Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 18
26 FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 Iþróttir unglinga Sveitakeppni Júdósambands íslands 1994,15 ára og yngri: KA-strákarnir komu, sáu og sigruðu - A- og B-sveit norðanmanna skipuðu tvö efstu sætin Úrslitaglíman milli Steinars Ólafssonar, B-sveitar KA, og Dags Sigurðssonar, JFR. Steinar sigraði eftir aukaviður- eign og B-sveit KA komst í úrslitaviðureign um fyrsta sætið. DV-myndir Hson íslandsmeistaramótiö í sveitakeppni í júdó drengja yngri en 15 ára fór fram um helgina 20. nóvember í íþróttahúsinu viö Austurberg. A- sveit KA varð íslandsmeistari og B- sveit KA varö í 2. sæti. Alls tóku átta sveitir þátt i keppn- inni, Júdófélag Reykjavíkur, Júdó- deild Ármanns, Júdódeild KA (A- sveit), Júdódeild KA (B-sveit), UMFS (Selfoss), Víkingur, Ólafsvík (A- sveit), Víkingur, Ólafsvík (B-sveit), Umsjón Halldór Halldórsson og UMFG (Grindavík). - Keppni var ákaflega hörð og eftir því spennandi. A-sveit KA tapaöi fyrir JFR, 2-3, í riölakeppninni, en 2 efstu lið í hverj- um riöli héldu áfram í undanúrslitin. í undanúrslitunum sigraði A-sveit KA JFR, 3-2. B-sveit KA vann Selfoss í undanúrslitunum en tapaði fyrir A-sveit KA í úrslitunum. í riölakeppninni sigraði Júdófélag Reykjavíkur í A-riöli, hlaut 95 stig. í B-riðli sigraöi UMFS (Selfoss) fékk 73 stig. Þeir sigrar dugöu þó skammt. Dagur Sigurðsson, JFR, t.v., og Steinar Ólafsson, B-sveit KA, eru góðir félagar þrátt fyrir mjög harða viðureign sem Steinar vann. Úrslit Undanúrslit: KA (A)-Selfoss.................3-1 KA (B)-JFR.....................3-2 Úrslit um 1. sæti: KA (A)-KA (B)..................3-1 1. sæti................KA, A-sveit 2. sæti................KA, B-sveit 3. ^4. sæti..Júdófélag Reykjavíkur 3.^. sæti........UMFG (Grindavík Frábærferill hjá KA Ferill KA í sveitakeppninni er ein- stakur því félagið hefur sigraði í 8 af síðustu 10 íslandsmótum í sveita- keppni drengja. Maðurinn á bak við þennan stór- góða árangur KA-drengjanna er Jón Óðinn Óðinsson sem hefur þjálfaö hjá félaginu undanfarin ár: „Að sjálfsögðu er ég ánægður með árangur minna manna eins og svo oft áður. Mótið var mjög gott og jafnara en oft áður og hæfni krakkanna er allt- af að batna með hverju árinu. Sumir þeirra eru ekkert síðri i tæknilegu atr- iðunum en þeir fullorðnu - svo útlitið er gott. Vandinn er bara sá að geta haldið þeim viö efnið upp yngri flokk- ana. Vonandi tekst okkur það með þessa krakka," sagði Jón Óðinn. Eftirtaldir þrír drengir sigruöu í öllum sínum viðureignum: Brynjar Ásgeirsson, B-sveit KA, Snævar M. Jónsson, JFR, og Hlynur Helgason, UMFG. Þurfti tvær viðureignir í undanúrslitunum sigrði B-sveit KA, sveit JFR. í úrslitaglímunni um úr- slitasætið glímdi Steinar Ólafsson, KA, 14 ára, gegn Degi Sigurðssyni, JFR, 11 ára, og þurftu þeir félagar að glíma tvisvar til þess að fá fram úrslit. í seinni viðureigninni sigraði Steinar. Erfið glíma „Glímurnar gegn Degi voru mjög erfiðar og vont að flnna veikan blett á honum því Dagur er mjög góður glímumaður og var baráttan því mjög tvísýn," sagði Steinar Ólafsson, KA. ' Fékk högg á nefið „Ég fékk högg á nefið í seinni glím- unni og var það mjög sárt. Þegar þetta skeði var ég yfir og þetta atvik sló mig svolítið út af laginu. Annars er Steinar mjög góður glímumaður en samt fannst mér ég alveg eins geta unnið,“ sagði Dagur Sigurðsson, JFR. Hann er bróðir hins sterka glímumanns, Funa, 15 ára, sem er í sama félagi. Ánægður með árangurinn Karles Olafsson, 10 ára, er fyrirliði A-liðs KA og bróðir Steinars. „Mér gekk alveg ágætlega í mínum glímum - og er ég mjög ánægður með árangur okkar í mótinu. Nei, ég er ekki í neinni annarri iþrótt en júdó, það er alveg nóg. Auðvitað er það þjálfara okkar að þakka hvað okkur gekk vel,“ sagði Karles. Handbolti: Leikir íslandsmótsins umhelgina Um næstu helgi fara fram eftirtaldir leikir íslandsmótsins í 3. og 4. flokki karla og kvenna. 3. flokkur karla: 1. deild. - Spilað í Kaplakrika, laugardag kl. 11.00-16.00, sunnu- dag kl. 12.15-16.30. 2. deild, A-riðill: íþróttahúsið Smári: Laugardag kl. 14.00-19.00, sunnudag kl. 9.00- 14.00. 2. deild, B-riðill: íþróttahúsið i Vestmannaeyjum. Föstudag kl. 18.00-23.00 og laug- ardag kl. 10.00-15.00. 3. deild: Leikið í Austurbergi á laugardag og sunnudag. 3. flokkur kvenna 1. deild í KR-húsinu á laugardag kl. 12.00-17.00 og sunnudag kl. 10.00-15.00. 2. deild: A-riðill: Spilað á Selfossi laugar- dag kl. 11.00-14.00. B-riöiil: Leikið í Strandgötu á laugardag kl. 14.00-17.00, sunnu- dag kl. 15.00-18.00. 4. flokkurkarla: 2. deild, B-lið: A-riöill spilar í Vík- inni á sunnudag kl. 9.00-15.00. B-riðill: Á Seltjarnamesi á sunnudag kl. 10.40-15.40. 4. flokkur karla og kvenna, 1. deild. B-Uð spila í Reykjavik á sunnudag. W . 4. flokkur kvenna 1. deild: Spilað á Seltjarnarnesi á sunnudag kl. 9.00-17.00. A- og B-sveit KA skipuðu 1. og 2. sæti í íslandsmótinu i sveitakeppni. i fremri röð frá vinstri: Jóhann Kristinsson (A), Jón Kristinn Sigurðsson (A), Björn Daviðsson (B), Brynjar Helgi Ásgeirsson (B) og Steinar Ólafsson (B). - Aftari röð frá vinstri: Jóhann Freyr Óðinsson, 5 ára sonur Jóns Óðins, og fram- tíðarjúdómaður, Jón Óðinn Óðinsson þjálfari, Ómar örn Karlsson (A), Björn Blöndal Harðarson (A), Jóhannes Gunnarsson (A) og Karles Ólafsson, fyrir- liði A-liðs KA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.