjórn-
til skarar skríða gegn meintum völd munu krefjast þess í dag aö
fjársvikamönnutn í tengslum við færeyska landsstjórnin dragi enn
smiði nokkurra togara á síðasta saman seglin og skeri niður fyrir
áratug, þar á meðal togaranna fjárlög næsta árs en fjárlagahallinn
Heygadrangs og Skálafjalls. Hús- á þessu ári verður rúmir tveir og
leit var gerð á um tvö hundruð hálfur milljarður íslenskra króna.
stöðum um allar eyjamar og skjöl Fulltrúar dönsku stjómarinnar
fyrirtækja gerö upptæk vegna munu einnig krefjast þess á fundin-
rannsóknarinnar. Aö minnsta um í dag að fariö verði eftir fisk-
kosti tólf menn vom handteknir, veíðikvótunumsemsettirvorufyrr
þar á meöal lögfræðingar og út- á þessu ári. Þar á móti kemur að
gerðarmenn. Mennirnir eru sakað- menn íhuga nú aö koma á stuðn-
ir um að hafa svikið fé út úr hinu ingi danskra stjórnvalda við at-
opinbera með því að gefa rangar vinnulífið, nokkuð sem ekki hefur
upplýsingar um eigið fé útgerðar- verið í Færeyjum til þessa.
fyrírtækjanna. Á fundinum í dag á einnig að taka
ÁmeðanþessuferframíFæreyj- ákvörðun um hvernig erlend lán
um er Edmund Joensen lögmaður Færeyinga upp á um tíu milljarða
í Kaupmannahöfn til viðræðna við íslenskra króna verði greidd til
dönsk stjómvöld um efnahagsörð- haka.
Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Starhagi 16, þingl. eig. Sigurður Karlsson, gerðarbeiðandi Islands- banki hf., 21. nóvember 1994 kl. 15.30. Strandasel 4, 3. hæð merkt 3-1, þingl. eig. Sigurdís Ólaísdóttir, gerðaibeið- endur Búnaðarbanki íslands, Lands- banki íslands, Langholt, og Lánasjóð- ur ísl. námsmanna, 21. nóvember 1994 kl. 15.00.
Dalsel 12,3. hæð t.v., þingl. eig. Grím- ur Kolbeinsson og Jóhanna Ólaísdótt- ir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Búnaðarbanki Islands, Gjald- heimtan í Reykjavík og Lífeyrissjóður verslunarmanna, 21. nóvember 1994 kl. 10.30.
Súðarvogur 7, hluti, þingl. eig. Guð- mundur H. Sigurðsson, gerðarbeið- endur Gjaldheimtan í Reykjavík, Kaupþing hf., Landsbanki íslands, tollstjórinn í Reykjavík og íslands- banki hf., 21. nóvember 1994 kl. 16.30. Vesturberg 138, 0402, þingl. eig. Er- lendur Þór Eysteinsson, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins, ' Gjaldheimtan í Reykjavík og Lífeyris- sjóður bókagerðarmanna, 21. nóvemb- er 1994 kl. 14.30.
Hraunbær 94, hluti, þingl. eig. Einar Sæberg Helgason, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, Gígja Gísladóttir, Rafinagnsveitur ríkisins, sýslumaðurinn á Sauðárkróki og toll- stjórinn í Reykjavík, 21. nóvember 1994 kl. 14.00.
Reykás 22,2. hæð t.v., þingl. eig. Kat- rín J. Björgvinsdóttir og Gylfi Einars- son, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík og íslandsbanki hf., 21. nóvember 1994 kl. 11.00. Þórsgata 23, risíbúð, þingl. eig. Magn- ús Þór Jónsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Gjald- heimtan í Reykjavík, 21. nóvember 1994 kl. 17.00.
Skeljagrandi 4,0204, þingl. eig. Petrea Helga Kristjánsdóttir, gerðarbeiðend- ur Byggingarsjóður verkamanna, Fjárfestingaríelagið Skandia hf., Gjaldheimtan í Reykjavík og Húsfé- lagið Skeljagranda 4, 21. nóvember 1994 kl. 16.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Réttað hefur verið í máli Heidi Fleiss síðustu daga. Hún er ákærð fyrir að
reka hóruhús i Hollywood og að dreifa eiturlyfjum. Margt rikra manna og
frægra sótti til hennar. Simamynd Reuter
Réttarhöld yfir Hollywood-hórunni Heidi Fleiss:
Svarta bókin ekki
opnuð í réttinum
„Það verður aðeins til að draga
réttarhöldin á langinn ef ég heimila
að „svarta bókin“ verði gerð opinber.
Þaö er því öllum fyrir bestu að hafa
hana lokaða áfrarn," sagði dómarinn
í máli Hollywood-hórunnar Heidi
Fleiss. Voru þetta nokkur vonbrigði
fyrir viðstadda því að í nefnda bók
munu skráö nöfn frægra manna sem
voru í viðskiptum hjá Fleiss á meðan
hún rak vændishús í kvikmynda-
borginni.
Talið er að heimsþekktir leikarar
hafi leitað til Fleiss og er viðbúið að
ferli þeirra lyki með upplýsingunum
í „svörtu bókinni". Fleiss á yfir höfði
sér dóm vegna vændis og sölu á eit-
urlyfjum. Faðir hennar er og ákærð-
ur fyrir að hafa aðstoðað dóttur sína
við rekstur hóruhússins.
Fleiss mun hafa beint starfsemi
sinni að ríkum og frægum viðskipta-
vinum. Krafðist hún hárra greiðslna
fyrir þjónustuna. Lögreglumaður,
dulbúinn sem japanskur kaupahéð-
inn, kom upp um vændið á síðasta
ári. Reuter