Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 37 Leikstjórinn Baltasar Kormákur. Hárið í Óperunni Söngleikurinn Háriö verður sýndur á miðnætursýningu í ís- lensku óperunni í kvöld. Verkið hefur verið sýnt þar um nokkurt skeið og ekkert lát virðist á vin- sældum þess en sýningum fer nú óðum fækkandi. Fjölmargir aðilar koma við sögu uppfærslunnar í íslensku Leikhús óperunni og hafa sumir þeirra litla sem engu reynslu af leikhús- lífi. Það kemur þó ekki að sök því sýningin er skemmtileg og ekki að sjá að þar séu neinir byrjendur á ferð. Leikstjórn er í höndum Baltasars Kormáks sem er betur þekktur sem leikari en hann sýn- ir þarna á sér nýja hlið. Söguþráðinn ættu flestir að þekkja enda hefur Hárið bæði verið flutt á sviði og fest á filmu en kvikmyndin var sýnd í sjón- varpi fyrir skömmu. Skylmingakappar hafa notað andlitsgrimur frá dögum Forn- Egypta. Fyrsti skylm- ingaklúbburinn Fyrsti skylmingaklúbburinn sem vitað er um var stofnaður í Þýskalandi 1383. Egyptar til forna notuðu and- litsgrímur og sverð með fjaður- mögnuðum brandi en það voru Þjóðveijarnir sem gerðu skylm- ingar að íþrótt. Það var hins veg- ar höfuðsmaður í spánska hern- um sem fann upp skylmingahan- skann 1510. Blessuð veröldin Bannaði golf Golf var fundið upp í Skotlandi og leikurinn varð brátt svo vin- sæll að Jakob I sá sig tilneyddan að banna hann f mars 1457. Jakob I taldi þegna sína sóa allt of miklum tíma í þennan leik sem þó varð þjóðaríþrótt Skota þrátt fyrir þetta. Belgi fann upp hjólaskautana Belgíumaðurinn Joseph Merhn fann upp hjólaskautana 1759. Hann ætlaði að fara á glæsilegan dansleik í London og datt honum þá það ráð í hug að renna á hjóla- skautunum inn í sahnn spilandi á fiðlu. Fyrstur manna til aö nota hjóla- skauta á íþróttasviðinu var hst- skautahlauparinn J. Garcin sem notaði þá aðallega til að stunda æfingar að sumarlagi. Gvendur dúllari í kvöld: Dúettinn Arnar og Þórir hefur nú kvatt sér hljóðs á tónlistar- markaðnum. Dúettinn skipa þeir Þórir Úlfarsson, hljómborðsleikari, söng\-ari og galdramaður, og Arnar Freyr Gunnarsson, söngvari og gít- areigandi, sem áður starfaðí með Örkinni hans Nóa. Þeir félagar eru engir nýgræðing- ar í bransanum og hafa fengist við tónhst í fjölda ára og unnið saman við ýmis tækifæri. Dúettinn leikur alhhða dans- og skemmtitónlist en fólki gefst kost- ur á að hlýða á þá félaga á Gvendi dúhara um helgina en þeir hefia leikinn í kvöld. Félagarnir eru engir nýgræðingar í bransanum Fjallvegir varasam- irvegna hálku Það er yfirleitt fært um alla þjóð- vegi landsins og ekki eins mikil hálka og hefur verið undanfarna daga, enda hefur hlýnað í veðri, en hálkan er sem fyrr á fiahvegum. Nú er orðið vel fært um Dynjandisheiði, Hrafns- Færðávegum eyrarheiði og Breiðadalsheiði. Á ein- staka stöðum er þungfært, má nefna Klettsháls í Austur-Barðastandar- sýslu. Snjór er enn á sumum leiðum á Suðurlandi, má nefna Aratungu- Gullfoss, Laugarvatn-Múla, Þrastar- lund-Þingvehi og Gjábakkavegur er enn ófær vegna snjóa. Þá má nefna að snjór er á Kjósarskarðsvegi og Mosfehsheiði, en leiðirnar eru samt færar. Ástand vega 0 Hálka og snjór ® Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir Lokaí>rSt°ÖU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum Þessi myndarlega stúlka á mynd- inni fæddist á fæðingardeíld Landspítalans fóstudaginn 18. nóv- ember kl. 18.47. Þegar hún var vigt- uð reyndist hún vera 3650 grömm aö þyngd og 53 sentímetra löng. Foreldrar hennar eru Sigrún Gunnai'sdóttir og Jón Karisson og ; er þetta fyrsta bam þeirra. Andy Garcia og Meg Ryan í hlut- verkum sínum. í blíðu og stríðu Sambíóin sýna um þessar mundir kvikmyndina í bhðu og stríðu (When a Man Loves a Woman). Aðalhlutverkin leika Andy Garcia og Meg Ryan en leikstjóri er Louis Mandoki. Myndin fiallar um ung hjón með tvö börn sem virðast lifa ein- staklega hamingjuríku lífi. Fjöl- skyldan er samhent og ástin um- lykur þau. En undir sléttu og felldu yfirborðinu er leyndarmál. Alice (Meg Ryan) á við áfengis- vandamál að stríða og nú reynir Kvikmyndahúsin á þessa heilsteyptu fiölskyldu. í stað þess að fiarlægast hvort ann- að ákveða þau að vinna að lausn vandans. Hinn fullkomni fiöl- skylduheimur þeirra verður þó fyrst að hrynja áður en þau geta byggt hann upp að nýju og hafið annað líf. Michael (Andy Garcia) þarf að sinna uppeldi dætranna á meðan Alice reynir að koma lífi sínu á rétta braut og finna sjálfa sig. Nýjar myndir Háskólabíó: í loft upp Laugarásbíó: Gríman Saga-bíó: Forrest Gump Bíóhöllin: Sérfræðingurinn Stjörnubió: Threesome Bíóborgin: í blíðu og stríðu Regnboginn: Reyfari Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 270. 25. nóvember 1994 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 68,150 68,350 66,210 Pund 106,520 106,840 108,290 Kan. dollar 49,570 49,770 49,060 Dönsk kr. 11,1710 11,2150 11,3020 Norsk kr. 9,9730 10,0130 10,1670 Sænskkr. 9,1420 9,1780 9,2760 Fi. mark 14,2110 14,2680 14,4730 Fra. franki 12,7390 12,7900 12,9130 Belg. franki 2,1257 2,1343 2,1482 Sviss. franki 51,7400 51,9500 52,8500 Holl. gyllini 39,0700 39,2200 39,4400 Þýskt mark 43,8000 43,9300 44,2100 ít. líra 0,04221 0.04243 0,04320 Aust. sch. 6,2140 6,2460 6,2830 Port. escudo 0,4281 0,4303 0.4325 Spá. peseti 0,5235 0,5261 0,5313 Jap. yen 0,69220 •0,69420 0,68240 irskt pund 105,320 105,840 107,000 SDR 99,68000 100,08000 99,74000 ECU 83,2900 83,6200 84,3400 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Krossgátan r~ 3 n r 8 4 mmmam Jo I r 12 l'i ir Í5 /6 I ití Tr i w zr Lárétt: hefja, 6 varðandi, 8 óvissa, 9 sarga, 10 lipurt, 12 órar, 13 annars, 14 hávaða, 16 öryggi, 18 lærdómstitill, 19 skel, 20 mikil. Lóðrétt: 1 skjóðu, 2 dá, 3 hóps, 4 bátur, 5 rykkorn, 6 hræddur, 7 fæða, 11 krap, 13 formóðir, 15 bogi, 17 sjó. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 óhult, 6 óm, 8 sem, 9 eisa, 10 efri, 11 nag, 13 klárt, 15 sæ, 16 jóðlum, 18 angi, 20.rán, 21 saknaði. Lóðrétt: 1 ósekja, 2 hef, 3 umráð, 4 leir, 5 tintur, 6 ósa, 7 MA, 12 gætni, 14 lóná, 15 smáð, 17 lin, 19 GK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.