Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995 9 Utlönd Frakkland: Tíu fórust í f lugslysi Tíu manns fórust þegar lítilli þotu hlekktist á á Le Bourget-flugvellin- um í norðurhluta Parísar á fóstudag- inn. Vélin, sem var af gerðinni Falc- on 20, var með sjö farþega innan- borðs en þrír voru í áhöfninni. Slysiö átti sér stað skömmu eftir flugtak en svo virðist sem eldur hafi kviknaði í hreyflinum með fyrr- greindum afleiðingum. Þá er jafnvei talið að fuglahópur hafi farið í hreyf- ihnn. Flugmaðurinn reyndi árang- urslaust að snúa vélinni sem skall niður á flugbrautina. Þrátt fyrir að sextíu slökkviliðs- menn flýttu sér að þotunni fengu þeir ekkert að gert, slíkar voru eld- tungurnar. Reuter aítarskóli 1/rX. Ai.n/fl: ÖLAFS GAUKS Síöasta innritunarvika Skemmtilegt nám, jafnt fyrir algera byrjendur og þá sem eitthvað kunna fyrir sér. Enn er pláss bæði fyrir eldri og yngri byrjendur. Sértímar fyrir fullorðna. Hægt að fá gítara leigða heim gegn vægu gjaldi (kr. 1000 á önn). Innritun i síma 552-7015 kl. 14-17 daglega. Stuttar fréttir 5000látnir Tala látinna eftir náttúruham- farirnar í Kobe er nú komin í 4.981. 200 er enn saknað. Barist i Grosni Um helgina var enn barist í Grosní í Rússlandi. Ekki er vitað um mannfall. Hankserbestur Tom Hanks heldur áfram ; að sópa til sín verðlaunum. Um helgina fékk hann Golden Globe- verölaunin fyr- ir frammistöðu sína í Forrest Gump en myndin var einnig valin sú besta. Ráðhenra skorinn upp Finnski utanríkisráðherrann, Heikki Haavisto, gekkst undir aðgerð um helgina. Líðan hans er eftir atvikum. Umferðarslys í Kólumbíu Þrettán létust í norðurhluta Kólumbíu þegar rúta og tankbíll rákust þar saman snemma í gær- morgun. Verkfall meðlagsgreíðenda Meðlagsgreiðendur á Spáni ætla í verkfall. Þeir segja að mak- ar sinir séu komnir í sambúð og finnst gjaldheimtan óréttmæt. Rekinn f yrir skoðanir Þúsundir Evrópubúa hafa mót- mælt brottrekstri Vatikansins á frjálslyndum biskupi en hann er m.a. hlynntur notkun smokka. Sprengjutllræði viðráðherra Fyrrv. ráöherra í Þýskalandí var sýnt sprengjutilræði um helgina. Engan sakaði. Áfram viðræður Stjóm ísraels hefur ákveðið að halda áfram viöræöum við PLO þrátt fyrir atburðina í Jerúsalem í gær. Morðin hafa sett auk- inn þrýsting á Yitzhak Rabin forsæt- isráðherra Israels. ÓveðuriFrakklandi Mikið óveður gekk yfir vestur- hiuta Frakklands um helgina og þurftu margir að yfirgefa heimili sín. Reuter Hefiir þú lent í árekstri viö tryggingarfélagið þitt? Bónustrygging Skandia tryggir þig fyrir slíkum árekstrum. i Með því að hafa einhveijar þijár af eftirtöldum tryggingartegundum í gildi hjá Skandia ert þú komin(n) með Bónustryggingu: Ábyrgöartrygging ökutækja • Kaskótrygging ökutækja Húseigendatrygging • Heimiiistrygging Kostir Bónustryggingar eru augljósir: V' Þú fellur ekki um bónusflokk við fyrsta tjón í ábyrgðar- eða kaskótryggingu! V' Bónus vegna ábyrgðar- og kaskótryggðra ökutækja lækkar aðeins urn einn bónusflokk við annað tjón! V' Þú átt rétt á alhliða tjónaþjónustu utan venjulegs afgreiðslutíma, þar sem séð er um útköll á viðeigandi þjónustuaðilum. V" Ef tjón er metið meira en 30% af kaupverði kaskótryggðrar bifreiðar, innan við 9 mánuðir eru liðnir frá nýskráningu og aksturinn er innan við 10.000 km, er bifreiðin borguð áborðið á verði nýrrar af sömu tegund! V' Bílaleigubíll í allt að 5 daga (500 km akstur) verði kaskótryggð bifreið óökufær vegna bótaskylds tjóns. Sérkjör Bónushafa - tværgóðar tryggingar á sérkjörum: Ferðasjúkra- og farangurstrygging fyrir alla fjölskylduna allt árið, aðeins kr. 1.599. Ohappatrygging vegna tjóna á lausafé sem tilheyrir fjölskyldunni, aðeins kr. 4.999. Hvað gerir tryggingarfélagið þitt fyrir þig? BÓNUS-réttindi Skandia tryggja þér meiri rétt, meiri þægindi og minni útgjöld! Skandia - Ilfandi samkeppni á tryggingamarkaöi. ^era i saitiA 61 V *. uo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.