Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1994, Page 14
14
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
t
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
27
Iþróttir
Iþróttir
Einará
bekkinn hjá
Haukum
Einar Þorvaröarson, aðstoðar-
landsliðsþjálfari í handknattleik,
er tekinn við sem aðstoðarþjálf-
ari 1. deildar liös Hauka af Gauta
Grétarssyni, sem hætti af per-
sónulegum ástæöum. Einar mun
stjórna Haukahðinu af bekknum
í Evrópuleikjunum gegn Brati-
slava sem fram fara í Hafnarfirði
um helgina.
Einar Gunnar
úrleikí
nokkrarvikur
Sigmundur Sigurgeiisson, DV, Selfossi:
Selfyssingar urðu fyrir miklu
áfalli í gærkvöldi þegar fyrirhði
þeirra, landshðsmaöurinn Einar
Gunnar Sigurðsson, slasaðist í
leiknum við KR. Líkur eru á að
hðþófi hafi rifnað og þá veröur
hann frá í nokkrar vikur.
Annar lykilmaður Selfyssinga,
Björgvin Rúnarsson, neíbrotnaði
í leiknum og verður varla orðinn
leikhæfur í næsta leik. Fyrir á
sjúkrahsta Selfyssinga var Grím-
ur Hergeirsson.
Brolin ökkla-
brotinnog
skorinn upp
Eyjólfur Harðarson, DV, Svíþjóö:
Sænska knattspyrnulandshðið
og ítalska félagið Parma urðu fyr-
ir gifurlegu áfalh í gærkvöldi þeg-
ar Thomas Brohn ökklabrotnaöi
í EM-leiknum við Ungveija, sem
Svíar unnu, 2-0. Brolin var yfir-
buröamaður á velhnum og skor-
aði fyrra markið, en þegar hann
lagði upp það síðara fyrir Martin
Dahhn sneri hann sig iha. Ökkl-
inn brotnaði og Brohn gekkst
strax undir uppskurð í Stokk-
hólmi. Hann verður líklega frá
keppni í 3-4 mánuði.
Dregiðíbikarnum
í gær var dregið tíl 16-hða úr-
shta í bikarkeppni KKÍ í körfu-
knattleik. Þessi lið mætast 23.-25.
nóvember: Njarðvík - Dalvík eða
Þór B eða TindastóU B, Tinda-
stóh - KFÍ, Akranes - ÍR, Snæ-
fell - Keflavík, Þór Ak. - KR, Val-
ur - Breiðablik eða HK, Hauk-
ar-ÍH eða Reynir S., Grinda-
vík - Skallagrímur.
9 9 '1 7 • 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Fótbolti
Handbolti
Körfubolti
Enski boltinn
ítalski boltinn
Þýski boltinn
Önnur úrslit
NBA-deildin
Valur - Víkingur (14-13) 26-26
1-3, 4-4, 7-6. 10-8, 11-12, (14-13), 16-16, 18-19, 21-22, 23-24, 25-25, 26-26.
• Mörk Vals: Jón 7, Dagur 6, Júhus 5, Gcir 3, Valgarð 2, Finnur l, Ingi
Rafn 1, Sveinn 1.
Varin skot: Guðmundur 11, Axel 4.
• Mörk Víkings: Sigurður 8/5, Rúnar 7, Birgir 4,
Friðleifur 3, Bjarki 2, Arni 1, Gunnar 1.
Varin skot: Reynir 5/1, Magnús 4,
Dómarar: Rögnvaldur Erlingsson og Stefan Arnalds-
son, rnjög góðir.
Áhorfendur: Troðfuilt hús, um 900 maims.
Maður leiksins: Jón Kristjánsson, Val.
Reynir bjargaði stigi
Róbert Róbertsson skrifar.
Það var sannkallaður stórleikur á
Hhðarenda í gærkvöldi þegar tvö
efstu hð 1. deUdarinnar í handbolta,
Valur og Víkingur, gerðu jafntefli,
26-26, í æsispennandi og stór-
skemmtilegum leik. Það var aht í
járnum nánast ahan leikinn en hðin
skiptust á að hafa nauma forystu.
Valsmenn fengu kjörið tækifæri tU
að vinna þegar þeir fengu vítakast á
síöustu sekúndunni en Reynir Reyn-
isson, markvörður Víkinga, varði frá
Júlíusi Gunnarssyni.
„Svona eiga toppleikir að vera og
ég held að þetta hafi verið frábær
auglýsing fyrir handboltann. Úrslitin
voru mjög sanngjöm í heildina,"
sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Víkinga. Jón Kristjánsson var bestur
Valsmanna en Rúnar Sigtryggsson
stóö upp úr í jöfnu hði Víkinga.
Haukar - Afturelding (10-12) 22-28
1-0, 6-3, 6-6, 8-10, (10-12), 11-13, 11-20, 14-23, 20-24, 20-27, 22-28.
Mörk Hauka: Páll Ó. 6, Gústaf B. 6/3, Sveinberg G. 3, Baumruk 3/2, Sigur-
jón S. 2/1, Ámi H. 1, Jón Freyr 1.
Varin skot: Bjami 7/1, Þorlákur 5/1.
Mörk Aftureldingar: Jason Ó. 6, Róbert S. 5, Gunnar
A. 5, Páll Þ. 5/1, Trufan 4/1, Þorkell G. 2, Jóhann S. l.
Varin skot: Bergsvetnn B. 19/3.
Dómaran Guðjón L. Sígurðsson og Hákon Sigurjóns-
son. Áhorfendur: 500.
Maður leiksins: Bergsveinn Bergsveinsson, Aftureld-
ingu.
Afturelding tók völdin
Guðmundur Hilmarssan skriíar
Frábær leikkafh í upphafi síðari
hálfleiks lagði gnmninn að sigri Aft-
ureldingar á Haukum í Hafnarfirði í
gær. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku
Mosfehingar öh völd á vehinum og
úrslitin vora ráðin eför 10 mínútna
leik. Á þeim kafla lokaði Bergsveinn
markinu, sóknarleikur Hauka varð
ráðleysislegur og leikmenn Aftureld-
ingar skoruðu hvert markið af öðru
úr hraðaupphlaupum.
Líkt og gegn FH á dögunum hrundi
leikur Hauka gersamlega í síðari
hálfleik og sérstaklega var það sókn-
arleikurinn sem fór úr böndunum. í
feiknasterku liði Aftureldingar var
Bergsveinn frábær, sérstaklega 1 síð-
ari hálfleik, en í hehd lék hðið mjög
vel bæði í vöm og sókn og hvergi var
veikan hlekk að finna.
2-1, 2-6, 5-9, 6-12, (7-12), 9-13, 9-16, 13-19, 13-25, 16-25, 16-26.
• Mörk Selfoss: Björgvin 4/1, Erhngur 3, Einar Guðm. 3, Sigurður 2,
Radosavlevic 2/1, Sverrir 1, Siguijón i.
Varin skot: Hallgrímur 8, Ólafur 6.
• Mörk KR: Einar 6, Sigurpall 4/2, Magnús 4, Guð-
mundur 4, PáU 3, Hilmar 3, Óh B. 2.
'Varin skot: Gísli Felix 18, Sigurjón 1.
Dómarar: Gísh H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingi-
bergsson, ágætir. Áhorfendun 260.
Maður leiksins: Gísli Fehx Bjamason, KR.
Því miður, lokað í dag
Sigmundur SigurgeiiBson, DV, SeKossi:
Því miður, það er lokað í dag! var
viðkvæðiö hjá Gísla Felix Bjarnasyni
í'stórsigri KR-inga á Selfyssingum í
gærkvöldi, 16-26. Það voru góð vöm
KR og frábær markvarsla Gísla Felix
sem lögðu gmnninn að sigrinum.
Th að bæta gráu ofan á svart spil-
uðu heimamenn afar lélegan hand-
bolta, auk þess sem Einar Gunnar
Sigurðsson þurfti að fara af velli eft-
ir nokkurra mínútna leik. „Við eig-
um heima í efri hluta deildarinnar,"
sagði Sigurpáll Árni Aðalsteinsson,
homamaður KR, og var ánægöur
með sigurinn. Skástur í hði Selfyss-
inga var Björgvin Rúnarsson en best-
ur KR-inga var Gísh Felix.
HK - Stjaman (8-11) 20-25
O-l, 4-2, 4-6, 7-9. (8-11), 8-13, 10-14, 13-14, 13-17, 15-20, 18-23, 20-25.
• Mörk HK: Oskar Elvar 7/2, Hjálmar 5, Gunnleifur 3, Eyþór 1, Róbert
l, Bjöm 1, Obver 1, Sigurður l.
Varin’ skot: Hlynur 14, Baldur 1/1.
• Mörk Stjörnunnar: Sigurður B. 12/5, Skúh 3,
Eihpov 3, Einar 3, Konráö 2, Magnús 1, Hafsteinn H. 1.
Varin skot: Ingvar 18/2.
Dómaran Egill Már og Óm Markússynir, þokkalegir.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Sigurður Bjarnason, Stjörnunni.
Erf itt með einbeitingu
Þórður Gíslason skrifar
„Það er erfitt að halda einbeitingu
gegn Uðum eins og HK sem hanga
svona á boltanum. En sigurinn var
sannfærandi,” sagði Sigurður
Bjamason, besti leikmaður Stjöm-
unnar, eftir að Stjömumenn geröu
góða ferð í Digranes og unnu HK,
20-25, í frekar daufum leik.
Jafnræði var með hðunum í byijun
en um miðjan fyrri hálfleik tóku.
Stjömumenn við sér og höíðu 3-4
marka forskot fram í síðari hálfleik.
HK-menn gerðu þá á stuttum kafla 3
mörk í röð og minnkuðu muninn í
13—14 en náðu ekki að fylgja því eftir.
Óskar Elvar átti góðan leik fyrir HK
og Hjálmar gerði falleg mörk. Hjá
Stjömunni var Sigurður B. aht í öhu
og Ingvar varði vel í markinu.
Island enn án stiga og marka í Evrópukeppninni:
Vel sloppið
- góður varnarleikur en Sviss réð ferðinni og vann, 1-0
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Lausanne:
Það fór eins og margan grunaöi að við-
ureign íslendinga gegn Svisslendingum
yrði erfið. íslendingar áttu að mestu leyti
í vök aö verjast frá upphafi til enda.
Svisslendingar sköpuðu sér ekki mörg
tækifæri en réöu hins vegar gangi leiks-
ins eins og sá sem valdið hefur.
Auðvitað lá fyrir íslendingum erfiður
leikur og kom það svo sannarlega á dag-
inn. Þegar upp var staðiö vora þeir
heppnir að fá ekki á sig fleiri mörk, vöm
íslendinga sá tíl þess og Birkir Kristins-
son í markinu.
Svisslendingar vom langt í frá ánægð-
ir með sigur í minnsta lagi en það sem
stendur þó upp úr er varnarleikur ís-
lendinga sem var að engu leyti svipaður
og í leiknum gegn Tyrkjum.
íslendingar áttu í vök að verjast ahan
fyrri hálfleikinn, vömin hafði í nógu að
snúast og Birkir Kristinsson þurfti í tví-
gang að taka á honum stóra sínum.
Vörnin var sterk með Daða Dervic mjög
öflugan. Svissneska Uðiö átti í miklum
erfiðleikum meö aö finna leið í gegnum
hana. Þetta var stundum farið að fara í
taugarnar á sókndjörfum leikmönnum
Svisslendinga.
Á 6. mínútu varði Birkir glæshega skot
frá Christophe Ohrel frá vítateigshnu.
íslendingar vom mjög taugaóstyrkir í
aðgerðum sínum, sárasjaldan tókst aö
byggja upp sph og öh orkan fór í vamar-
leikinn. Hlynur Stefánsson átti hörku-
skot sem markvörður Sviss mátti hafa
sig allan við th að veija, en eftir sem
áður vom Svisslendingar nánast einráð-
ir með boltann í fyrri hálfleik. Samt virt-
ist aht ætla að stefna í markalausan
hálfleik.
Svisslendingar reyndu allt th að brjóta
varnarleikinn á bak aftur. Birkir sá við
Ohrel öðm sinni þremur mínútum fyrir
lok hálfleiksins. Þegar hins vegar hálf-
leikurinn var að fjara út fékk Sviss auka-
spymu rétt fyrir utan vítateiginn.
Thomas Bickel tók spyrnuna, sem var
fimafost, boltinn kom svo til beint á
Birki, sem virtist hrasa svohtiö, með
þeim afleiðingum að boltinn hafnaði í
netinu. Sárgræthegt mark sem kom á
versta tíma. Það hefði verið styrkur fyr-
ir íslendinga að hefja síðari hálfleik án
þess að hafa fengið þetta ódýra mark á
sig.
Islenska Uðið reyndi oft í síðari hálf-
leik að leika boltanum á mhh sín en það
gekk í fæstum tilfeUum eftir. Strákarnir
virtust óstyrkir og náðu engan veginn
að stilla upp fyrir sóknina. Tvívegis í
síðari hálfleik ógnaði islenska liðið
svissneska markinu að einhveiju ráði. í
fyrra skiptið Arnar Gunnlaugsson með
skot úr markteignum sem fór beint á
markvöröinn og í síðara skiptið Hlynur
Stefánsson með góða vinstrifótarspyrnu
úr vítateignum sem markvörðurinn
varði.
Hurð skall tvívegis nærri hælum uppi
við íslenska markið þegar bæði Ohrel
og Alain Sutter áttu skot í þverslána.
Þegar á heildina er litið má íslenska lið-
ið þakka fyrir að hafa farið frá Lausanne
með ekki fleiri mörk á bakinu.
Nú þegar þrír leikir eru að baki í riðhn-
um er uppskeran heldur rýr. Liðið hefur
enn ekki hiotið stig og enn ekki skorað
mark. Þessi staðreynd hlýtur að valda
vonbrigðum en hafa verður í huga að
viö erfiða andstæðinga er að etja. Samt
sem áður stendur skehurinn gegn Tyrkj-
um nokkuð uppúr og gerir sýnina svart-
ari.
Það var þó nokkur huggun í gærkvöldi
að sjá að vömin var miklu betri en í
Tyrkjaleiknum. Engu að síður hlýtur
árangurinn th þessa að valda vonbrigð-
um. Þegar lagt var upp í byrjun var
stefnan að gera betur en þetta sem hggur
að baki. Það tekur Uðið eflaust tímann
sinn að ná áttum fyrir átökin sem bíða
þess á næsta ári en þá fær það tækifæri
th að rétta úr kútnum. Það leikur þrjá
leiki á heimavelh á næsta ári og þeir
verða að vinnast ef árangurinn á ekki
að verða verri en í síðustu stórkeppni.
Eins og áöur hefur komið fram stóð
vörnin uppúr í gærkvöldi. Hún var
sterkasta vopn enda stefnt að því að fá
sem fæst mörk á sig. Daði og Guðni
Bergsson voru sem klettar í vörninni og
miðjan vann á köflum vel og var Hlynur
þar góður. Amar Grétarsson náði sér
ekki á strik og oft hefur Eyjólfur Sverris-
son sést sterkari. Amar Gunnlaugsson
var ekki öfundsverður af sínu hlutverki
í fremstu víghnu og fékk litlu ráðið.
Bjarki bróðir hans kom inná í síðari
hálfleik en sú skipting breytti litlu.
Svissneska liðið er óhemju sterkt og
er tvímælalaust komið í hóp bestu
landsliða heims. Hver staða er skipuð
teknískum og flinkum leikmönnum og
kæmi ekki á óvart þótt Uðið stæði á efsta
þrepi þegar riðlakeppninni lýkur. Fyrir
íslenska liðinu hggur hins vegar að
bretta upp ermarnar og gera miklu bet-
ur, meira er ekki hægt að fara fram á.
Sviss
Island
(1) 1
(0) 0
1-0 Thomas Bickel (45.)
Lið íslands: Birkir Kristinsson -
Guðni Bergsson, Kristján Jónsson,
Daði Dervic, Rúnar Kristinsson,
Sigursteinn Gíslason (Haraldur
Ingólfsson 84.) - Amar Grétarsson
(Bjarki Gunnlaugsson 64.), Þor-
valdur Örlygsson, Hlynur Stefáns-
son - Eyjólfur Sverrisson, Arnar
Gunnlaugsson.
Lið Sviss: Pascalo - Geiger,
Henchoz, Hottiger, Thúler - Bic-
kel, Ohrel, Sforza, Sutter - Chapu-
isat, Grassi (Túrkilmaz 67.)
Gult spjald: Hlynur.
Dómari: P. Kelly frá írlandi,'
sæmilegur.
Áhorfendur: 15.800.
Skilyrði: Mjög góð, logn og 11
stiga íúti.
Hörður með tilboð
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Lausanne:
Hörður Magnússon, markaskorarinn úr
FH, fékk í gær tilboð frá svissneska 3.
deildar félaginu Staffa, en hann hefur
dvahð þar síðustu daga og skoðað aðstæð-
ur.
„Ég er tílbúinn til aö spha með liðinu.
Ég get náð þremur leikjum fyrir vetrarfrí-
ið, og síðan byijar Uðið á ný eftir áramót-
in með því aö fara í æfingabúðir til Barce-
lona 23. janúar. Ég myndi leika með Uðinu
til 10. maí og koma þá heim og væntanlega
spha með FH í sumar," sagði Hörður þeg-
ar DV hitti hann á landsleiknum í
Lausanne í gærkvöldi.
Hörður sagði að FH og Staffa ættu í við-
ræöum um félagaskiptin og ekki væri ljóst
hvernig þær fæm.
„Hálfgert
andleysi"
Halldór Haildórsson skrifar:
„Það var hálfgert andleysi í leik
okkar og sem betur fer vorum við
að spila gegn botnliöinu/ sagði Guð-
finnur Kristmannsson, IR, eftir sigur
á ÍH, 28-25, í Seljaskóla.
Jón Þ. og Ólafur voru atkvæða-
mestir ÍH-manna. Hjá ÍR vom þeir
Guðfinnur og Dimitrijevic bestir.
Dimitrijevic fékk aö hta rauða
spjaldið undir lokin.
STAÐAN
Nissandeildin í handbolta:
Valur.....10
Víkingur... 10
Aftureld.... 10
Stjaman....l0
FH........ 9
KA........ 9
Haukar....10
ÍR........10
1 240-207 17
1 254-235 15
3 258-221 14
3 253-233 14
4 231-206 10
3 232-212 10
5 266-269 10
5 234-241 10
Selfoss....10 4 2 4 219-240 10
KR..........10 3 0 7 217-228 6
_HK..........10 1 0 9 222-246 2
ÍH..........10 0 0 10 195-273 0
ÍR - ÍH (12-14)
2-0, 7-7, 10-10, (12-14), 17-17, 20-19, 22-22, 24-24, 27-25, 28-25.
• Mörk ÍR: Dimitrijevic 10/3, Guðfinnur 8, Njörður 2, Jóhann 2, Róbert
2, Daði 1, Ólafur 1, Guðmundur l, Magnús l.
Varin skot: Magnús 11/1. .
• Mörk ÍH: Jón Þ. 7/1, Olafur 5, Asgeir 4, Sigurður
3, Guðjón S. 3, Jón B. l, Jóhann l, Bragi l.
Varin skot: Guðmundur A, 11/1, Revine 2.
Dómarar. Óh Ólsen og Gunnar Kjartansson. Dæmdu
Áhorfendur: 300
Maftur leiksins:
NBA-deildlnínótt:
Urslit leikja í NBA í nótt urðu þessi:
Boston - Seattle................120-93
Pliiladelphia - Miami...........109-96
SA Spurs - Chicago...............92-94
Phoenix - Minnesota.............105-90
LALakers-NewYork................89-110
New York gerði út um leikinn gegn La-
kers strax í fyrri hálíleik en í leikhléi var
staðan 53-36. Hubert Davis skoraði 27 stig
fyrir New York og Patrick Ewing 22 en
Cedric Ceballos var með 19 fyrir Lakers,
Boston vann sinn fyrsta heimasigurogþar
fór Dominique Wilkins á kostum og skoraði
29 stig og Dino Radia var með 28.
Jeff Maione skoraði 31 stig fyrir Philadelp-
hia í sigri hðsins á Miami.
Will Perdue skoraði sigurkörfu CMcago
gegn SA Spurs á lokasekúndunni. Sean EUi-
ot og Avery Johnson voru meö 15 stig hvor
fyrir Spurs.
Danny Manning skoraði 22 stig og Dan
Maierie 19 fyrir Phoenix en Donyell Mars-
hall setti 30 stig fyrir Minnesota.
Eyjólfur Sverrisson sækir aö svissneska varnarmanninum Stéphane Henchoz í Lausanne í gærkvöldi.
Símamynd/Reuter
Ásgeir Eliasson, landsliðsþjálfari íslands:
„Allt önnur vörn“
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Lausanne:
„Það var deginum ljósara að þetta
yrði erfitt. Við bökkuðum allt of mik-
ið í fyrri hálfleik og gáfum þeim fyr-
ir vikið mestöll svæði á vehinum.
Orsakarinnar fyrir þessu getur verið
að leita í hræðslu frá skelhnum í
Tyrklandi. Liðið var óstyrkt framan
af en það lagaðist til muna í síðari
hálfleik,“ sagði Ásgeir EUasson
landshðsþjálfari við DV eftir leikinn
í gærkvöldi.
„Við vissum vel að þeir myndu
pressa vel á okkur og því var óneit-
anlega lögð nokkur áhersla á varnar-
leikinn. Okkur gekk iha með sóknina
því miðjumennirnir duttu á köflum
aht of mikið th baka. Ég var þó
ánægður með vörnina því hún var
aht önnur hér en í Tyrklandi. Á
henni var reginmunur og baráttan
aht önnur,“ sagði Ásgeir.
Hvað ertu óánægðastur með í riðla-
keppninni:
„Mestu vonbrigðin voru að tapa
leiknum gegn Svíum á heimavelh,
þaö var mesta fallið. Tyrkjaleikurinn
var einnig áfall, en að fá á sig fimm
mörk var allt of mikið. Eins og ég
hef áður sagt vissum við vel að við
ramman reip yrði að draga hér í
Lausanne, Sviss var betra Uðið og
var lengstum með boltann," sagði
Ásgeir.
„Það eru þrír leikir heima á næsta
ári og þá verðum við að vinna. Það
er stór munur að leika á heimavelh
og þann styrk verðum við að nýta
okkur. Þaö eru 15 stig eftir í pottinum
og það verður því erfitt að bæta ár-
angurinn frá riðlakeppni HM. Við
gefum samt ekkert eftir þannig að
það megi takast/ sagði Ásgeir Ehas-
son.
Eyjólfur Sverrisson
„Svissneska hðið er í heimsklassa og
ég átti von á því aö við myndum tapa.
Samt er ég á því að þeir hafi verið
heppnir að skora þetta eina mark,
þeir sóttu miklu meira, vom meira
með boltann, en tækifærin hjá þeim
voni ekki mörg. Þeir leika mjög agaö
og gefa ekki færi á skyndisóknum
andstæðingsins.
Ég segi það Mklaust að það var
sárt að tapa á þessu heppmsmarki
þeirra,“ sagði Eyjólfur Sverrisson.
Birkir Kristinsson
„Ég sá boltann en var mislagður fót-
ur af einhverjum ástæðum sem ég
kann ekki almeimilega skil á. Þetta
var gífurlega fast skot og í öhu falli
hefði ég átt aö veija það.
Ég er mjög sáttur við baráttu hös-
ins í leiknum og aht annað var að
sjá til þess en í leiknum gegn Tyrkj-
um. Þaö var hrikalegt að fá þetta
mark á sig á þessum tímapunkti
leiksins/ sagöi Birkir Kristinsson
landshðsmarkvöröur.
Guðni Bergsson
„Ég hefði viljað sjá hðið vera komið
með 3 stig í riðhnum, og það var súrt
í brotið að fá þetta klaufamark á sig.
Við vörðumst vel og með smá hepprn
hefðum við getað náð jafntefli. Þeir
réðu auðvitað gangi leiksins, enda á
heimavelli. Það var auðsjáanlegt á
leik okkar að við vorum búmr að fá
sjálfstraustið eftir skelhnn í Tyrk-
landi,“sagði Guðrn Bergsson, fyrir-
liði íslands.
Eggert Magnússon
„Ég er aldrei sáttur við að tapa en
þetta var aht annað en í Tyrklandi.
Liðið náði upp sjálfstraustinu, því
var sorglegt að fá á sig þetta mark
undir lok fyrri hálfleiks. Ég á von á
því að liðið komi beitt til leiks næsta
vor,“ sagði Eggert Magnússon, for-
maður KSÍ.
Roy Hodgson
„Ég vissi að íslenska Uðið yrði ekki
auðuimið, þó um heimavöh væri að
ræða því varnarleikur þess var mjög
sterkur. Ég hefði vhjað sjá fleiri
mörk og lið mitt náði ekki að sýna
sinn besta leik. Menn voru að reyna
allt of mikið af langskotum, í stað
þess að fara nær og reyna auðveldari
markskot. Ég er mjög ánægður með
að vera búinn að vinna fyrstu tvo
leikina í riðhnum en meira fer að
reyna á styrk Uðsins þegar í útileik-
ina kemur. Ég hef ekki trú á ööm
en íslendmgar fari að vinna leik í
keppmnm, og það gerist örugglega í
heimaleikjunum á næsta ári,“ sagði
Roy Hodgson, Mnn enski þjálfari
Svisslendinga.
Víkingsstúlkur í vandræðum
Helga Sigmundsdóttir skriíar:
KR sigraði Fylki ömgglega í Laug-
ardalshöll í gærkvöldi í 1. deild
kvenna í handknattleik, 25-18. Stað-
an í leikMéi var 11-11.
Mörk KR: Brynja 9, Sigurlaug 4,
Helga 4, Þórdís 3, Ágústa 3, Anna 2.
Mörk Fylkis: Þuríður 9, Anna H.
5, Ágústa 2, Anna E. 1, Eva 1.
í Kaplakrika unnu Eyjastúlkur sig-
ur á FH, 23-26, eftir 13-14 í hálfleik.
Mörk FH: Björg 7, Björk 6, Thelma
6, Lára 3 og Hildur 1.
Mörk ÍBV: Andrea 6, Judit 4, Ingi-
björg 4, Katrín 4, íris 4, StefaMa 2 og
Ragna 2.
Ármann mátti þola tap gegn Vjk-
ingi í Laugardalshöh, 20-24, en Ár-
mann hafði yfirhöndma aht þar til
15 mínútur voru til leiksloka. í hálf-
leik var staðan 11-9, ArmanM í vil.
Mörk Ármanns: Guðrún 9, írína 4,
Svanhildur 2, Ásta 2, Kristín 2, og
Áslaug 1.
Mörk Víkings: Heiða 9, Halla 8,
Svava S. 3, Svava Ýr 3 og Matthildur
1.
Evrópukeppni
landsliða
1. riðill:
Pólland - Frakkland.....0-0
Azerbaijan - ísrael.....0-2
0-1 Harazi (30.), 0-2 Rosenthal (51.)
Rúmenía....3 2 1 0 6-2 7
ísrael.....3 2 1 0 6-3 7
Póhand.....3 1112-2 4
Frakkland..3 0 3 0 0-0 3
Slóvakía...3 0 2 1 4-5 2
Azerbaijan.3 0 0 3 0-6 0
2. riðill:
Kýpur - Armenía.........2-0
1-0 Soteriou (7.), 2-0 Fassouhotis
(87.)
Belgia - Makedónía......1-1
1-0 Verheyen (31.), 1-1 Boskovski
(54.)
Spánn - Danmörk.. .3-0
1-0 Nadal (41.), 2-0 Gama (57.), 3-0 Enrique (87.)
Spánn .3 3 0 0 7-1 9
Kýpur .3 1 1 1 3-2 4
Belgía .3 1 1 1 4-4 4
Danmörk .3 1 1 1 4-5 4
Makedónia.... .3 0 2 1 2-4 2
Armenía .3 0 1 2 0-4 1
3. riftill:
Sviss - Island.................1-0
1-0 Bickel (45.)
Svíþjóð - Ungverjaland.........2-0
1-0 Brolin (43.), 2-0 Dahhn (70.)
2 0 0 5-2 6
2 0 1 5-4 6
1 1 0 7-2 4
0 1 1 2^4 1
0 0 3 0-7 0
4. riðill:
Slóvenía - Litháen............1-2
1-0 Zahovic (55.), 1-1 Surkistovas
(64.), 1-2 Zuta (87.)
Italia - Króatía..............1-2
0-1 Suker (32.), 0-2 Suker (60.), 1-2
D.Baggio (90.)
3 0 0 6-1 9
2 0 1 4-3 6
1 1 1 4-3 4
1 1 1 3-2 4
0 2 1 2-3 2
0 0 3 0-7 0
5. riðill:
Hvita-Rússland - Noregur.....0-4
0-1 Berg (34.), 0-2 Leonhardsen
(39.), 0-3 Bohinen (52.), 0-4 Rekdal
(83.)
Holland - Tékkland...........0-0
Noregur......3 2 1 0 6-1 7
Tékkland.....3 1 2 0 6-1 5
Holland......3 1 2 0 5-1 5
Hv.Rússland.. 3 1 0 2 2-5 3
Malta........2 0 111-6 1
Lúxemborg....2 0 0 2 0-6 0
6. riðill:
Norður-Irland - írland.......0-4
0-1 Aldridge (6.), 0-2 Keane (11.),
0-3 Sheridan (38.), 0-4 Townsend
(54.)
Liechtenstein - Lettland.....0-1
0-1 Babitchev (14.)
írland.......3 3 0 0 11-0 9
Portúgal.....3 3 0 0 6-2 9
N.írland.....4 2 0 2 7-8 6
Austurríki...3 1 0 2 5-3 G
Lettland.....3 1 0 2 2-6 3
Liechtenstein. 4 0 0 4 1-13 0
7. riðill:
Georgía - Wales.............5-0
1-0 Ketsbaya (31.), 2-0 Kinkladze
(41.), 3-0 Ketsbaya (49.), 4-0 Gogric-
hiani (59.), 5-0 Arveladze (67.)
Albania - Þýskaland.........1-2
0-1 Klinsmann (18.), 1-1 Zmijani
(32.), 1-2 Kirsten (46.)
Búlgaria - Moldavia.........4-1
1-0 Stoichkov (45.), 1-1 Clescenko
(60.), 2-1 Balakov (65.), 3-1 Stoic-
hkov (85.), 4-1 Kostadinov (88.)
Búlgaría.....2 2 0 0 6-1
Moldavía.....3
Georgía......3
Þýskaland....1
Wales........3
Albarna......2
1 5-6
2 5-3
0 2-1
2 4-8
2 1-4
8. riðill:
Finnland - Færeyjar.........5-0
1-0 Sumiaia (37.), 2-0 Litmanen
(51.), 3-0 Litmanen (71.), 4-0 Paat-
elainen (75.), 5-0 Paatelainen (85.)
Skotland - Rússland.........1-1
1-0 Booth (19.), 1-1 Radtsjenko (25.)
Grikkland - San Marino......2-0
1-0 Machlas (21.), 2-0 Fratzeskos
(84.)
Grikkland....3 3 0 0 11-1 9
Skotland......3 2 1 0 8-2 7
Rússland......2 1 1 0 5-1 4
Finnland......3 1 0 2 5-6 3
SanMarino....2 0 0 2 0-6 0
Færeyjar......3 0 0 3 2-15 0
Vináttúleikur:
England - Nígería...........1-0
1-0 Platt (40.)
X