Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 7
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994 7 EFTIRMINNILEG ÆVISAGA! Aðeins 2.980 kr. VAKA-HEiGAFELL SloUHÚL* 6, 108 REYKJAVÍK Slíkum manni er magnað að kynnast" Jónas Jónasson KRAPPUR LÍFSDANS er forvitnileg ævisaga Péturs H. Olafssonar sem Jónas Jónasson, rithöfundur og útvarpsmaður, hefur skráð af innsæi og mannþekkingu. Pétur hefur aldrei látið deigan síga og hefur frá mörgu að segja frá fjölbreyttum lífsferli, ekki síst úr heimsstyrjöldinni síðari er hann sigldi með skipalestum um Norður-Atlants- haf undir geltandi byssukjöftum þýskra herflugvéla. Þessi gustmikli samferðamaður dregur ekkert undan, hvorki í sambandi við kröpp kjör á æskuárum, ævintýri á löngum sjómannsferli né harða glímu sína við krabbamein. „Slíkum manni er magnað að kynnast,“ segir Jónas Jónasson um Pétur. GIRNILEGIR OG STÓRGLÆSILEGIR RÉTTIR! PASTARÉTTIR er fyrsta íslenska matreiðslubókin með uppskriftum að ljúffengum pastaréttum að smekk Islendinga. Nýir og sígildir pastaréttir ásamt verðlaunauppskriftum úr pastauppskrifta- samkeppni matreiðsluklúbbsins Nýir eftirlœtisréttir. Allt hráefni sem notað er í réttina fæst í næstu verslun enda bókin gerð fyrir íslenska pastaunnendur. Einfaldar og þægilegar leiðbeiningar með stórum og glæsilegum myndum af hverjum rétti. Ritstjórar bókarinnar eru þau Björg Sigurðardóttir og Hörður Héðinsson hjá Nýjum eftirlœtisréttum. é VAKA-HEUGAFELL SIðumúla 6, 108 ReykjavIk BÓK SEM ALLIR PASTAUNNENDUR VERÐA AÐ EIGNAST!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.