Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1995, Qupperneq 16
16
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1995
Fréttir
Islenskur tölvuáhugamaður í Danmörku:
Hannaði tölvusímaskrá
fyrir danska símafélagið
- 25 þúsund disklingum dreift með símaskrám í einu sveitarfélagi
Guömundur Karl Guðmundsson,
eigandi tölvufyrirtækisins Media
Forum í Danmörku og búsettur þar
í landi undanfarin 4 ár, hefur nýlega
selt hugbúnað til danska símafélags-
ins TeleDanmark. Hugbúnaðurinn
er tölvuvædd símaskrá sem Guð-
mundur segir í viðtali við DV vera
upphafið að almennu upplýsinga-
kerfi fyrir upplýsingaþjóðfélagið.
TeleDanmark er að helmingi í eigu
danska ríkisins en til stendur að
einkavæða fyrirtækiö að fullu.
Áður en Guðmundur fór utan rak
hann Tölvustofuna ásamt Fróða
Björnssyni, almennt þjónustufyrir-
tæki fyrir Macintosh-tölvur. Þar áð-
ur var hann markaðsstjóri tölvu-
deildar Radíóbúðarinnar, þ.e.
Apple-umboösins. í dag titlar Guö-
mundur sig „uppgjafarlaganema“.
Við komuna til Danmerkur sér-
hæfði Guðmundur sig í þjónustu við
auglýsinga- og útgáfufyrirtæki og
komst af þeim sökum fljótlega í sam-
band við útgáfufélag TeleDanmark á
Sjálandi. Guömundur fékk hug-
myndina að forritinu fyrir u.þ.b. ári
og bjó frummynd þess tíl á næstu sex
IðNUSVlDEÖ
Sími 99-1750
Vcrð kr. 39,90 mínútan
Dregið daglega og
gjafakort með uttekt á
þrem myndbands-
spólum frá Bónus-
vídeó fyrir þá heppnu!
Munið að svörin við
spurningunum er að
nnna í maðauka DV
um dagskrá, mynd-
bönd og kvikmyndir
sem fylgdi DV siðasta
nmmtudag.
BdNUSVÍDEÚ
Nýbýlavsgl 16
sfml 564-4733
Opið virka daga frá 10-23.30 -
laugard. og sunnud. frá 12 - 23.30
fíra
9 9 • 1 7 • 5 0
Verð kr. 39,90 mín.
Dregið daglega og
stjörnumáltíð fyrir tvo frá
McDonald's fyrir þá heppnu!
Munið að svörin við
spurningunum er að finna í
blaðaukanum DV-helgin
sem fylgdi DV.
Guðmundur Karl Guðmundsson, eigandi Media Forum i Danmörku, sýnir DV-mönnum tölvusímaskrána sem hann
hefur hannað fyrir TeleDanmark. DV-mynd ÞÖK
mánuðum, aðallega í frítíma sínum. minni mjög mikið. Síðan ég kynntí
„Forritið hefur breytt starfsemi það fyrst hefur rekstur minn ein-
IHVIDEI
IsiderI
DeBió 1 | D» Hvide |
DeGule | DeRgdc |
Dsnmtrk | Slut |
Valg
| Navnesggning
Adrester/Kalender |
F*rum □
<>'
V
— *xu**>“'
FARUM
/ r
j | IB(MS
, i' h
v'Át W- -
a i ^ ^ nf“ul
//-** %\\ w v1 /
1 5 1 *■eíS.'c* *■ A \ V M :
MB- 'VN" ..:j
1 I' /
Í \ i ' //
5V
Indtíst sggeord | ov*
Ov* L. Strr*ns»n
Ov* H*nsen
Ove L S»r*ns*n
Rungsted
3460 Birker
Telefon,
Skjámynd af tölvusímaskránni, hvítu síðunum sem á er nafnaskrá. Að neð-
an birtist númer og heimilisfang þess sem hringja á í og á kórtinu má sjá
hvar hann býr.
göngu snúist um upplýsingakerfi
fyrir upplýsingasamfélagið," segir
Guðmundur. Þess má geta aö tengi-
liður Media Forum á íslandi er fyrir-
tækið Vaskhugi.
Forritíð, sem Guömundur sýndi
DV-mönnum, rúmast ásamt
fylgiskrám á einum disklingi og er
samið fyrir Macintosh-tölvur. Verið
er að semja við IBM í Danmörku um
yfirfærslu forritsins á Windows fyrir
PC-tölvur. Stefnt er að dreifingu um
25 þúsund disklinga í tilraunaskyni
í einu sveitarfélagi í nágrenni Kaup-
mannahafnar á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs. Disklingarnir verða vænt-
anlega látnir fylgja hefðbundinni
símaskrá. Verið er að vinna að bein-
linu- og geisladiskaútgáfu, þ.e. CD-
ROM.
Danskar símaskrár skiptast í fjóra
meginhluta: hvítar, rauöar, bláar og
gular síður. Á hvítum síðum er
venjuleg nafnaskrá, bláar síður eru
meö almennar upplýsingar, gular
síður eru auglýsingasíður og rauðar
síður hafa að geyma kort af viðkom-
andi sveitarfélögum eða landshlut-
um. Þessa fjóra þættí hefur Guð-
mundur Karl sameinað í forriti sínu
með myndrænum hætti. Þannig eru
t.d. kortasíður alltafí bakgrunni þeg-
ar verið er að nota aðra hluta. Ef við
tökum dæmi um að símnotandi kall-
ar upp ákveðið nafn af hvítu síðun-
unum, þá kemur að sjálfsögðu upp
símanúmer og heimilisfang viðkom-
andi. Einnig má sjá punkt sem blikk-
ar á kortinu og sýnir hvar viðkom-
andi býr í bænum. Fyrirtæki og
stofnanir er ennfremur hægt að
finna myndrænt beint af korti, af
sérstökum tegundarlistum, af bæjar-
líkani og af auglýsingasíðum. Öll
kort leyfa mælingu vegalengda.
Tölvulíkan að þjóðfélaginu
Guðmundur vinnur nú að hug-
myndum um „tölvulíkan að þjóðfé-
laginu", notendaviðmót sem gefur
beinan aðgang að sem flestum stofn-
unum þjóðfélagsins, allt frá verslun
til myndlistarsýninga. „Hið eina sem
við munum ekki geta gert á tölvu-
skjánum er að fara í sund,“ segir
Guðmundur hlægjandi.
„Þetta er e.t.v. mikilvægasta starf
sem ég mun nokkru sinni taka þátt
í. GATT-sáttmálinn, hrun efnahags-
legra landamæra, tölvutæknin og
lækkandi verð á samskiptum munu
valda meiri þjóðfélagslegum breyt-
ingum á skemmri tíma en Vesturlönd
hafa orðið vitni að fram að þessu.
Eftir 25 ár verða væntanlega allir
sammála um ágæti þessara breyt-
inga en þær munu ekki verða sárs-
aukalausar. Vandamálið fyrir lítíð
land eins og Danmörku er tvenns
konar: í fyrsta lagi er augljós þörf á
að gera innlent notendaviðmót, inn-
lent líkan sem tryggir að svipmót
þjóðfélagsins haldist í heimi án
landamæra. ímyndaðu þér íslenska
menningu og verslun á boðstólum
gegnum líkan frá AT&T fjarskipta-
jöfrinum í Bandaríkjunum. í öðru
lagi er mikilvægt að það fjarskipta-
fyrirtæki sem hefur frumkvæði að
þróuninni, hér TeleDanmark, hafi
þroska til að styðja viö byggingu op-
ins, lýðræðislegs kerfis en láti ekki
stjómast af hugmyndum um dulda
einokun á innanlandsmarkaði," seg-
ir Guðmundur.
Hann segist ekki hafa kynnt hug-
myndina fyrir forsvarsmönnum
Pósts og síma á íslandi en vonast til
að áhugi þeirra kvikni við lestur
þessarar greinar.
Deilur um veg á vamarliðssvæðinu á Suðumesjum:
Framkvæmdir taf ist
vegna jarðvegsmengunar
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta er orðið slæmt mál. Við
krefjumst þess að vegurinn verði
opnaður á ný, hann er í alfaraleið
og lokunin er að drepa fyrirtækin
viðskiptalega séð,“ sagði Stefán
Þorvaldsson hjá Bíliðn, fyrirtæki
sem er við Iðavelli í Keflavík.
„Við viljum aö vegurinn verði
opinn þar til nýi vegurinn kemst í
gagnið. Það er öryggisatriði.
Brunabílar þurfa nú að fara miklu
lengri leið ef kviknar í á Iðavöll-
um,“ sagði Stefán.
Á Iðavöllum eru 30 fyrirtæki sem
sent hafa bæjarráði nafnlausa
sveitarfélagsins bréf, ásamt íbúum
við Vatnsholt í Keflavík, þar sem
krafist er að Flugvallarvegurinn
verði opnaður að nýju. Honum var
lokað fyrir áramót en öll þungaum-
ferð fór um veginn til iðnfyrirtækj-
anna en þarf nú að fara um Vatns-
holt, íbúðahverfi þar sem mikið er
af börnum.
Nokkur hús eru þegar fullbyggð
viö Flugvallarveg en samkvæmt
deiliskipulagi á aö loka veginum.
íbúar þar hafa mótmælt mjög að
vegurinn verði opnaður á ný. Bæj-
aryfirvöld áttu að leggja þarna nýj-
an veg á síöasta ári en varnarliöið
hefur hins vegar dregið að afhenda
„nikkelsvæðið" sem nýi vegurinn
á að fara um og tengjast Iðavöllum,
síðan Reykjanesbraut.
„Við gerum okkur grein fyrir
vandamálinu og reynt verður að
leysa það á farsælan hátt. Það átti
að vera búið að skila nikkelsvæð-
inu. Þar er jarðvegsmengun og
deilur um þrjú atriði, en það er að
koma að því að svæðið verði
hreinsað og afhent,“ sagði Ellert
Eiríksson bæjarstjóri.