Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 Spumingin Stundar þú einhverjar vetraríþróttir? Sigrún Ýr Magnúsdóttir: Já, ég fer á skíði og skauta. Ármann Jón Garðarsson með Sunnevu Lind: Nei. Guðmundur Gunnlaugsson: Nei. Heiðrún Sigurðardóttir: Nei, ég æfi ekki neitt. Sveinn Sigurkarlsson: Já, ég stunda skíði. Anna Þóra Sveinsdóttir: Já, skíði og skauta. Lesendur Af viðskiptum við lögregluna: Lögreglan rengdi mig Það ætlar að teygjast úr máli Lindu fegurðardrottningar. Margrét skrifar: Maður hefur ekki komist hjá að lesa um atburðarásina varðandi samskipti lögreglunnar og Lindu Pétursdóttur. - Ég hef trú á að Linda segi sannleikann í þessu máli og því hef ég samúð með henni. Svipað henti mig fyrir tveimur árum þótt það atvik hafi ekki verið jafn afdrifa- ríkt og mál Lindu Pétursdóttur. Því er það að ég sendi þessar línur. Fyrir tveimur árum varð ég fyrir þeirri reynslu að lögreglan rengdi mig. - Þannig var að ég fór ásamt vinkonu minni með krakkana mína á tónleika Iron Maiden í Laugardals- höllinni. Þar sem ég var utanbæjar- manneskja vissi ég ekki hvað við átt- um að gera af okkur meðan á tónleik- unum stóð. Vinkona mín stakk upp á að við færum og fengjum okkur að borða á veitingastað í nágrenninu. Þegar við höfðum lokið við að borða fannst okkur kjánalegt að vera þar kyrrar svo aö vinkona mín stakk upp á að við skryppum í Ölver og fórum við þangað. Fékk ég mér kók í glas en vinkona mín keypti glas af bjór. Þegar ég ætlaði að drekka úr glasinu var það fullt af hári og bað ég því barþjóninn um nýtt glas. Hann brást þannig við að spyrja mig hvort ég hefði sjálf sett hárið í. Ég neitaði því og reiddist og ákvað að fara út og ók að Laugardalshöllinni. Ég var í þann veginn að leggja bíln- um er lögreglan koma aðvífandi og baö mig að koma út úr bílnum og tala við sig. Hún sagði að hringt hefði verið frá Ölveri og sagt að ég væri drukkin. Ég spurði þá hvort ég mætti ekki blása í blöðru en var ekki svar- að. Ég spurði hvort þeir héldu að ég væri það fífl að keyra krakkana mína undir áhrifum áfengis. Þá var mér svarað þannig að þetta segðu nú all- ir. Þeir spurðu svo hvers vegna ég væri svona reið. Ég sagði að þeir hlytu að sjá að þetta væri algjört rugl. Þá var ég spurð hvort ég væri í amfetamíni eða dópi því augun í mér væru þannig. Ég spurði á móti hvort þeir vildu bara ekki fara með mig upp á spítala. En þá slepptu þeir mér. Ég og vinkona mín urðum undr- andi og ég var mikið að hugsa um hvort ég ætti ekki að kæra svona framkomu en lét það vera. Ég var bæði sár og reið og mér finnst að lögreglan eigi ekki að starfa þannig að hún þurfi að reita mann til reiði, með því t.d. að hlusta ekki á mann. Líklega hafa fleiri lent í svipuðu eða hafa þessa reynslu af lögreglu. Við ættum að segja frá því finnist okkur við vera órétti beitt. Eftir tvö ár situr þetta enn í mér, svo ókurteisleg fannst mér þessi framkoma. Ráðuneytisstjórinn og fréttamennimir: Af ánægju út að eyrum... Jóhann Ólafsson skrifar: Sl. þriðjudagskvöld var fréttaviðtal á Stöð 2. Tveir fréttamenn boðuðu til sín ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðu- neytisins til að ræða innri mál þess eftir það sem á undan er gengið og alþjóð þekkir úr fréttum. Spurt var m.a. um skýrslu Ríkisendurskoðun- ar, eftirlit með starfsfólki ráðuneyt- isins, dagpeningum þess o.fl. Varla þarf að taka það fram að ráðuneytisstjórinn er einhver sá elsti í „faginu" hérlendis og hefur því mikla reynslu af störfum með ýms- um ráðherrum gegnum tíðina. Hann var háll sem áll og kom þannig fyrir að það virtist sem lítið sem ekkert hefði farið úrskeiðis í ráðuneyti hans. Hann var með næstum allt á hreinu. Ég gat ekki séð að honum svo mikið sem „skrikaði fótur“ í yfir- heyrslunni hjá fréttamönnunum. í stuttu máli þá lék ráöuneytisstjór- inn sér að fréttamönnunum og þeir komust aldrei á sporið með neitt sem heitið gæti yfirheyrsla ef þetta átti þá að vera eitthvað i þá áttina. - Þetta sýndi mér a.m.k. að mennt er mátt- ur. Hefðu fréttamennirnnir haft þekkingu á innviðum ráðuneytisins hefðu spurningarnar ekki dottið dauðar niður. Ráðuneytisstjóranum hefur áreiö- anlega reynst auðvelt að komast vel af við ráðherra sem flestir hafa verið langt frá því að þekkja haus né sporð á heilbrigðismálum og sinnt auk þess starfi sínu sem aukastarfi með þing- mennskunni. - Mikið hafa frétta- mennirnir mátt vera fegnir þegar tíminn rann út í þessum einstæða spurningaþætti þar sem ráðuneytis- stjórinn sat eftir skellihlæjandi af ánægju út að eyrum. Hannes og Mörður, góðir saman K.T. skrifar: Það er skemmtileg nýbreytni hjá Stöð 2 að fá tvo kunna áhugamenn um stjórnmál til að sjá um vikulegan umræðuþátt. Þeir dr. Hannes H. Gissurarson og Möröur Árnason eu hinir frambærilegustu, vel máli farn- ir báðir og kunnir fyrir ákveðnar skoðanir, hvor á sínum væng stjóm- málanna. Hafa þeir jafnvel skyggt nokkuð á gesti sína enda hefur hing- að til enginn viðmælenda þeirra ver- iö líkt því eins mælskur og haft jafn mikið til málanna að leggja og stjórn- endurnir tveir. Einn munur er þó á framgöngu þeirra Marðar og Hannesar. - Þegar Einar Guðfinnsson, alþingismaöur Sjálfstæðisflokksins og flokksbróðir Hannesar Gissurarsonar, kom á fund þeirra félaga dró Hannes hvergi af Hringið í síma millikl. 14ogl6 -eða skriílð Nafin ogsfmanr. verður aÓ fylgja bréfum sér í ágengum spurningum. Þegar hins vegar Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir kom nú á dögunum virtist Mörður líta á það sem hlutverk sitt að vernda hana fyrir Hannesi. Mörður hélt langar ræður um hve Sjálfstæðisflokkurinn hefði staðið sig illa í borgarmálum og gætti þess aö engar óþægilegar spurningar kæm- ust að. Þegar Ingibjörg var svo að komast í vandræði viö að reyna að svara Hannesi tók Mörður að sér að svara fyrir hana. Gerði Mörður það vitaskuld betur en hún eins og búast mátti við af jafn mælskum manni. Engu að síður verða stjómendur umræðuþátta að gæta sín betur en Mörður í þetta sinn. Hannes H. Gissurarson og Mörður Árnason. - Hinir frambærilegustu og vel máli farnir, segir bréfritari m.a. íslenskt, nei takk! I.J. skrifar: Nú er það hið opinbera sem gengur fram fyrir skjöldu og seg- ir „Islenskt, nei takk“! Nýjar jóla- ljósaskreytingar í borginni koma nú beint frá Þýskalandi enda hag- stæðast að kaupa þær þaðan. - Það er ví st bara almenrúngur sem á aö kaupa innlent, hið opinbera ræður sinum kaupum sjálft! Mjólkursamsalan ogfemurnar Kári skrifar: Sagt er að Mjólkursamlag Borg- arness sé komið í úreldingu og bændur vilji losna við allt klabb- ið. - Mér þykir þetta miður því þaðan höfum við neytendur í Reykjavík fengið mjólkina í af- löngu fernunum sem Hagkaup hefur nýlega boðið til sölu. Þetta var einmitt það sem neytendur hér hafa löngum beðið MS i Reykjavik að útvega en án árang- urs. Raunar hefur MS í Reykjavík ávallt verið á móti þessum teg- undum mjólkurpökkunar. Það skyldi þó aldrei vera að MS í Reykjavík hafi þrýst á um sölu samlagsins í Borgárnesi til að losna að fullu við mjólkurfern- urnar góðu! - En geta þá ekki vélarnar sem pakka mjólkinni í aflöngu fernurnar nýst MS i Reykjavík - nú eða þá Hagkaupi ef það gæti hugsanlega pakkað mjólk sjálft í þessar fernur? Kreppaeða hagvöxtur? Sigurjón skrifar: Laun geta ekki hækkað meira en 2%, segir í fréttunum og ef laun hækka um 5% kostar það atvinnulífiö um 10 milljarða króna! En ég vildi fyrst fá skýr- ingu á því hvort nú um stundir sé hér kreppa eða hagvöxtur. Það virðist talað um hvort tveggja, allt eftir því hver eða hvaða stofn- un sendir frá sér upplýsingamar. Jafnvel ráðherrar sýnast ekki vissir. Bæjarsfjórn Hafnarfjarðar Jón Kr. Kristmundsson skrifar: Ég vil taka undir kvartanir J.H. hér í blaðinu um getuleysi núver- andi meirihluta í bæjarstjóm Hafnaríjarðar. Sama hvar borið er niður hjá bænum, embættis- menn virðast með öllu áhuga- lausir. Svarið er alitaf og ætíð það að þeir hafi borið mál mín upp hjá bæjarstjóra en fái engin við- brögð. Málið sifellt í athugun en ýmsu borið við. Ég held bara að þetta sé höfuðlaus her. Enginn vill eða getur stjómað bænum á meðan núverandi meirihluti er við völd. Á meðan Guðmundur Árni og Ingvar Viktors vom bæj- arstjórar stóð ekki á viðbrögðum, annaðhvort já eða nei og þar með afgreitt mál. Gottframtak hjá Almenna Sigríður skrifar: Mig furðaði er ég las grein í DV um ýtni bóksölumanns frá Al- menna bókafélaginu því ég var dregin út í saraa úrtaki og konan sem kvartaði. Ég fékk sölumann heim og skýrt var tekið fram í símanum aö ég hefði unnið bók sem myndi afhent um leið og af- gangurinn in af bókaíiokknum yrði kynntur. Ungur maður mætti og kynnti mér þessar bæk- ur og var hann í alla staði hinn kurteisasti og skýrði frá verði og skilmálura bókaíloltksins. Haim hvorki óö inn né veifaðí skulda- bréfi. Mér finnst kynningin mjög áhugaverð og gott framtak hjá Almenna hókafélaginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.