Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1994, Blaðsíða 38
50
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1994
Afmæli
María Guðmundsdóttir
María Guðmundsdóttir forstöðu-
maður, Selvogsgrunni 12, Reykja-
vík,erfertugídag.
Starfsferill
María fæddist á Akureyri og ólst
þar upp til fimm ára aldurs en hefur
síðan búið í Reykjavík. Hún lauk
stúdentsprófi frá MH1974, stundaði
nám viö Universite d’Avianon i
Frakklandi í frönskum bókmennt-
um 1974-75, stundaði nám við Uni-
versity of Warwich í Bretlandi
1975-78 og lauk þar BA-prófi í
frönskum bókmenntum og ensku,
lauk leiðsögumannsnámi 1982 og
lokaprófi í uppeldis- og kennslu-
fræði við HÍ1982-83.
María var kennari í frönsku og
ensku við MS1978-80, kennari í
ensku við Æfmgadeilda KHÍ1978,
kennari hjá Alliance Francaise í
Reykjavík 1978 og 1979, kennari viö
Málaskóla Halldórs Þorsteinssonar
1978 og 1979, innkaupastjóri hjá
Hagkaupi hf. 1980-82, kennari í
frönsku og ensku við MS1983-86,
þýðandi og blaðafulltrúi við franska
sendiráðið í Reykjavík 1986-87 og
hefur starfað hjá Upplýsingamið-
stöð ferðamála frá 1988 og verið þar
forstöðumaður frá 1990.
María var flugfreyja að sumarlagi
á námsárunum, hefur verið farar-
stjóri erlendis og leiðsögumaður
innanlands. Hún átti sæti í stjórn
Ferðavakans 1991-92 og hefur sinnt
ýmsum öðrum störfum í þágu ferða-
þjónustu.
Fjölskylda
María giftist 22.5.1982 Kjartani
Jóhannessyni, f. 7.5.1955, kerfis-
fræðingi hjá Reiknistofu bankanna.
Hann er sonur Jóhannesar Jóhann-
essonar listmálara og Álfheiðar
Kjartansdóttur þýðanda.
Börn Maríu og Kjartans eru Jó-
hannes Kjartansson, f. 9.1.1983;
Guðmundur Kjartansson, f. 6.7.
1986; Álfheiður Marta Kjartansdótt-
ir, f. 3.4.1993.
Systkini Maríu: Sigurður Guö-
mundsson, f. 13.12.1940, stýrimaður
í Reykjavík, var fyrst kvæntur Ingu
Hold og síðar Ingibjörgu Aradóttur
og á hann þijú börn; Ævar Guð-
mundsson, f. 6.1.1945, vélstjóri í
Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Fríðu
Óladóttur og eiga þau tvö börn;
Sveinn Guðmundsson, f. 14.3.1951,
fisktæknir í Reykjavík, kvæntur
Sigurveigu Sigmpndsdóttur og eiga
þau tvö börn; Jörundur Guömunds-
son, f. 17.10.1957, MA í heimspeki
og útgefandi, kvæntur Jakobínu
Þórðardóttur og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Maríu: Guðmundur
Jörundsson, f. 3.11.1912, d. 14.5.1990,
útgerðarmaður á Akureyri og síðar
i Reykjavík, ogk.h., Marta Sveins-
dóttir, f. 11.11.1915, húsmóðir.
Ætt
Guðmundur var sonur Jörundar
Jörundssonar, útgerðarmanns í
Hrísey, og k.h., Maríu Friðriku,
dóttur Sigurðar, skútuskipstjóra frá
Skriðdal á Siglufirði Gunnlaugsson-
ar, og Kristínar Antonsdóttur frá
Arnarnesi í Möðruvallasókn. Jör-
undur var sonur Jörundar, útvegsb.
og skipstjóra á Syðstabæ í Hrísey,
Jónssonar, og s.k.h., Margrétar
Maria Guðmundsdóttir.
Guðmundsdóttur frá Moldhaugum
í Möðruvallasókn.
Marta er dóttir Sveins, b. í Stein-
dyrum, Jóakimssonar og Þórunnar
Kristinsdóttur.' Foreldrar Sveins
voru Jóakim Jóakimsson og Guðný
Svanlaugsdóttir. Foreldrar Þórunn-
ar voru Kristinn Friöriksson og
Anna Þorleifsdóttir.
Anna L.
Þórhallsdóttir
Til hamingju með
Anna Laufey Þórhallsdóttir skóla-
ritari, Bollagörðum 41, Seltjarnar-
nesi, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Anna er fædd á Siglufirði og ólst
þar upp.
Anna vann í mörg ár í Verslunar-
félagi Siglufjarðar hf. og síðan á sím-
stöðinni hjá Pósti og síma á Siglu-
firðifrá 1963-65.
Anna flutti til Reykjavíkur haust-
ið 1965 og hóf þá störf hjá Hafskipi
hf. og vann þar til maíloka 1985. Hún
hefur verið starfsmaður Tjarnar-
skóla frá því í ágúst 1985.
Fjölskylda
Anna kvæntist 1.2.1969 Lúðvík
Lúðvíkssyni, f. 29.9.1938, hafnsögu-
manni hjá Reykjavíkurhöfn. For-
eldrar hans: Lúðvík Ásgrímsson, d.
1970, og Hallfríður Einarsdóttir, d.
1973.
Dætur Önnu og Lúðvíks: Fríða
SjöfnLúövíksdóttir, f. 7.6.1970,
starfsmaður á auglýsingadeild DV,
unnusti hennar er Benóný Valur
Jakobsson, f. 2.7.1968, starfsmaður
Pizzahússins; Hanna Þóra Lúðvíks-
dóttir, f. 18.3.1972, nemi í uppeldis-
fræði við Háskóla íslands; Margrét
Halla Lúðvíksdóttir, f. 29.1.1975,
starfsmaður á smáauglýsingadeild
DV. Dóttir Lúðvíks úr fyrra hjóna-
bandi er Dröfn Lúðvíksdóttir, f. 26.6.
1964, starfsmaður Lyíjaverslunar
íslands. Sonur hennar er Davíð Carl
Kavanagh, f.4.11.1990.
Foreldrar Önnu: ÞórhaUur
Bjömsson, f. 19.11.1912, d. 2.7.1992,
frá Siglufirði þar sem hann var
verslunarmaður til 1973 og síðar
starfsmaður Tollstjórans í Reykja-
Anna Laufey Þórhallsdóttir.
vík, og Hólmfríður Guðmundsdótt-
ir, f. 11.4.1911, d. 30.10.1982, frá
Nýjabæ í Kelduhveri, starfsmaður á
Landspítalanum, þau bjuggu á
Siglufirði og síðar i Reykjavík.
Guðni Þ. Sigurmundsson
afmælið 21. nóvember
90 ára 60ára
Guðni Magnússon,
Faxabraut 13, Keflavík.
85 ára
Guðmundur Kristjánsson,
Eskihlíð26, Reykjavík.
80ára
Ásthildur F orberg,
Nönnugötu 16, Reykjavík.
Lárus Sumarliðason,
Aðalgötu 5, Keflavík.
75 ára
Kristín Vigfúsdóttir,
Suðurvangi 14, Hafnarfirði.
Hjálmar Stefánsson,
Heiðarbrún 14, Keflavík.
Gunnjóna Jóhannesdóttir,
Dalbraut 11, ísafirði.
Kristbjörg Þórarinsdóttir,
Kríuhólum 2, Reykjavík.
50ára
Guðmundur Ólafsson,
Stigahlíö 41, Reykjavík.
Þóra Elísabet Hallgrímsdóttir,
Kambsvegi 19, Reykjavík.
Anna Kristín Þórarinsdóttir,
Garðhúsum 10, Reykjavík.
Friðrik Rósmundsson,
Bleiksárhlíð 15, Eskifirði.
Guðni Þ. Sigurmundsson stýrimað-
ur, Sólbraut 11, Seltjarnarnesi, er
fertugurídag.
Starfsferill
Guðni er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk prófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1979. /
Guðni hóf störf hjá Landhelgis-
gæslunni 1971 og starfaði þar til
1975. Hann fór síðan til starfa hjá
Eimskip, fyrst sem háseti og síðar
sem stýrimaður. Guðni er nú stýri-
maður á Skógarfossi.
Fjölskylda
Guðni kvæntist 12.9.1987 Eddu
Sveinbjörnsdóttur, f. 6.4.1953, hús-
móður, en þau hófu sambúð 1.8.
1982. Foreldrar hennar: Sveinbjörn
Gíslason húsvörður og Karólína
Aðalsteinsdóttir, húsmóðir.
Börn Guðna og Eddu: Garðar, f.
30.4.1984; Karólína, f. 11.8.1988.
Systkini Guðna: Guðmundur,
leigubifreiöastjóri í Reykjavíkr
Dagmar, látin, sjúkraliði; Jón Ingi,
starfsmaður hjá Póstinum á Akur-
eyri; Ómar, starfsmaður Reykjavík-
urborgar; Auðbjörg, sjúkraliði í
Reykjavík; Eiríkur Vignir, rafvirki
á Ákureyri; Stefán, stöðvarstjóri hjá
Olís í Reykjavík; Þórhallur, starfs-
maður Slippfélagsins í Reykjavík;
Aðalsteinn, kjötiðnaðarmaður í
Reykjavík; Svanur, kjötiðnaðar-
maðuríReykjavík.
Foreldrar Guðna: Sigurmundur
Guönason, f. 26.11.1908, smiður, og
Þórunn Jóna Þórðardóttir, f. 13.6.
1911, húsmóðir og verkakona, þau
eru nú búsett á Elliheimilinu
Grund. Kynforeldrar: Kristvin
Guðni Þ. Sigurmundsson.
Kristinsson, látinn, og Þórdís Ei-
ríksdóttir, húsmóðir í Reykjavík.
Guðni eraðheiman.
Haukur Bogason,
Efstasundi 49, Reykjavik.
Hanneraöheiman.
Helgi Hóseasson,
Skipasundi 48, Reykjavík.
Arnór Sigurðsson,
Lindasíðu 2, Akureyrí.
Guðmundur Eyjólfsson,
Álftamýri 49, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum í Skála,
Hótel Sögu, frá kl. 16-18 á afmælis-
daginn.
70 ára
Lilja Sigfinnsdóttir,
Marbakkabraut 5, Seltjarnarnesi.
Valborg Helgadóttir,
Háaleitisbraut 45, Reykjavík.
Guðmundur Gunnarsson,
Núpasíðu 2d, Akureyri.
40ára_______________________
Guðmunda Björk Óskarsdóttir,
Rauðagerði 50, Reykjavík.
Ólafur Karl Nielsen,
Lynghaga 28, Reykjavík.
PállEmilBeck,
Kársnesbraut 112, Kópavogi.
Birgir Rúnar Sæmundsson,
Skálholtsbraut 15, Þorlákshöfn.
Guðrún Matthíasdóttir,
Grandavegi 43, Reykjavik.
Hafþór Snorrason,
Vallholti 12, Selfossi.
Þórður Magnússon,
Sogavegi 127a, Reykjavík.
Einar Egilsson,
Fögrubrekku 18, Kópavogi.
Alma f sleifsdóttir,
Hlíöarhjalla39d, Kópavogi.
Bridge
Bridgefélag Reykjavíkur
Miðvikudaginn 16. nóvember voru spilað-
ar 10 umferðir í Butlertvímenningi félagsins
og hæsta skori á spilakvöldinu náðu eftirtal-
in pör:
1. Jörundur Þórðarson-Jón Þorvaröarson 78
2. Sveinn Rúnar Eiríksson-Mario Kalebic 72
3. Björgvin Már Kristinsson-Bjanri A.
Sveinsson 64
4. Jón Baldursson-Sævar Þorbjömsson 60
5. Jakob Kristinsson-Jónas P. Erlingsson 59
6. Helgi Sigurðsson-ísak Öm Sigurðsson 57
Staða efstu para eftir 19 umferðir er þá þann-
ig:
1. Matthías Þorvaldsson-Jakob Kristinsson
116
2. Jón Baldursson-Sævar Þorbjörnsson 110
3. SverrirÁrmannsson-Þorlákur Jónsson 104
4. Sigurður Sverrisson-Hrólfur Hjaltason 90
5. Símon Símonarson-Björn Theódórsson 83
5. Sveinn Rúnar Eiríksson-Mario Kalebic 83
7. Hjalti Elíasson-Páll Hjaltason 76
8. Ólafur Lárusson-Hermann Lárusson 70
9. Sigurður B. Þorsteinsson-Gylfi Baldursson
68
Næsta miðvikudag, 23. nóvember verður
spilað í nýju húsnæði BSÍ í Þönglabakka 1.
Paraklúbburinn
Þriðjudaginn 15. nóvember var spiluð
þriöja umferðin af fjórum í hraðsveitakeppn-
inni og úrsht kvöldsins urðu eftirfarandi:
1. Edda Thorlacius 587
2. Hörpustrengir 581
3. Gunnlaug Einarsdóttir 555
4. María Haraldsdóttir 543
Staða efstu sveita er þá þessi:
1. Gunnlaug Einarsdóttir 1159
2. Edda Thorlacius 1138
3. Steinasystur 1097
4. Hörpustrengir 1089
5. María Haraldsdóttir 1044