Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1995, Page 17
MÁNUDAGUR 13. MARS 1995
17
Anna Margrét Jóhannesdóttir, verkefnisstjóri hjá Ungmennafélagi íslands.
DV-mynd S
mwm.
Umhverfisverkefni Ungmennafélags íslands:
llmhverfið í
okkar höndum
- bætt umgengni við hafið, strendur, ár og vötn
„Allt frá stofnun Ungmennafélags
íslands árið 1907 hefur það starfað
að ræktun lýðs og lands. Umhverfis-
mál eru stór hluti af starfsemi hreyf-
ingarinnar. Á undanfórnum árum
höfum við staðið fyrir fjölmörgum
átökum á þessu sviði. Nú ætlum viö
að einbeita okkur að bættri um-
gengni viö hafið, strendur, ár og vötn
landsins. Umhverfið verður bókstaf-
lega í okkar höndum," segir Anna
Margrét Jóhannesdóttir, verkefnis-
stjóri hjá Ungmennafélagi íslands.
UMFI efndi til málþings nýverið
þar sem kynnt var átak hreyfingar-
innar á sviði umhverfismála. Yfir-
skrift verkefnisins, „Umhverfið er í
okkar höndum", er bætt umgengni
við hafið, strendur, ár og vötn lands-
ins. í aprfi og maí næstkomandi
verða haldin fræðsluþing á vegum
hreyfingarinnar víðs vegar um land-
ið en sjálft hreinsunarátakið hefst 5.
júní á alþjóðlegum umhverfisdegi
Sameinuðu þjóðanna. Samstarfsaðil-
-ar UMFÍ í þessu verkefni eru um-
hverfisráðuneytið, bændasamtökin
og Samband íslenskra sveitarfélaga.
„Hreinsunarátakið er hugsað sem
víðtæk aðgerð í umhverfismálum
undir forystu ungmennafélaga í sam-
starfi viö samstarfsaðila verkefnis-
ins um allt land. Við stefnum að því
að hreinsa sem mest í fiörum lands-
ins og á vatns- og árbökkum. Ætlun-
in er aö skrá niður hversu mikið og
hvers konar rusl safnast saman á
hverjum stað því þannig getum við
gert okkur betur grein fyrir hvaðan
rusliö kemur,“ segir Anna Margrét.
Alls eru starfandi 270 ungmennafé-
lög á landinu og eru félagsmennirnir
um52þúsund. -kaa
Starfsmenn atvinnusmiðjunnar talið frá vinstri Gerða Bjarnadóttir, Benja-
min Jósefsson, Aðalsteinn Huldarsson, Július M. Þórarinsson og Guðrún
Gísladóttir. DV-mynd Garðar
Akranes:
Atvinnusmiðja sett á fót
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Fimm starfsmenn hafa verið ráðnir
til starfa í svonefndri atvinnusmiðju,
nýjung sem komið hefur verið á fót
á Akranesi. Hlutverk þeirra verður
að stuðla að sköpun nýrra starfa.
Fimmmenningarnir, sem hafa verið
atvinnulausir um skeið, eru ráðnir
til minnst 2ja mánaða og eftir mánuð
er ráðgert að meta árangurinn.
Brynja Þorbjömsdóttir atvinnu-
fulltrúi segir þetta tilraun sem ekki
hafi verið gerð hér áður. Fyrirmynd-
in er erlend en hefur verið þróuð
frekar hér. Smiðjan nýtur styrks frá
atvinnuleysistryggingasjóði og bær-
inn greiðir hluta launakostnaðar.
Fimmmenningarnir fá um 300 krón-
ur á tímann eða talsvert minna en
nemur lægstu launum hjá bænum.
Firéttir
KosningastefnuskráFramsóknarflokksins:
Ætla að skapa
12 þúsund ný
störf næstu ár
- framsóknarmenn segjast ætla að lengja húsnæðislánin úr 25 í 40 ár
Framsóknarflokkurinn kynnti í
gær kosningastefnuskrá sina fyrir
komandi Alþingiskosningar. Af þeim
verkefnum sem Framsóknarflokk-
urinn telur vera brýnust fram til
aldamóta má nefna að skapa 12 þús-
und ný störf á vinnumarkaðnum.
Framsóknarmenn vilja örva fiár-
festingu með skattaívilnunum til fyr-
irtækja og einstaklinga. Veita einn
milljarði til nýsköpunar í atvinnulíf-
inu. Breyta Iðnlánasjóði í áhættu-
lánasjóð. Efla kynningu erlendis á
fiárfestingarmöguleikum hér á landi.
Endurskipuleggja utanríkisþjón-
ustuna svo hún þjóni betur íslensku
athafnalífi. Sameina starfsemi
Byggðastofnunar, Atvinnuleysis-
tryggingasjóð og atvinnuráðgjafa.
Gefa nýjum fyrirtækjum kost á sér-
stökum afslætti á orku fyrstu starfs-
árin og starfandi fyrirtækjum líka,
auki þau orkunotkun til aukinnar
framleiðslu. Auka hagvöxt um 3 pró-
sent á ári og eyða fiárlagahallanum
og skapa svigrúm upp á 4-5 milljarða
til lífskjarajöfnunar, nýsköpunar at-
vinnulífsins og aukinna útgjalda til
menntamála.
Slagorð flokksins í kosningabarátt-
unni er Fólk í fyrirrúmi. Framsókn-
armenn segjast munu setja lög um
greiðsluaðlögun til hjálpar fólki í
langvarandi greiðsluerfiðleikum.
Húsnæðisstofnunin fái nýtt hlutverk
sem ráðgjafar- og endurreisnarstöð
heimilanna. Grípa til víðtækra
skuldbreytinga sem fela í sér að vöxt-
um og/eða lánstíma sé breytt, skuld
sé lækkuð eða fryst um tíma á meðan
fólk leitar lausnar á tímabundnum
erfiðleikum sínum. Þá ætla fram-
sóknarmenn að lengja húsnæðislán-
in úr 25 árum í 40.
Halldór Ásgrímsson, formaöur
Framsóknarflokksins, sagði að hjá
Framsóknarflokknum væri aðildar-
umsókn að Evrópubandalaginu ekki
á dagskrá og yrði það ekki fram til
aldamóta í það minnsta. Hann sagði
að það myndi kosta íslendinga á milli
4 og 5 milljarða króna á ári að vera
í ESB. Eitthvað af því kæmi til baka
í styrkjum og þar með væri styrkja-
kerfið endurvakið á islandi. „Það
vilja framsóknarmenn ekki,“ sagði
Halldór Ásgrímsson.
-Blu>H0^6 mf::
Úrval
notaðra
bíla
Félag Löggiltra Bifreiðasala
Opel Astra 1,4 GL station '95, nýr
bill, ekinn aöeins 1 þús. km, sjálfsk.,
ath. skipti á ód. Verö 1.550 þús.
VW Vento 2,0 GL '94, glæsilegur,
ek. aðeins 8 þús. km, beinsk., álf.,
toppl., skipti á ód. Verö 1.650 þús.
Nissan Sunny 2,0 GTI '93, glæsil.,
ek. aöeins 23 þ. km, ath. sk. á ód.
V. 1.350 þús. Ennfremur aðrar árg.
Toyota Corolla 1,3 XL '91, ek. aðeins
40 þ. km, ssk. V. 800 þ. Einnig '92,
ek. 40 þ. km, og aörar árg.
Nissan Sunny 1,6 SLX '92, ek. 50
þús. km, sjálfsk., ath. skipti á ód.
Verö 960 þús. Ennfremur aörar árg.
Golf 1800 CL '92, ekinn aðeins
36 þús. km. Verð 940 þús.
Subaru Legacy 1,8 station '91, ekinn
aðeins 34 þús. km, beinsk. Verö
1.370 þús. Ennfremur aðrar árg.
Ford Explorer XLT '91, ekinn 91
þús. km, beinskiptur, skipti á ód.
Góð kjör. Verð 2.600 þús.
MMC Galant 2000 GLSI '92, ekinn
aöeins 33 þús. km, sjálfsk., álfelgur,
hlaðinn aukahl., ath. skipti. Verð
1.450 þús. Ennfremur aðrar árg.
Nissan Pathfinder 3,0, V6 '92, ekinn
44 þús. milur, sjálfsk., vel útbúinn,
skipti á ód. blfreið. Verð 2.680 þús.
Ennfremur árg. '93-’94.
Nissan Cedric '85, ekinn 408 þús.
km, sjálfsk. Verö 590 þús.
Chevrolet Caprice Classic Broug-
ham '88, ekinn aðeins 51 þús. km,
vel útbúinn bill, ath. skipti á ód. bif-
reið. Verð 1.320 þús.
Gífurlegt úrval bílaáskrá,ýmisskipti og kjör
&
« Höfum kaupanda
boboahbilasalan^HS
Grensásvegi 11, sími 588-5300 árg. isbb, sjáifsk.