Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Blaðsíða 28
• 40
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995
Fermingarafsláttur
10% afsláttur á par ef keypt
er á alla fjölskylduna.
Teg.
1068
Teg.
805
Brúnir rú:
st. 36-41
Kr.
Brúnir/beige, Vaxbornir,
st. 25-41 fóðraðir,
Kr. 4.910 3 litir
Kr. 4.550
Glæsiskórinn
Glæsibæ, s. 812966
PÓSTSENDUM SAMD. FRÍTT
Fréttir
Sparisjóður Keflavikur:
Markaðshlutdeild sjóðs-
ins á Suðurnesjum 56,8%
Ægir Mar Kárason, DV, Suöumesjum;
Heildartekjur. Sparisjóðsins í
Keflavík námu 768 miíljónum króna
1994 og heildargjöldin voru 763 millj-
ónir. Hagnaður af rekstrinum var 718
þús. krónur eftir greiðslu skatta.
Framlag til afskriftareiknings útlána
nam 157,5 milljónum.
Heildarinnlán í sparisjóðinn námu
í árslok 1994 rúmlega 4,6 milljörðum
króna og höfðu aukist frá fyrra ári
um 60 millj. króna eða um 1,3%. Ef
útgefnum veðdeildarbréfum er bætt
við nema innlánin um 5,5 milljörð-
um. Ef þannig er reiknað jukust inn-
lán um 153 milljónir eða 2,9%
Innlán í innlánsstofnunum á Suð-
urnesjum námu um áramótin 8,8
milljörðum og ef veðdeildarbréfum
er bætt við námu þau rúmum 9,7
milljörðum. Með veðdeildarbréfun-
um er markaðshlutdeild sparisjóðs-
ins 56,8% á Suðurnesjum.
Eigið fé í árslok nam 450,9 millj.
króna og hafði hækkaö um 21,4 millj-
ónir á árinu. Sparisjóðurinn í Kefla-
vík er með útibú í Njarðvík, Garði
og Grindavík. Á árinu voru 90 starfs-
mönnum greidd laun. Fjöldi banka-
starfsmanna er 67 í 59 stöðugildum
og hefur fækkað um eitt stöðugildi
mifli ára.
Hitaveita Suðumesja:
Mikill hagnaður 10. árið í röð
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Hitaveita Suðurnesja skilaði í fyrra
hagnaði tíunda árið í röð, 247 milljón-
um króna. Velta fyrirtækisins nam
1,8 milljörðum króna. Vatnssalan 1,1
milljarði og raforkusalan skilaði 700
milljónum króna.
Afskrifir voru 543 milljónir og eig-
infé fyrirtækisins er 4,9 milljarðar
króna. Framkvæmdir hitaveitunnar
á síðasta ári námu 469 miflj. króna.
Stærstu eigendur hitaveitunnar
eru sveitarfélögin á Suðurnesjum.
Sameinaða sveitarfélagið Keflavík-
Njarðvík-Hafnir er stærst með 52%.
Hin sveitarfélögin íjögur eiga 28%
og ríkið 20%.
s* -í , .
fl|
Aðgengilegar
upplýsingar
um tilvísanir - fyrir þig
Kominn er út nýr upplýsingabæklingur: Spurningar og svör um
tilvísanakerfið. Þar er að finna greinargóðar upplýsingar fyrir
almenning um þessa nýju tilhögun og hvernig hún verkar. Þá er
bæklingnum ekki síst ætlað að svara mörgum spurningum sem
brunnið hafa á sjúklingum og aðstandendum þeirra uhdanfarnar
vikur og mánuði.
Einnig er fjallað um undirbúning tilvísana og ástæðurnar fýrir
því að þær eru teknar í notkun. Þar kemur m.a. fram að 1993
var skoðun á kostnaðarlegum áhrifum tilvísána falin óháðum aðila,
Verk- og kerfisfrœðistofunni. Niðurstaða hennar er sú að tilvísanir
muni spara ríkinu um 100 milljónir króna á ári og sjúklingum
sjálfúm um 50 milljónir! Að auki hefur Hagfræðistofnun
Háskóla íslands verið falið að fylgjast með áhrifum tilvísana á
kostnað, eftir að þær komast í gagnið 1. maí n.k., og hefur boðið
læknum að fylgjast með þeirri vinnu.
Upplýsingabæklingurinn liggur frammi á heilsugæslustöðvum,
læknastofum, í lyfjaverslunum, hjá samtökum sjúklinga og í
umboðum Tryggingastofnunar um land allt. Ef þú átt óhægt um
vik að nálgast hann þar, býðst þér að hringja í síma (91) 604545
og fá bæklinginn sendan heim, þér að kostnaðarlausu.
Við hvetjum þig til að nálgast bæklinginn og kynna þér máiið!
H HEILBRIGÐIS-QG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN
$7 RÍKISINS
Spurningar og svör um
tilvísanakerfið
(^q stað>
greiðslu-
afsláttur
af öllum
vörum
Krakkarnir á Egilsstöðum eru afskaplega sáttir við allan snjóinn sem kyngt
hefur niður í vetur. Ofan við bæinn, uppi á Fjarðarheiði, hefur verið útbúið
gott skíðasvæði og þangað leitar ungviðið öllum stundum. Eftir leik í brekk-
unum er svo brunað í bæinn á skíðunum niður eftir fjallinu og alla leið
heim. Þeir voru sammála um það að þetta væri æði, strákarnir á mynd-
inni, þeir Alfreð Daníelsson, 8 ára, Hlynur Þór Ásgeirsson, 19 ára, og Hjálm-
ar Jónsson, 8 ára. DV-mynd GVA
^ Til fermingargjafa ^
Listaverkaeftirprentanir
Sérverslun með innrammaðar myndir
eftir ísl. og erl. listamenn
ítalskir rammalistar - Falleg gjafavara
S* J I! \i_TLO Innrömmunarþj ónusta
V Fákafeni 9 - sími 5814370. r