Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 1995 13 Meiming - leikritiö flutt á þýskri tungu Leikhópurinn Islenska leikhúsið er á leið til Berlínar í Þýskalandi þar sem haldnar veröa þrjár sýningar á leikritinu Býr íslendingur hér eftir sögu Garðars Sverrissonar í leikgerð og leikstjóm Þórarins Eyfjörð. Leik- ritið fjallar um líf Leifs Mullers sem lenti í Sachsenhausen útrýmingar- búðum nasista í síðari heimsstyrjöld- inni. Pétur Einarsson leikur Leif og auk hans fer Halldór Björnsson með eitt hlutverk. Leikritið verður flutt á þýsku. íslenska leikhúsið er með fyrstu sýninguna í Maxím Gorkí leikhúsinu í Berlín nk. mánudagskvöld og á miðvikudags- og fimmtudagskvöld í Kulturbrauerei menningarmiðstöð- inni. Sýningamar verða hluti af af- mælisdagskrá í Berlín. íslenska leikhúsið sýndi leikritið á íslandi 1993 og 1994. Upphaf leikferð- arinnar til Berlínar má rekja til þess að danskur maður að nafni Therkel Stræde sá frumsýninguna og hvatti leikhópinn til að skrifa Sachsenhaus- en minningarstofnuninni og segja frá sýningunni. Það var gert og létu við- brögðin ekki á sér standa, að sögn Þórarins Eyfjörð. Boð kom frá stofnuninni um að koma til Berlínar í apríl 1995. Boðiö Pétur Einarsson leikur Leif Muller í sýningu íslenska leikhússins í Berl- ín á leikritinu Býr íslendingur hér og það á þýsku. kom í gegnum íslenska sendiráðið í Berlín með dyggri aðstoð Guðna Bragasonar, starfsmanns sendiráðs- ins. Haft var samband við þekktan þýðanda í Þýskalandi, Maríu Luise von Dulong, sem snaraði verkinu yfir á þýsku. Hilmar Örn Hilmarsson geröi hljóðmynd í sýningunni, Gunnar Borgarsson leikmynd og Elfar Bjamason hannaði lýsingu. vinninga. Vinningarnir eru ferð til Parísar fyrir tvo á vegum Heimsferða, hljómflutningstæki að verðmæti 74.900 frá Takti, 10 hádegisverðir í Lóninu, Hótel Loftleiðum, og 100 Sparihefti . Til þess að taka þátt þarft þú að hafa við höndina plakatið sem fylgdi Sparíhefti heimilanna. Þú hringir í síma 99-1750 og færð uppgefnar spurningarnar við svörunum sem eru á plakatinu. Þú svarar spurningunum 10 og sendir til Sparíheftis heimilanna ásamt 3 „Kalla krónu" límmiðum sem þú færð í hvert skipti sem þú notar Sparíhefti heimilanna. Skilafrestur er til 28. apríl nk. Utanáskriftin er: Sparihefti heimilanna, Skeifunni lla, 108 Reykjavík. Patrich Huse í Hafnarborg: íslensktog norsktfjalla- landslag Sýning á verkum hins þekkta norska listamanns, Patrick Huse, verður opnuð í Hafnarborg á morgun, laugardag. Sýningin ber yfirskriftina Norrænt landslag og stendur til 8. maí. Á henni verða olíumyndir unnar meö blandaðri tækni og litaþrykk. i tengslum við sýninguna fer fram málþing í Hafnarborg 29. apríl um lands- lagsmálverk. Patrick Huse hefur haldið 30 einkasýningar í Noregi og víðar. Kveikjan að verkunum á sýning- unni eru athuganir Patricks á eyðiiegu ijallalandslagi á vestur- strönd Noregs og á íslandi en hann hefur alls komið 9 sinnum til íslands. Auk sýningarinnar í Haínarborg er Patrick staddur hér á landi við undirbúning næstu sýningar sem hann byggir á landsiaginu í Krýsuvík. í sýningarskrá segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur að myndir Patricks séu „kaldhæðn- isleg tilbrigði við kenninguna um „menningarlandslagið", þá hug- mynd aö manneskjan geti nokk- urn timann eignaö sér náttúruna, hvort sem er meö orðum eða gjörðum." Meðal þátttakenda á fyrr- greindu málþingi verða Aðal- steinn, Mikael Karlsson heim- spekingur, Oystein r.oge listfræð- ingur, Folke Edwards, fyrrver- airdi safnstjóri, og Jón Proppé gagnrýnandi. Patrich Huse setur upp verkin sin i Hafnarborg. DV-mynd ÞÖK Frá æfingu leikhópsins Erlends á ieikritinu Kertalogi sem frumsýnt verður á litla sviði Borgarleikhússins nk. þriðju- dagskvöld, á dánardægri höfundar verksins, Jökuls Jakobssonar. DV-mynd ÞÖK Ungir leikarar í leikhópnum Erlendi: Frumsýna Kertalog á dánardægri Jökuls - á litla sviði Borgarleikhússins Leikhópurinn Erlendur frumsýnir nk. þriðjudag leikritið Kertalog eftir Jökul Jakobsson á litla sviði Borgar- leikhússins. Frumsýning ber upp á dánardægur Jökuls en hann lést 25. apríl 1978. Það er Ásdís Þórhallsdótt- ir sem leikstýrir uppsetningu Er- lends. Kertalog var annað af tveimur verðlaunaverkum í samkeppni Leik- félags Reykjavíkur árið 1971 og var frumsýnt þá. Það fjallar um Kalla sem komið hefur verið inni á undar- lega stofnun þar sem bæði lífs og liðnir velta fyrir sér spurningum lífs og dauða, innihaldi tilverunnar og matseðli vikunnar. Verkið lýsir leit mannsins að hamingju í brota- kenndri spegilmynd veruleikans, eins og þau orðuðu það hjá Erlendi. Þeir sem standa að leikhópnum eru ungir leikarar sem allir nema einn hafa lært erlendis. Erlendur var sett- ur á stofn í fyrravor með það að markmiði að vekja athygli á hæfi- leikum þessara efnilegu og ungu leikara. Þau eru Halla Margrét Jó- hannesdóttir, Gísli Ö. Kærnested, Marteinn Arnar Marteinsson, Ragn- hildur Rúriksdóttir, Rannveig Björk Þorkelsdóttir, Sigrún Gylfadóttir, Skúli Ragnar Skúlason og Vilhjálm- ur Hjálmarsson. Bók um dr. Helga Pjeturss Heimspeki- stofa dr. Helga Pjeturss hefur gefið út bók um ævi og Helga. Bókin nefnist Dr. Helgi Pjeturss - Samstilling lífs og efnis i alheimi. Dr. Helgi var jarðíræðingur sem olli aldaskipt- um á sviði jarðfræði. Hann grundvallaöi sérstaka heims- fræði og nefndi hana islenska heimspeki. Bókin sýnir þróun hugmynda hans og rita. Efni bókarinnar hafa safnað Elsa G. Vilmundardóttir jarö- fræðingur, Samúel D. Jónsson rafvirkjameistari og Þorsteinn Þorsteinsson lífefnafræðingur. Að auki eru höfundar efnis Bene- dikt Björnsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Heimspeki- stofu dr. Helga Pjeturss, Björn Þorsteinsson lífeðlisfræðingur og Ólafur HaUdórsson líffræðingur. Páil á Húsafelli teiknaöi manna- myndir í bókina. Bókin er tileink- uð minningu Kristínar G.J. Sig- urðardóttur sem með framlagi sínu gerði útgáfuna mögulega. Bókin er komin i dreifingu í helstu bókabúðir landsins. Leíksýning á lOOáraafmæli Seyðisfjarðar í tilefhi af 100 ára afmæli Seyð- isfjarðar ætlar leikfélag bæjarins að frumsýna nýtt leikrit 29. apríl nk. eftir systumar Iðunni og Kristinu Steinsdætur sem nefnist Aldamótaelexír. Leikstjóri er Ingibjörg Bjömsdóttir. Leikritið bregður upp mannlífsmyndum frá því fyrir aldamótin síðustu, með tónlist frá þeim tíma sem þær systur hafa samið texta við. . íslenska leikhúsið í víking: Býr íslendingur hér til Beriínar STOR ROTTU R Verö kr. 39,90 mínútan Taktu þátt í skemmtilegum leik meö Sparihefti heimilanna og þú getur átt vori á aö vinna glæsilega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.