Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994 „Ég er eins konar Jón prímus héma" - segir Ingvar Emilsson, haffræðingur í Mexíkóborg Ingvar Emilsson haffræðingur hefur búið í Mexíkó í 23 ár ásamt Ásu Guðmundsdóttur, konu sinni. Ingvar Emilsson haffræðingur hefur búið í Mexíkó í 23 ár ásamt Ásu Guð- mundsdóttur, konu sinni. Við upphaf dvalar sinnar í Mexíkó veitti Ingvar ráðgjöf vegna uppbyggingar ferða- mannastaðarins Cancún á austur- strönd Júkatanskagans. Er Ingvar kom þangað var engin bygging risin og hinn 7-laga skagi, þar sem glæsi- borgin Cancún stendur nú, var ein- ungis auðn. Verkefni Ingvars var að skipuleggja frárennsh og leiðbeina varðandi breytingar a botngróðri sjávar við hina nýju borg. „Sam- kvæmt mínum ráðleggingum var horfið frá því að nema á brott þara- gróðurinn á hinni verðandi ferða- mannaströnd því ella hefði verið hætta á þvi, að mínu mati, að strönd- inni skolaði burt með lúxushótelum og öllu tilheyrandi. Annar vankant- ur á skipulagi í Cancún hefur verið að koma í ljós á síðustu árum. Þar er hvorki skóh né sorpvinnslustöð svo greinilega hefur ekki verið gert ráð fyrir að fólk byggi þar allan árs- ins hring!“ Kurteisislygi Ingvar og Ása komu th Mexíkó eft- ir sex ára dvöl á Kúbu og sögðu það hafa verið gríðarleg umskipti. „Mexíkómenn eru mun flóknari persónuleikar en Kúbverjar og fyrir kurteisis sakir ljúga þeir frekar að útlendingum heldur en að viður- kenna að þeir viti ekki svarið, séu þeir til dæmis spurðir til vegar,“ seg- ir Ingvar. „í hinni yfirþyrmandi bíla- umferð í Mexíkóborg ghda heldur engar skýrar reglur, áþekkar þeim sem við íslendingar teljum sjálfsagð- ar. Þar skiptir oft sköpum að horfast í augu við andstæðinginn og hta ekki undan, hvort sem hann er ökuníð- ingur, lögregluþjónn eða blásaklaus bheigandi sem telur sig hlunnfar- inn.“ Hjákonur og fólksfjölgun „Annað er það sem okkur íslend- ingum þykir óvenjulegt í fari Mexí- kómanna," heldur Ingvar áfram, „og það er hversu sjálfsagt þeim þykir að karlmenn eigi sér hjákonu - og þær jafnvel fleiri en eina. Hús hjá- konunnar nefna þeir „casa chica“, htla húsið, og ekki er óalgengt að eiginkonan viti um framhjáhaldið og hafi jafnvel símanúmer þjákvenna eiginmannsins á takteinum en láti sem ekkert sé þar sem þetta er nán- ast hefð.“ Ekki mun þannig óal- gengt, að sögn Ingvars, að menn eigi böm utan hjónabands sem jafnvel era á svipuðum aldri og hjónabands- bömin. Sérstaklega mun fólksfjölg- un hafa verið mikh í sveitahéruðum þar sem kemur fyrir að karlmenn eigi aht að tuttugu böm með jafnvel þremur eða fjórum konum. „Þó má segja að Mexíkómenn hafi nálgast aðrar vestrænar þjóðir varðandi fólksfjölgun á síðustu árum því hún hefur minnkað úr 3,6% í 1,8% á þeim tíma sem við höfum dvalist hér,“ segir Ingvar. Salinas hugaður - En hvað finnst Ingvari um við- skhnað Salinas forseta sem fór frá 1. desember síðasthðinn? „Efnahagsástandið hér í Mexíkó hefur batnað th mikhla muna á síð- ustu árum. Verðbólgan var 160% fyr- ir átta ámm en er nú í kringum 6%. Ég tel Salinas einhvern hugaðasta forsetann í sögu Mexíkó, jafnvel þó hann heiti líka Gortari," segir Ingvar kíminn og bætir við að hann hafi sagt þetta við Steingrím Hermanns- son þegar hann kom th Mexíkó í opinbemm erindagjörðum fyrir fá- einum ámm. „Salinas hætti verndar- stefnu og popúhsma fyrri forseta og opnaði landið. Popúhsminn gekk m.a. út á það að ríkið tók yfir fyrirtæki til að fólk missti ekki vinnuna. í gildi var tvö- falt efnahagskerfi - annars vegar fyr- ir innfædda - hins vegar fyrir ferða- menn. Þetta varð dýrkeypt. Mexíkó var um tíma orðið dýrasta ferða- mannaland heims og fólk var hætt að koma hingað. Þjóðarskuldir vora komnar upp í 80.000 mhljónir dollara árið 1982. Salinas lét hins vegar hætta seðlaprentun sem gerði ekki annað en að kynda undir verðbólg- unni. Einnig hætti hann niður- greiðslum nema á brýnustu nauð- synjar, eins og maís og brauð, og verðlagseftirht hefur verið haft áfram eingöngu með slíkum vörum. Um aðrar vörar var gerður sérstakur verðlagssamningur. Eftir að NAFTA-samningurinn gekk í gildi í janúar sl. hefur útflutningiu’ aukist mjög mikið. Sem dæmi má nefna vefnaðarvöruverslun hér rétt utan borgarmarkanna sem keypti nýjan framleiöslubúnað og framleiðir nú kakíefni sem samsvarar klæðnaði á aha borgarbúa - 23 mhljónir - á ein- um mánuði. Efnið er hins vegar flutt beint th Bandaríkjanna þar sem það er fuhunnið sem fatnaður - mest- megnis gahabuxm-. Þetta er bara eitt dæmi um það að fjárfesting í fuh- komnari tækjabúnaði getur marg- borgað sig. En þjóðfélagið er bara að byija að nútímavæðast. Gömul tæki og aðferðir standa mexíkóskum iðn- aðarvörum enn fyrir þrifum og gera þær lítt samkeppnishæfar við er- lendan iðnvaming sem nú er farinn að streyma inn í landið." Samvinnufélög lónaveiðimanna - En hvað með sjávarútveginn hér í Mexíkó, Ingvar - þú ert nú haffræð- ingur? „Já, þetta var nú ansi fmmstætt þegar ég kom hingað um 1970. Þá höfðu fiskveiðhög einungis verið í gildi í þrjú ár og öll fiskveiði var við strendurnar og í lónum og mest- megnis rækjuveiði. Það má segja að sérstaða mexíkósks sjávarútvegs fel- ist í lónaveiðinni. Strandlengjan er hvorki meira né minna en 10.000 kíló- metra löng og það helgast fyrst og fremst af því hve lónin era mörg, eða u.þ.b. 7.000. Stíflur vegna neyslu- vatns hafa reyndar verið á góðri leið með að eyðileggja lónin - mörg þeirra hafa nánast þomað upp og það hefur lengi verið stirt á núlh þeirra sem búa inni í landi og lónbúanna vegna shkra neysluvatnsvirkjana. Regntíminn hér er í júlí og fram í september og þá fyllast lónin alla jafna af ferskvatni og gróðri. Rækjan hverfur þá alveg en kemur aftur þeg- ar hafið brýtur sér leið inn í lónin á haustin. Fólk sem bjó við lónin hafði lengi einkarétt á að veiða þar sam- kvæmt lögum popúhsmans sem Cardenas forseti stóð að. Samkvæmt þessum lögum áttu samvinnufélög - cooperativas - að stjórna veiði í lón- unum. Ég hef kannað þessi lón mjög rækilega, einkum við Kyrrahafs- ströndina, og samkvæmt mínum at- hugunum vantaði meira gegnum- streymi í mörg þeirra th að líf gæti dafnað þar. Þaö kostaði miklar for- tölur að koma sjómönnunum í skhn- . ing um að það þyrfti að gera skurð th aö auka gegnumstreymiö. Þeir héldu því fram að þá syntu rækjum- ar beint út aftur þegar þær loksins kæmu. Niðurstaðan varð loks sú að við útbjuggum rás sem hleypti rækjum bara inn en ekki út. Þeir urðu svo furðu lostnir þegar í ljós kom að veið- in margfaldaðist og hélst allt árið í stað þess að detta niður yfir sumarið. Reyndar stækkuðu rækjurnar líka svo mikið í kjölfarið að það þurfti að skipta um öskjur í verksmiðjunum! Lifað á rentum - En þessi samvinnufélög eru ekki lengur við lýði, eða hvað? „Nei, en þetta breyttist ekki fyrr en fyrir tveimur árum. Japanir höfðu veitt hér úthafsrækju síðan 1938 en samkvæmt samvinnulögun- um var úthafsrækja frátekin tegund handa lónasamvinnufélögunum sem vom samt of fátæk til að geta fjárfest í skipum th úthafsveiða. Samvinnu- hugsjónin lognaðist svo af sjálfu sér út af þegar gjaldkerar samvinnufé- laganna létu sig smátt og smátt hverfa. í þessu upplausnarástandi gátu fjárglæframenn og auðjöfrar keypt sér báta og ég þekkti einn sem átti um tíma 40 báta sem hann gerði út. Hann fékk 62% en áhöfnin 38%. Það gerðist hins vegar æ algengara að áhafnirnar seldu amerískum skip- um helming aflans í hafi og á hærra verði en þær fengu heimafyrir, svo að eigendurnir fengu aldrei nema brot af því sem þeim bar. Þau ráð sem stjórnvöld höfðu viö þessu ástandi fólust í þjóðnýtingu í anda popúlismans. Ríkið keypti alla sjófæra báta. Verðbólgan hljóp upp og margir hættu að vinna og lifðu á rentum. Eitt fyrirtæki, Ocean Gard- en, fékk einkaleyfi á að versla með mexíkóska rækju. Þetta kallaði ein- ungis á aukið smygl og varð síður en svo til batnaðar. Nú hafa veður skipast í lofti og samkvæmt nýjum fiskveiðhögum mega nú allir veiða rækju og fleiri tegundir. Menn þurfa ekki lengur að vera fátækir sam- vinnumenn th að fá að veiða. Ólíkt því sem tíðkast á íslandi eru ár í þjóð- areign fimmtíu metra frá flæðarmáli en ströndin er öh eign þjóðarinnar. Útlendingum er nú leyft að fjárfesta í sjávarútvegi hér en þeir mega þó ekki eiga meira en 49% í fyrirtækj- um. Nefndir frá mörgum Asíulöndum og líka frá íslandi hafa komið til að kanna möguleika á slíkum fjárfest- ingum.“ Leiðangursstjóri á herskipum - Hér á skrifstofu þinni í hafrann- sóknastofnuninni í háskólaborginni eru tvö líkön af rannsóknaskipum. Hvaðan era þau gerð út? „Þau eru gerð út frá Tuxpán í Veracruz við Mexíkóflóann og frá Mazátlan við Kyrrahafsströndina. Þau eru í löngu úthaldi - allt að 307 daga í senn - og hafa siglt í striklotu 30.000 mílur. Þau komu hingað 1980 og 1982. Ég er í stöðugu sambandi viö þau. Það er haft samband við mig ef eitthvað kemur upp á um borð. Það getur verið mikið verk að stjórna svo stórum skipum. Ég hef reynslu af slíku því ég var leiðangursstjóri á herskipum í Brashíu á árum áður. Einnig var ég um tíma á skipi í eigu mexíkóska sjóhersins og tæknilegur ráðgjafi um borð í skipi hjá UNESCO." Heim á lýð- veldishátíðina Að svo mæltu héldum við ásamt Ingvari út í blíðuna og gengum um háskólasvæðið sem er í raun sérborg með eigin löggæslu, verslanir og þjónustustofhanir. Þau Ingvar og Ása búa í San Jeronimo Lídice, hverfi sem eitt sinn var indíánaþorp töluvert utan borgarmarka en telst nú innan þeirra. „Eiginlega er ég eins konar Jón prímus hérna í hverfinu," segir Ing- var þegar við ökum heim að húsi þeirra hjóna. „Það er nefnhega ahtaf hringt í mig þegar einhver þarf að láta laga hjá sér rafmagnið eða gera við eitthvað smálegt. Það er ekki að ófyrirsynju því að rafvirkjar era al- ræmdir hér fyrir að skera á lagnir til hálfs th að tryggja sér verkefni eftir svo sem þrjá mánuði." Handan við múrvegg og fjarstýrðar hliðgrindur blasti nú húsið við okk- ur. Þar bauð Ása okkur velkomin inn á snoturt heimhi með býsna sterkt islenskt yfirbragð. „Okkur langar samt ekkert að flytja heim,“ segir Ása. „Við eram orðin svo vön lífinu hérna. Við komum reyndar th ís- lands á lýðveldishátíðina í sumar og komumst meira aö segja á Þingvöll. Það var mjög gaman.“ Jaröskjálftinn - En hvað með náttúruhamfarir á borð við jarðskjálftann fyrir níu árum? „Við erum á nokkuð öruggu svæði hér,“ segir Ingvar, „á föstu bergi. í kringum miðborgina er miklu meiri hætta því þar er víða gljúpur jarðveg- ur.“ Og Ása bætir við: „Það vildi reyndar þannig til að hvorugt okkar var í borginni þegar jarðskjálftinn reið yfir og fyrstu fregnir vom væg- ast sagt ógnvekjandi. Sagt var að ekki stæði steinn yfir steini í borg- inni en það reyndist sem betur fer ekki rétt. Einhvern tíma í fyrndinni gaus hér hka svo maður er kannski aldrei óhultur og ekkert frekar á ís- landi.“ Og viö kveðjum þau heiðurshjón með eldfiahið Popocatepetl fyrir aug- um en manna á meðal gengur það undir gæluheitinu „Pop“. Vonandi verður ekki poppað í Mexíkó í bráð. Ólafur J. Engilbertsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.