Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 1995 Spumingin Áttu gæludýr? Kristinn Diego nemi: Nei, en ég fæ bráðum eðlu. Albert Ásvaldsson nemi: Nei, ég má það ekki. Andri örn Arnarson nemi: Nei, en mig langar í hund. Ingibjörg Sigurðardóttir, nemi í Ár- bæjarskóla: Nei, en mig langar í hund og hest. Birgir Óskar Baldursson, nemi í Foldaskóla: Nei, en ég átti einu sinni páfagauka, en þeir dóu. Ægir Amin Hassan, nemi í Flata- skóla: Nei, en mig langar í hund. Lesendur Stjórnmálamenn í uppnámi Framboð Þjóðvaka skemmdi fyrir Alþýðuflokknum að mati bréfritara. HG skrifar: Nú er ljóst að frekara stjómarsam- starf Sjálfstæðisflokks og Alþýöu- ílokks er úr sögunni. Fréttin um þetta kom nánast eins og þruma úr heiðskíru lofti enda héldu örugglega langflestir kjósendur að þeir Davíð, Jón Baldvin og aðstoðarmenn þeirra væra að fara að hefja alvarlegar við- ræður. Talið var að heimsókn kín- verska utanríkisráðherrans hefði tafið fyrir máhnu og haft var eftir forsætisráðherranum að úrshta væri ekki að vænta fyrr en eftir páska. Annað kom heldur betur á daginn og áður en páskarnir vora Uðnir var áframhaldandi samstarf fyrir bí. Þrátt fyrir að Jón Baldvin hafi bor- ið sig mannalega í fjölmiðlum er ljóst að hann er í töluverðu uppnámi út af þessu. Nú getur hann ekki lengur vermt stól utanríkisráðherra og trú- lega verður það hlutskipti Halldórs Ásgrímssonar í næstu ríkisstjórn. Jafnframt hefur formaður Alþýðu- flokksins látið að því Uggja að vinnu- brögð Davíðs Oddssonar og annarra sjálfstæðismanna hafi ekki ein- kennst af heihndum í þessum við- ræðum. Sumir kratar ganga reyndar svo langt að segja þetta hafi bara verið málamyndaviðræður. Aðrir stjórnmálaforingjar virtust Uka undrandi þegar slitnaði upp úr viðræðunum um helgina og það má Uka segja um þá þeir séu í uppnámi. T.d. um formann Alþýðubandalags-. ins. Hann er auðvitað ekki í uppnámi yfir því að viðræður Jóns Baldvins og Davíðs fóra út um þúfur. Nei, Ólafur Ragnar er í uppnámi yfir því að hér verður engin vinstristjórn í bráð. Hann þarf svo sem ekkert aö bíða eftir vorinu en það verður bara ekki vinstravor eins og allaballar hömruðu á í kosningabaráttunni. Hvort Jóhanna Sigurðardóttir og Kristín Ástgeirsdóttir eru í uppnámi er erfiðara að meta. Trúlega er hægt að heimfæra það á Jóhönnu enda var árangur Þjóðvaka í þessum kosning- um miklu lakari heldur en hún átti von á. Þjóðvaki var reyndar í þröngri stöðu eftir að hafa fyrirfram hafnað öllu samstarfi við Sjálfstæðisflokk- inn. Kvennalistakonur hafa líka ástæðu til að vera súrar. Fylgishrun þeirra var algert og allt tal um aö Kvennalistinn kæmi inn og styrkti ríkisstjómina virðist hafa verið plat. Eins og réttilega hefur komið fram virðist sem erfitt sé að ryðja gömlu fjórflokkunum úr vegi. Það hafa heldur ekki komið fram nein ný stjórnmálaöfl sem hafa náð að festa sig í sessi. Klofningsframboðin virð- ast deyja út að nokkrum áram Hðn- um. Þetta veit fólk og þess vegna gekk t.d. Þjóðvaka illa í þessum kosn- ingum. Skammtímaáhrifin eru að skemma fyrir öörum flokkum eins og Alþýðuflokkurinn upplifði. í næstu kosningum munu hins vegar væntalega flestir kjósendur Þjóð- vaka skila sér aftur heim til Alþýðu- flokksins. Ósk um valkost Hildur skrífar: Að afloknum kosningum er ýmsu velt fyrir sér og er þá lýðræði þjóðar- innar krufið í ýmsum hópum og sitt sýnist hveijum. Góður hópur frá A, B, D, G, J og V listum ræddi gildi atkvæða og varð sammála um að misvægi þeirra milli landshluta væri ekki ásættanlegt öllu lengur og yrði að lagfæra. Allir sögöust meö atkvæði sínu leggja inn ákveðin og skýr skilaboð til landsfeðra um hvaða afl og áhersl- ur þeir óskuðu við stjómvölinn en þar væra þeir sem kjósendur svo oft gróflega hundsaðir af pólitíkusum að til skammar væri þar sem fyrir kæmi að flokkur sem þjóöin greinilega hafnaði væri leiddur til stjórnunar. Nú væri gaman að heyra hvað öðram fmnst um þá ósk okkar að fá um það skýran og greinilegan valkost fyrir kosningar hvort áherslan á stjórnun verður fijálshyggja, félagshyggja eða miðjumoð. Við voram sammála um aö upplýst þjóð eins og við erum getum ekki viðhaft þannig vinnubrögð að vilji kjósenda sé alfarið fyrir borð borinn og þessum óbundnum stjórnmála- mönnum og flokkum leyflst að plotta út og suður, óháð úrshtum kosninga. Gaman væri ef DV gerði skoðana- könnun um hvort vilji fólks standi til þess að vita fyrirfram hvers konar ríkisstjórn það óskar eftir, frjáls- hyggja, félagshyggja eða miðjumoð. Hönnunarkröfur glerþaks Ásmundur Ásmundsson hjá verk- fræðistofunni Byggð hf. skrifar: Þann 11. apríl sl. birtist lesendabréf frá Ragnari S. Halldórssyni þar sem hann gerir því skóna að hkja megi Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU) að einhveiju leyti við gróðurhús sem notuð eru til plöntueldis. Nú gengur Ragnar ekki svo langt að hkja nemendum þar við plöntur en hann slær því fóstu aö arkitekt skólans hafi stuðst við sömu hönn- unarkröfur varðandi byggingu gler- þaks skólans og gerðar eru til gróð- Sérstakt öryggisgler var sett í glerþak Fjöibrautaskólans. urhúsa. Er hér ferðinni rakalaus málflutningur því aht aðrar og miklu meiri kröfur eru gerðar th glers í þakglugga FSU og sambærilegum byggingum hér á landi en gerðar eru til glers í gróðurhúsum. Sem verkfræðingur að umræddu húsi get ég upplýst að húsið er hann- að fyrir mjög mikið jarðskjálftaálag og að sérstakt öryggisgler var sett í glerþak þess sem á að fyrirbyggja að rúður falh niður þótt þær brotni. í glerinu er sérstök plastfilma sem þjónar þessum eina tílgangi. Það er svo annað mál þegar menn vakna upp við vondan draum um aö bæta þurfi öryggi manna í gróður- húsum þar sem gler lýtur ekki ströngum öryggiskröfum, að ráð- leggja þar notkun öryggishjálma. Það hefði hins vegar verið eðhlegt áhyggjuefni Ragnars að sum þessara gróðurhúsa eru rekin sem verslun- arhús. Að lokum vil ég benda bréfritara á að afla sér upplýsinga hjá eigendum hússins um gerð þess og frágang svo hann megi fjall opinberlega um það af eilítiö meiri þekkingu en fram kemur 1 áðumefndu bréfi. Léieg framkoma Gunnar hringdi: Eg get ekki orða bundist eftír að hafa lesið íréttina í DV um lungnasjúklinginn sem fékk ekki að kjósa. Hvers konar þjóðfélag er þetta eiginlega sem við búum í? Því miður veröur að segjast eins og er að framkoma af þessu tagi er ekkert einsdæmi. Fjöl- mörg önnur dæmi mætti nefna ti) sögunnar og reyndar var önn- ur frétt í blaðinu sama dag. Þar sagði frá Þorgeiri nokkrara sem ekki virðist geta fengið feht s-ið úr fóðurnafni sínu. í tiifelh sjúkhngsins var haft samband við Sýslumannsemb- ættið í Reykjavík en þar vísaði hver á annan. Slík viðbrögð eru einmitt alveg dæmigerð fyrir þetta blessaða „kerfi“. Sektið ferðalanga Skattgreiðandi skrifar: Enn eina ferðina eru menn að æða upp á hálendi íslands illa búnir tækjum. Nýjasta „uppá- koman“ af þessu tagi átti sér staö um páskana en þá festí norð- ienskur karlmaður bifreið sina á hálendinu og komst hvergi. Eins og við var búast greip um sig ótti hjá skyldfólki mannsíns og kalla þurfti út leitarmenn. Eftír mikla fyrirhöfn fannst svo ferðalangurinn heiil á. húfi sem betur fer. Eins og við var að bú- ast var hann illa búinn tækjum en með betri útbúnaði heföi hann sparað björgunarsveitarmönn- um ómældan tíma svo ekki sé nú talað um íjármuni. Þetta er ekki fyrsta og öragglega ekki síðasta dæmiö um menn sem eru að asn- ast á hálendinu. Oft hefur verið talað um að grípa þurfi til aðgeröa tíl aö koma i veg fyrir svoná lagað. Að minni hyggju er löngu timabært að gera eitthvað í máhnu og ég legg fram þá tillögu að iha búnir ferðalang- ar verði hreinlega beittir sektum. Það myndi öragglega fá þá til að hugsa sig um tvisvar áður en lagt er af stað. Konurogjám- iðnaður Rafsuðumaður hringdi: Að undanförnu hefur veriö her- ferð í gangi tíi að fá konur tii starfa í járniðnaði. Jafnframt hef- ur komið fram í fféttum að at- vinnurekendur í þessari starfs- grein hafi veriö tregir til að taka konur til starfa. Sem kvenkyns rafsuðumaður verö ég aö vísa þessu síðarnefnda á bug. Ég starfaði viö rafsuðu til margra ára og gekk vel aö fá vinnu. Að vísu gat maður stund- um heyrt ýmsar glósur frá sam- starfsmönnum en ég leiddi allt slíkt hjá mér. Staðreyndin er sú konur þekkja ákaflega htíð til járniðnaðarins en ég get upplýst þær aö starf mitt var t.d. ekki erfiöara heldur en það sem þær sinna í frystíhús- um. Afslátturaf Sigrún hringdi: Eg var heyra að Sjónvarpið yrðí meira og minna undirlagt af handbolta þegar heirasmeistara- keppni verður hér í maí. Sem greiðanda afnotagjaldsins finnst mér að við anti-sportistarnir ætt- um að fá veralegan afslátt i þess- um mánuði. Halldórforsætis- ráðherra Karl hringdi: Framsóknarflokkurmn er sig- urvegarí kosninganna. Þess vegna á Halldór Asgrimsson að verða næsti forsætísráðherra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.