Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1994, Side 11
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
11
pv______________Menning
Vandaður dúett
3ja daga tilbod!
Kuldastígvél
á dömur og herra
Út er komin geislaplata á vegum Jap-
is, (Jap 94L4-2), með leik þeirra
Bryndísar Höllu Gylfadóttur selló-
leikara og Steinunnar Birnu Ragn-
arsdóttur píanóleikara.
Á þessari geislaplötu eru fimm
verk sem öll voru tekin upp í Víði-
staðakirkju í febrúar síðastliðnum.
Fyrsta verkið er eftir Beethoven:
Sjö tilbrigði fyrir píanó og selló í
Es-dúr, um stef úr „Töfraflautunni"
eftir Mozart: „Bei Mannern, welche
Liebe fuhlen“. Bryndís og Steinunn
leika þessi tilbrigði bæði af róman-
tískum ákafa og klassískri höfgi, eins
og við á um höfundana, en í næsta
verki, Fantasiestucke Op. 73 eftir
Robert Schumann leika tilfmning-
arnar stærra hlutverk og er túlkun
þeirra á því einkar fögur og streym-
andi.
Tvær hugljúfar melódíur eftir
Gabriel Fauré fylgja í kjölfarið,
„Aprés un Réve, op. 7, no. 1 og Elegie
op. 24. Samstilling þeirra Bryndísar
og Steinunnar í tón, tónmyndun,
styrk og túlkun er aðdáunarverð í
þessum verkum, þótt deila megi um
hvort náðst hefði meira ris í Eleg-
íunni, ef byrjað hefði verið enn veik-
ar og með mýkri tón. Síðasta verkið
og það umfangsmesta á plötunni er
Sónata fyrir selló og píanó í d-moll,
op. 40 eftir Dimitri Shostakovich.
Þetta er átakamikið verk, hlaðið
sterkum tilfmningum og reynir til
Kraftmiklar hug-
myndir í ágætri
kennslubók
Undanfarin ár hefur af og til komið upp umræða um að ekki sé nægi-
lega vel vandað til barnabókaútgáfu og metnaði á því sviði sé ábótavant.
Þessi umræða hefur vissulega átt rétt á sér en barnabókaútgáfan hefur
sem betur fer smám saman tekið breytingum og eru bækur systkinanna
Þórarins og Sigrúnar Eldjárn góð dæmi um metnaðarfullar og skemmti-
legar bækur sem höfða til barna á öllum aldri.
Þau systkinin eru löngu orðin landsfræg fyrir ritstörf sín, Sigrún Eld-
jám meðal annars fyrir myndir sínar og bækumar um Bétvo Bétvo og
Kugg og vini hans og Þórarinn fyrir ýmsar bækur, meðal annars Litarím,
Óðfluga og Heimskringlu. Sigrún og Þórarinn hafa nú sent frá sér nýja
barnabók, Talnakver. Nýja bókin er nokkurs konar kennslubók í tölum
og reikningi fyrir litla námshesta og svo náttúrlega skemmtilesning fyrir
þá sem hafa gaman af fallegum myndum og glettni í rímuðum ljóðum.
Metnaðarfullar og skemmtilegar
í Talnakver halda Sigrún og Þórarinn áfram með hugmyndina í Lita-
rími frá 1992 og Stafrófskveri sem kom út í fyrra þar sem börnin læra
litina og bókstafina í vísum og afmyndum á léttan og skemmtilegan hátt.
Þannig kynnast bömin vönduðum og skýrum myndum um leið og þau
Bókmenntir
Guðrún Helga Sigurðardóttir
kynnast ríminu. í Talnakveri er myndmáli gert jafn hátt undir höfði og
í fyrri bókum með upplýsandi og fallegum myndum í skýrum htum fyrir
yngstu kynslóðina.
Þórarinn Eldjám ljóðskreytti stafakverið sem kom út í fyrra og einnig
talnakverið sem komið hefur út fyrir þessi jól. í ljóðum sínum leikur
hann sér að orðum og kraftmiklar hugmyndirnar um hið skondna í tilver-
unni brjótast á eðlilegan hátt fram í ríminu. Hann útskýrir tölustafina
og hvað þeir standa fyrir á mjög auðskiljanlegan hátt. Þannig ættu allir
að geta skihö þá einfoldu staðreynd að núh er ekki neitt og að þrisvar
þrír menn em níu eða einum færri en tíu. Þannig skýtur reiknings-
kennsla upp kolhnum öðm hvoru.
Nýja talnakverið er vönduð bók þar sem mikil vinna hefur verið lögð
í myndir og ljóðskreytingu. Eini gallinn við bókina er ef til vih textinn
því að rímið virkar stundum stirt í upplestri fyrir óvana, eitthvað truflar
í lestri fyrir líth böm: Hún Vika fæddi fimm plús tvo/ fannst þá vænkast
hagur./ Valdi hún nöfn á syni svo:/ Sjö voru skírðir DAGUR.
Talnakver er tæpast ætlað fyrir ahra yngstu lesenduma þó að jafnvel
krakkar á aldrinum eins til þriggja ára hafi gaman af stuttum textanum
og fahegum myndunum.
Talnakver
Sigrún Eldjárn
Þórarinn Eldjárn Ijóðskreytti
Forlagið 1994
Tónlist
Áskell Másson
hins ýtrasta á flytjenduma, varðandi
samræmda túlkun. Þær Bryndís og
Steinunn hafa, eftir langt samstarf,
náð frábærri samstihingu og skha
hér vönduðum flutningi á þessu mjög
svo krefjandi verki.
Undirritaður hefur heyrt upptökur
af þessari Sónötu þar sem lagt er
meir upp úr andstæðum verksins en
hér er gert, t.d. í litun tóns og andakt
Largo-þáttarins, en hér er um
smekksatriði að ræða og er túlkun
verksins á þessari plötu bæði vönd-
uð, eins og áður segir, og ahtaf fylh-
lega sannfærandi.
Hljómur plötunnar og útht gerir
þeim ágætu hstakonum sem hér um
ræðir þann sóma sem þær eiga skil-
inn en tónmeistari er Bjarni Rúnar
Bjarnason og forsíðumyndin „Dúó“
er hstaverk eftir Rannveigu Magnús-
dóttur.
Afmælis-
pottur
Fálkans
Yikutilb0^
prósenta
afmælisafsláttur á:
Gönguskom,
þrektækjum,
frystikistum,
vatnshita-
blásurum,
bóni og
, •« c í e f n u m
b r e i n s 1e 1
20Á9A
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-81 38 82
Tilboð 4.990
Áður 6.990 ROOTS
Teg. 107/108
Litur:
svartur og
brúnn
St. 36-46
Loðfódruð kuldastígvél
úr ekta leðri.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
yujJEROAR
3.990
4.590
St. 28-35
Brúnt og
svart ledur
100% ullar-
fódur i
kuldaskóm
St. 28-35
A
Kringlan 8-12 • Sinii 68 60 62