Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1995, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
Spumingin
Hvað ætlar þú að gera á
þrettándanum?
Sandra Hauksdóttir: Eg fer sennilega
til pabba míns og geri eitthvað með
honum.
Ragnhildur Georgsdóttir: Ég á af-
mæli þá og held upp á það eða fer á
brennu í Hafnarfirði.
Davíð Rolfsson: Skjóta upp restinni
af flugeldunum.
Jökull B. Valsson: Eg veit það ekki.
Það er óákveðið.
Hólmfríður Sylvía Traustadóttir:
Iiggja heima og sofa.
Lesendur
Meðtvöbörn
áflótta
Bjarney skrifar:
Eftir að hafa lesið DV og horft á
Stöð 2 þann 2. jan. sl. fannst mér
hreint forkastanlegt að yfirvöld
skyldu ekki óttast afleiðingar gerða
sinna er þau létu lögreglu og bama-
vemdarnefnd hundelta imga parið
með sín tvö ungu böm. Lögreglan
fann eldra bamið og móðirin gaf sig
fram með það yngra eins og fram
hefur komið í fréttmn. Yfirvöld gætu
með þessum hætti orðið völd að ein-
hveiju enn verra. - Og þar sem fá-
tækt virðist ekki ástæðan til forræð-
issviptingar gat ég ekki skihð hvers
vegna bamaverndamefnd vildi láta
vista bömin til 17. janúar en rann-
sókn og eftirlit hefur þegar staðið
yfir í hálft annað ár. Ef niðurstaða
hefur ekki fengist eftir þann tíma hví
átti þá að þurfa mánuð til viðbótar?
Það ætti hins vegar að vera aug-
ljóst að maður sem flæmdur er úr
starfi æ ofan í æ að tilstuðlan barna-
vemdamefndar hefur engin tök á að
afla viðurværis sjálfum sér eða sín-
um til handa. - Læknir á Landspítala
kallaði parið til ábyrgðar fyrir að
hafa fjarlægt barnið af sjúkrahúsi.
En hvaða ábyrgð bera læknar? Hafa
þeir ekki svarið læknaeið? Vom það
ekki foreldramir sem komu meö
barnið til þeirra með trúnaðartraust-
ið að leiðarljósi? Einhveija ástæðu
hefur parið haft til að yfirgefa sjúkra-
húsið og öryggið þar með sitt litla
bam. Sjálfsögö skylda hvers foreldr-
is er að vemda börn sín, jafnvel á
flótta ef með þarf.
Það skyldi þó aldrei vera að þessir
flóttaforeldrar hafi eitthvað það í
höndunum sem sannar að þeir hefðu
aldrei fengið bömin aftur á þeim
tíma? Það skyldi þó ekki vera að
bamarvemdamefnd hafi verið búin
að ráðstafa bömunum og nefndin
ekki séð sér fært einhverra hluta
vegna að láta foreldrana halda þeim?
- Féngu einhveijir loforð um stóra
Foreldarnir, Sigrún Gísladóttir og Aðalsteinn Jónsson, með yngra barnið.
DV-mynd GVA
jólagjöf?
Lögreglan segir aö foreldrarnir eigi
að kæra til Barnavemdarráðs. Er
ekki hiuti barnavarnamefndar í
Bamaverndarráði? Og er þar með
að dæma í eigin máh. Hvert á þá að
kæra? Ekki er hægt að kæra til um:
boðsmanns Alþingis og ekki til um-
boðs manns barna því hvorugur aðil-
inn má skipta sér af deilumálum.
Ég veit að almenningur styður
flóttafjölskylduna. Það er eitthvað
mikið að í því þjóöfélagi sem hundelt-
ir unga móður með tvö böm á flótta.
Böm sem sjáanlega líða engan skort
og eru þaðan af síður veikluleg, eftir
því sem maður sér í fjölmiölunum.
Snjóél í málfarsmusterinu RÚV
Guðbjörg skrifar:
Það er staðreynd að málfari hér á
landi fer mjög aftur. í Ríkisútvarpinu
var lengi vel reynt að sporna gegn
ambögum í málfari en líkt og á öðr-
um ljósvakamiðlum hérlendis (aðal-
lega á útvarpsstöðvunum) hefur mál-
vitund dofnað ískyggilega mikið og
er nú svo komið að starfsfólk Ríkis-
útvarpsins er engu skárra að þessu
leyti.
Aö vísu koma fréttir víða að, t.d.
frá Veðurstofunni, sem heldur er
ekki í sérflokki hvað snertir málfar
en engu að síður ættu starfsmenn
með prófin sín góðu að geta lagfært
helstu ambögur og orðskrípi áöur en
útvarpað er til hlustenda.
Eitt er það sem er nánast orðið fast
í máli útvarpsmanna; snjóél. Ég hef
aldrei heyrt annað en að orðið „él“
sé nægilegt ef ekki er um stöðuga
snjókomu að ræða. Á sama hátt ætti
að þá sífellt að geta um „regnskúr-
ir“ ef gengur á með skúrum. - Og
ótal dæmi eru um málfarsvitleysur
þula og fréttamanna. Síðast greindi
stúlka í U-fréttum Sjónvarps frá því
að hestar hefðu veriö í „sjálfsheldu",
í staðsjálfheldu. Er málfarsmusterið
Ríkisútvarp í raun orðið sama rusla-
kistan og hinar stöðvarnar?
Síbrotamenn í f íknief namálum
Helgi Einarsson skrifar:
Mér finnst aö það hljóti að vera auð-
velt að koma að fullu í veg fyrir inn-
flutning á fíkniefnum til Islands þar
sem nánast einu samgöngutækin fyrir
farþega hingað til lands eru flugvélar
sem auk þess lenda flestar á einum
stað á landinu. Það er að visu ekki
hægt að kvarta yfir vinnubrögðum
fíkniefhalögreglunnar eða þeirra á
Keflavíkurflugvelli fyrir að hafa ekki
árveknina í lagi. Mér finnst vel hafa
tekist til að mörgu leyti varðandi þaö
að koma í veg fyrir imiflutning þessara
eiturefna. Svo mikið af þeim finnst
strax við komu til landsins. - En það
eru líka pakkar og vörusendingar sem
þarf að fylgjast með og það tekur tíma.
tíl að stytta
Innflutningur fikniefna er stundaður
með ýmsum hætti.
%
Það er fyrst þegar kemur aö fram-
kvæmd refsinga og dóma að gamanið
fer að káma og auðvitað er hér ekki
um gamanmál að ræða. En eins og
allir vita eru dómar vægir yfir fíkni-
og eiturlyfjasmyglurum og þeim sem
dreifa og selja. - í síðasta eintaki
Morgimpóstsins er fiallað um þijá
menn sem sátu í gæsluvarðhaldi á
Spáni vegna innflutnings á hassi
þangað og einn þeirra hafi haft um-
sjón með flutningi þeirra hingaö til
lands. Nú er búið að biðja um fram-
sal á þeim aðilá og vonandi upplýsist
þá eitthvað frekar.
Það er hins vegar eftirtektarvert
hve langt sumir þessara manna kom-
ast. í áöumefndri umfiöllun er t.d.
sagt frá einum sem sat í gæsluvarð-
haldi og hafði hann svokallaðan
diplómatapassa undir höndum og
hefur þá líklegast ferðast með hann
og þannig fengið greiðari aðgang að
ferðum til og frá landinu. - Atriði
eins og þetta ætti að upplýsa og þar
með hver gefur manni í kannski
engri sérstakri stöðu heimild til að
nota opinbert íslenkst vegabréf. -
Þaö er ástæða til að hamra sífellt á
því að afbrotamenn í fíkniefnamál-
um fái verulega þyngri refsingu en
nú er raunin. Þessi mál verður að
uppræta sem allra fyrst og það er
auðveldara hér en annars staðar.
I>V
Hverjireru hæfir
uppalendur?
Herbert skrifar:
Ung móðir er í felum með tvö
börn sín. Hún er víst of ung til
að ala bömin sín og faðir barn-
anna er búinn að ala upp 4 böm
í fyrri sambúð og er búinn meö
sinn kvoía, eða hvaö? - Á síðasta
ári var Jón... sviptur forræöi
yfir dóttur sinni. Hann var talinn
of gamall til að ala hana upp. -
Hvað era margir í þessu þjóðfé-
lagi sem hafa misst annað eða
bæði foreldri og verið aldir upp
með aðstoð eldri systkina sinna,
eða afa og ömrau? Eru einhverjir
sem skapa þetta ógnarvald sem
bamarvemdarnefnd hefur aldir
upp hjá ungum foreldram eða
eldra fólki? Getur barnaverndar-
nefnd verið kærandi, rannsókn-
araðili og dómari og séð um fram-
kvæmd dóms í þessum málum?
Er þetta ekki brot á mannréttind-
um?
Ráðherrar og
verkföll
Sjúkraliði bringdi:
Formaður okkar sjúkraliðanna
hefur lög að mæla þegar hún
bendir á í útvarpsviðtali að það
sé öl bóta og geti jafnvel leyst
verkfallsdeilu fyrr ef ráðherra
blandar sér í máiið miklu fyrr en
t.d. var raunin i okkar ölviki. En
það var kannski einmitt vegna
þess að á seinni sögum kom fag-
ráðherra aö málinu svo og for-
sæösráðherra að samið var
stuttu síðar.
Tvískinnungur
gagnvarf Banda-
ríkjunum
Hannes skrifar:
Það er alltof algengt að klifað
sé á alls kyns fréttaskotum utan
úr heimi þar sem ekki stendur
steinn yfir steini og útúrsnúning-
ar eru helsta uppistaðan. Núna
ásaka t.d. einstaka stjórnmála-
menn í Evrópu Bandaríkjamenn
fyrir að blanda sér ekki i stríð
Rússa og Tsjetsjena. Um leiö og
Bandaríkjamenn myndu beita
sér, hvort sem er í oröi eða verki
myndi þeim örugglega álasað fyr-
ír og sagt að koma hvergi nærri!
Vfldngalottó:
Núllognix
Björg hringdi:
Ég er ein þeirra sem ekki
stunda happdrætösmiðakaup
eða lottó ef einhver angi þess
tengist úööndum. Ég veít um
marga sem eru á kafi í þess konar
viöskiptum og hafa fariö flatt á
því. Vikingalottóið er eitt þeirra
happdrætta sem hafa ógnarháar
upphæðir í vinningshlutfall og
það er afar ólíklegt að nokkur hér
á landi fái þessa vinninga. Ég lít
á þetta sérstaka happdrætö eins
og hvert annað núil og nix. Þessi
stóru happdrætö era síöur en svo
til fagnaðaf hér á landi.
Mannréttinda-
brot Tyrkja
Guðrún Davíðsdóttir skrifar:
Ég tek undir með Rmiólfi í les-
endabréfi 2. jan. sl. um telpumar
hennar Sophiu Hansen sem era
íslenskir ríkisborgarar. Mann-
réttindabrot Tyrkja á íslensku
telpimum er fyrir neöan allar
hellur og íslenskum stjórnvöid-
um til ævarandi skammar hvern-
ig þau hafa haldið á þessu máli
fyrir hönd þessara liöu þegna
þjóðar okkar. Þetta viökvæma
mál hlýtur að vera orðið miiii-
ríkjamál milli íslands og Tyrk-
lands vegna mannréttindabrota á
þessum íslensku bömum. ís
lenskar mæöur ættu að krefiast
þess aö íslensk stjómvöld komi
fram í dagsljósíð í þessu máli.