Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1995, Page 32
LOKI
Er aldrei friður í bæjarstjórn-
inni í Hafnarfirði?
TVOFALDUR1. \TNNINGUR
Veöriöámorgun:
Suð-
vestan-
átt
Á morgun verður suövestanátt,
stinningskaldi eða allhvasst með
hvössum éljum vestanlands en
þurrt á Austur- og Norðaustur-
landi.
Frost á bilinu 2-6 stig.
Veöriö í dag er á bls. 36
„Vandinn er algjörlega heimatil-
búinn. Á fundinum í gærkvöldi var
ákveðið að fara ekki eftir fundar-
samþykkt og taka mið af niður-
stöðu forvalsins. Ég geri ekki ráð
fyrir að taka þátt í nýju forvali eft-
ir að hafa verið hafnað með þessum
hætti. Þetta em ekki persónuleg
sárindi heldur finnst mér sorglegt
hvernig komið er fyrir Kvennalist-
anum,“ segir Helga Sigurjónsdótt-
ir, bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Tekist var á um framboðsmál
Kvennalistans á Reykjanesi á fundi
í gærkvöldi. Uppstillingarneftid
geröi grein fyrir vinnu simfi und-
anfarnar vikur og lagði formlega
fram tillögu um skipan efstu sæta.
í því sambandi var tekið mið af
niðurstöðu forvals þar sem Helga
hafnaði í fyrsta sætinu, Bryndis
Guðmundsdóttir í öðru sætinu og
Kristín Sigurðardóttir í því þriðja.
Tiliagan kom hins vegar ekki til
afgreiðslu því ákveðið var að end-
urtaka forvalið.
Eins og DV hefur greint frá hefur
fjöldi kvenna innan Kvennalistans
skorað á Kristínu Halldórsdóttur,
fyrrverandi alþingismann, að skipa
fyrsta sætið, en hún tók ekki þátt
í forvalinu. Sainkvæmt heimildum
DV var ástæðan fyrst og fremst
óánægja með niðurstöðuna í for-
valinu. Nýverið samþykkti svo
Kristín að verða við áskoruninni.
Aðspurð kveðst Helga ekki á leið
úr Kvennalistanum þrátt fyrir
höfnunina í gærk\röldi. „Með setu
minni í bæjarstjórn Kópavogs
gegni ég trúnaðarstarfi fyrir
Kvennalistann og mun halda þvi
áfram. Sjálf átti ég ekki von á því
að ná fyrsta sætinu í forvalinu.
Vinnubrögðin valda mér hins veg-
ar gífurlegum vonbrigðum,“ segir
Helga.
-kaa
Akureyri:
Margir vilja ÚA
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kaupfélag Eyfirðinga hefur óskað
eftir viðræðum við bæjarstjórn Ak-
ureyrar um kaup á 53% hlut bæjar-
ins í Útgerðarfélagi Akureyringa. í
bréfi KEA til bæjarins segir m.a. að
kaupi KE A þennan hlut sé það tryggt
að Islenskar sjávarafurðir hf. flytji
höfuöstöðvar sínar til Akureyrar,
KEA á fyrir 8% eignarhlut í ÚA.
„Þótt það hafi hingað til ekki verið
á stefnuskrá í mínum flokki að selja
meirihlutann í ÚA finnst mér að við
verðum að skoða alla möguleika sem
koma upp,“ segir Gísli Bragi Hjartar-
son, fulltrúi krata og samstarfsmað-
ur fimm bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokksins í meirihluta bæjarstjómar
Akureyrar.
í morgun átti að hefjast á Akureyri
fundur bæjarstjórnarinnar og full-
trúa Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna og er jafnvel tahð að fulltrúar
SH á þeim fundi hafi með sér einhver
tilboð í farteskinu. Síðar í dag eða á
morgun er svo fundur í bæjarráði
um þá stöðu sem upp er komin varð-
andi málefni ÚA.
Sj alfstæðismenn í Hafnarfirði:
Fjárhagsáætlun í hættu
vegna hótana Jóhanns
Agreiningur er innan bæjarfull-
trúahóps Sjálfstæðisflokksins í Hafn-
arfirði um ráðningu í stöðu bæjar-
verkfræðings. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum DV sækir Jóhann
G. Bergþórsson bæjarfulltrúi fast að
halda starfi bæjarfulltrúa og vera
ráðinn í stöðu bæjarverkfræðings án
auglýsingar þó að það geti valdið
hagsmunaárekstri. Fjárhagsáætlun
meirihlutans er í hættu þar sem Jó-
hann hótar að koma með breytinga-
tillögur við hana. Líklegt er að Jó-
hann hafi stuðning hjá krötum.
Sívaxandi togstreita hefur verið
innanhæjarfulltrúahóps Sjálfstæðis-
_flokksins þar sem fjárhagsáætlun
verður tekin fyrir í bæjarstjórn í
næstu viku. Meirihluti bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins telur ógerlegt að
Jóhann fái bæði haldið bæjarfull-
trúastarfinu og stöðu bæjarverk-
fræðings þar sem það sé brot á
stjórnsýslu- og/eða sveitarstjórnar-
lögum auk þess sem óvíst sé hvernig
alþýðubandalagsmenn myndu
bregðast við því.
Hvorki Jóhann G. Bergþórsson né
Magnús Gunnarsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, vildu tjá sig um
málið. Magnús sagði það vera á við-
kvæmu stigi.
Samþykkt var á fulltrúaráðsfundi
Sjálfstæðisflokksins í gær að deiluað-
ilar hittust í dag til að reyna að jafna
ágreininginn.
Batt bílinn við brúarstólpa
Mjög hvasst var á Suður- og Aust-
urlandi í gærkvöld og var sandfok á
Skeiðarársandi. Einum ökumanna
sem leið átti um sandinn í gærkvöld
leist ekki betur en svo á blikuna að
hann lagði bíl sínum í skjóh við brú-
. arstólpa og batt hann þar fastan, eins
» og forfeður hans gerðu með hesta
sína áður fyrr. Annar ökumaður sem
leið átti um sandinn bauð hinum
skynsama far sem hann þáði ekki.
Ökumaðurinn hélt fór sinni áfram
og urðu töluverðar skemmdir á bíl
hans eins og nokkura annarra öku-
manna sem fóru um Skeiðarársand.
-PP
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, og Jón Ingvarsson stjórnarformaður ræðast við á Reykjavíkurflugvelli um hálfáttaleytið
I morgun. í dag eiga þeir og fleiri forystumenn fyrirtækisins fund með bæjarstjórn Akureyrar þar sem m.a. verður
rætt um hugmyndir um sölu á eignarhlut bæjarsins í ÚA. DV-mynd BG
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995.
Bíll með 11 hesta valt
Flutningabíll með ellefu hesta um
borð valt á mótum Norðurlandsveg-
ar og Siglufiarðarvegar eftir að hann
rann til í hálku í nótt. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu á Sauðárkróki
er talið víst að hestamir hafi sloppiö
ómeiddir en þeir voru fluttir á næsta
bæ.
Tveir menn voru í bílnum, öku-
maður og farþegi, og var farþeginn
fluttur í sjúkrahús með lítils háttar
áverka á höfði og handlegg.
Bílhnn, sem var vel búinn, er mik-
ið skemmdur. -pp
NSK
kúlulegur
Powfxpfl
SuAuriandsbraut 10. S. 686489.
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö T DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
iLASA-
AFGREÍ5SLÍ?563 2777
KL. 6-8IAUCAHOAGS- OC, MÁNUOAGSMOflONiA
J