Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Síða 43
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995 51 Afrnæli Einar Hjaltason Einar Hjaltason, yfirlæknir Sjúkra- húss Suðurlands á Selfossi, Víði- völlum 6, Selfossi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Einar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá VI1965, embættisprófi í læknis- fræði við HÍ1972 og stundaði nám í skurðlækningum í Stokkhólmi 1975-80. Einar var yfirlæknir við Fjórð- ungssjúkrahúsið á ísafirði 1981-88 og hefur verið yfirlæknir við Sjúkrahús Suðurlands frá 1989. Fjölskylda Einar kvæntist 1.6.1968 Kristínu Einarsdóttur, f. 20.6.1941, læknarit- ara á Heilsustofnun NLFÍ. Hún er dóttir Einars Guðjónssonar, fisksala í Reykjavík, og Margrétar Gunn- laugsdóttur húsmóður. Börn Einars og Kristínar eru Hjalti S. Einarsson, f. 25.9.1968; Trausti Einarsson, f. 28.7.1972, há- skólanemi í Kiel; Sigrún Einarsdótt- ir, f. 11.9.1973, nemi við HÍ; Einar M. Einarsson, f. 23.11.1979; Margrét J. Einarsdóttir, f. 11.1.1984. Systkini Einars, sammæðra, eru Gunnar Salvarsson, f. 1953, skóla- stjóri Heyrnleysingjaskólans í Reykjavík; Anna Þ. Salvarsdóttir, f. 1953, læknir í Reykjavík; Sigurður Þ. Salvarsson, f. 1955, fjölmiölafræð- ingur, búsettur í Kópavogi. Systkini Einars, samfeðra, eru Hrund Hjaltadóttir, f. 1949, kennari í Reykjavík; Hulda Hjaltadóttir, f. 1955, húsmóðir í Mosfellsbæ; Sigur- jón Hjaltason, f. 1965, sölumaður hjá Nýherja í Reykjavík. Foreldrar Einars eru Hjalti Sigfús- son, f. 26.11.1923, bifreiðastjóri í Reykjavík, og Sigrún Einarsdóttir, f. 19.11.1923, húsmóðir í Reykjavík. Ætt Hjalti er sonur Sigfúsar, b. í Háfi í Ásahreppi og síðar í Reykjavík Guðnasonar, b. á Skarði í Land- sveit, bróður Guðbjargar, langömmu Guðlaugs Tryggva Karlssonar hagfræðings og Guð- laugs Bergmanns í Karnabæ. Guðni var sonur Jóns, b. á Skarði, Árna- sonar, b. í Galtafelli, Finnbogason- ar, foðurbróður Jóhanns, langafa Þórðar Friðjónssonar og Margeirs Ingólfssonar. Móðir Jóns var Margrét Jónsdóttir, b. á Ægissíðu, Jónssonar af Víkingslækjarætt. Móðir Guðna var Guðrún Kolbeins- dóttir, b. á Hlemmiskeiði, Eiríksson- ar, ættföður Reykjaættarinnar, Vig- fússonar. Móðir Sigfúsar var Guðný Vigfúsdóttir, b. í Steinstóft, Jóns- sonar og Sesselju Guömundsdóttur. Móðir Hjalta er Jóna Jónsdóttir, verkamanns á Bjalla, Jónssonar og Valgerðar Bjarnadóttur. Sigrún er dóttir Einars Sveins, verkamanns í Reykjavík, Erlends- sonar, b. í Lambhaga, Guðlaugsson- ar. Móðir Sigrúnar er Anna Guð- laug, systir Sigurjóns, fyrrv. póst- og símstöðvarstjóra í Kópavogi. Anna er dóttir Björns, b. á Hryggj- Einar Hjaltason. um í Mýrdal, Björnssonar, b. í Efri- Vík, Jónssonar Guðbrandssonar. Móðir Björns var Anna Bjarnadótt- ir, b. á Ljótarstöðum, Erlendssonar og Hallberu Jónsdóttur. Móðir Önnu var Sigfríður Dagbjartsdóttir, b. í Traðarkoti, Hafliðasonar og Jór- unnar Ólafsdóttur. Einar tekur á móti gestum í Odd- fellowhúsinu á Selfossi, Vallholti 19, ídagmilli kl. 17 og 19. Til hamingju með afmælið 22. apríl. 85 ára Margrét Skúladóttir, Njálsgötu98, Reykjavík. 75 ára Guðrún Trygg vadóttir, Þursstöðum, Borgarhreppi. 60 ára Petra Óladóttir, Miðgarði4, Neskaupstað. 50 ára Sigurbjartur Kjartansson, Líndarseh 3, Reykjavík. Jóhann Magnússon, Móholtil2, Isafirði. Sigrún G. Jónsdóttir, Deildarási 17, Reykjavik. 40 ára Anna Þórdís Grímsdóttir, Vikurflöt2, Stykkishólmsbæ. Þórveig Hulda Bergvinsdóttir, Litluhlíð 4f, Akureyri. Einar Pálmi Árnason, Grænugötu 8, Akureyri. Haraldur Jónsson, Ásbrandsstöðum 2, Vopnafirði. Heimir V. Haraldsson, Laxakvísl 5, Reykjavík. Ingeborg Linda Mogensen, Bræðraborgarstíg47, Reykjavík. Sigríður Ólafsdóttir, Sigtúni27,Selfossi. Hrafnhildur S. Þorleifsdóttir, Ástúni 2, Kópavogi. Jóhannes Arngrímsson, Borgarbrautð, Grundarfirði. Ragna Jóna Sigurjónsdóttir, Blöndubakka 12, Reykjavík. Sigríður Bernharðsdóttir, Seljalflíð 5A, Akureyri. Rannveig Björnsdóttir, Meistaravöllum 7, Reykjavík. Friðgeir Fjalar Viðisson, Hraunholti 3, Gerðahreppi. Rannveig Guðríður Ágústsdóttir Rannveig Guðríður Ágústsdóttir framkvæmdastjóri, Kleppsvegi 48, Reykjavík, er sjötug í dag. Starfsferill Rannveig fæddist á ísafirði en ólst upp í Æðey, Bolungarvík og á ísafirði. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á ísafirði, prófi frá Samvinnuskólanum í Reykjavík, prófi frá lýðháskólanum í Tarna í Svíþjóð, stúdentsprófi frá MA1950, BA-prófi frá heimspeki- deild HÍ1973 og stundaði framhalds- nám í bókmenntum við HÍ1975-78. Rannveig starfaði við Bókaversl- un Jónasar Tómassonar á ísafirði, við KEA á Akureyri, hjá Ludvig Storr og Co í Reykjavík, hjá Iðnaðar- málastofnum í Reykjavík en hefur verið framkvæmdastjóri Rithöf- undasambands íslands frá 1975. Rannveig var ritari Rotaryklúbbs Reykjavíkur 1961-69, alþingisritari 1967-71, ritari Þjóðhátíðarnefndar 1969-74, íslenskukennari við Mynd- hsta- og handíðaskóla íslands 1973-77 og var bókmenntagagnrýn- andÍDV 1977-87. Hún sat í úthlutunarnefnd viðbót- arritlauna 1973-74 og í nefnd um val á verðlaunahafa í bókmenntum vegna menningarverðlauna DV 1978-87. Fjölskylda Rannveiggiftist 27.12.1958Lofti Loftssyni, f. 2.10.1923, efna- og mat- vælafræðingi. Hann er sonur Lofts Loftssonar, útgerðarmanns í Reykjavík, og Ingveldar Ólafsdóttur húsmóður. Dóttir Rannveigar er Valgerður S. Gunnarsdóttir, f. 26.10.1950, sjúkraþjálfari í Kaupmannahöfn, gift Bjarna Danielssyni, fyrrv. skólastjóra Myndlista- og handiða- skólans, nú forstjóra Nordisk Kult- urfond og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. Börn Rannveigar og Lofts eru Guðríður Loftsdóttir, f. 16.8.1959, húsmóðir í Reykjavík, gift Matthiasi Hjálmtýssyni húsasmíðameistara og eiga þau tvö börn; Inga Rósa Loftsdóttir, f. 19.3.1962, listmálari í Reykjavík; Loftur Loftsson, f. 13.2. 1965, kerfisfræðingur í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Bjarnadóttur og eiga þau tvö börn. Systkini Rannveigar: Unnur, f. 29.5.1921, d. 1.5.1924; Helga Kristín, Rannveig Guðríður Ágústsdóttir. f. 5.10.1926, símritari og skrifstofu- stjóri hjá STEF; Guðrún, f. 27.7.1929, talsímakona; Elías Valdimar, f. 17.11.1932, verslunarmaður; Stein- unn Olga, f. 29.7.1935, búkona, forn- bókasali og kennari; Guðmundur, f. 2.2.1939, bankaútibússtjóri; Ás- gerður, f. 12.8.1941, leiðsögumaður; Auður, f. 18.6.1944, bankaritari. Foreldrar Rannveigar voru Sig- urður Ágúst Elíasson frá Æðey, f. 28.8.1895, d. 13.9.1969, kaupmaöur og yfirfiskmatsmaður, og Valgerður Kristjánsdóttir, f. 21.11.1900, d. 29.5. 1963, húsmóðir. Fanný Jónmundsdóttir Fanný Jónmundsdóttir leiðbein- andi, Hraunbæ 64, Reykjavík, varð fimmtugígær. Starfsferill Fanný fæddist á Akranesi en ólst upp í vesturbænum í Reykjavík. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla verknáms, stundaði enskunám í Englandi og ballettnám íParís. Fanný rak heildverslun með snyrtivörur, starfrækti eigin versl- un í sautján ár, verslunina Fanný og auk þess verslunina Bazar, var verslunarstjóri hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar í íjögur ár, var verkefnisstjóri og leiðbeinandi hjá Stjórnunarfélagi íslands en starfrækir nú ýmis námskeið á eigin vegum, s.s. námskeiðin Leiðina til árangurs, Phoenix-námskeiðið og Brian Tracy International þjónustu- og sölunámskeið. Fjölskylda Fyrrv. eiginmaður Fannýjar var Valdimar H. Jóhannesson, f. 28.7. 1941, framkvæmdastjóri. Hann er sonur Jóhannesar Bjömssonar, læknis í Reykjavík, og Guðrúnar N. Holmhúsmóður. Börn Fannýjar og Valdimars eru Jóhannes Hergils Valdimarsson, f. 18.8.1966, rafmagnstæknifræðing- ur; Guðrún Hergils Valdimarsdótt- Fanný Jónmundsdóttir. ir, f. 23.2.1973, nemi í viðskiptafræði við HÍ; Gréta Hergils Valdimarsdótt- ir,f. 14.12.1976, nemi. Dóttir Fannýjar og Jóns Magnús- sonar lögfræðings er Sigrún Fanný Jónsdóttir, f. 13.2.1985. Systkini Fannýjar era Jóhanna K. Jónmundsdóttir Plader, starfar við lögfræðistofu í Reykjavík; Guö- mundur K. Jónmundsson, læknir og sérfræðingur í barnalækningum og krabbameinslækningum við Landspítalann; Þórey R. Jónmunds- dóttirflugfreyja. Foreldrar Fannýjar: Jónmundur Guðmundsspn, sem nú er látinn, og Aðalheiður Ólafsdóttir. Fanný tekur á móti vinum, vel- unnurum og vandamönnum með opnun eigin myndverkasýningar á Næstu grösum í dagkl. 15.00-17.00. Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir, Smáratúni 20, Selfossi, er áttræð í dag. Starfsferill Sesselja Sumarrós fæddist í Víði- nesi á Kjalarnesi en flutti meö for- eldrum sínum í Seljatungu í Gaul- verjabæjarhreppi vorið 1919. Auk barnaskólanáms, fjögurra vetra far- kennslu á Sviðugörðum og í Gaul- veijabæ var hún í Húsmæðraskóla Suðurlands á Laugarvatni 1942-43 og lærði á saumastofu í Reykjavík. Sesselja vann fyrst á búi foreldra sinna og var síöan víða í vist. Hún vann oft í mötuneyti Kaupfélags Árnesinga á Selfossi á veturna en á búi foreldra sinna á sumrin. Þá var hún ráðskona á Laugardælabúinu 1943-47, húsfreyja á Geldingalæk 1948-49 og í Seljatungu 1949-73 er þau hjónin fluttu á Selfossi þar sem hún vann við matreiðslu hjá Sjúkra- húsiSelfoss 1973-85. Fjölskylda Sesselja giftist á sumardaginn fyrsta 1948,22. apríl, Vigfúsi Einars- syni, f. 5.9.1924. Hann er sonur Ein- ars Sigurðssonar, verkamanns og b., fyrst á Gljúfri í Ölfusi, síðar á Helli, og k.h., Pálínu Benediktsdótt- urhúsfreyju. Börn Sesselju og Vigfúsar eru Ein- ar Páll, f. 3.11.1948, verkamaður í Gaulverjabæ; Siguröur, f. 17.8.1950, þjónn í Reykjavík. var kvæntur Hrönn Sverrisdóttur en þau skildu og eru böm þeirra Sesselja Sumar- rós, f. 10.2.1977, Jónína Eirný, f. 2.6. 1981, Árný Ösp og Vigfús Snær, f. 24.8.1982; Ingibjörg, f. 19.5.1956, út- gerðartæknir í Reykjavík, gift Olafi Jónssyni á Eyrarbakka en dóttir þeirra er Halla, f. 24.2.1978. Systkini Sesselju: Sigríður, f. 11.4. 1912, húsfreyja á Sviðugörðum, var gift Guðmundi Sigurðssyni, b. þar sem lést 1987; Þorsteinn, f. 21.4.1913, nú látinn, húsasmiður á Selfossi, var kvæntur Guðrúnu Valdimars- dóttur; Jón, f. 12.3.1916, bifvélaeftir- litsmaður á Selfossi, kvæntur Sig- ríði Guðmundsdóttur; Laufey, f. 25.10.1917, d. 30.9.1976; Magnea Kristín, f. 13.8.1921, húsfreyja á Sel- fossi, var gift Ólafi Nikulássyni sem lést 1987; Guðjón Helgi, f. 26.11.1922, bankamaður á Selfossi, var kvænt- ur Margréti Valdimarsdóttur sem lést 1982; Einar Gunnar, f. 16.7.1924, skrifstofumaður á Selfossi, kvæntur Vilhelmínu Valdimarsdóttur. Foreldrar Sesselju voru Sigurður Einarsson, f. 24.3.1884, d. 10.3.1951, Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir. b. í Seljatungu, og k.h., Sigríður Jónsdóttir, f. 4.7.1883, d. 27.12.1970, ljósmóðir. Ætt Sigurður var sonur Einars, b. á Holtahólum, Sigurðssonar og k.h., Guðrúnar Eiríksdóttur, b. á Brunn- um, Einarssonar. Sigríður var dóttir Jóns, b. á Kala- stöðum á Hvalíjarðarströnd, Þor- steinssonarogk.h., Sesselju Jóns- dóttur, hreppstjóra í Kalastaðakoti, Sigurðssonar. Sesselja verður ekki heima á af- mælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.