Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 199--' M. Benz 200 ’86, ek. 163.000 km, ssk., álf., höfuðpúðar, toppl. v. 1.430.000, 1670.000. Subaru Jusly '90, ek. 68.000 km, 4x4, ssk. V. 540.000, 670.000. Mazda 323 LX ’88, ek. 84.000 km, 3 d„ toppeintak. V. 340.000, 450.000. VW Golf ’86, ek. 105.000 km. V. 280.000, 360.000. Flat Uno ’91, ek. 40.000 km. V. 360.000, 450.000. Suzuki Swlft ’88, ek. 93.000 km. V. 280.000, 350.000. Suzuki Vitara, langur, ’90, ek. 89.000 km. V. 1.250.000, 1.380.000. M. Benz 250 ’78, ek. 246.000 km. V. 180.000, 250.000. Cherokee Grartd '86, ek. 130-000 km, rafdr. rúður, leð- ursœti o.fl. V. 880.000 (gjaf- verð), 1.230.000. Ford Econoline '77, uppg., eins og nýr. V. 550.000. BÍ LASALAN BUK SKEIFUNNI 8 - SÍMI 68 6477 Bílasalan Blik sf. Útsala - góðir mola Toyota 4 runner ’91, ek. 75.000 km. 6 cyl., 35" dekk, loftl., 5,71 hlutföll, toppl., rafdr. rúður o.fl. V. 1.850.000, 2.400.000. MMC Pajero ’87, ek. 140.000 km, V. 820.000, 1.080.000. MMC L-300 ’91, ek. 63.000 km, rafdr. rúður, disil, 8 manna. V. 1.500.000, 1.760.000. Toyota Landcruiser '85, ek. 219.000 km, 35" dekk, dísil. V. 1.150.000, 1.400.000. Impala Landau 78, ek. 140.000 km, uppt. vél, nýl. V. 180.000, 260.000. Legacy st. '90, ek. 100.000 km, rafm. í rúð., central. V. 1.050.000, 1.250.000. ÚtLönd____________________________dv Jón Baldvin Hannibalsson í viðtali við helsta viðskiptablað Noregs: Þvingum hina til að taka af stöðu til ESB - ísland verður fiskveiðistórveldi innan ESB verði sótt um aðild strax Gisli Kristjánsson, DV, Ósló: „í komandi kosningabaráttu verða hinir flokkarnir þvingaðir til að taka afstöðu til inngöngu í Evrópusam- bandið. Það er raunhæft að gera ráð fyrir umsókn frá íslandi þegar eftir kosningar," segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra í viðtali við Dagens Næringsliv, helsta viðskiptablaö Noregs, í gær. Jón heldur því jafnframt fram aö ísland eigi alla möguleika á að verða fiskveiðistórveldi innan Evrópusam- Jón Baldvin Hannibalsson. bandsins hvað sem Norðmenn gera í þjóðaratkvæðagreiðslunni á mánu- daginn. Hafni Norðmenn aðild gæti komið til þess síðar að þeir verði að semja við Jón Baldvin Hannibalsson, fiskveiðikommissar hjá Evrópusam- bandinu, um nýjan fiskveiðisamn- ing. Blaðamaður Dagens Næringshv sér ástæðu til að taka fram að Jóni sé sérlega skemmt enda er möguleik- inn á að ísland veröi á undan Noregi inn í ESB óspart notaður í hræðsluá- róðrinum í Noregi. í viðtalinu segir Jón Baldvin að hagstæður fiskveiðisamningur við ESB sé skilyrði þess að sótt verði um aðild. Hann segirjafnframt að ekkert mæU gegn því að ísland nái viðun- andi samningi, í það minnsta verði að láta á það reyna áður en umsókn um aðfid er vísaö frá. Skoðanir Jóns Baldvins voru born- ar undir Þorstein Pálsson sjávarút- vegsráðherra og Halldór Asgríms- son, formann Framsóknarflokksins. Þeir hristu báðir höfuðið. Þetta mál er ekki á dagskrá. Bill Clinton Bandaríkjaforseti, Hillary eiginkona hans og dóttirin Chelsea brugðu ekki út af venjunni i gær, fremur en flestir landar þeirra, og snæddu gómsætan fylltan kalkún á þakkargjöróardaginn. Þann dag reyna fjölskyldur að hittast og eiga saman góðar stundir. Clinton-fjölskyldan var í sumarhúsi forsetaembættisins. Simamynd Reuter Þorskveiðar ut- an kvóta leyf ðar á kjördaginn Gisli Kristjánsson, DV, Ósló: Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, lofaði sjómönnum í Norður-Noregi því í gær að þeir mættu veiða svo mikið sem þeim sýndist af þorski utan kvóta á mánu- daginn þegar kjósa á um aðild að Evrópusambandinu. Sjómenn svöruðu um hæl og sögð- ust mundu sitja í landi, jafnvel í ijómablíðu, frekar en að taka ekki þátt í baráttunni gegn ESB á kjördag- inn. Jan Henry vfil reyndar ekki kannast við að hafa ætlað að lokka sjómenn á haf út. Hann segir að ekki hti út fyrir að kvóti ársins náist vegna lélegra gæfta. Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráðherra Noregs. Þjóðaratkvæðið 1 Noregi: Bæði já og nei getur leitt til stjórnarkreppu GM Kristjánsson, DV, Ósló: „Gro Harlem situr ekki upp á náð og miskunn annarra,“ segir Thor- bjöm Jagland, formaður norska Verkamannaflokksins, í viðtali við Arbeiderbladet í morgun. Þar með hótar flokkurinn stjórnarkreppu í Noregi verði niðurstaðan já i þjóðar- atkvæðinu á mánudaginn en stuðn- ingsflokkar stjórnarinnar á þingi gera samt alvöru úr hótunum sínum að fella aðfid að Evrópusambandinu. Ekki er hægt að rjúfa þing í Noregi samkvæmt gömlu stjómarskránni frá 1914 og er því viðbúið að fullkom- ið upplausnarástand ríki í norskum stjórnmálum ef Miðflokkurinn og flokkarnir lengst til vinstri neita að taka mark á niðurstöðunni á mánu- daginn. Hafni meirihluti Norðmanna aðfid getur þaö einnig leitt til stjórnar- Gro Harlem Brundtland. kreppu því enn er allt óvíst um hvort Gro Harlem kýs að sitja áfram sem. forsætisráðherra. Hún hefur ekki kveðið upp úr um hvað hún gerir. Gro nýtur mjög víðtæks stuðnings hér í Noregi og viðurkennt aö marg- ir efasemdarmenn í afstöðunni tfi ESB gera á endanum bara það sem Gro vill. Breska íhaldlö deiJir um ESB-framlög: Major hótar af sögn verði hann undir John Major, forsætisráð- herra Bret- lands, hefur hótað að segja af sér og boða til kosninga á mánudag láti Evrópuand- stæðingar innan flokks hans, íhaldsflokksins, sér ekki segjast og hætti andstöðu sinni við tillögu um framlag til sjóöa ESB. Stjómmálaskýrendur töldu lík- legt að hótunin mundi sefa upp- reisnarmenn innan flokksins en nokkrir vom þó staðráðnir í að beijast áfram þótt það stofnaði lífi stjórnarinnar í hættu. Major sagði að hann og samráö- herrar sínir heíðu ákveðið að standa og falla með atkvæða- greiðslunni á mánudag þegar leitað veröur heimildar um umtalsverða hækkun á framlagi Breta til ESB. „Ef stjórnin tapar mundi hún segja af sér og forsætisráðherrann mundi biðja drottninguna um að leysa upp þingið," sagði í yfirlýs- ingu frá skrifstofu Majors. Ráðherrar voru ekki seinir á sér að lýsa yfir stuöningi sínum við framlagshækkunina til að kveða niður orðróm um að efasemdar- menn leyndust innan raða þeirra. Innanbúðardeilur íhaldsmanna eru ekki til að bæta ímynd flokks- ins sem hefur verið mjög svo mifii tannanna á almenningi vegna hneykshsmála af ýmsum toga, kynferðislegs og annars. „Sjaldan er ein báran stök,“ segir í leiðara vinstriblaðsins Guardian ímorgun. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.