Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Page 28
‘gs&r Matthías Bjarnason. Bankastjórar sem standa sig ekki eiga ad hverfa ... Ég vil láta þá bankastjóra hverfa sem ekki standa sig í stöðu sinni og láta þá fara í störf sem henta þeim betursegir Matthías Bjamason í DV. Femínisminn hefur daprast „Hin tæra ásýnd femínismans sem öllum var ljós í upphafi, hef- uf fyrir löngu daprast innan Kvennalistans. Þar á bæ hefur afstaðan til málefna dagsins mót- ast af öðrum þáttum mestan part... “ skrifar Einar K. Guð- finnsson í kjallargrein í DV. Ummæli Leiðtoginn sem vantar „Kannski mun Kvennalistinn einfaldlega þurrkast út ef Jó- hanna Sigurðardóttir fer í fram- boð. Hún er jú leiðtoginn sem kvennalistakonur vanhagar uru og finna ekki innan eigin raða..." skrifar Egill Helgason í Alþýðublaðið. Vonlaus staða „... ísland er ekki nema 5 pró- sent af okkar rekstri. Það virðist vera auðveldara að starfa erlend- is en hér. Þetta er vonlaus staða,“ segir Þóra Guðmundsdóttir, ann- ar eigenda Atlantaflugfélagsins, í DV. NATOaðkalda stríðlnu loknu I tengslum viö landsráðstefnu Samtaka herstöðvaandstæöinga verður efnt tU málþings um til- vist NATO að kalda stríðinu loknu. Kynnt verður nýleg skýrsla Bresk-bandaríska upp- lýsingaráðsins um öryggismál (Basic), um störf NATO á undan- fómum árum. Að loknum stutt- Fundir um erindum verða pallborðsum- ræður með almennri þátttöku. Málþingið verður á morgun á Komhlöðuloftinu við Bakara- brekku og hefst kl. 13.15. Félag fráskilínna Félag fráskilinna heldur fund í Risinu, Hverfisgötu, í kvöld. Nýir félagar velkomnir. Málþing um gjörgæsludeild I tílefiii af 20 ára afmæJi gjör- gæsludeildar Landspítalans verður málþing á morgun að Hótel Loftleiöum sem hefst kl. 13.00. Flutt verða stutt erindi sem fjalla um starfsemi gjörgæslu- deildar Landspítalans og þær siö- ferðilegu spumingar sem sífellt er verið að kljást við innan deild- arinnar. Aðgangur er 500 krónur og era állir velkomnir. Sagtvar: Helmingur þeirra sem sótti um, átti íbúðir. Rétt væri: helmingur þeirra Gætumtungunnar sem sóttu um, átti íbúöir. (Þeir sóttu - helmingur átti.) Rigning sunnanlands í dag verður vaxandi austanátt, all- hvasst og slydda, en síðar rigning sunnanlands í dag, en sunnan kaldi Veðrið í dag og skúrir í nótt. Um norðanvert land- ið verður í fyrstu suðaustangola og léttskýjað en í dag þykknar upp meö vaxandi suðaustanátt. Allhvasst og snjókoma eða slydda í kvöld og nótt, en hvöss suðaustanátt og rigning á Austurlandi. Hlýnandi veður. Á höf- uðborgarsvæðinu er vaxandi suð- austanátt og þykknar upp, síðdegis snýst í sunnan kalda með skúrum. Hlýnandi veður. Sólarlag í Reykjavík: 16.20 Sólarupprás á morgun: 10.11 Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.30 Árdegisflóð á morgun: 6.46 (Stórstreymi) Hcimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri heiðskírt -5 Akumes skýjað 1 Bergsstaðir heiðskírt -8 Bolungarvík heiðskírt -4 Keila víkurtlugvöUur léttskýjað 1 Kirkjubæjarklaustur skýjað 1 Raufarhöfn heiðskírt -7 Reykjavík léttskýjað -1 Stórhöfði skýjað 4 Bergen léttskýjað 1 Helsinki léttskýjað -6 Kaupmannahöfn skúrásíð. klst. 5 Þórshöfn léttskýjað 0 Amsterdam skúrásíð. klst. 11 Beriin skýjað 5 Feneyjar þokumóða 7 Frankfurt rign. á síð. klst. 8 Glasgow súld 5 Hamborg léttskýjað 4 London rigning 11 LosAngeles léttskýjað 13 Lúxemborg rigningog súld 7 Madrid þokumóða 4 MaUorca skýjað 9 Montreal heiðskírt 2 New York alskýjað 12 Nice léttskýjað 10 Orlando alskýjað 17 París rigning og súld 9 Róm skýjað 8 Vín alskýjað 8 Winnipeg snjókoma -1 Þrándheimur alskýjað -12 Veðrið kl. 6 í morgun Markús Einarsson, skólastjóri Björgunarskóla Landsbjargar: á 89 stöðum í vetur „Megintilgangur skólans er að sjá um fræðslu björgunar- og slysa- vamafólks. Bæði Slysavamafélag íslands og Landsbjörg hafa mörg undanfarin ár rekiö öfiugt fræðslu- starf hvort í sínu lagi en nú eru þau að sameina krafta sína í einn skóla og ná þannig fram aukinni hagræö- ingu og gera starfið markvissara,1' segir Markús Einarsson, nýráðinn skólastjóri Björgunarskóla Lands- bjargar og Slysavarnafélags ís- lands, en skólinn er til húsa að Stangarhyl 1 í Reykjavík. „Á okkar námsskrá eru 52 mis- munandi námskeiö sem eru fyrir björgunarsveitarmenn og leiöbein- endur. Meðal námskeiða era rötun, námskeiö þar sem kennd er notkun áttavita . og korta, leitartækni, skyndiþjálp, bátanámskeið, köfun- amámskeið og svona mætti lengi telja. Skólinn starfar að mestu úti á landsbyggöinni og taldist mér tO aö við værum með um 250 nám- skeið á 89 stöðum í vetur. Ástæðan fyrir því að flest námskeiðin eru haldin utan Reykjavíkur er fyrst og fremst sú aö björgunarsveitim- ar á höfuðborgarsvæðinu og ná- grenni hafa lagt á það áherslu að vera meö eigin leiðbeinendur." Markús sagði að fastir starfs- menn skólans væru fimm: „Auk mín eru fjórir yfirkennarar í hluta- störfum og felst starfssvið þeirra meðal annars í að skipuleggja nám- skeiöahaldið, búa tfi námsefhi, skaffa leiðbeinendur og fylgjast með námskeiðunum. Starfsár skól- ans er ffá október og fVam i maí.“ Markús er iþróttakennari að mennt og starfaði sem sllkur, auk þess sem hann starfaði þjá íþrótta- sambandi fatlaöra í átta ár. Und- anfarin fjögur ár hefur Markús veriö í námi í markaðsfræðum í Noregi. Eigipkona Markúsar er Margrét Bjarhadóttir og eiga þau eina dóttur. Aðspurður um áhuga- mál sagði Markús þau flest tengjast íþróttum. Myndgátan Höfuðborgarsvæði Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 Handbolti og blak " Einn leikur er í 1. deild i hand- boltanum í kvöld. Á Akureyri fer fram viðureign KA og FH og má búast við spennandi keppni milli þessara liða sem era nokkuð áþekk að getu og þaö munar um hvert stig i toppbaráttunni. íslandsmótið í blaki stendur nú sem hæst og veröa tveir leikir í blaki i kvöld. Báðir leikirnar fara fram í Hagaskólanum. ÍS leikur gegn Þrótti, Neskaupstað, í 1. deild karla og i 1. deild kvenna leika sömu lið. Á morgun fara svo fram margir leikir í blakinu, má nefna að Víkingur leikur viö KA i kvennaflokki og HK leikur við Þrótt, Neskaupstað, í karla- og kvennaflokki. Skák Enn frá atskákmóti Intel og PCA í Par- ís á dögunum. Predrag Nikolic hafði svart og átti leik í meðfylgjandi stöðu gegn Smirin, ísrael. Svörtu mennirnir hafa gert innrás í herbúðir hvíts en hvernig er best að ljúka taflinu? 8 7 6 5 4 3 2 1 ABCDEFGH 1 11 m 1 i 1 i £ & &■ && m i s & E ti. 1? Eftir 31. - Hcl! gafst hvitur upp. Eftir 32. Hxcl Hxcl 33. De2 kæmi 33. - Hxel +! 34. Dxel Rf3+ og þar sem hrókurinn á f2 er leppur fellur drottningin í næsta leik. Jón L. Árnason Bridge Yfirleitt hefja menn ekki þátttöku í keppnisbridge fyrr en þeir eru komnir fast að tvítugu, þótt dæmi séu um að menn byrji fyrr. Hitt er sjaldgæfara að spilarar taki þátt í keppni aðeins 12 ára að aldri. Þó hefur ung stúlka á þeim aldri látið ljós sitt skína að undanfómu í spila- klúbbum í Reykjavík. Anna Guðlaug Nielsen heitir stúlkan, aðeins 12 ára göm- ul og hefur aðaliega spilað við fóður sinn, Guölaug Nielsen. Fmmleg tilþrif hennar í vöminni í þessu spili síðastliðinn fimmtudag í Bridgefélagi Breiðfirðinga vöktu athygli. Spiluð var sveitakeppni og algengt var að NS renndu sér í hálf- slemmu í hjarta í þessu spili. Anna Guð- laug Nielsen sat í vöminni í vestur og átti útspil: * ÁD65 V KG74 ♦ K643 + 4 * K972 V-- ♦ ÁD1095 + G965 ♦ G4 V 1086 ♦ G72 + KD1073 ♦ 1083 V ÁD9532 ♦ 8 + Á82 Eins og lesendur sjá stendur slemman vegna góðrar legu. Spaðasvíning heppn- ast og einnig er hægt að spila tígU að kóng og fá spaðaniðurkast og eini gjafa- slagurinn því á tígulásinn. En Anna Guð- laug gerði sagnhafa óleik með útspilinu því hún spilaði út tígulfimmunni í upp- hafi! Sagnhafi taldi engar likur á að vest- ur væri að spila frá tigulásnum, sérstak- lega ekki 12 ára bam sem rétt nær upp fyrir borðbrúnina. Hann ákvað að setja lítiö spil úr blindum og vonaðist til þess að hægt væri að trompa niður tigulásinn. Austur átti slaginn á gosann og spilaði tígli til baka. Sagnhafi vissi ekki hvaðan á sig stóð veörið, henti spaða og fór einn niður. Hann hefði reyndar getað unnið spiliö þótt hann gæfi fyrsta slaginn, því ef sagnhafi trompar tvö lauf í blindum og rennir niöur öllum trompunum lendir vestur í þvingunarstöðu. Hann getur ekki haldið þremur spöðum og tigulás í þriggja spila endastöðu. Ef Anna Guðlaug heldur áfram með svona tilburði við spilaborðið á hún bjarta framtið. ísak Örn Sigurösson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.