Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Síða 29
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994
37
Leikstjórinn Baltasar Kormákur.
Hárið í
Óperunni
Söngleikurinn Háriö verður
sýndur á miðnætursýningu í ís-
lensku óperunni í kvöld. Verkið
hefur verið sýnt þar um nokkurt
skeið og ekkert lát virðist á vin-
sældum þess en sýningum fer nú
óðum fækkandi.
Fjölmargir aðilar koma við
sögu uppfærslunnar í íslensku
Leikhús
óperunni og hafa sumir þeirra
litla sem engu reynslu af leikhús-
lífi. Það kemur þó ekki að sök því
sýningin er skemmtileg og ekki
að sjá að þar séu neinir byrjendur
á ferð. Leikstjórn er í höndum
Baltasars Kormáks sem er betur
þekktur sem leikari en hann sýn-
ir þarna á sér nýja hlið.
Söguþráðinn ættu flestir að
þekkja enda hefur Hárið bæði
verið flutt á sviði og fest á filmu
en kvikmyndin var sýnd í sjón-
varpi fyrir skömmu.
Skylmingakappar hafa notað
andlitsgrimur frá dögum Forn-
Egypta.
Fyrsti skylm-
ingaklúbburinn
Fyrsti skylmingaklúbburinn
sem vitað er um var stofnaður í
Þýskalandi 1383.
Egyptar til forna notuðu and-
litsgrímur og sverð með fjaður-
mögnuðum brandi en það voru
Þjóðveijarnir sem gerðu skylm-
ingar að íþrótt. Það var hins veg-
ar höfuðsmaður í spánska hern-
um sem fann upp skylmingahan-
skann 1510.
Blessuð veröldin
Bannaði golf
Golf var fundið upp í Skotlandi
og leikurinn varð brátt svo vin-
sæll að Jakob I sá sig tilneyddan
að banna hann f mars 1457.
Jakob I taldi þegna sína sóa allt
of miklum tíma í þennan leik sem
þó varð þjóðaríþrótt Skota þrátt
fyrir þetta.
Belgi fann upp
hjólaskautana
Belgíumaðurinn Joseph Merhn
fann upp hjólaskautana 1759.
Hann ætlaði að fara á glæsilegan
dansleik í London og datt honum
þá það ráð í hug að renna á hjóla-
skautunum inn í sahnn spilandi
á fiðlu.
Fyrstur manna til aö nota hjóla-
skauta á íþróttasviðinu var hst-
skautahlauparinn J. Garcin sem
notaði þá aðallega til að stunda
æfingar að sumarlagi.
Gvendur dúllari í kvöld:
Dúettinn Arnar og Þórir hefur
nú kvatt sér hljóðs á tónlistar-
markaðnum. Dúettinn skipa þeir
Þórir Úlfarsson, hljómborðsleikari,
söng\-ari og galdramaður, og Arnar
Freyr Gunnarsson, söngvari og gít-
areigandi, sem áður starfaðí með
Örkinni hans Nóa.
Þeir félagar eru engir nýgræðing-
ar í bransanum og hafa fengist við
tónhst í fjölda ára og unnið saman
við ýmis tækifæri.
Dúettinn leikur alhhða dans- og
skemmtitónlist en fólki gefst kost-
ur á að hlýða á þá félaga á Gvendi
dúhara um helgina en þeir hefia
leikinn í kvöld.
Félagarnir eru engir nýgræðingar í bransanum
Fjallvegir varasam-
irvegna hálku
Það er yfirleitt fært um alla þjóð-
vegi landsins og ekki eins mikil hálka
og hefur verið undanfarna daga,
enda hefur hlýnað í veðri, en hálkan
er sem fyrr á fiahvegum. Nú er orðið
vel fært um Dynjandisheiði, Hrafns-
Færðávegum
eyrarheiði og Breiðadalsheiði. Á ein-
staka stöðum er þungfært, má nefna
Klettsháls í Austur-Barðastandar-
sýslu. Snjór er enn á sumum leiðum
á Suðurlandi, má nefna Aratungu-
Gullfoss, Laugarvatn-Múla, Þrastar-
lund-Þingvehi og Gjábakkavegur er
enn ófær vegna snjóa. Þá má nefna
að snjór er á Kjósarskarðsvegi og
Mosfehsheiði, en leiðirnar eru samt
færar.
Ástand vega
0 Hálka og snjór ® Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir
Lokaí>rSt°ÖU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum
Þessi myndarlega stúlka á mynd-
inni fæddist á fæðingardeíld
Landspítalans fóstudaginn 18. nóv-
ember kl. 18.47. Þegar hún var vigt-
uð reyndist hún vera 3650 grömm
aö þyngd og 53 sentímetra löng.
Foreldrar hennar eru Sigrún
Gunnai'sdóttir og Jón Karisson og ;
er þetta fyrsta bam þeirra.
Andy Garcia og Meg Ryan í hlut-
verkum sínum.
í blíðu
og stríðu
Sambíóin sýna um þessar
mundir kvikmyndina í bhðu og
stríðu (When a Man Loves a
Woman). Aðalhlutverkin leika
Andy Garcia og Meg Ryan en
leikstjóri er Louis Mandoki.
Myndin fiallar um ung hjón
með tvö börn sem virðast lifa ein-
staklega hamingjuríku lífi. Fjöl-
skyldan er samhent og ástin um-
lykur þau. En undir sléttu og
felldu yfirborðinu er leyndarmál.
Alice (Meg Ryan) á við áfengis-
vandamál að stríða og nú reynir
Kvikmyndahúsin
á þessa heilsteyptu fiölskyldu. í
stað þess að fiarlægast hvort ann-
að ákveða þau að vinna að lausn
vandans. Hinn fullkomni fiöl-
skylduheimur þeirra verður þó
fyrst að hrynja áður en þau geta
byggt hann upp að nýju og hafið
annað líf.
Michael (Andy Garcia) þarf að
sinna uppeldi dætranna á meðan
Alice reynir að koma lífi sínu á
rétta braut og finna sjálfa sig.
Nýjar myndir
Háskólabíó: í loft upp
Laugarásbíó: Gríman
Saga-bíó: Forrest Gump
Bíóhöllin: Sérfræðingurinn
Stjörnubió: Threesome
Bíóborgin: í blíðu og stríðu
Regnboginn: Reyfari
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 270.
25. nóvember 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 68,150 68,350 66,210
Pund 106,520 106,840 108,290
Kan. dollar 49,570 49,770 49,060
Dönsk kr. 11,1710 11,2150 11,3020
Norsk kr. 9,9730 10,0130 10,1670
Sænskkr. 9,1420 9,1780 9,2760
Fi. mark 14,2110 14,2680 14,4730
Fra. franki 12,7390 12,7900 12,9130
Belg. franki 2,1257 2,1343 2,1482
Sviss. franki 51,7400 51,9500 52,8500
Holl. gyllini 39,0700 39,2200 39,4400
Þýskt mark 43,8000 43,9300 44,2100
ít. líra 0,04221 0.04243 0,04320
Aust. sch. 6,2140 6,2460 6,2830
Port. escudo 0,4281 0,4303 0.4325
Spá. peseti 0,5235 0,5261 0,5313
Jap. yen 0,69220 •0,69420 0,68240
irskt pund 105,320 105,840 107,000
SDR 99,68000 100,08000 99,74000
ECU 83,2900 83,6200 84,3400
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
r~ 3 n r
8 4 mmmam
Jo I r 12
l'i ir Í5
/6 I
ití Tr i w
zr
Lárétt: hefja, 6 varðandi, 8 óvissa, 9
sarga, 10 lipurt, 12 órar, 13 annars, 14
hávaða, 16 öryggi, 18 lærdómstitill, 19
skel, 20 mikil.
Lóðrétt: 1 skjóðu, 2 dá, 3 hóps, 4 bátur,
5 rykkorn, 6 hræddur, 7 fæða, 11 krap,
13 formóðir, 15 bogi, 17 sjó.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 óhult, 6 óm, 8 sem, 9 eisa, 10
efri, 11 nag, 13 klárt, 15 sæ, 16 jóðlum, 18
angi, 20.rán, 21 saknaði.
Lóðrétt: 1 ósekja, 2 hef, 3 umráð, 4 leir,
5 tintur, 6 ósa, 7 MA, 12 gætni, 14 lóná,
15 smáð, 17 lin, 19 GK.