Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1995, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
Fréttir
Hald lagt á fíkniefni að söluverðmæti 50 milljónir á seinasta ári:
Fíknief ni fyrir um hálfan
milljarð á götunni í fyrra
- mest af hassi og minna af amfetamíni en stóraukning á alsælu og LSD
kikJJöM'ó íi'AnWnú 1994
PS, Hlutur fíkniefnadeildar tollgæslu á Keflavíkurflugvelli
I
-f~j jJ j JJ J * j
Haldlögð efni í vörslu lögreglu í Rvík
Hass
20.236 g
93 g
■
_____________________
Aimfetamíii
ov
Fíkniefnadeild lögreglunnar og
fíkniefnadeild Tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli lögðu hald á
fíkniefni að markaðsverðmæti um
50 miUjónir króna á seinasta ári. Er
hér um töluvert minna magn að ræða
en árið áður og munar mest um
minna magn af amfetamíni sem er
dýrt efni.
Ef gengið er út frá því að flkniefna-
deild lögreglunnar og fíkniefnadeOd
Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli,
sem hafa með sér náið samstarf,
ásamt rannsóknardeild Tollgæslu
íslands takist að leggja hald á tíunda
hluta þeirra fíkniefna sem koma til
landsins má gera ráð fyrir að fíkni-
efnamarkaðurinn hafi velt um hálf-
um milljarði á nýliðnu ári í saman-
burði við 700 milljónir á árinu 1993
ef sömu reikniaðferðir eru notaðar.
Eru þá ekki tekin með kannabisefni
sem ræktuð eru hér á landi en svo
virðist sem það færist í vöxt.
Langmest var tekið af hassi eða
rétt rúmlega 20 kíló og amfetamíni,
tæplega 800 grömm. Athygli vekur
að það magn af LSD sem hald hefur
verið lagt á hefur stóraukist á milli
ára, úr 69 skömmtum árið 1993 í 370
skammta á seinasta ári. Þá var lagt
hald á 22 alsælutöflur á seinasta ári
en engar árið 1993.
Eftir að ný reglugerð var sett um
innflutning á lyfíum til eigin nota
hefur stóraukist að hald væri lagt á
anabólíska stera, enda tekur fíkni-
efnadeild Tollgæslunnar á Keflavík-
urflugvelli á þeim málum eins og um
fíkniefnamál sé að ræða. Rannsókn-
arlögregla ríkisins fer með rannsókn
steramála og komu þrjú slík mál upp
á seinasta ári. Öll málin eru til með-
ferðar hjá saksóknara og hafa verið
það undanfarna mánuöi. Ekki hefur
því veriö dæmt i málum af þessum
toga frá því að reglum var breytt.
Eins og fram kom í grein, sem Elías
Kristjánsson, tollfuUtrúi fíkniefna-
deildar tollgæslunnar á Keflavíkur-
flugvelli, birti í DV skömmu fyrir
seinustu jól eru 15 stöðugildi í fíkni-
efnadeild og tveir tollveröir á Kefla-
víkurflugvelli sinna sérstaklega
rannsókn fíkniefnamála þar. Elías
rekur það jafnframt í grein sinni að
ef miö er tekið af fíkniefnum sem
hald hefur verið lagt á undanfarin
ára sé ljóst að harðari efni séu að
sækja í sig veðrið hér á landi. „Sam-
fara þeirri þróun hefur orðið gríðar-
leg aukning hérlendis á tiðni afbrota
og grófari ofbeldisverka," segir Elías
jafnframt í grein sinni. Til að renna
styrkari stoðum undir þessi orð má
minnast talna, sem gerðar voru opin-
berar á seinasta ári, um fíölda
sprautufíkla hér á landi.
í lok greinar sinnar bendir Elías á
þá staðreynd að vegna legu lands
okkar ættum við að hafa góð tök á
að halda uppi markvissum vömum
í baráttunni gegn böli fíkniefna.
„Þess vegna verða stjómvöld að
halda vöku sinni. Því verður að auka
fíárveitingar til löggæslu, fræðslu,
áróðurs, forvarna og meðferðar."
Þess má geta að strax á nýársdag
lagði fíkniefnadeild tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli hald á nokkur
grömm af hassi. Fannst það viö úr-
taksleit á liðlega tvítugum Vestfirð-
ingi sem kom til landsins frá Amst-
erdam. -pp
Kjarasamningaviðræðumar:
Allmikil f undahöld bak við tjöldin
- aðilar vinnumarkaðarins og stjómvöld sammála um að hraða samningagerðinni
„Það er nú alltaf þannig þegar
mikið er um að vera að þá ræðast
menn við meira en bara form-
lega,“ sagði Benedikt Davíðsson,
forseti Alþýðusambandsins, þegar
DV spurði hann hvort það væri
rétt að fundahöld aðila vinnumark-
aðarins og stjómvalda bak við
fiöldin hefðu átt sér stað að undan-
förnu. DV hefur heimildir fyrir því
að óformlegar viöræður stjórn-
valda og aðila vinnumarkaðarins
hafi átt sér stað. Og að þessir aðilar
séu sammála um nauðsyn þess að
hraða gerð kjarasamninga.
„Það er engin spurning að það er
mikill vilji hjá öllum að samningar
geti tekist sem allra fyrst,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson,.
formaður Dagsbrúnar, en Hlif og
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur, Flóabandalagið sem svo er
kallað, eru saman í samningunum.
Benedikt Davíðsson tók í sama
streng og Guðmundur um vilja
manna til þess að hraða samning-
um sem mest.
Benedikt Davíðsson sagði að ef
samningar drægjust á langinn og
komið væri að þingkosningum
væri hætta á að samningar drægj-
ust fram á sumar eða haust. Afleið-
ing þess gæti haft neikvæð áhrif á
atvinnuþróunina, atvinnustigið og
þróun gjaldeyrismála. Benedikt
sagðist telja að það mundi ekki
skipta meginmáli fyrir samninga
aðila • vinnumarkaðarins hvort
kennarar fara í verkfall eða ekki.
„Ég held að sú mikla óvissa sem
ríkir meðan kjarasamningar eru
lausir skipti mun meira máli, raun-
ar meginmáli," sagði Benedikt.
Guðmundur J. taldi aftur á móti
að það myndi hafa áhrif til hins
verra að ná samningum ef kenn-
araverkfall skylli á. Það þyrfti allt-
af meira að koma til eftir að verk-
fóll væru hafin.
Samkvæmt heimildum DV leggur
verkalýðshreyfingin höfuðáherslu
á að lánskjaravísitalan verði af-
numin. Hún vinnur þannig að hvað
lítið sem laun hækka kemur það
fram í lánskjaravísitölunni. Þá
leggur verkalýðshreyfingin þunga
áherslu á að skuldugum heimilum
verði komið til hjálpar með skuld-
breytingum. Loks mun skatta-
lækkun með einhverjum hætti
vera ofarlega á kröfulistanum. Þeg-
ar talað er um að hraða samning-
um segja verkalýðsforingjar að
meðan Vinnuveitendasambandið
haldi sig við tveggja prósenta
launahækkun muni samningar
ekkert hreyfast.
kaupauki
- sparaðu með
kjaraseðlum
r
Kjaraseðillinn
gildir í
versluninni
sem tilgreind
er hértil hliðar
Gjldir 7. jan.
L
1070% afsláttur abeíns á löngum laugardegi
Brjóstahaldarar frá kr. 990 og sett frá
Erum meb frábœrt úrval af hlýralausum
brjóstahöldurum undir fíegnu kjólana.
Pantanlr óskast sóttar
Fálb sendan nýjasta Day nlght undirfatalistann
og veljlb gjöflna hennar heima
Sendum í póstkröfu
Vorum ab fá þessa frábœrlega vinsœlu
Lilyette brjóstahaldara aftur, einnig
nœrbuxur í stíl í 5 lltum og öllum
stœrbum, stœkkar lítll brjóst og gefur
stœrrl brjóstum hámarkslyftlngu
kr. 1.990
Vorum einnig ab fc
nýja sendlngu aí
hlnum vinsælc
Wonderbra i
stœrbum 32-38 4
B- og C-skálum
Eg og þú
Laugavegi 74 • Sími 12211