Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995 Jóhann Gunnar Bergþórsson. Jóla- bókin í ár „Það er alrangt að ég fái eitt- hvað fyrir að draga mig í hlé úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Ég er margbúinn að segja það. Það er ekkert inni í myndinni að ég ger- ist forstjóri íslenskra aðalverk- taka eða fari til Víetnams. Það er ágætt að taka sér frí eftir 16-20 tíma vinnu á sólarhring sjö daga vikunnar síðustu ár,“ segir Jó- hann Gunnar Bergþórsson, fyrr- verandi forstjóri Hagvirkis- Kletts, en hann segist nú vera að skrifa sögu verktakafyrirtækja sinna og að það verði jólabókin í ár. Ógleymanleg og ólýsanleg tilfinning „Við mokuðum skurð neðan frá miðju flóðinu þar sem mjólkur- kútur fannst og unnum okkur Uminæli svo alla leið upp eftir, tugi metra. Maður var nýbúinn að horfa á atburðina í Súöavík og ímyndaði sér ekki að sömu atburðir myndu gerast þarna. Klukkan um átta um morguninn stakk ég hendinni inn um glufu. Mér fannst ég sjá eitthvað. Þá var gripið um hönd- ina á mér. Ég vissi að það var Unnsteinn. Þetta var ógleyman- leg og ólýsanleg tilfmning," sagði Stefán Oddsson, oddviti Reyk- hólahrepps, í DV á fóstudaginn. Hann var einn þeirraörþreyttu leitarmanna sem fundu feðgana Ólaf Sveinsson frá Grund, átt- ræðan, sem lést, og son hans, Unnstein, 37 ára, á lífi, undir snjófljóði sem féll á útihúsin við bæinn. Ömurleg aðkoma „Aðkoman var ömurleg. Við sáum bókstaflega ekkert en síðan gengum við fram á nautgripina með aðeins höfuöið upp úr snjó- flóðinu. Einn gripurinn var að- eins með hálft höfuðið upp úr. Þetta var fyrir neöan fjósið. Fyrst vissum við ekki að manna var saknað - bara að snjóflóð hefði fallið á fjárhús. Við sáum aldrei neitt af kindunum sem höfðu lent í flóðinu en það var hey úti um allt og kafsnjór og svo þessi þreif- andi bylur. Við rétt stóðum af okkur hryðjurnar," sagði Skarp- héðinn Ólafsson, skólastjóri Reykhólaskóla, sem var einn af fyrstu hjálparmönnum á vett- vang við útihúsin aö Grund í Reykhólahreppi. Dylgjur í skjóli þinghelgi „Dylgjur framkvæmdastjóra Verslunarráðsins um sukk, svín- arí og mútuþægni starfsmanna ÁTVR eru viðhafðar í skjóli þing- helgi,“ segir m.a. í kjallaragrein Kristjáns Helgasonar, form. Starfsmannafélags ÁTVR, í DV á fostudaginn. í sömu grein segir Kristján þetta: „Starfsmannafélag ÁTVR fagnar allri umræðu um áfengis- mál og starfsemi fyrirtækisins en frábiður sér óvandaða og lág- kúrulega umfjöllun að hætti Vil- hjálms Egilssonar. Vonum við að Vilhjálmur gefi sér tíma til að leita réttra upplýsinga áður en hann skrifar næstu blaðagrein." Dregur úr norð- austanáttinni Eftir allhvassa norðaustanátt í nótt dregur töluvert úr norðaustanáttinni Veðriðídag þegar líður á morguninn og þegar fer að liða á daginn verður kominn kaldi eða stinningskaldi um mestallt land. Heldur mun kólna í veðri fyrst vest- anlands. Á höfuðborgarsvæðinu verður norðaustan kaldi -í fyrstu og að mestu skýjað en að mestu úr- komulaust. Hitinn verðir 0 til 3 stig. Sólarlag í Reykjavík: 16.45 Sólarupprás á morgun: 10.32 Síðdegisflóð í Reykjavik: 23.07 Árdegisflóð á morgim: 11.31 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri slydduél 2 Akurnes skýjað 5 Bergsstaðir súld 0 Bolungarvík alskýjað -1 Keílavikurtlugvöllur skýjað 1 Kirkjubæjarkla ustur alskýjað 4 Rauiarhöfn alskýjað 2 Reykjavík skýjað 2 Stórhöfði skýjaö 2 Bergen þrumuveð- 1 ur Helsinki léttskýjað -6 Kaupmannahöfn þokumóða 2 Stokkhólmur skýjað 1 Amsterdam skúrir 5 Berlín Þokumóða 1 Frankfurt rigning 4 Glasgow skúrir 2 Hamborg skýjaö 5 London skýjað 5 LosAngeles rigning 11 Lúxemborg skýjað 3 Maiiorca skýjað 7 Montreal alskýjað 1 New York rigning 5 Orlando alskýjað 7 París hálfskýjað 9 Róm hálfskýjað 12 Vín þokumóöa -5 Washington alskýjað 5 Ragnar Öm Pétursson útvarpsstjóri: Við erum með góða dagskrá „Ein af ástæðunum fyrir því aö við félagamir ákváðum aö kaupa þessa útvarpsstöð er að við teljum að það sé grundvöllur fyir svæöis- útvarpsstöð. Við erum með góða dagskrá og teljum að hún gefi stærri útvarpsstöðvunum ekkert eftir. Suðumesjamenn hafa greiö- an aðgang að útvarpinu og þar er tekið á þeirra rnálurn," segir Ragn- ar Öm Pétursson, útvarpsstióri á útvarpsstöðinni Bros í Keflavik. Maður dagsins Ragnar Öm og félagar hans, Ró- bert Róbertsson og Jóhannes Högnason, tóku við rekstrinum fyrir réttri viku en stöðin er 2% árs. Ragnar Örn hefur áður komið nálægt útvarpi en hann hefur verið fréttaritari Rikisútvarpsins á Suð- umesjum frá 1985. Fimm árum áður var útvarpsstjórinn þó farinn að vinna hjá RÚV. „Ég byrjaði hjá Ríkisútvarpinu 1980 og var þá í hlutastarfi sem íþróttafréttamaður á móti Hermanni Gunnarssyni. Eftir að hann hætti fór ég í fiillt starf en siðan kom að því ég þurfti Ragnar Örn Pétursson. að taka ákvörðun um að flytja til Keflavíkur og halda þar áfram veit- ingarekstri,“ segir Ragnar Örn og gerir því skóna að hann væri enn íþróttafréttamaður hefði þessi ákyörðun ekki verið tekin. Útvarpsstjórinn, sem er lærður bæöi sem þjónn og framreiðslu- meistari, var veitingamaður frá 1975 og i Keflavík frá 1983 en hann lét af þeim störfum á gamlársdag. Ragnar Örn var bæöi með vínveit- ingahús í Keflavík og veítinga- rekstur í Flugstöðínni. Hann segir aö hugurinn sé nú við útvarpið en þaö finnst honum vera skemmti- legasti fjölmiðillinn. Útvarpsstjórinn hefur verið formaður íþróttabandalags Kefla- víkur en ætlar að láta af því hlut- verki í vor eftir sjö ár í starfinu. Hann er einnig formaður íþrótta- ráðs sameinaða sveitarfélagsins en hafði áöur setið í íþróttaráðinu í Keflavík i mörg ár. Þegar kemur að áhugamálum þarf Ragnar Örn ekki að hugsa sig lengi um. „Það eru íþróttir og fréttir og á sumrin skrepp ég líka í laxveiði með hópi sem er þekktur undir nafninu „Upp og niður gengið". Leyndardómur- inn á bak við hópinn er meiri en á bak við Frímúrararegluna.“ Ragnar Öm er fæddur i Reykja- vik en hefur verið búsettur 1 Kefia- vik frá 1985. Konan hans heitir Sig- ríður Sigurðardóttir og eiga þau tjögur börn. Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesj- um Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Rólegt á íþrótta- sviðinu Óvenju rólegt er um að litast á íþróttasviðinu hér innanlands í kvöld. íþróttafólkið hafði i nógu að snúast um helgina en þá voru íþróttir fjölmargir leikir á dagskrá í körfuknattleik, handknattleik og blaki. Sennilega eru því margir fegnir að fá frí í kvöld. Samkvæmt Handknattleiksbók HSÍ er aðeins skráður einn leikur í kvöld en þaö er viðureign Fylk- is og Gróttu í meistaraflokki B en leikurinn verður i Austur- bergi og hefst kl. 20. í 1. deild kvenna í körfubolta mætast ÍS og Grindavík í fþrótta- húsi Kennaraháskólans og í ungl- ingaflokki leika Haukar og ÍR í Hafnarfirði. Blakmenn taka sér hins vegar alveg frí í kvöld. Skák Þessi staða er frá opna mótinu í Gron- ingen um áramótin þar semstórmeistar- inn Alexander Snejder frá Úkraínu varð hlutskarpastur. Mikhail Tseitlin frá ísra- el stýrir hvítu mönnunum gegn Salazar frá Chile. Hvað leikur hvítur? 24. Bxg6! Kxg6 25. Hg3+ Kh6 26. De2! Nú er svartur varnarlaus gagnvart íjöl- mörgum hótunum hvíts. Aðalhótunin er rnát á h5. 26. Hfö 27. Hxe6 +! H66 28. Hh3+ Kg7 29. He7+ Hf7 30. HxH+ Dxf7 31. Ðe5+ og svartur gafst upp. Jón L. Árnason Bridge Suður verður að vanda sig í úrspilinu ef annar hvor láglitanna skyldi liggja illa í þessu spili. Vestur spilar út hjartaás, en sagnir gengu þannig, suður gjafari: * ÁD982 9 D76 ♦ KG9 + 53 ♦ 63 9-- ♦ ÁD1086 + ÁKD642 Suður Vestur Norður Austur 1+ IV IV 4V 54 pass 6V p/h Spilið væri ekki vandamál ef báðir láglit- anna höguðu sér vel og spilið er jafnvel ekki vandamál ef tigullinn liggur 4-1. Vandamálið snýst um hvort laufiö liggur 4-1. Sagnhafi trompar útspilið heima, spilar tígli á níuna, laufi á ás, spilar tígli á gosann og síðan aftur laufi. Engu máli skiptir hvað austur gerir. Ef hann tromp- ar getur sagnhafi tekið trompin af and- stöðunni, hent fjórum spöðum í blindum í frílauf og trompað spaða með þriðja trompi blinds. Ef austm- trompar ekki trompar sagnhafi lauf með háum tígli, trompar sig heim á hjarta og á a.m.k. 12 slagi án spaðasvíningar. Spilið var allt þannig: ♦ ÁD982 ♦ G7 9 D76 ♦ KG9 + 53 ♦ K1054 9 ÁKG95 9 108432 ♦ 54 ♦ 732 + G987 * 63 9-- + 10 ♦ AD1086 + ÁKD642 ísak Örn Sigurðsson Toppönd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.