Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Síða 52
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJ0RN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIDSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-S LAUGAflDAGS-OÖ MANUDAGSMOflG NA
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995.
Vestmannaeyj ar:
Kókbfllinn
skemmdist
í haugasjó
... „Það brotnuðu tvær fjaðrir og svo
skemmdist húsið á bOnum að ofan.
Það voru ábyggilega 18-20 keðjur á
honum og það slitnuðu íjórar til
fimm eins og tvinni. Svo lenti bíllinn
náttúriega á öörum bíium því að
hann lamdist til hliðar. Þetta var
versta átt sem hægt var að fá og allir
á dekkinu að reyna að festa bílana
niður,“ segir Sigmar Pálmason, eig-
andi kókbílsins í Vestmannaeyjum.
Nokkrir bílar skemmdust í hauga-
sjó í ferð Herjólfs frá Þorlákshöfn til
Vestmannaeyja á föstudagsmorgun-
inn, þar á meðal var flutningabíll
Sigmars, svokallaður kókbíll. Vind-
áttin var af suðvestan, 11 vindstig og
haugabrim, að sögn Sigmars og tók
. það ferjuna um fimm til sex tíma að
ná til Eyja í stað tveggja og hálfs tíma
venjulega. Flutningabíll Sigmars
skemmdist verulega á leiðinni og tel-
ur hann að tjónið nemi að minnsta
kosti 200 þúsund krónum.
„Það veit enginn hver ber þetta
tjón. Það var sagt við eigendur Toy-
ota-bíla að skipið bæri tjónið og það
hlýtur að gilda það sama um mig,“
segir Sigmar.
-GHS
Margeirá
millisvæðamót
Danski stórmeistarinn Curt Hans-
en varð Norðurlandameistari í skák
í gær með 8,5 af 11 mögulegum. í 2.
sæti varð Margeir Pétursson stór-
meistari með 7 vinninga. Þeir tveir
unnu sér þar með rétt til að taka
þátt í millisvæðamóti HM í skák.
Þriðja sætið í mótinu gefur einnig
rétt til að keppa á millisvæðamótinu.
Átta skákmenn urðu jafnir í 3. sæti
með 6,5 vinninga og verða þeir að
heyja aukakeppni um sætið á milli-
svæðamótinu. Þetta eru þau Pia
Carmling, Svíþjóð, Jonathan Tisdal,
Noregi, Lars Bo Hansen, Danmörku,
Rune Djurhus, Noregi, og íslensku
stórmeistararnir Jóhann Hjartarson
og Helgi Ólafsson.
Slagæðísundur
í slagsmálum
Mikið var um slagsmál í Vest-
mannaeyjum aðfaranótt laugardags.
Slagæð skarst í sundur í handlegg
manns í slagsmálum á veitingastað.
Sauma þurfti vör aðkomumanns eft-
ir að hann lenti í slagsmálum og svip-
aða sögu var að segja af tveimur öðr-
•~*RUm aðkomumönnum. -pp
LOKI
Þetta hefur verið eins og á
huggulegasta landleguballi!
Þúsund tonnum
af baneitraðri
loðnu hent í hafið
„Það er veriö að henda þessu verksmiðjuVestdalsmjölsáSeyðis- athygli manna og verið gagnrýnt
liráefhi í hreinni neyð. Við áttum firði sem lenti í snjóflóði á dögun- að þessari loðnu skuli hafa verið
um tvo kosti að ræða. Annars veg- um. Hluti loðnunnar var unninn hent í hafið. Gestur segir það gamla
ar að grafa þetta eða sökkva þessu hjá SR en um 1000 tonn voru ónýt sögu og nýja að það sé reynt að
í sjóinn. Við fengum til þess nauð- og ákveðið að fara þessa leið til að koma á þá höggi.
synleg leyfi og það var farið með farga henni. Þórður Jónsson, „Það er ákveðnir aðilar hér í
þetta út á sex sjómílur," segir Gest- rekstrarstjóri lijá SR mjöli, segir Seyðisfirði, umhverfissinnar, sem
ur Valgarösson, verkefnastjóri SR að þessi loðna hafi verið orðin ba- hafa setið um okkur og reynt að
mjöls á Seyðisfirði, vegna þúsund neitruð. koma á okkur höggi. Þeir hafa
tonna farms af baneitraðri loðnu „Það heíði riðið hveijum manni vaktað okkur bæði á sjó og landi,“
sem var sett um borð í Ammarsat að fullu á augabragði að fara inn í segir Gestur Valgarðsson. -rt
og siglt með hana á haf út. tankana,“ segir Þórður.
Loðnan var ur tönkum loðnu- Á Seyðisfirði hefur þetta vakið
Hjálparsveitir skáta í Kópavogi og Hafnarfirði fóru inn i Nýjadal á föstudagskvöld til að aðstoða félaga sína úr
öðrum sveitum, sem þar voru staddir, að koma búnaði aftur til byggða. Þeir voru tæpan sólarhring á leiðinni frá
Hrauneyjafossvirkjun og festu bílinn meðal annars i ræsi. Aka þurfti eftir tölvuskjá þar sem glórulaus bylur var
bróðurpart leiðarinnar. í gærmorgun náðu þeir svo í vélsleðana sem Oddur og félagar skildu eftir við snjóhús.
DV-mynd Marteinn Heiðarsson
Veðriðámorgun: Víða * v ■r3/ sv ,3 \ v -4 °r± ▼
bjartviðri -3=0 / V * Aod
Á hádegi á morgun verður norð- an- og norðaustanátt, dálítil él •. J&M *fl O /
norðaustanlands en annars víöa bjartviðri. Frost verður áfram á _1(3 * 0=0
landinu á bihnu 0 til 7 stig. Kaldast
verður í innsveitum. ■2“0.
Veðrið í dag er á bls. 60.
ísagöröur:
Fundurstóð
fram á nóttina
„Þetta er stirt og það hefur ekkert
mjakast í samkomulagsátt í dag,“
sagði Pétur Sigurðsson, formaður
Alþýðusambands Vestfjarða, um
samningafund sem stóð yfir í gærdag
og alveg fram á nótt.
Fulltrúar verkalýðsfélaganna á
Hólmavík, í Súðavík, á Patreksfirði
og Baldurs á ísafirði voru á þessum
sáttafundi.
„Þetta er allt í eðlilegum gangi. Við
verðum að eitthvað fram á nóttina,“
sagði Geir Gunnarsson aðstoðar-
sáttasemjari við DV seint í gærkvöld.
Hann var þó ekki bjartsýnn á að
samningar tækjust um nóttina.
Þessi félög felldu öll kjarasamninga
og hefur Baldur boðað verkfall á
miðnætti 5. apríl næstkomandi og
verkalýðsfélagið á Patreksfirði 10.
apríl næstkomandi.
Banaslys:
Féll á milli skipa
Maður beið bana þegar hann féll á
milli tveggja skipa í Olafsvíkurhöfn
aðfaranótt laugardags. Maðurinn hét
Halldór Páll Stefánsson, til heimilis
að Hásteinsvegi 13 í Vestmannaeyj-
um. Mjög slæmt veður var þegar
slysið varð. Halldór Páll var 46 ára.
-pp
Gistuísnjóhúsi:
Blautt og kalt
Samtals 28 manns, sem ætluðu að
taka þátt í landsæfingu björgunar-
sveita um helgina á hálendinu,
þurftu að gista í skálum í Nýjadal
og snjóhúsi skammt þaðan frá því á
fimmtudag og þar til í gærmorgun.
„Við kláruðum að koma upp verk-
efnum á fimmtudag og vorum á leið-
inni í Nýjadal þegar við hrepptum
mjög slæmt veður. Sleöamir hættu
að ganga vel og skyggnið var ekki
neitt þannig að við ákváðum að bíða
og bjuggum okkur til snjóhús. Það
var í lagi með vistina, nema það var
blautt og kalt því það myndaðist ofsa-
legur raki þarna. Við þurftum til
dæmis að vinda fótin okkar. Annars
sögðu við hver öðrum brandara og
sögur til að stytta biðina,“ segir Odd-
ur Þorsteinsson í Flugbjörgunar-
sveitinni á Hellu.
Oddur og fjórir félagar hans gistu
samtals 18 klukkustundir í snjóhús-
inu eða fram á fóstudagskvöld er fé-
lagar þeirra komu á snjóbíl þeim til
hjálpar.
Þaðan héldu þeir í Nýjadal og komu
þangað tæpum sólarhring seinna en
þeir ætluðu sér. Þar gistu þeir tvær
nætur í glórulausum byl og komust
til byggða aftur undir kvöld í gær. -pp
brothec
tölvu
límmiða
prentari
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443
K__I N G
L#TT#
alltaf á
Miövikudögnm