Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 1995 37 Þröstur Leó Gunnarsson, Sig- urður Karlsson, Jón Hjartarson, Jakob Þór Einarsson, Benedikt Erlingsson, Stefán Sturla Sigur- jónsson og Ari Matthíasson í einu atriði i Dökku fiðrildunum. Dökku fiðrildin Leikfélag Reykjavíkur sýnir í kvöld í Borgarleikhúsinu Dökku fiðrildin. Þetta finnska leikrit er Leikhús spennuleikrit um ástir, framhjá- hald, afbrýði, morð og Qeira. Ju- hani Juhansson er ungur fjár- málamaður sem vinnur hjá bygg- ingafyrirtæki og á von á stöðu- hækkun. Hann hugsar til æsku- áranna, um tildrög þess að þeir bræður voru teknir frá foreldrum sínum og hann kemst síðan að æ meira um fortíð föður síns sem var efnavísindamaður en aðgerð- ir hans ollu undarlegum atburð- um til dæmis vegna mengunar. Leikstjóri er Eija-Ehna Berg- holm. Hún hlaut menntun í leik- hstarskóla og háskóla og var um tíma aðstoðarleikstjóri í sænsku leikhúsi í Helsinki. Eija-Elina hefur stjórnað mörgum upp- færslum á ýmsum verkum eftir finnska og erlenda höfunda, bæði í heimalandi sínu og víða annars staðar. Það er Þröstur Leó Gunnarsson sem leikur Juhani en aðrir leik- arar eru Ari Matthíasson, Bene- dikt Erlingsson, Eyjólfur Kári Friðþjófsson, Guðmundur Ólafs- son, Hanna María Karlsdóttir, Jón Hjartarson, Jakob Þór Ein- arsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Magnús Jónsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður Karlsson, Stefán Sturla Siguijónsson, Steinunn Ólafsdóttir og Theodór Júlíusson. Málefhi kvenna ÍUNESCO í dag hefst ráðstefna um mál- efni kvenna i verkefnaáætlun UNESCO á Hótel Loftleiðum, þingsal 8. Mun hún enda meö borðhaldi annað kvöld. Verkaiýðshreyfingin á nýrri öld X gær var sctt fyrsta sambands þing Samiðnar, sambands iðnfé- laga. 5 Múnaðamési í Borgarfiröi. Verður því framlialdiö i dag og því lýkur á morgun. Alliance Francaise Árshátið AUiance Prancaise verður haldin í kvöld í Akoges- salnum, Sigtúni 3, og hefst hún kl. 20.00. Rithöfundaþing og aðalfundur Rithöfundaþing verður haldið í Norræna húsinu i dag og hefst þaö kl. 13.30. Aðalfundur Rithöf- undasambands íslands verður síöan á sama stað á morgun kl. 13.30. Félagsvist og dans Spiluð veröur félagsvist og dans- að í Félagsheimili Kópavogs á vegum Félags eldri borgara í kvöld kl. 20.00. Gaukur á Stöng: útsetningar sínar á Bítlalögum, má þar nefna Come together sem er eitt nok- kurra Bítlalaga á dagskrá hjá henni. Nýlega gaf hljómsveitin eitt lag, Missi í átakið Samhugur i verki. Hljómsveitin Flugan ér skipuð sex tónlistarmönnum. Þór Breiðfjörð sér um sönginn ásamt Ernu Jónsdóttur, Arngrímur Sigmarsson leikur á gítar, Jósep Gíslason á hljómborö, Pétur Jensson á bassagítar og Sigurvald Helgason á trommur. ■ lu^auopiai mcooiicyi i unn a uauni a oivny invvii í kvöld og annað kvöld mun rokk- sveitin Flugan halda uppi stuöi á Gauki á Stöng. Flugan er tiltölulega ný hljómsveit sem leikur hressilegt rokk og hefur meðal annars vakið at- hygli fyrir líflega framkomu og endur- Verið að moka Stein- grímsfjarðar- heiði Á Vestfjörðum er verið aö moka Steingrímsfjarðarheiði. Hafinn er mokstur á vegum fyrir austan Húsa- vík og með ströndinni til Vopnafjarð- Færð á vegum ar. Einnig er verið að moka Möðru- dalsöræfl og Vopnafjarðarheiði. Austanlands er verið að opna veginn til Borgarfjarðar eystra. Allar aðrar aðalleiðir á landinu eru færar. El Hálka og snjór ® Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir ánjyrirstööö jjj Þungfært (gj Fært fjallabílum Litli drengurinn, sem á myndinni setur upp uppáhaldsbrosið sitt, fæddist á fæðingardeild Landspít- alans li. tnar-s og var þá 14 merkur og 53 sentímetrar. Hann var skirö- ur 8. apríl og hlaut naínið Daði. Foreldrar hans eru Bára Sigfús- dóttir og Nikulás Róbertsson. Dustin Hoffman leikur lækni. í bráðri hættu í bráðri hættu (Outbreak) sem Sam-bíóin sýna hefur verið ein allra vinsælasta kvikmyndin vestanhafs í nokkrar vikur. Það er Dustin Hoffman sem leikur aðalhlutverkið, vísindamann sem fenginn er til að fara til Afr- íku og kanna sögusagnir um að bráðdrepandi veira sem lagt hef- ur heilu þorpin í rúst. Hann sann- færist um að mikil hætta sé á ferðum og vel geti farið svo að Kvikmyndir veiran bærist til Bandaríkjanna. Þegar heim kemur er hann fyrir- varalaus tekinn úr verkefninu án skýringa. Auk Hoffmans leika í myndinni Rene Russo, Morgan Freeman, Donald Sutherland og Kevin Spacey. Leikstjóri myndarinnar er Wolfgang Petersen, sem varð heimsfrægur þegar hann leik- stýrði Das Boot. Petersen hefur síðan starfað að langmestu leyti í Bandaríkjunum og er Outbreak fimmta kvikmyndin sem hann leikstýrir vestra, hinar eru The Neverending Story, Enemy Mine, Shattered og In the Line of Fire. Nýjar myndir Háskólabió: Orðlaus Laugarásbió: Heimskur heimskari Saga-bió: Rikki ríki Bíóhöllin: I bráðri hættu Bíóborgin: Cobb Regnboginn: Pret-a-Porter Stjörnubíó: Bardagamaðurinn Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 95. 21. april 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 63.230 63,410 64,050 Pund 101,530 101.840 102,560 Kan. dollar 46,200 46,390 45,740 ' Dönsk kr. 11,5900 11,6360 11,5070 Norsk kr. 10,1280 10,1680 10,2730 Sænskkr. 8,5160 8,5500 8,7860 Fi. mark 14,6420 14,7000 14,5830 Fra. franki 12,9180 12,9690 12,9790 Belg. franki 2,2131 2,2219 2,2226 Sviss. franki 55,0700 55,2900 55,5100 Holl. gyllini 40,6600 40,8300 40,8500 Þýskt mark 45,5500 45,6800 45,7600 Ít. líra 0,03649 0,03667 0,03769 Aust. sch. 6,4670 6,4990 6,5050 Port. escudo 0.4308 0,4330 0,4349 Spá. peseti 0,5110 0,5136 0,4984 Jap. yen 0,75490 0,75720 0,71890 Irsktpund 103,300 103,820 103,080 SDR 99,29000 99,79000 98,99000 ECU 83,4400 83,7700 83,6900 Simsvari vegna gengisskráningar 623270. Krossgátan 1 F~ 3 •f 5 zr~ T~ 8 ir j r 10 )í Í3 vr rr 15 Wj TT 2/ □ Lárétt: 1 orðrómur, 8 slá, 9 ullarhnoðr- ar, 10 mönduU, ll kústa, 12 högg, 13 lík, 15 riöum, 17 féU, 19 utan, 20 fjötur, 21. tlndi, 22 nýlega. Lóðrétt: 1 beijast, 2 veikina, 3 nálægt, 4 rauðleitur, 5 titill, 6 reið, 7 sefar, 11 götu, 14 kvísl, 16 másandi, 18 Qjótið, 19 fisk. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 svelti, 7 eiði, 8 rak, 10 staða, 11 um, 13 sum, 15 ufsa, 16 snöggt, 18 dryn- ur, 20 loks, 21 ýra. Lóðrétt: 1 sess, 2 vitund, 3 eða, 4 Uðug, . 5 traf, 6 ok, 9 austur, 12 maura, 14 mörk, 16 sýl, 17 gný, 19 ys.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.