Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Síða 13
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
13
Fréttir
Kosningalagabreytingin fallin á tíma:
Mjög litlar breytingar
gerðar að þessu sinni
- vaxandi áhugi hjá öllum flokkum fyrir persónubundnum kosningum
að í öllum stjórnmálaílokkunum
sé vaxandi áhugi fyrir því að leggja
mikla vinnu í umtalsverða framtíð-
arbreytingu á kosningalögunum í
stað þess að vera að krukka eitt-
hvað smávegis í kosningalögin. í
því sambandi horfa menn mjög til
þess að auka hér persónukjör. Það
eykur áhrif kjósenda á uppröðun á
lista og losar flokkana við erfið
prófkjör. Menn benda á að próf-
igörin eins og menn þekkja þau hér
skilji eftir sig svo mikil sár innan
flokkanna að ekki sé lengur við
þetta unandi.
Nú er að verða ljóst að engra
umtalsverðra breytingar er að
vænta á kosningalögunum á þessu
þingi. Til þess er tíminn orðinn allt
of naumur. Enda þótt þeir nefndar-
menn kosningalaganefndarinnar
sem DV ræddi við vilji lítið segja,
og ekkert undir nafni, er ljóst að
eina breytingin sem verður á kosn-
ingalögunum er að jöfnunarþing-
sætið, sem kallað er „flakkarinn“
færist til Reykjavíkur og verður
fest þar. Það er hægt að gera án
stjórnarskrárbreytinga. Þá benda
menn á að eitt þingsæti hafl þegar
verið flutt frá Norðurlandskjör-
dæmi eystra í Reykjaneskjördæmi.
Þetta þýði samtals tvö þingsæti til
R-kjördæmanna og að það verði
látið nægja að þessu sinni.
Sigbjörn Gunnarsson, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, á að
vísu ekki sæti í kosningalaganefnd-
inni en hann benti á að kratar vildu
stíga skreflð til fulls í þessu máli.
„Með einhverri sýndarmennsku-
jöfnun nú, því að auka jöfnuðinn
örlítið, óttumst við að málið muni
tefjast endanlega. Menn muni láta
þar við sitja í allmörg ár og nauð-
synleg skref til alvörujöfnunar
verði ekki stigin," sagði Sigbjörn.
Einn nefndarmanna, sem DV
ræddi við, sagðist telja það meira
en litla bjartsýni að reikna með því
að einhverjar umtalsverðar kerfis-
Tvö þingsæti færast suður til
Reykjavíkur og Reykjaness í vor.
breytingar næðu fram að ganga í
þessari lotu. Til þess væri tíminn
orðinn allt of naumur.
Hann sagðist telja það viturlegast
í stöðunni nú að taka saman þá
vinnu sem nefndin hefur unnið og
hann taldi góða miðað við hvað
tíminn hefur verið naumur. Reyna
síðar að ná samkomulagi um það
hvernig flokkar gengju frá starflnu
í þessum málum á næsta eina til
eina og hálfa árinu. Það þýddi í
raunar að stjórnarskrárbreyting
vegna jöfnunar atkvæðavægis
myndi dragast í 8 ár. Stjórnar-
skrárbreytingu verður að sam-
þykkja á tveimur þingum.
Þá hefur DV heimildir fyrir því
Þróun launavísitölunnar 1991 - 1994
ársmeðaltöl miðaö viö laun á mánuði*-
120
□ Vísit. launa á alm. markaði
I Vfsit. launa opinb. stm. og
bankam.
'90 '91
Samkv. gögnum frá Hagstofu íslands
Gylíi Ambjömsson, hagfræðingur ASÍ:
Fjármálaráðherra stóð
ekki við þjóðarsáttina
„Útreikningar Hagstofunnar stað-
festa að fjármálaráðherra hefur ver-
ið að hækka laun opinberra starfs-
manna umfram það sem hefur verið
í samningum á almenna vinnumark-
aðinum. Að því leytinu hefur hann
ekki staðið við þjóðarsáttarsamning-
inn sem við gerðum fyrir tveimur
árum. Þetta kemur hins vegar ekki
á óvart enda héldum við þessu fram
í fyrra,“ segir Gylfi Arnbjömsson,
hagfræðingur Alþýðusambandsins.
Hagstofan hefur sent frá sér leið-
rétt yfirlit yflr þróun launavísi-
tölunnar frá því í ársbyrjun 1990. í
yfirlitinu er að finna sundurliðun
yfir þróun launa á almenna markað-
inum annars vegar og hjá opinberum
starfsmönnum og bankamönnum
hins vegar. Samkvæmt því hafa laun
opinberra starfsmanna og banka-
manna hækkað tæplega 3,6 prósent
meira en laun landverkafólks frá því
í ársbyrjun 1990 tfl ársloka 1994.
„Þessi tafla var birt í fyrra með
smáskekkju. í bréfi sem við fengum
lýsti Hagstofan því yfir að hún myndi
framvegis birta ársfjóröungslega
þessa sundurliðun milli almenna og
opinbera markaðarins. Þetta stað-
festir einfaldlega það sem við höfum
verið að segja. Það hefur orðið veru-
legur munur í launaþróuninni."
Gylfi bendir á að í nýgerðum kjara-
samningi sjúkraliða hafi fengist í
gegn ákvæði um að gerðardómur
úrskurðaði um hvort tilefni væri til
launahækkunar vegna samninga
sem væru umfram þá sem gerðir
voru á almenna markaðinum. Niður-
staðan hafi verið 3,5 prósent launa-
hækkun. „Það er skemmtilega nærri
því sem kemur fram hjá Hagstof-
unni,“segirGylfi. -kaa
Selfoss:
Nýr stöðvarstjóri P&S
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Ragnar Kristinn Helgason, 58 ára,
hefur verið settur stöðvarstjóri Pósts
og síma hér á Selfossi og tók við starf-
inu 2.janúar sl. Eiginkona hans er
Arnheiður Jónsdóttir.
Við Selfossbúar vonumst til að
Ragnar Kristinn veiti eins góða og
fullkomna þjónustu og forveri hans
í starfi, öðhngurinn Baldur Böðvars-
son. Ragnar Kristinn stöðvarstjóri
kemur hingað á Selfoss frá Akranesi
en var þar áður á Húsavík.
T«pP *0 VHmU-Ga
ÍSLENSKI LISTINN ER BIRTUR í DV Á HVERJUM LAUGARDEGI OG SAMA
DAG ER LISTINN FRUMFLUTTUR Á BYLGJUNNI FRÁ KL.16-19. BYLGJAN
ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGSKVÖLDUM MILLI KL. 20-23.
Kynnir: jón Axel Ólafsson
MARKADSDC LD v.-.r P A “VLOJUNHAR, DV OO COCA-COLA A ÍSLANDI. LlSTINN ER NIÐURSTADA SKODANAKÖNNUNAR SEM ER FRAMKVÆMD AP
SVAHENDA ER Á BILINU 300 TIL 400. Á ALDRINUM 18-33 ÁRA AF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEKIÐ M.D AF OENO. LAOA
Á ERLENDUM VINSÆLDARLISTUM OG SFILUN ÞEIRRA A ÍSLENSKUM UTVARPSSTÖOVUM. ÍSLENSKI LISTINN B.RTIST Á HVERJUM LAUOARDEOI I DV OO ER FRUMFLUTTUR
w. a.mww. w... 16.00 SAMA DAO. IsLENSKI LISTINN TEKUR ÞÁTT I VALI "WORLD CHART" SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO CXPRESS í LOS ANOELES. ClNNIO HEFUR HANN
BIRTUR ER I TONLISTARBLAOINU MUSIC & MEOIA SEM ER REKIO AF BANDARlSKA TÓNLISTARÐLAOINU DILLDOARD.
F Á EVRÓPULISTANN S