Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 199- Fréttir Hæstiréttur vísar máli frá dómi vegna hæfileikaskorts málflytjanda: Hæstiréttur tekur málf lytjanda á beinið Hæstiréttur vísaði frá dómi í gær máli Jóhönnu Tryggvadóttur og Evrópuferða gegn Halldóri Ást- valdssyni. Málið snerist um launa- kröfu Halldórs á hendur Evrópu- ferðum og áfrýjaði Jóhanna máhnu til Hæstaréttar og krafðist sýknu af dómi héraðsdóms. Jóhanna flutti máhð sjálf fyrir Hæstarétti. Hún er ekki lögfræð- ingur að mennt og voru henni því veittar leiðbeiningar um rekstur og flutning málsins eins og lög kveða á um. I dómi Hæstaréttar segir að ýmis atriði hafi farið úr- skeiðis í málatilbúnaði hennar. - sjöunda mál hans sem sætir aðfinnslum Segir að málsástæður séu um „margt óljósar og á reiki“, lagasjón- armiðum þeim til stuðnings séu ekki gerð skil. Þá er talað um að gagnaöflun hennar sé verulegum annmörkum háð. Þannig hafi hún, þrátt fyrir leiðbeiningar, lagt fram mikinn fjölda gagna til stuðnings kröfu á stefnda en flest þeirra verið með þeim hætti að ófært sé að byggja á þeim viö úrlausn málsins og sum hver varði ekki máhð. Munnlegur málflutningur hennar fyrir Hæstarétti hafi ekki komið að neinu haldi og í heild hafi þannig vantað verulega á að málatilbúnað- ur Evrópuferða hafi verið í lög- mætu horfi. Fyrir leikmann er ekki annað að sjá en að mestallt hafi farið úrskeiðis sem getur farið úr- skeiöis. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hæstiréttur finnur að málflutningi hennar í málum sem hún hefur flutt fyrir réttinum fyrir sig, mann sinn eða fyrirtæki sitt. í dómi frá seinasta ári „var gerð sú athuga- semd, að það mál hafi verið hið fjórða, sem hún flytti fyrir dómin- um á nokkrum dögum, en málin hafi öll verið viðameiri en svo, að þaö hafi getað verið á færi annarra en málflutningsmanna að húa þau í hendur dómstóla á viðunandi hátt.“ í dómi uppkveðnum á þessu ári var málatilbúnaður í einu máh sem Jóhann flutti tahnn „stórlega víta- verður og var sérstaklega að því fundið að meginhluti gagna og málsástæðna, sem þar hafi verið byggt á, hafi í engu varðað rnálið." í öðrum dómi kveðnum upp á þessu ári segir að það sé ekki „á færi Jóhönnu Tryggvadóttur að reka mál þannig fyrir dómstólum, að viðunandi sé, en um þetta var einn- ig vísað til áðumefndra tveggja dóma.“ Vegna málsins í gær beindi Hæstiréttur því bréflega til Jó- hönnu aö hún réði sér hæfan um- boösmann til að flytja það. Þessum tilmælum sinnti hún ekki frekar en öðrum ítrekuðum leiðbeining- um. í ljósi þessa, svo og þeirra stór- fehdu annmarka, sem eru á málat- Ubúnaði og málflutningi Jóhönnu þótti dóminum sýnt „að hana skorti hæfi til að flytja mál sitt fyr- ir dómi.“ Samkvæmt þessu var máhð feUt niður og Jóhönnu gert að greiða Halldóri málskostnað að upphæð 75 þúsund krónur. Stuttar fréttir Hagsýnar húsmæður Fjögurra milljóna króna hagn- uður varð af rekstri Kvennalist- ans í fyrra. Tíminn greindi frá þessu. Tónleikum aflýst Sinfóníuhljómsveitin ætlaöi að leika fyrir 400 böm úr Austur- bæjarskóla í gær en varö aö hætta við vegna þess að húsnæði fékkst ekki. Skv. Mbl. krafðist HaUgrímskirkja greiðslu fyrir kirkjuafnot og skólameistari Iðn- skólans vísaði hljómsveitiimi á dyr. FJáröflunarleið stúdenta Stjórnmálafræðinemar við H.Í. hafa skorað á stúdenta að segja sig úr þjóðkirkjunni og auka þannig ráðstöfunarfé skólans. Skv. stjómarskránni renna kirkjugjöld þeirra sem standa utan þjóðkirkjunnar til H.í. Utiðumbólusetníngar Þrátt fyrir að innflúensa sé yfir- vofandi hér á landi hafa fáir látið bólusetja sig. Skv. Mbl. vom um 40 þúsund skammtar af bóluefni pantaðir til landsins. Loðnan dretfð í djúpinu Tíu skip voru við loðnuleit viö Kolbeinsey í gær. Skv. RÚV urðu menn lítið varir við loðnu enda var hún dreifð í djúpinu. Gagnrýníttrekuð Innkaupastofnun Reykjavíkur hefur ítrekað gagnrýni sína á nágrannasveitarfélögin fyrir mismunun í útboðum. Skv. Mbl. er taliö að fyrirtækí í Reykjavík beri skarðan hlut frá boröi. íbúar nágrannabyggða Reykja- víkur óttast aö borgin æth aö láta þá niðurgreiöa útsvör Reykvík- inga með því aö hækka gjaldskrá Hitaveitu og Rafveitu Reykjavík- ur. RÚV greindi frá þessu. Útboðsreglur brotnar Umboðsmaður Alþingis telur að ekki hafi veriö fariö að reglum um framkvæmd útboða þegar ráðist var í smíði Hetjólfs. Skv. Mbl. vom útboðshættimir til þess fallnir að valda tortryggni. Leikfönginskoðuð Eflirht með öryggi leikfanga sem seld em hér á landi hefst um áramótin. Tíminn greindi frá. SP - i ■' ÆWmL m ' i B : ‘x%i Formlegt samkomulag liggur nú fyrir varðandi sameiningu Borgarspítala og Landakotsspítala í ársbyrjun 1996. Samkomulagið var undirritað í gær af þeim Höskuldi Ólafssyni, fulltrúa Landakotsspítala, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra, Sighvati Björgvinssyni heilbrigðisráðherra og Friðriki Sophussyni fjármálaráðherra. DV-mynd BG Formaður Sjúkraliðafélagsins: Erum ekki á prúttmarkaði „Það er greinilegt að Þorsteinn Geirsson ætlast til þess að við mæt- umst einhvers staðar á miðri leið þegar hann talar um að við eigum að leggja fram gagntilboð. Um það er bara ekkert að ræða. Samiúnga- nefnd ríkisins er ekki stödd á ein- hverjum prúttmarkaði," sagði Krist- ín A. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkrahðafélags íslands, eftir eld- heitan baráttufund félagsins í húsa- kynnum BSRB við Grettisgötu síö- degis í gær. Kjaradeila ríkisins og sjúkrahða tók nýstárlega stefnu í gær eftir blaðamannafund með samninga- nefnd ríkisins. Formaður Sjúkrahða- félagsins boðaði til sameiginlegs fé- lagsfundar og blaðamannafundar í húsakynnum BSRB við Grettisgötu í Reykjavík með tilheyrandi ræðu- höldum og klappi til að svara upplýs- ingum sem komu fram á blaða- mannafundinum fyrr um daginn. „Við höfum óskað eftir því að sjúkraliðar gerðu grein fyrir sínum kröfum og legðu fram gagntilboð sem hægt væri að vega og meta. Við erum tilbúnir að ræða máhn en frumskil- yrðið er að vita hveijar kröfur sjúkrahða eru,“ sagði Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefnd- ar ríkisins, í gær. Sjúkrahðar telja að launakröfur sínar séu fylhlega ljósar. Launamun- ur á sjúkraliðum og samstarfsstétt- um þeirra sé 40 prósent í stað 20 pró- senta áður fyrir nokkrum árum. í maí hafi sjúkrahðar farið fram á sex prósenta launahækkun en því hafi veriö hafnað. Prófkjör í Norður- landskjördæmi vestra Prófkjör Sjálfstæðisfiokksins í Norðurlandskjördæmi vestra fer fram laugardaginn 26. növember. Baráttan um efsta sætið stendur á milli þeirra Vilhjálms Egilsson- ar alþingismanns og séra Hjálm- ars Jónssonar varaþingmanns. Þeir sem gefa kost á sér í próf- kjörinu eru auk þessara tveggja Agúst Sigurðsson, Geitaskarði, Friðrik Hansen Guðmundsson, Reykjavík, Sigfus Bl. Jónsson, Laugarbakka, Þóra Sverrisdóttir, Stóru-Giljá, og Runólfur Birgis- son, Siglufirði. Öskiljanleg sérverkeftii: Semja um orðskilning „Eg er að fiska eftir því hve mikið er um að ráðuneytin feh einstakling- um ýmiss konar sérverkefni, svo sem kannanir, úttektir og þess háttar. Ég vil vita hvort þama sé um óeðhlegar lausnir að ræða á vandamálum ráðu- neytanna, til dæmis í tengslum við starfslokasamninga. Meö sérverk- efnum á ég ekki við garðyrkju eða viðgerðir. Þaö hggur í augum uppi,“ segir Kristín Astgeirsdóttir, þing- maöur Kvennalistans. Eins og DV greindi frá í gær hefur forsætisráðherra vísað frá þingfyrir- í spum frá Kristínu um umfang sér- Iverkefna í stjómarráðinu, á þeim i forsendum að ekki sé ljóst hvað þing- maðurinn eigi við með orðinu sér- verkefni. Bréf þessa efnis var sent Alþingi fyrir tæpum mánuði. Kristín heyrði hins vegar fyrst af frávísun- inni í kjölfar fréttar DV um máhð. Kristín kveðst hafa rætt þetta mál viö forseta Alþingis í gær en ekki fengið skýringar á þvi hvers vegna henni var ekki tilkynnt um frávísun- ina. Aðspurð kveðst Kristín nú íhuga að endurflytja fyrirspumina með breyttu orðalagi eða ná samkomulagi við skrifstofustjóra forsætisráðu- neytisins um skhning á orðinu sér- verkefhi. Svar við spumingu sinni æth hún undir öllum kringumstæð- um að fá fram. Lagt hald á landa í bíl Fíkniefnadeild lögreglunnar Ökumaður bílsins, sem áður hef- fann í gær 20 lítra af landa í bíl á ur komið við sögu lögreglu, sagði Bústaðavegi. landann til eigin nota. ,r ö d d FOLKSINS 99-16-00 Er skylduáskrift að ríkisútvarpinu réttmæt? Ateins þeir sem eru í stafræna kerflnu og eru meft tónvalssima geta teklt þátt. Þú getur svaraO þessari spurningu meö því aO hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. Já jJ Nei _2_|

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.