Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Side 19
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995
19
Fréttir
Norðmenn búa sig undir stórsókn íslenskra togara í Smugunni í sumar:
Verðum að taka
10% af kvótanum
- segir Olav Godö, fiskifræðingur við Hafrannsóknarstofnunina í Björgvin
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Það er augljóst að ef íslendingar
ætia að halda svona áfram verðum
við aö minnka okkar eigin kvóta um
10 prósent," segir Olav Godö, fiski-
fræðingur við Hafrannsóknarstofn-
unina í Björgvin, í samtali við DV.
Norðmenn búa sig nú undir stór-
sókn íslenskra togara í Smuguna í
sumar. Ganga menn út frá því sem
vísu að Smuguaflinn verði ekki
minni en á síðasta ári. Þá voru veidd
í það minnsta 60 tonn af þorski utan
kvóta í Barentshafi.
„Þetta er allt sami fiskurinn. Ef
íslendingar halda áfram veiöiþjófn-
aði í Smugunni bitnar það á kvótun-
um sem norskir og rússneskir togar-
ar hafa í Barentshafi. Það eru sjó-
menn frá þessum löndum sem taka
út refsinguna fyrir veiðiþjófnaöinn,"
sagði Olav.
Olav sagði að Norðmenn hefðu
vonast eftir auknum kvóta næstu tvö
til þrjú árin en sú von væri nú úr
sögunni. Þorskstofninn væri að vísu
sterkur en ekki svo að hann þyldi
ótakmarkaðar veiðar, sérstaklega
ekki þegar um smáfisk væri að ræða.
„Nú óttumst við einnig aö fleiri
þjóöir, sérstaklega Spánverjar, sendi
skip sín í Smuguna. Það gæti hæg-
lega leitt til algers hruns í þorsk-
stofninum, líkt og farið hefur fyrir
þorski og grálúðu við Núfundna-
land,“ sagði Olav.
Enn er bara einn togari í Smug-
unni. Þar er Sankta Princessa, port-
úgalskur togari, skráður í Belís. Að
sögn John Espen Lien, hjá norsku
strandgæslunni, hefur togarinn legið
aðgerðalaus á miðunum frá því hann
kom.
Mjúkar leðurtöfflur
með bólstruðum innleggsmótum
Teg.
781-01
st. 36-46, svartar
Verð frá 3.840
Teg.
781-02
st. 36-41, hvítir
Kr. 3.840
Teg.
2782
st. 36-41, hvítir
Verð frá kr. 3.840
Fást með tveimur hælahæðum
með/án sérlega stömum sóla.
Tréklossar í úrvali
Glæsiskórinn
Glæsibæ, s. 812966
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Akureyri:
Háskólinn fékk Sólborg
- þrátt fyrir veðurteppta ráðherra
Gylfi Krisljáiisson, DV, Akureyii:
Háskólanum á Akureyri voru um
helgina afhent formlega húsakynni
vistheimilisins að Sólborg en starf-
semi skólans mun flytjast þangað á
næstu árum.
Erfiðlega gekk fyrir ráðherrana,
sem hugðust undirrita skjöl um af-
hendinguna, að komast til Akur-
eyrar. Rannveig Guðmundsdóttir fé-
lagsmálaráðherra, sem hugðist af-
henda byggingarnar varð veðurteppt
eins og Olafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra sem átti að veita þeim
viðtöku. Fulltrúi Rannveigar var
heimamaðurinn Ólafur Oddsson sem
afhenti Halldóri Blöndal, fulltrúa
Ólafs G„ og Þorsteini Gunnarssyni,
rektor Háskólans á Akureyri, húsin
en til stendur að undirrita afhend-
inguna formlega í Reykjavík.
Skrifstofustarfsemi Háskólans á
Akureyri mun flytjast að Sólborg
strax í haust. Ef áætlanir ganga eftir
hefjast svo byggingarframkvæmdir á
lóðinni á næsta ári og stefnt er að
því að kennsla hefjist í þessu nýja
húsnæði haustið 1996.
Fundur smábátamanna á Reykjanesi:
Smábátar á af la-
marki að þurrkast ut
- neyðarrétti verði beitt gegn kvótakerfi
Smábátaeigendur á Reykjanesi
héldu nýlega fund í Skútunnni í
Hafnarfirði með frambjóðendum í
kjördæminu. Þar kom fram mikil
andstaða trillukarla gegn kvótakerf-
inu og mörgum fyrirspurnum var
beint til frambjóðenda.
Fundurinn samþykkti ályktun þar
sem krafist var breytinga á lögum
um stjóm fiskveiða í samræini við
þær alþjóðasamþykktir sem íslend-
ingar eru aðilar að. I ályktuninni
segir að ljóst sé að smábátar á afla-
marki séu að þurrkast út og vertíöar-
flotinn sé ekki nema svipur hjá sjón.
Þá segir í ályktuninni að verði ekki
farið að kröfum smábátaeigenda
verði orðin ein ekki látin duga í and-
stöðu gegn kvótakerfinu heldur
muni almenn hreyfing fara af stað
sem beita muni neyðarrétti einstakl-
ingsins gegn kvótalögunum.
Tapi snúið í hagnað
Fiskmarkaður Suðurnesja hagn-
aðist um 16,1 milljón króna á síöasta
ári. Þetta eru mikil umskipti frá ár-
inu 1993 þegar fyrirtækið tapaði 9,5
milljónum króna.
Samdráttur varð á síðasta ári í sölu
á þorski sem nemur tæpum 4 þús-
undum tonna. Seld voru um 8.600
tonn af þorski í fyrra á móti 12.600
tonnum árið 1993.
Alls var seldi Fiskmarkaður Suð-
urnesja fyrir tæpa tvo milljarða í
fyrra á móti 1,8 milljörðum árið á
undan. -rt
Kingsley hjónarúm í Queen stærð (152x203cm) með góðri
millistífri dýnu frá Serta, kostar kr. 119.940,- Náttborðið
kostar kr. 23.600,- stk og kommóða með spegli kr. 99.610,-
og stór og mikill kommóðuskápur kr. 64.580,- Við bjóðum
raðgreiðslur til margra mánaða eða staðgreiðsluafslátt.
Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm þá skaltu
líta til okkar og prófa Serta dýnurnar og finna út hvort
þér líkar best millistíf dýna, stíf eða mjúk. Starfsfólk
okkar er sérþjálfað til að veita þér þær upplýsingar sem þú
vilt vita um Serta dýnurnar og að aðstoða þig við val þitt.
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 5871199
;
-Þegar þú vilt sofa vel
\
í tilefni af 300ustu Raynor hurðinni uppsettri ó íslandi
VERKVER
i 1
p '| 1 cr.
bjóöa Raynor og Verkver
nú 15% afslátt af öllum
bílskúrshurðum pöntuöum
fyrir 28. apríl
VerSdæmi: FulningahurS 213 x 244 cm kr* 55.665/~ InnifaliS í verSi eru braufir og þéftilistar.
BYGGINGAVÖRUR
Siðumúla 27, 108 Reykjavik
•B 581 1544 *Fax 581 1545