Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
Fréttir
Stjómarfhimvarp til nýrra nafnalaga til þingflokkanna:
Skjarpur, Skunnar og
Aþanasía leyfð en ekki Siv
- stuðlað að því að ættamöfn verði notuð sem millinöfh
Samkvæmt nýju stjómarfrum-
varpi um mannanöfn, sem lagt hefur
verið fyrir þingflokkana, er stefnt aö
því að auka frelsi í nafngiftum frá
því sem ákveðið var með lögum sem
samþykkt vom á Alþingi árið 1991.
Samkvæmt frumvarpinu er gert
ráð fyrir því að frelsi verði aukið í
v nafngiftum frá því sem nú er, einkum
með því aö heimila aðlöguð erlend
nöfn jafnvel þótt þau styðjist ekki viö
hefð í íslensku máh og með því að
heimila millinöfti. Þá er með frum-
varpinu reynt að jafna nafnrétt
manna eftir því sem kostur er, meðal
annars með því að auka rétt erlendra
manna sem gerast íslenskir ríkis-
borgarar. Loks er stuðlaö að því að
ættamöfn veröi fremur notuð sem
millinöfn en sem kenninöfn.
Eftirfarandi kvenmannsnöfn verða
leyfð ef frumvarpið nær fram að
ganga en þeim hafði áður verið hafn-
að ^amkvæmt gildandi lögum: Ad-
ama, Alexandrea, Amel, Anetta,
Annabella, Aretta, Aþanasía, Aþena,
Belinda, Bella, Benney, Bergetta,
Bergitta, Bína, Blín, Bogga, Dýrley,
Dön, Edna, Emelíta, Gauja, Georgí,
Giddý, Hallý og Hanný. Hins vegar
verða nöfnin; Apríl, Dawn, Hilde-
gard, Lilhan, Maí, Maj, May, Miriam,
Nathahe og Siv áfram bönnuð.
Eftirfarandi karlmannsnöfn verða
leyfð ef fmmvarpið nær fram að
ganga en þeim hafði áður verið hafn-
að samkvæmt gildandi lögum: Alf,
Bert, Davor, Elentínus, Elinór, Evan,
Garibaldi, Gerald, Húgó, Maggi,
Manfreð, Manúel, Marselíus, Mekk-
ínó, Októ, Orvar og Preben. Hins
vegar verða nöfnin; Gasey, Eddý,
Jean, Mooney og Nicolai áfram
bönnuð.
í frumvarpinu er reynt að spoma
við því að sá fomi siður íslendinga
að kenna sig viö föður eða móöur
leggist af með aukinni ættamafna-
notkun. í frumvarpinu er hveijum
manni gert aö kenna sig við föður
eða móður en þó má maður sem ber
ættamafn, sem kenninafn, bera það
áfram. Ættamafnið gengur þó ekki
til niðja hans en bam fær sama
kenninafn og alsystkini þess. Heimilt
verður mönnum að bera ættamafn
sem millinafn.
Blendingsnöfn verða heimil svo
framarlega sem þau eru sett saman
af íslenskum nafnstofni eða íslenskri
nafnrót, erlendu viðskeyti og ís-
lenskri nefnifallsendingu. Þá má í
lokin geta þess aö nöfn eins og
Skjarpur og Skunnar verða heimil
eins og nöfnin Garpur og Gunnar.
Sama gildir um nöfnin Frissi, Bíbí
og Gudda.
Lagt er til að sem næst sömu reglur
gildi eftir sem áður um tökunöfn.
Útflutningur á ígulkerum og hrognum:
Toppnum náð og
þá hrundi alK
- 300 manns hafa misst vinnu viö ígulkeravinnsluna
Gylfi Kristjánaaon, DV, Akureyii:
Frá því útflutningur hófst á ígul-
kerum og hrognum árið 1989 hafa
verið flutt út alls 49 tonn af óunnum
ígulkerum og 131 tonn af hrognum.
Verðmæti þessa útflutnings hafa far-
ið vaxandi ár frá ári, hafa aldrei ver-
ið meiri en fyrri hluta ársins í ár, eða
til þess tíma að algjört hrun varð í
greininni á þessu ári.
Á árunum 1989-1991 var einungis
um aö ræða útflutning á óunnum
ígulkerum. Vinnsla á hrognuninn úr
kerunum og útflutningur á þeim
hófst síðan árið 1992 og þá nam
hrognaútflutningurinn tæpum 3
milljónum króna. Þessi tala fór í ríf-
lega 90 milljónir á síðasta ári en
fyrstu 9 mánuði yfirstandandi árs
voru flutt út hrogn fyrir tæplega 200
milljónir króna. Á sama tíma gerist
það að verðhrun verður í Japan meö
þeim afleiöingum að 10 af 16 vinnslu-
stöðvum hefur verið lokað.
Talið er að þegar mest var hafl um
400 manns haft atvinnu af ígulkera-
vinnslunni og eru þá taldir sjómenn,
vinnslufólk og flutningaaðilar. Sam-
kvæmt heimildum DV lætur nærri
að í dag starfl ekki nema fjórðungur
þess fjölda við vinnsluna eða um 100
manns.
Ótíð hamlar loðnuleit
Jóhann Jóhamtssan, DV, Seyðisfirði:
Vonir manna um að loðnan finn-
ist skyndilega nú í desember, eins
og gerðist á síðasta ári, dofna nú
óðum.
Tvö veiðiskip, Víkingur AK og
Öm KE, em enn á miðunum en
hafa ekki getaö leitaö undanfama
daga. Það er því nokkuð umliðið
síðan allt veiðisvæðið hefur verið
kannað vegna þrálátrar
stormbrælu. Síðasta skip sem land-
aði loðnu hér var Öm KE og var
aflinn aðeins hundrað tonn.
Þess er því ekki að vænta að
loðna berist til verksmiðjanna fyrr
en eftir áramót og haustvertíðin
hefur valdið miklum vonbrigðum.
Listi
yfir söluhæstu bækur
- síöustu viku -
1. Snigiaveislan - Ólafur Jóh. Ólafsson
2. Enn fleíri athuganir Berts - Jakobsson & Olsson
3. Fólk og firnindi - Ómar Ragnarsson
4. Útkall Alfa TF-SIF - Óttar Sveinsson
5. Grandavegur 7 - Vigdís Grímsdóttir
6. Óskars saga Halldórssonar - Ásgeir Jakobsson
7. Aö elska er aö lifa - Hans Kristján Árnason
8. Mannakynni - Vilhjálmur Hjálmarsson
9. Amó Amas - Þorgrímur Þráinsson
10. í luktum heimi - Fríða Á.
Utflutningur á ígulkerum
og hrognum 1988-'94
í milljónum króna
Starfandi fyrirtseki
#i Isafjöröur
<r V \
_ SauQþrkrókur
Hvalnmstangi
^r^Styklíishélmur (-2)
m Vinnslu hætt
*
Ölafsfjoröur
W-
I Svalbaröseyri
' Akureyri
EgilsstaOm
■M
Njarövlk £Reykjavik
Verömætl í mllljónum _ e
króna 95,5
0.4 0,5 0,7
Kristín Á. ætlar ekki í pólitík
„Þetta hefur ekki verið rætt við
mig. Ég hef ekki ætlað mér að fara í
pólitík og útiloka þetta alveg þannig
að ég er ekki einu smni að hugsa
málið,“ segir Kristín Á. Guðmunds-
dóttir, formaöur Sjúkraliðafélags Is-
lands, um þann orðróm að hún hygg-
ist taka sæti á Usta Jóhönnu Sigurð-
ardóttur í-kosningunum í vor.
Stuttar fréttir
Svartrottur fjölga sér
Yfir 30 svartrottur hafa veiöst í
Vestmannaeyjum í haust og 2
rottuhreiðrum var útrýmt. Skv.
RÚV hafa svartrottur ekki fjölgaö
sér áður hér á landi.
Sviptir veiðiheimiidum
Sjávarútvegsráöuneytið hefur
svipt belgíska togara veiðiheim-
ildum í íslensku flskveiðilögsög-
unni fyrir brot á samningi þjóð-
anna um veiðarnar. Sjónvarpið
greindi frá þessu.
Aiddðeflftrfit
Samstarfsnefhd um bætta um-
gengni um auðlíndir sjávar hefur
sent frá sér áfangaskýrslu þar
sem gerðar eru tillögur um úr-
ræði gegn því að fiski sé hent eöa
landað fram hjá vigt.
Rækjuúrgangur nýttur
Rækjuvinnslur á Norðurlandi
vestra ætla aö stofna hlutafélag
um rekstur rpjölvinnslu úr
rækjuúrgangi. Skv. RÚV ihuga
sveitarfélögin í kjördæminu að
kaupa húsnæði og tæki undir
reksturinn á Hvammstanga.
Búistviðörtröð
Um 200 manns hafa sótt um
húsaleigubætur í Reykjavík. Um-
sóknarlVestur vegna greiðslu
fyrstu bótanna er aö renna út hjá
Félagsmálastofnun borgarinnar.
Samkvæmt Mbl. er búist við ör-
tröð í dag og á morgun.
Þýdd bamabók situr í ööru sæti bóksölulista DV:
Ekki gerst í langan tíma
„Það hlýtur að vera mikiö ánægju-
efni að bamabók skuli sitja í öðru
sæti bóksölulista DV. Ég man ekki
eftir því í langan tíma að þýdd bók
fyrir þennan aldurshóp hafi náð eins
miklum vinsældum," sagði Heiðar
Ingi Svansson, framkvæmdastjóri
Skjaldborgar, sem gefur út bókina
Enn fleiri athuganir Berts sem hef-
ur, tvær vikur í röð, setið í öðru
sæti listans.
í fyrsta sæti listans situr enn
Sniglaveislan, bók Ólafs Jóhanns
Ólafssonar. Fólk og flmindi Ómars
Ragnarssonar er komin upp í þriðja
sæti og þyrlubók Óttars Sveinssonar,
Útkall Alfa TF-SIF er komin upp í
- segir útgefandinn
fjórða sætið. Grandavegur 7, bók
Vigdísar Grímsdóttur, var ekki á hst-
anum síðast, en er nú komin í 5.
sætið. Óskars saga Halldórssonar,
skráð af Ásgeiri Jakobssyni, er í
sjötta sætinu en Að elska er að lifa,
bók Hans Krisijáns Ámasonar, er í
sjöunda sætinu. í áttunda sæti lis.t-
ans er bókin Mannakynni (Vilhjálm-
ur Hjálmarsson), unghngabók Þor-
gríms Þráinssonar, Amó Amas,
kemst í 9. sætið og í luktum heimi,
skáldsaga Fríðu Á. Sigurðardóttur, í
það tíunda. Næstar áðurgreindum
bókum em Krappur lífsdans, Blautir
kossar, Brosað gegnum tárin og
Kvikasilfur.
Bókaverslanimar sem taka þátt í
sölukönnun DV era: Ahar verslanir
Eymundssonar í Reykjavík, Penninn
í Hallarmúla, Hagkaup í Skeifunni
og Kringlunni, á Akureyri og í Njarð-
vík, Bókaverslunin Sjávarborg í
Stykkishólmi, Bókhlaðan á ísafirði,
Bókabúð Bryiýars á Sauðárkróki,
Bókabúð Jónasar á Akureyri, Bóka-
búö Sigurbjörns Brynjarssonar á
Eghsstöðum, Kaupfélag Ámesinga á
Selfossi og Bókabúð Keflavíkur.
Fengnar em sölutölur síðustu viku
og geröur listi yfir 10 söluhæstu bæk-
umar í hverri verslun. Era gefln stig,
1-10, eftir röðinni á hstunum.